Alþýðublaðið - 04.03.1994, Side 12
12 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
LANDBUNAÐARB LAÐ
Föstudagur 4. mars 1994
Aðalfundur
1994
Skeljungur hf.
Shell einkaumboö
Aðalfundur Skeljungs hf. verður
haldinn þriðjudaginn
15. mars 1994 í Átthagasal
Hótel Sögu, Reykjavík, og hefst
fundurinn kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.
16. grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga um greiðslu10% arðs.
3. Tillaga um útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa, er nemur 10%
hlutafjár.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og
reikningar félagsins munu liggja
frammi á aðalskrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn
verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins Suðurlandsbraut 4, 6.
hæð, frá og með 8. mars til
hádegis á fundardag, en eftir
það á fundarstað.
Samvinnuháskólinn
Rekstrarfræði
Rekstrarfræðideild
Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum miðar að því að
rekstrarfræðingar séu undirbúnir til forystu-, ábyrgðar-
og stjórnunarstarfa í atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eða við-
skiptabrautum eða lokapróf í frumgreinum við Sam-
vinnuháskólann eða annað sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, viðskipta og
stjórnunar, svo sem markaðsfræði, fjármálastjórn,
starfsmannastjórn, stefnumótun, lögfræði, félagsmál og
fleira.
Námstími: Tveir vetur, frá september til maí. Námið er
lánshæft hjá LÍN.
Frumgreinadeild
Nám til undirbúnings rekstrarfræðanámi.
Inntökuskilyrði: Umsækjandi skal hafa lokið lánshæfu
sérnámi, svo sem iðn-, vél-, stýrimanna-, bænda-, hótel-
og veitingaskóla og fleira.
Námstími: Tveir vetur, frá september til maí. Námið er
lánshæft hjá LÍN.
Undirbúningsnám
Nám til undirbúnings rekstrarfræðanámi.
Inntökuskilyrði: Að minnsta kosti þriggja ára almennt
framhaldsskólanám eða sambærilegt nám.
Námstími: Einn vetur, frá septembertil maí.
Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir á Bifröst,
ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði og fleira.
Barnaheimili og grunnskóli nærri.
Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætluð um
40.000,- krónur á mánuði næsta vetur.
Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnuháskólans á
Bifröst. í því skal geta persónuupplýsinga, upplýsingar
um fyrri skólagöngu með afriti skírteina og um fyrri störf.
Tvenn meðmæli fylgi. Þeir umsækjendur ganga fyrir,
sem eru orðnir eldri en 20 ára og hafa öðlast reynslu í at-
vinnulífinu. Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl nk. og
síðan eftir því sem skólarými leyfir.
Samvinnuháskólinn, Bifröst, 311 Borgarnes,
sími 93-50000, bréfasími 93-50020.
HEKLA:
Fjölþætt Viðskipti
IIA UKUR HA UKSSON.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
FORRÁÐAMENN
Heklu hafa gætt þess að
vera ekki með öll eggin í
sömu körfunni. Stunda
þeir .fjölþætt innflutn-
ingsviðskipti og þarf
ekki annað en horfa frá
bíladeild VOLKSWAG-
-EN og MITSUBISHI að
innflutningi hinna fjöl-
mörgu véla frá CÁT-
ERPILLAR bæði til sjós
og lands. Ekki er þó ætl-
an að skoða það úrval,
heldur líta á WECK-
MAN stálgrindahús þau
sem innflutningsdeild
Heklu býður uppá.
Offjárfestingardæmi
okkar í steinsteypu eru
alltof mörg og full
ástæða til þess að nýta
enn betur þá möguleika
sem stálgrindahúsin
bjóða uppá, en gert hefur
verið til þessa. WECK-
MAN stálgrindahúsin
frá Finnlandi voru þau
einu sem ég sá að höfðu
fengið vottorð frá Rann-
sóknastofnun bygginga-
iðnaðarins. Á tímum
umræðna um innflutning
á misjöfnu málmefni er
vottorð frá Rannsókna-
stofnun byggingaiðnað-
arins trygging sem ekki
er hægt að ganga fram-
hjá.
Auðvitað fer ekki á
milli mála að fleiri stál-
grindahús uppfylla
gæðastaðal Rannsókna-
stofnunarinnar en þetta
blasti við í því plaggi
sem ég hafði undir hönd-
um. Lá því beinast við
að hafa samband við
Innkaupadeild Heklu og
þar tók Haukur Hauks-
son á móti mér með allar
þær upplýsingar sem
leitað var eftir.
Sem dæmi um hið
ijölþætta notagildi
WECKMAN stálgrinda-
húsanna má nefna hlöð-
ur, hesthús, vélageymsl-
ur, iðnaðarhúsnæði,
gripahús, smærri véla-
geymslur og eða bílskýli
og svo mætti lengi telja
(1 stykki reiðhöll var
reist í Húnavatnssýslu!).
Húsin er hægt að fá í
þremur breiddum, það er
11 metra 14 metra og 20
metra breiddum.
Lengd þeirra og vegg-
hæð fer svo eftir þörfum
hvers og eins, verðlagið
er spennandi en 228 fer-
metra hús með 2,20
metra vegghæð kostar
um það bil 1250 þúsund.
Sé húsið með 4,20 metra
vegghæð hækkar verðið
í um það bil 1545 þús-
und. Þegar ntaður gerir
sér grein fyrir að fer-
metrinn í þessum húsum
kostar í kringum 6 þús-
und þá er málið meir en
umhugsunarvert... Verð
þessi eru með virðis-
aukaskatti og lækka því
sem honum nemur hjá
þeim sem eiga rétt á frá-
drætti.
Verð húsanna er án
uppsetningar og það sem
fylgir er eftirfarandi.
Stálfestingar sem steyp-
ast í sökkul, burðarvirki
með festingum, timbur í
þak og vegglektur (2x7 í
þak og 2x6 í veggi), bolt-
ar fyrir timbrið, þak og
veggstál (litað stál með
PVC húð), saumur til að
festa stálið (12 stykki á
fermetrann), kjölur,
vindskeiðar og homlist-
ar. Að sjálfsögðu fylgja
svo leiðbeiningar um
uppsetningu og innifalið
í verði er uppskipun í
þeirri höfn sem næst er
kaupanda.
I framhaldi af umræð-
um um WECKMAN
húsin fórum við út í aðra
sálma og uppgötvuðum
til dæmis að innkaupa-
deild Heklu hefur flutt
inn sturtuvagna frá sama
fyrirtæki sem hafa kom-
ið mjög vel út. Á síðasta
ári voru 20 stykki seld
hér innanlands, en vagn-
amir em fáanlegir bæði
sem einnar hásingar og
tveggja hásinga. Einnar
hásingar vagnamir bera
5 til 6 tonn en tveggja
hásingavagnamir bera
frá 8,5 til 14 tonn. Verð
án virðisaukaskatts er
um það bil 289.000 þús-
und á 6 tonna sturtu-
vagninum en verðið á
8,5 tonna sturtuvagnin-
um án virðisaukaskatts
er um það bil 380.000.
Svona í framhjáhlaupi
em stálgæðin ST-52-3,
vagnamir eru tvílakkaðir
og rauðir með svörtum
botni.
ÞÓR: ,
Vandaðar Velar
AGÚST og BJARNI lijá Þór bjóða uppá vandaðar vélar á hagstœðu verði miðað við gœðin.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
ÞAU ERU allmörg ár-
in síðan Þór hf. tók við
umboði FORD dráttar-
véla, sala þeirra hefur
verið með ágætum enda
reynslan af þeim góð.
Verð þeirra hefur að vísu
ekki verið í lægri kantin-
um en það er á fleira að
líta en þær krónur sem
látnar em af hendi í byrj-
un. Árið 1988 bættist svo
við dráttarvélaúrvalið
hjá Þór en þá urðu þeir
umboðsmenn fyrir
DEUTZ dráttarvélar.í
gegnum tíðina hafa þeir
hjá Þór boðið uppá ótrú-
legt magn fylgihluta sem
snerta búrekstur beint
sem óbeint. Einnig er
boðið uppá mikið úrval
búnaðar sem hægt er að
tengja við dráttarvélar.
Þar má nefna hey-
vinnslutæki allskonar,
jarðvinnslutæki, svo og
dælur og rafstöðvar.
Þetta hefur orðið til þess
að styrkja fyrirtækið á
markaðnum en einsog
sagði þá hafa vélamar
kallað á nokkum stofn-
kostnað.
Ef við lítum á verðið
sem er á 30-línunni frá
FORD þá er verðið á
FORD 4630 Q með 61
hestafla vél 1.805.000
krónur án virðisauka-
skatts. Verðið á FORD
5030 Q 4x4 er með 70
hestafla díselvél er
2.250.000 krónur án
virðisaukaskatts.
Ef við lítum á verð
DEUTZ vélanna þá er
það sem hér segir:
DEUTZ AGRO Xtra
4,17 4x4 kostar
2.595.000 krónur en vél-
in er 78 hestöfl. DEUTZ
AGRO Xtra 6,17 sem er
með 6 cylindra loftkæld-
um díselmótor og 113
hestöfl, kostar 3.180.000
krónur án virðisauka-
skatts.
Auðvitaðererfitt sam-
an að jafna því misjafnt
er lagt í þessi tæki. Svo
maður læði sér í líkinga-
mál þá aka sumir á
Chevrolet en aðrir vilja
Cadillac en þetta er nú án
ábyrgðar. Vélarnar em á
sérstaklega stómm
dekkjum og gerir það að
verkum að flot þeirra er
meira og því minni
þyngd sem hvílir á tún-
inu þegar ekið er.
Bjarni Björnsson hjá
Þór sagði mér frá því að
nú væm fáanleg LOW
PROFILE dekk undir
dráttarvélamar. Þessi
dekk kalla á breiðari
felgur, en með aukinni
stærð dráttarvéla er
nauðsynlegt að dreifa
þyngd þeirra á sem mest-
an flöt. Þar sem áður
þurfti að hafa 12-14
pund í dekki dugar að nú
að hafa 6- 8 pund í þess-
urn nýju dekkjum. Gall-
inn er sá að verð þeirra er
slfkt að vélamar verða
50-100 þúsund krónum
dýrari en ella. Kosturinn
er þó óumdeilanlegur
því fyrir utan þá vernd
sem þau veita túninu
virka þau það vel í ófæm
að þar sem þurl'ti að setja
undir keðjur ösla vélam-
ar nú áfram átakalaust.
Rúllubaggaþróunin
hefur kallað á æ stærri
vélar, og þar með á
ámoksturstæki sem
nauðsynleg eru, og enn
er kallað á aukna orku.
Þess verður varla langt
að bíða að bændur líti
ekki við vélum undir 80
hestöflum og það 4x4.
Þeir hjá Þór bjóða nú
upp á pökkunarvél sem
hægt er að hengja aftan í
rúllubaggavélina og
nægir því ein vél í stað
tveggja dráttarvéla áður.
Pökkunarvélin er tölvu-
stýrð og svo létt að vinna
með að einn maður á
einni vél kemst af með
að bagga og pakka.
Með aukinni notkun
ámoksturstækja hefur út-
lit dráttarvélanna breyst
nokkuð. Ford hefur
mjókkað vélamar að
framan svo hægt sé að
fylgjast með ámoksturs-
tækjunum og hafa að
auki unnið það að snún-
ingsradíus hefur minnk-
að. En þeir hjá DEUTZ
hafa látið vélarhlífina
síga niður á framan og ná
með því að fylgjast betur
með tækjunum.
Fyrir utan pökkunar-
vélina til að hengja aftan
í rúllubaggavélina, vél
hlýtur að verða framtíð-
arþing, vöktu meðal ann-
ars athygli mína þær raf-
stöðvar sem boðið er upp
á hjá fyrirtækinu. Þær er
hægt að tengja við drátt-
arvél stöðvamar. Vélarn-
arem 1 fasafrá6,5 KVA
og kostar án virðisauka-
skatts 52.129 krónur og
að 15 KVA sem kostar
án virðisaukaskatts
105.823 krónur.