Alþýðublaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 11
Föstudagur 31. desember 1993
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 11
Atvinnan
Með nýju ári gengur í
garð Fjölskylduár Samein-
uðu þjóðanna. Okkur ber
því fremur en nokkru sinni
fyrr að setja kastljósið á
málefni fjölskyldunnar, að-
búnað hennar og mögu-
leika í íslensku þjóðlífi. í
félagsmálaráðuneytinu
hefur undirbúningsstarf
fyrir ár fjölskyldunnar
meðal annars falist í störf-
um nefndar um mótun op-
inberrar stefnu í fjölskyldu-
málum. Alþýðuflokkurinn
hefur einnig komið á fót
málefnahópi um fjöl-
skyldumál sem einum liði í
undirbúningi flokksþings
síðar á þessu ári.
Efnahagsþrengingar,
samdráttur í atvinnulífinu
og þar með fjárhagsörðug-
leikar víða á heimilum hafa
leitt í ljós veikleika í okkar
velferðar- og félagsmála-
kerfi. Einn þáttur þess eru
fordómar varðandi félags-
lega aðstoð tengda atvinnu-
leysi.
Margt hefur áunnist
Með rammalöggjöf um
félagslega þjónustu sem
sett var fyrir tveimur til
þremur árum varð almenn-
ur réttur til félagslegrar
þjónustu sveitarfélaga lög-
bundinn og var það mikill
áfangi þar sem áður giltu
gömul framfærslulög í
landinu. Hjálp til sjálfs-
hjálpar hefur verið mark-
mið þeirra sveitarfélaga
sem fengið hafa góðan orð-
stír fyrir félagslegar áhersl-
ur. Þegar langvarandi at-
vinnuleysi, eða mikill sam-
dráttur í afkomu lendir á
fjölskyldu, verða úrræðin
mögur og sjálfsvirðing
þverr. Þó það sé mikilvægt
að taka á þeim ágöllum
sem okkar félagsmálakerfi
hefúr leitt í Ijós er þó allra
mikilvægast að gera allt
sem hægt er til að efla at-
vinnulífið í landinu. Við-
varandi atvinnufeysi á Is-
landi er meinsemd sem
stjómvöld verða að leggja
alla áherslu á að afstýra.
Breytt skattalög
Miklar breytingar á
skattalögum voru gerðar í
lokarispunni á Alþingi fyrir
jól. Meðal annars er um að
ræða framhald á breyting-
um sem hófust með afnámi
aðstöðugjalds og lækkun
skatta á fyrirtæki í fyrra.
Sveitarfélögin fá aukna
hlutdeild í tekjuskattinum,
þannig að þau mega hækka
útsvar í allt að 9,2 prósent.
Samhliða fá þau heimild til
að leggja sérstakan fast-
eignaskatt á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði. í fram-
haldi af kjarasamningum
og sem sáttargjörð á vinnu-
markaði er virðisaukaskatt-
ur lækkaður á matvælum
auk þess sem tekjuskattur
hækkar um 0,35 prósent í
stað fýrirhugaðs trygginga-
gjalds. Lækkun tekjuskatts
samtals á móti útsvars-
hækkun nemur 1,15%. Bif-
reiðagjöld hækka og vöru-
gjöld eru lögð á í stað af-
náms landsútsvars á olíufé-
lögin svo stiklað sé á helstu
breytingum.
Þessar aðgerðir í heild
þýða frá sjónarhóli ríkis-
valdsins, lækkun skatta um
1,8 milljarða króna þó þar
komi á móti ýmsar aðgerð-
ir svo sem lækkun vaxta-
bóta. Skattamir lækka því
um rúman núlljarð í heild
og það eykur kaupmátt ráð-
stöfunartekna heimilanna
um hálft prósent.
Tilgangur skattabreyt-
inga er meðal annars að
bæta stöðu fyrirtækja og
gera þau samkeppnishæf-
ari.
Er hagur fyrirtækja
okkar hagur?
Þegar kom fram á síð-
ustu daga kosningabarátt-
unnar í Noregi í september
síðastliðinn, fjölluðu ffétta-
skýrendur óháðs dagblaðs
um stöðu Hægri fiokksins
gagnvart Verkamanna-
flokknum. Þeir töldu Hægri
flokkinn myndu bíða af-
hroð í kosningunum meðal
annars vegna þess að
Verkamannaflokkurinn
væri þegar búinn að ffam-
kvæma þá skattapólitík
sem Hægri flokkurinn
hefði ávallt boðað, að for-
svarsmenn stórfyrirtækja í
Noregi hefðu lýst því yfir
að þeir vildu Gro Harlem
áffam við stjómvölinn
vegna skilnings hennar á
þörfum atvinnulífsins, að
þegar Verkamannaflokkur-
inn væri að búa í haginn
fyrir lítil og meðalstór fyr-
irtæki svo þau gætu
blómstrað og veitt fleiri at-
vinnutækifæri þá ætti
Hægri flokkurinn litla
möguleika. Þetta gekk eftir
í kosningunum og Verica-
mannaflokkurinn sýndi að
hann hafði axlað hlutverk
sem máttarstólpi atvinnu-
lífsins samhliða því að vera
áfram sameiningarafl
launafólks. Þetta var glæsi-
legur sigur.
Hjá okkur hafa hags-
munir atvinnulífs og hags-
munir launþega oft verið
hin andstæðu öfl. Ég er
sannfærð um að breyta þarf
viðhorfum í þessum efn-
um. Ríkisstjómin hefúr létt
sköttum af atvinnulífinu
með afnámi aðstöðugjalds,
sem reyndar ætti að skila
sér í lægra vömverði en
ella, og hún hefur lækkað
tekjuskatt fyrirtækja. Það
sem réttlætir þessa gjörð er
einmitt viljinn til að efla
hag fyrirtækja, afstýra
gjaldþrotum og stuðla að
auknum möguleikum á
vinnumarkaði, það er vinna
bug á atvinnuleysi.
Opinberar aðgerðir til
atvinnueflingar
f fréttabréfi Verðbréfa-
- stærsta fjölskyldumálið
Aukin tækifæri
Ég hef í þessum pistli
mínum lagt þunga áherslu á
aðgerðir til eflingar at-
vinnuiífsins en hef þó enn
ekki nefnt lækkun vaxta
sem er mikil hagsbót jafn
fyrirtækja og heimilanna í
landinu. Mér hefúr þótt
mikilvægt að draga fram
vilja ríkisstjómarinnar til
að búa í haginn fyrir at-
vinnulífið. Ég ætla þó eng-
an veginn að draga úr
ábyrgð fyrirtækjanna
stafarúr tíl að auka atvinnu
náðu fram að ganga. Fjár-
hæðin sem þar var deilt um
nam þó einungis 0,2%
landsframleiðslu. Til sam-
anburðar samsvömðu
kjararáðstafanir ríkisstjóm-
arinnar síðastliðið vor
0,8% af landsframleiðslu.“
Þetta em staðreyndir sem
minna þarf á. Það er fuU
ástæða til að fólk áttí sig á
hve mikilvægar aðgerðir
vom gerðar tíl að efla at-
vinnu og spoma gegn yfir-
vofandi auknu atvinnuleysi
á árinu. Sérstök framlög
vom veitt tíl atvinnuskap-
andi verkefna fyrir konur,
eða um 60 milljónum til
viðbótar þeim 15 sem á
fjárlögum var veitt til at-
vinnuaðgerða fyrir konur á
landsbyggðinni. Þó marg-
falt hærri upphæðir hafi
farið tíl stærri fram-
kvæmdaverkefna verður að
hafa í huga að slíkum verk-
efnum fylgja jafnffamt
þjónustuþættír sem konur
vinna að. Ég nefni þetta
sérstaklega vegna ásakana
um að stjómvöld með at-
vinnustefnu sinni vilji ýta
konum af vinnumarkaði og
aftur inn á heimilin.
fyrir meiri afla og betri af-
komu markvissar og sam-
hæfðar. Starfsmenntun í at-
vinnulífinu, styrkveitingar
til atvinnumála kvenna,
stuðningur við ýmsar at-
vinnugreinar og tíl þróunar
þeirra, átaksverkefnin,
framlög til atvinnumála úr
Atvinnutryggingasjóði og
fleira mætti, nefna, allar
slíkar aðgerðir hafa sama
markmið en koma úr ólfk-
um áttum og jafnvel mörg-
um ráðuneytum. Það er
ástæða tíl að skoða hvemig
best er hægt að tíyggja yfir-
sýn og farsæla ffamkvæmd
þessara mála og hvort til
dæmis er kominn tími til að
setja á laggir sérstaka at-
vinnumálastofnun.
Mikilvægasta
fjölskyldustefnan
Á erfiðum tímum hefúr
margt áunnist í þeim þátt-
um sem ég flokka undir
fjölskyldustefnu. Þar nefni
ég byggingu 500 félags-
legra íbúða á ári fjölgun
íbúða fyrir aldraða, bættan
hag fatlaðra með tilkomu
nýrra laga um þeirra mál-
efiú, lagasetningu um mál-
efni bama og unglinga og
tílflutningur málaflokksins.
til félagsmálaráðuneytis en
þar hefur þegar verið kom-
ið á meðferðarheimili fyrir
vegalaus böm og böm sem
lent hafa í afbrotum. Þegar
litið er fram á veg er mikil-
vægt að stjómarflokkamir
hafa náð samkomulagi um
húsaleigubætur og að ljóst
er að aukin verkefni verða
flutt til sveitarfélaga.
Hin fyrirbyggjandi verk-
efni og ábyrgðin á aðbún-
aði fjölskyldunnar liggur
fyrst og fremst hjá sveitar-
félögunum. Þess vegna er
mikilvægt að efla þau og fá
þeim sjálfstæða tekjustofna
og aukin verkefni, í því
liggur meðal annars efling
fjölskyldustefnu. En það
sem er allra mikilvægast
hverri íjölskyldu er að hafa
bolmagn til að sjá sér og
sínum farborða, sjálfsvirð-
ingin. Þess vegna er mikil-
vægasta fjölskyldumálið,
atvinnan.
Höfundur er varafor-
maður og þingflokksfor-
maður Alþýðuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks
íslands.
viðskipta Samvinnubank-
ans í haust gat að líta eftir-
farandi klausu: „Án efa er
fátítt í nálægum löndum að
jafn afdrifaríkar ákvarðanir
séu teknar í ríkisfjármálum
og hér á landi eftir að inn á
fjárlagaárið er komið. I
þessu sambandi nægir að
rifja upp að mikið gekk á í
Bandaríkjunum fyrr á
þessu ári áður en tillögur
Clintons forseta um ráð-
sjálfra. Þó mörg þeirra
þurfi stuðning þá em önnur
öflug og staða þeirra bætist
enn við þær aðgerðir sem
ég hef bent á. Þeúra ábyrgð
verður að bættur hagur
komi launþegum til góða
og að stöndug fyrirtæki taki
þátt í nýrri atvinnuupp-
byggingu og fjölgi störfúm
á vinnumarkaði.
Ný tækifæri bjóðast í
viðskiptum við Evrópu
með tílkomu EES á næsta
ári og á árinu 1995 opnast
enn frekar möguleikar í al-
þjóðaviðskiptum með sam-
komulaginu um GATT.
Þjóðhagsspáin sem kynnt
var fyrir jól gaf tilefni til
meiri bjartsýni en þær fyrri.
Þó ljóst sé að næsta ár verð-
um við áffarn í efnahags-
legum öldudal þá er útlit
ÁRAMÓTAPISTILL - RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR SKRIFAR