Alþýðublaðið - 04.03.1994, Síða 10

Alþýðublaðið - 04.03.1994, Síða 10
10 ALÞÝÐUBLAÐIÐ LANDB UNAÐARBLAÐ Fðstudagur 4. mars 1994 INGVAR HELGASON: Skemmtileg Búvélasýning ÞAÐ VAR ekki illa til fundið, að efna til búvélasýningar af þeirri reisn sem þeir hjá Ingvari Helga- syni gerðu. HÁTÍÐ í BÆ var hún kölluð. Ekki var aðeins boðið upp á sýningu á hinum íjölmörgu vélum og tækjum sem Ingvar Helgason er umboðsmaður fyrir, en stóran hluta þeirra fékk hann þegar Sambands- fyrirtækið Jötunn hætti störfum, heldur var bætt um betur. I húsakynnum Ingvars bauð Goði upp á matvælakynningu. Osta og smjörsalan Bitmhálsi gekkst einnig fyrir kynningu á starfsemi sinni þar. I Reiðhöllinni voru síðan haldnir Norðlenskir hestadagar 1, 2, 3, 4 og 5 mars þar sem íslenski hesturinn var tengdur atburðum úr íslandssögunni. I Perlunni var boð- ið uppá tískusýningar og snyrti- vörukynningu. Til þess að gera sem flestum kleift að njóta þess sem uppá var boðið náði Ingvar Helga- son umtalsverðum afslætti á flugi og gistingu hjá Flugleiðum. Og í tengslum við þetta allt Sam- an var Ingvar Helgason með um- fangsmikla og skemmtilega bú- vélasýningu að Sævarhöfða 2 dag- ana 1-3 mars... Þar vom sýndar vélar frá þeim framleiðendum sem Ingvar Helgason hefur umboð fyrir. Meðal þeirra tækja sem mátti sjá þama fyrir utan hinn langreynda og sígilda MASSEY FERGUSON, vom meðal annars jarðvinnslutæki frá KVERNELAND, CLAAS hey- vinnsluvélar, TRIMA ámokstur- tæki og er þá fátt eitt nefnt. Athygli vakti hversu mikinn áhuga menn sýndu plógum og herf- um þeim sem vom þama til sýnis og sýndi það manni að þrátt fyrir erfitt árferði er ekki að finna mikinn bilbug á ræktunarmönnum þessa lands. Þegar útsendari Alþýðu- blaðsins kom á staðinn var þröng í kringum sölumann. Miðað við þann fjölda sem var kominn á sýn- inguna, auðsjáanlega fólk allstaðar að, skildist að ekki hefði verið svo illa til fundið að hafa svo knappan tíma á sýningunni. Stemmningin, mannlífsflóran og hraði umferðar- innar í kringum vélar og tæki minnti einna helst á þá lýsingar sem STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS Laugavegi 120,105 Reykjavík Sími 91-25444 Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1995 þurfa að berast Stofn- lánadeild landbúnaðarins fyrir 15. september næstkomandi. Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni, þar sem meðal annars er tilgreind stærð og byggingarefni. Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar og búrekstrarskýrsla, svo og veðbókarvottorð. Þá skal fylgja umsókn búrekstraráætlun til 5 ára og koma þarf fram hverjir væntanlegir fjármögnunarmöguleikar umsækjenda eru. Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á árinu 1995 þurfa að senda inn umsóknir fyrir 31. desember næstkomandi. Það skal tekið fram að það veitir engan forgang til lána þó framkvæmdir séu hafnar áður en lánsloforð frá deildinni liggur fyrir. Sérstök athygli er vakin á því að Stofnlánadeild landbúnaðarins er óheimilt lögum samkvæmt að fara á eftir öðrum veðhöfum en opinberum sjóðum. Lán- takendum er sérstaklega bent á að tryggja sér veðleyfi vegna væntanlegrar lántöku frá lífeyrissjóðum öðrum en Lífeyrissjóði bænda og öðrum þeim aðil- um, sem eru með veð í viðkomandi jörð. /y§Á BÚNAÐARBANKIÍSLANDS f ftj STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS JÚUUS VIFILL og GUÐMUNDUR A INGVARSSYNIR ásamtföngulegum hestakonum. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Ævaforn FARMALL hefur hér eignast aðdáanda. Nútímalegri vélar í baksýn. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólasonn PAÐ VAR mikið spáð og spjallað á Búvélasýningu Ingvars Helgasonar. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason maður hefur haft af svoköll- uðu kamivali. Alþýðublaðið ræddi laus- lega við Guðjón Hauk Hauksson milli stríða en hjá honum var í mörg horn að líta. Erlendir fulltrúar voru þama að kynna þau tæki sem þeim tilheyrðu og þurfti Guðjón oft að grípa inn í þegar að flóknari út- skýringum kom. Þrátt fyrir þann almenna samdrátt sem orðið hefur í þjóðfélaginu lét Guðjón Haukur vel af sölu búvéla og fylgihluta og sagði þá hjá Ingvari Helga- syni vera ánægða með sinn hlut. Endumýjun dráttarvéla hefur verið of lítil undanfarin ár svo það muni fljótlega koma að því að menn verði að endumýja vélar sínar. Rúllubaggaþróunin hafi síðan orðið til þess að æ aflmeiri vélar verði ráðandi á maikaðnum og það knýi ekki síst á unt þá endurnýjun sem verði á næstunni. Sú áhersla sem þeir hjá Ingvari Helgasyni hafa lagt á að koma vara- hlutum sem fyrst til kaupenda hefur skilað sér í jákvæðu viðmóti ánægðra viðskiptavina. Arngrímur Pálmason sem leiddi útsendara Alþýðublaðsins um sal um stund minntist einnig á þetta og lagði áherslu á það atriði að varahlutaþjónusla væri það sem mestu máli skipti því sumarið væri ekki það langt hér á landi. Er óhætt að segja að þetta er ríkjandi viðhorf innflytjenda í dag. Viðskiptavinur- inn hefur nú efni á þvf að gera kröf- ur og hinn almenni bóndi er ekki eins bundinn sinni gömlu tegund og hann var hér áður. Æskilegt hefði verið að gera þeim tækjum sem boðið er uppá nákvæmari og betri skil en tíminn og plássið, þið vit- ið... Þetta var frábær sýning hjá Ing- vari Helgasyni.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.