Alþýðublaðið - 03.03.1994, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
TIÐIMDI
Fimmtudagur 3. mars 1994
Út er komin bókin „Réttindi og skyldur á
vinnumarkaði“, eftir Láru V. Júlíusdóttur
lögfræðing hjá Alþýðusambandi ísiands:
HAGNÝT BÓK
fyrir launafólk og
vinnuyeitendur
ÞAÐ VAR tími til
koniinn að á niarkað-
inn kæmi bók eins og sú
sem Lára V. Júlíusdótt-
ir, lögfræðingur hjá Al-
þýðusambandi íslands,
hefur skrifað og nú er
komin á markað. Mikil
þörf er fyrir upplýsing-
ar á einum stað eins og
þær sem fram koma í
bók Láru.
Alþýðusamband ís-
lands hefur gefið bókina
út og gert það af'ar mynd-
arlega. Hér er um að ræða
handbók, sem launþegar,
vinnuveitendur, lögfræð-
ingar og fólk sem starfar
við starfsmannahald fyr-
irtækja, mun án efa nýta
sér vel.
Bókin fjallar um þær
reglur sem gilda í sam-
skiptum starfsmanna og
atvinnurekenda. FjaJlað
er um ráðningu til starfa,
skyldur atvinnurekenda
og starfsmanna, orlof,
aukahelgidaga, lífeyris-
sjóði og tryggingar, sjúk-
dóma og slys, fæðingar-
orlof. atvinnuleysisbæt-
ur, breytingar á ráðning-
arkjörum. uppsagnir.
brottrekstur úr staifi og
reglur sem tengjast gjald-
þrotum fyrirUekja svo
nokkuð sé nefnt.
Bókin er 280 blaðsíður
og skiptist í þrjá megin-
kafla: Upphaf ráðningar,
réttindi og skyldur stiufs-
manna og lok ráðningar.
Bókin fæst hjá Menning-
ar- og fræðslusambandi
alþýðu. Bókin kostar að-
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjan verður á sunnudaginn með yfirskriftinni:
TrÚ, von &
KÆRLEIKUR
LÁRA V. JÚLÍUSDÓTTIR er höfundur handbókar-
innar „Rctiindi og skyldur á vinnumarkaöisem
launþegar, vinnuveitendur, lögfneðingar ogfólk sem
starfar við starfsmannahald fyrirtœkja, mun án efa
nýta sér vel.
eins 1200 krónur fyrir fé-
laga í Alþýðusamband-
inu.
Láru hefur tekist að
skila efninu á máli sem
verður öllum auðskiljan-
legt, ekki á hinu illræmda
kerfismáli sem fæstir
botna mikið í.
Þegar bókin er skoðuð
kemur ýmisfegt lróðlegt í
Ijós. Við skulum grípa
niður í kafla um fæðing-
arorlof og kanna réttindi
kvenna sem fara í glasa-
fijóvgun:
„Á seinni árum hefur
það færst í vöxt að konur,
sem ekki hafa getað átt
böm, hafa undirgengist
gervifijóvgun, svokall-
aða glasafrjóvgun. Til að
byrja með voru þessar
aðgerðir eingöngu fram-
kvæmdar erlendis en nú
eru þær framkvæmdar
hér á landi. Vinnutap
vegna glasafrjóvgunar er
oftast ekki nema örfáir
dagar. I kjarasamningum
opinberra starfsmanna og
samningum starfsmanna
sveitarfélaga em bókanir
um það að 15 vintiudagar
em greiddir jregar konur
undirgangast glasa-
fijóvgun. Aðeins er
heimilt að greiða starfs-
manni laun á þessum for-
sendum einu sinni. Ekki
er að frnna sambærileg
ákvæði í kjarasamning-
um á almennum vinnu-
markaði.
Þar sem frávera vegna
glasafrjóvgunar getur
ekki talist vera sjúkdóm-
ur f merkingu laga um
sjúkdóma og slys ber at-
vinnurekíinda ekki
skylda til að greiða starfs-
manni launatap vegna
frávem jægar sjálf
frjóvgunin á sér stað.
Leiði þungunin hins veg-
ar til sjúkdóma og frá-
veru í tengslum við þá,
gilda almennar reglur um
rétt bamshafandi kvenna
tíl greiðsfna í veikindum.
Barnshafandi konur eiga
með öðrum orðum sama
rétt til greiðslna í veik-
indum, hvort sem þung-
unin er afleiðing af
tæknifrjóvgun eða ekki.
Hér má geta þess að
margir sjúkrasjóðir
verkalýðsfélaga greiða
konum bætur vegna frá-
vem vegna glasafrjóvg-
unar", segir Liíra Júlíus-
dóttir um þetta tiltekna
og forvitnilega atriði.
ÆSKULÝÐSDAGUR
Þjóðkirkjunnar er
sunnudagurinn 6. mars.
Haldið er upp á hann í
flestum kirkjum og söfn-
uðum landsins. Yfirskrift
dagsins er TRÚ, VON og
KÆRLEIKUR.
Æskulýðsdagurinn er
haldinn til að minna á
bama- og unglingastarf
kirkjunnar. Hann er jafn-
framt einskonar uppskem-
dagur starfsins sem unnið
hefur verið með bömum
og unglingum frá því í
haust.
Æskan, hennar hæfileik-
ar og viðfangsefni, em í
fyrirrúmi í helgihaldi og
samkomum kirkjunnar á
æskulýðsdaginn. Meðal
annars verður sjónvarpað
æskulýðsmessu í Selja-
kirkju að morgni æsku-
lýðsdaginn.
Iðnaðarmenn á opnum fundi
með Sighvati í kvöld:
Ógnvænleg staða
IÐNAÐARINS RÆDD
SAMIÐN, samband iðnfélaga, gengst fyrirfundi í
kvöld til að rœða vandamál iðnaðarins. Þar mun
Sighvatur Björgvinsson, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, gera grein fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í
málefnum iðnaðarins.
Á UNDANFÖRNUM
7 árum hafa íslensk út-
gerðarfélög látið smíða,
gera við og endurnýja
skipakost sinn fyrir 42
milljarða króna, - aðeins
14 milljarðar hafa orðið
eftir í íslensku þjóðfélagi.
Staðreynd er að aðrar
þjóðir hafa undirboðið
íslenskar skipasmíðar,
sem hefur leitt til gífur-
legs samdráttar í þessari
iðngrein, þannig að nú
eru flest íslensk fyrirtæki
í skipasmíðaiðnaði með
greiðslustöðvun eða jafn-
vel gjaldþrota. Skuldir
fyrirtækjanna nema um
einum milljarði króna.
d!!!b
tít
Samiðn
Ástandið í íslenskum
húsgagnaiðnaði er ekki
björgulegra. Þar er inn-
flutningurinn að ganga að
honum dauðum. Sama má
segja um byggingaiðnað á
Islandi. Staðan hjá mörg-
um iðngreina okkar er
sannarlega ógnvænleg.
Sighvatur Björgvinsson
hefur hinsvegar tekið til
hendinni í iðnaðarráðu-
neytinu og vill búast til
vamar fyrir íslenskan iðn-
að.
Samiðn, samband iðnfé-
laga, gengst fyrir fundi í
kvöld klukkan 20 að Suð-
urlandsbraut 30 til að ræða
vandamál iðnaðarins. Þar
mun Sighvatur Björgvins-
son, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, gera grein fyrir
stefnu ríkisstjómarinnar í
málefnum iðnaðarins.
Ráðherrann mun svara fyr-
irspurnum fundarmanna
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
að lokinni framsöguræðu
sinni.
Auk atvinnumálanefnd-
ar Samiðnar, boða átta fé-
lög til fundarins, en þau
eru: Félag jámiðnaðar-
manna; Bíliðnafélagið;
Nót, sveinafélag netagerð-
armanna; Félag blikk-
smiða; Málarafélag
Reykjavíkur; Trésmiðafé-
lag Reykjavíkur; Félag
byggingariðnaðarmanna í
Hafnarfirði; og Félag garð-
yrkjumanna.
Laugardagskaffi
Kvennalistans
í LAUGARDAGS-
KAFFI Kvennalistans 5.
mars verður fjallað um
sögu Kvenréttindafélags
Islands. Gestir verða Sig-
ríður Th. Erlendsdóttir
og Björg Einarsdóttir.
Sigríður Th. er höfundur
mtim
bókarinnar Veröld sem ég
vil - saga Kvenréttindafé-
lags íslands 1907-1992, en
Björg valdi myndimar í
bókina.
Laugardagskaffi
Kvennalistans er að
Laugavegi 17, II. hæð, og
hefst klukkan 11. Þangað
em allir velkomnir.
ÆSKULÝÐSDAGURINN verður haldinn á sunnudaginn kemur íflestum kirkjum og
söfnuðum landsins.