Alþýðublaðið - 31.12.1993, Side 12
12 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Föstudagur 31. desember 1993
ÁRAMÓTAPISTILL - SIGURÐLR PÉTURSSON SKRIFAR
ÁRALAG VH) ÁRAMÓT
Jafnaðarmenn á Islandi
sigla nú inn í ár sveitar-
stjómakosninga, Mikil-
vægt er því að Alþýðu-
flokkurinn sýni með skýr-
um hætti fyrir hvað hann
stendur og fyrir hveiju
hann berst. Markmiðið um
réttlátara samfélag byggt á
jöfnuði, samhjálp og
mannúð er enn sem fyrr sí-
gilt. Viðfangsefnin em
hins vegar síbreytileg eftir
því sem þjóðfélagið þróast
og breytist.
Flokkur launamanna
og neytenda
Alþýðuflokkurinn hefur
setið í ríkisstjóm síðustu
ár, fyrst með Framsókn og
Alþýðubandalagi en nú
upp á síðkastið með Sjálf-
stæðisflokknum. Mörgum
af stefnumálum flokksins
hefur þokað fram á við.
Þar ber hæst umbætur í
viðskipta- og efnahags-
málum, afnám einokunar
og bindingar á útflutningi
og aðild Islands að Evr-
ópska efnahagssvæðinu.
Þama hafa jafnaðarmenn
stýrt málum og náð árangri
með hagsmuni neytenda
að leiðarljósi.
Jafnaðarmenn hafa enn-
fremur stýrt félagsmálum
þannig að sómi er að. Þar
hefur tekist að veija mikil-
vægustu útgjaldaþætti til
þeirra sem minnst mega
sín og ná fram stórfelldum
umbótum í húsnæðismál-
um (og nú hillir undir eitt
helsta baráttumál síðustu
kosninga, húsaleigubæt-
ur). Með þessu hafa jafn-
aðarmenn sýnt að þeir
standa undir nafhi sem
bijóstvöm almennings
gegn öryggisleysi og
ójöfnuði í samfélaginu.
Þessu skulu menn ekki
gleyma þegar orrahnð
kosninga stendur fyrir dyr-
um. Alþýðuflokksmenn
um allt land þurfa ekki að
sitja undir spjótalögum
andstæðinga vegna fram-
göngu sinna manna í þess-
um málaflokkum. Enginn
annar flokkur getur státað
af betri ffammistöðu eða
skýrari stefnu að þessu
leyti.
Árangur flokksins í öðr-
um málaflokkum hefur
ekki verið jafn góður eða
óumdeildur. Stýrimenn
heilbrigðismála hafa sætt
mikilli gagnrýni fyrir að-
gerðir sínar til spamaðar.
Oftlega hefur sú gagnrýni
verið brennd marki yfir-
boða og stundarhagsmuna,
en þó verður að segja að
oft hefði betur mátt fara í
undirbúningi og útfærslu
mála á því sviði.
Skömmtunarkerfi
eða kvótakerfi
I hálfa öld hafa tveir
stjómmálaflokkar stjómað
mestu í atvinnumálum
landsmanna, ffamsóknar-
og sjálfstæðismenn, enda
hafa þessir flokkar setið í
öllum ríkisstjómum annar
eða báðir allan þennan
tíma. Síðasta áratuginn
hafa þessir flokkar (oft
með hjálp Alþýðubanda-
lagsins) njörvað helstu at-
vinnuvegi landsins í fjötra
skömmtunarkerfis með
kvótum, braski og pólitísk-
um hrossakaupum.
Skipulag landbúnaðar-
mála er komið í þrot.
Bændur em almennt hættir
að veija það, nema örfáir
stórbændur sem hafa allt
sitt á þurru og svo skrif-
stofubændumir í Hótel
Sögu. Sífellt aukinn niður-
skurður hefúr neytt bænd-
ur í auknum mæli til ólög-
legrar sölu framhjá kerf-
inu, en með því er að sjálf-
sögðu verið að grafa undan
ríkjandi skipulagi. Nú við-
urkenna flestir að stefna
Alþýðuflokksins sem mót-
uð var fyrir þrem áratugum
sé hin eina rétta. Það þarf
að létta ofstjóm og yfir-
byggingu af landbúnaðin-
um, leyfa bændum að sjá
sjálfir um sölu sinna af-
urða, undir eðlilegu heil-
brigðiseftirliti, án afskipta
ríkisins. Þannig mun ís-
lenskum bændum nýtast
best þekking og atorka sín
í eigin þágu.
Ekki er skipulag sjávar-
útvegsins mikið skárra.
Þar hefur ríkisvaldið út-
hlutað útgerðarmönnum
sameiginlega auðlind
þjóðarinnar, fiskistofnana,
til ráðstöfúnar. Nokkrir
tugir útgerðarmanna hafa
stórhagnast á braski með
veiðiheimildir í skjóli
vemdar frá sjávarútvegs-
ráðhenum ffamsóknar og
sjálfstæðismanna, án þess
að sjómenn, verkafólk eða
þjóðin hafi þar nokkuð um
að segja. Álþýðuflokkur-
inn kom að vísu í veg fyrir
að hringnum væri alger-
lega lokað utan um smá-
bátaeigendur, en betur má
ef duga skal. Afnám
kvótakerfisins í fiskveið-
unum er eitt mikilvægasta
baráttumál jafnaðarmanna
nú um stundir. Þar verður
Alþýðuflokkurinn að setja
sér skýra stefnu og krefjast
þess að forræði þeirra mála
verði fært úr höndum
LÍÚ-gengisins og málpípa
þeirra í ráðherrastól.
Ungt fólk
til áhrifa
Samband ungra jafnað-
armanna hefur starfað öt-
ullega undanfarið ár, og er
vel búið undir átök kom-
andi missera við undirbún-
ing kosninga og flokks-
þings á næsta ári. Til starfa
í sambandinu hefur síðustu
tvö árin komið stór hópur
ungs fólks með brennandi
áhuga á þjóðmálum, tilbú-
ið að leggja á sig vinnu og
erfiði til að efla áhrif jafn-
aðarstefnunnar hér á Iandi.
Þessi hópur hefur vaxið úr
100 manns í 800 á þremur
árum.
Það er mikilvægt fyrir
lýðræðishefðir og þing-
ræðisskipulag að stjóm-
málaöfl laði til sín ungt
fólk til þátttöku í pólitískri
umræðu og ákvarðana-
töku. SUJ hefur haft frum-
kvæði að umræðu um hlut-
verk ungs fólks í stjóm-
málum, leitast við að
tryggja sjálfstæði sitt í
starfsháttum og stefnumál-
um og náð að efla áhrif sín
innan flokksins og í samfé-
laginu.
Ungir jafnaðarmenn
munu áffam sem hingað til
vera öflugir málsvarar
jafnaðarstefnunnar, launa-
fólks og neytenda í þessu
landi, undir merkjum Al-
þýðuflokksins - Jafnaðar-
mannaflokks Islands.
Jafnaðarmönnum öll-
um óska ég árs og friðar.
Höfundurer
formaður
Sambands
ungra jafnaðarmanna.
OUUFÉLAGH) HF
óskum við
landsmönnum
öllum
og þökkum
samstarf og
viðskipti á
liðnum árum
aAA/