Alþýðublaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 8
8 ALÞYÐUBLAÐIÐ
Föstudagur 29. apríl 1994
________________1 ♦ MAÍ____________________
1. maí ávarp Alþjóðasambands ftjálsra verkalýðsfélaga:
10 mínútna símtal innanbæjar um
helgar kostar aðeins
PÓSTUR OG SÍMI
Sjé nánar í símaskránni bls. 9.
„I dag, 1. maí, sameinast launa-
fólk og samtök þess um heim allan
um að vetja rétt sinn til að lifa og
starfa með reisn, til að stunda vinnu
og btia við mannsæmandi starfs- og
lífskjör. Launafólk vill njóta friðar,
frelsis og lýðræðis, og berjast gegn
atvinnuleysi og fátækt um allan
heim.
I meira en áratug hafa þjóðir
heims þuift að þola blekkingarleik
helstu boðbera nýfrjálshyggjunnar
og óheftrar auðhyggju. Þeiira sem
hafa þakkað sér sígurinn yfir
kommúnismanum og hafa haft
áhrif á ríkisstjómir og alþjóðlegar
fjármálastofnanir til að reka rang-
Iáta efnahagsstefnu. Efnahags-
stefnu sem stríðir gegn þeim ávinn-
ingum sem náðst hafa með meira
en aldarlangri baráttu verkalýðs-
hreyfingarinnar. I meira en tíu ár
hafa þessir aðilar reynt að koma
sökinni af kreppunni í efnahagslífi
heimsins á samtök launafólks, í
iðnríkjunt og þróunarlöndum. Þeir
hafa jafnframt beitt öllum brögðum
til að sundra okkur og veikja sam-
stöðu alþjóðlegrar verkalýðshreyf-
ingar.
Afleiðingar nýfrjálshyggjunnar
og taumlausrar auðhyggju verða
stöðugt augljósari og átakanlegri.
ii
Afleiðingar nýfrjálshyggjunnar og taumlausrar auðhyggju
verða stöðugt augljósari og átakanlegri. Þriðjungur vinnufærs
fólk í heiminum hefur enga möguleika til að sjá sér farborða
með atvinnu. í iðnríkjunum eru 35 miiljónir launamanna at-
vinnulausir og þessi tala mun hækka enn frekar fram til ársins
2000. í þróunarlöndunum eru 750 milljónir manna án at-
vinnu. Þriðjungur íbúa heimsins hefur einn dollara á dag sér
til framfæris. Meðal helstu fórnarlamba þessara mannlegu
hörmunga eru konur. Það er ekki síst vegna viðvarandi mis-
réttis sem þær verða fyrir á vinnumarkaðinum og í samfélag-
inu öllu.“
wRegul
BESTU
ÐEKKJAKA UP/N
Fólksbíla dekk - Sumar-heilsárs dekk
Glæsiieg Sport-King jeppadekk
P155/BOR13 Staðgr.verö 2.895,- P205/75R15 Staðgr.verð 5.690,-
P165/BOR13 3.195,- P215/75R15 5.890,-
P175/BOR13 3.495,- P225/75R15 5.990,-
P185/BOR13 3.795,- P235/75R15 6.290,-
P185/75R14 4.395,- 30X9.5R15LT 8.950,-
P205/75R14 4.695,- 31X10,50R15LT 9.900,-
Ný amerísk
gæöadekk
sem standast
staðla EB
Óúýr -ðrugg
Sendum í póstkröfu um allt land.
Pantanir í síma 91-71550 og 91-77885, fax 91-670101.
Þverárseli 8,
Reykjavík
Þriðjungur vinnufærs fólk í heimin-
um hefur enga möguleika til að sjá
sér farborða með atvinnu. I iðnríkj-
unum era 35 milljónir launamanna
atvinnulausir og þessi tala mun
hækka enn frekar fram til ársins
2000. I þróunarlöndunum eru 750
milljónir manna án atvinnu. Þriðj-
ungur íbúa heimsins hefur einn
dollara á dag sér til framfæris. Með-
al helstu fórnarlamba þessara
mannlegu hörmunga era
konur. Það er ekki síst
vegna viðvarandi misréttis
sem þær verða fyrir á
vinnumai'kaðinum og í
samfélaginu öllu.
Þessi stefna hefur haft
sínar pólitísku afleiðingar.
Þrátt fyrir að kalda stríðinu
sé lokið eru viðsjár víða
um heim. I Afríku er verið
að tefja þróunina í átt til
lýðræðis. Þar hefur alþýða
manna orðið að taka af-
leiðingum aðgerða í anda
nýffjálshyggjunnar, frá
hendi Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. I Suður-Ameríku hef-
ur miklum vesti í efna-
hagskerfinu verið hamp-
að. Þær tölur dylja hörmu-
legar staðreyndir; bilið
milli ríkra og fátækra hef-
ur vaxið og fjöldi þeirra
sem búa við algera neyð
héfur aukist með ógnvekj-
andi hraða. I Asfu hafa al-
ræðisstjómir tekið ný-
frjálshyggjunni tveim
höndum. Þær hafa beitt
henni fyrir sig til að spoma
gegn breytingum í lýð-
ræðisátt. Þannig hafa þær
barist gegn grandvallar-
mannréttindum og rétti
verkafólks til að bindast
samtökum.
I þeim löndum þar sem
verkafólk bjóð við áþján
kommúnismans hefur
bylgja óheftrar auðhyggju
raglað fólk í ríminu. Hing-
að til hafa þeir hagnast
mest á pólitísku umskipt-
unum, sem áður töldust til
helstu gæðinga flokksræð-
isins. Þeir hafa nú gerst
ákaftr talsmenn taum-
lausrar auðhyggju. I iðn-
ríkjunum lengjast raðir at-
vinnulausra stöðugt og
þeim öflum vex fylgi sem
boða kynþáttafordóma og
fasisma, sem helst minna á
tíma sem mannkynið þarf
vonandi aldrei aftur að
upplifa.
Frjáls og lýðræðisleg
verkalýðshreyfing hefur
verið, er og verður ómiss-
andi afl í baráttunni gegn
misréttinu. A síðasta ári
voru hundruðir talsmanna
verkalýðshreyfingarinnar
af báðum kynjum drepnir
fyrir að rísa upp gegn arð-
ráni og kúgun og krefjast
réttlætis. Þúsundir karla og
kvenna hafa verið fangels-
aðar og fjölmargir pyntað-
ir en aðrir hafa verið
neyddir í útlegð. ,
Við sýnum þessum písl-
arvottum best þakklæti
okkar með því að halda
áffam baráttu þeirra af
endurnýjuðum þrótti:
★ Við megum aldrei
láta blekkjast af þeim öfl-
um sem reyna að sundra
samstöðu launafólks í
hverju landi fyrir sig.
★ Við megum ekki láta
blekkjast af þeim öflurn
sem reyna að sá sundr-
ungu meðal verkafólks í þróunar-
löndunum og iðnríkjunum. Okkar
svar verður að byggjast á alþjóð-
legri samstöðu verkalýðshreyfing-
arinnar. Örlög þeirra milljóna sem
búa á fátækustu svæðum jarð-
kringlunnar ættu að vera okkur öll-
unt efst í huga. Lausn á vanda þess
fólks og baráttan fyrir rétti þess er
mikilvægur liður í alþjóðlegri bar-
áttu samtaka launafólks.
★ Við megum ekki láta blekkjast
af þeim sem undir yfirvarpi bættrar
samkeppnishæfni era í reynd að
stuðla að því að auka samkeppni
meðal launafólks innbyrðis á milli
landa. Þar sem markmiðið er að
skapa víxlverkun launalækkana,
lakari kjara og samdráttar í félags-
legri þjónustu. Þannig er markmið-
ið að draga úr eftirspum. En aukin
eftirspum er einmitt forsenda þess
að sigur vinnist á fátækt og atvinnu-
leysi.
★ Við megum aldrei gefast upp.
Við verðum að reyna allt sem við
getum til að ná til þeirra milljóna
sem standa utan verkalýðshreyfing-
arinnar, þeirra sem ekki njóta réttar-
ins til að ganga í verkalýðsfélög og
þeirra sem ungrar eftir samstilltri
baráttu gegn kúguninni.
★ Við verðum að tryggja að
sjálfsögðum kröfum okkar verði
fylgt eftir ef fjendur okkar halda
áfram að hunsa þær. Þá munu millj-
ónir launamanna mynda órofa heild
óháð landamæram, á grundvelli
sömu viðhorfa og lífsgilda um
frjálsa, lýðræðissinnaða og öfluga
verkalýðshreyfingu.
Ávarp okkar að þessu sinni er til-
einkað þeim sem búa við ómann-
eskjulegar og hrottalegar aðstæður
vegna styrjalda, hungursneyðar og
örbirgðar.
Ávarp okkar í dag á l. maí er
ákall til launafólks og samtaka þess
um heim allan um að sameinast
undir merkjum, alþjóðlegrar,
frjálsrar og lýðræðislegrar verka-
lýðshreyfingar, í baráttunni fyrir
betri heimi.”
Alþýðublaðsmyndir/Einar Ólason