Alþýðublaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 11
Föstudagur 29. apríl 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 11 Sigurður Pétursson sagnfræðingur skrifar: PÓSTHÚSSTRÆTI, verkamenn vinna við malbikun um 1920. Tillagan var samþykkt og kaus félagiöþá Ottó N. Þor- láksson og Olaf Friðriksson í nefndina. Málið hlaut skjótar undirtektir í hinum félögun- um, og undirbúningsnefndin var komin á fulla ferð í nóv- ember. I nefndinni áttu sæti auk fulltrúa Dagsbrúnar: Fyr- ir Hásetafélagið, Guðleifur Hjörleifsson og Jónas Jóns- son frá Hriflu. Frá verka- kvennafélaginu Framsókn, Jónfna Jónatansdóttir og Karólína Simsen. Frá prent- urum Guðjón Einarsson og Jón Þórðarson, og fulltrúar bókbandssveina voru Þor- JÓNAS JÓNSSONfrá Hriflu á yngri árum. leifur Gunnarsson og Gísli Guðmundsson. Aðalverkefni neíhdarinnar varð að stofna Alþýðusam- band íslands (og þar með Al- þýðuflokkinn). Stofnþing þess kom saman í mars 1916. Áður en að því kom stóð nefndin að sameiginlegum framboðsmálum verkalýðsfé- laganna í Reykjavík. Endur- skoðendur bæjarins kosnir Endurskoðunarmenn bæj- arreikninga voru kosnir í al- mennum kosningum á þess- um árum og í árslok fór fram kosning tveggja endurskoð- enda. Blaðið Dagsbrún til- kynnti um framboð „sam- starfsnefndar alþýðufélag- anna“ þann 11. desember 1915. Mælti blaðið ákveðið með „tveimur reikningsffóð- um mönnum, þeim Pétri Lá- russyni úr Prentarafélaginu og Birni J. Blöndal úr Há- setafélaginu". Blaðið hvatti alþýðumenn til að styðja sinn lista, og bættí við „hafið kon- umar með ykkur þegar þið farið að kjósa". Verkalýðsfé- lögin komu að öðmm mann- inum, og hefur það án efa aukið mönnum þor til að tak- ast á við næsta verkefni. Stefnumálin: Mjólk og kol Kosning fimm bæjarfull- trúa fór ffam í ársbyijun 1916, eins og áður sagði. Samstarfsnefndin setti fram lista verkalýðsfélaganna við kosninguna, og birtí stefnu- skrá hans. Helstu stefnumál vom: Úrbætur í húsnæðis- málum, að bærinn gerði út togara, að bærinn starffækti kúabú (til að mæta mjólkur- skorti sem hijáði böm verka- fólks) og að bærinn tæki að sér einkasölu á kolum (en sagt var að kaupmenn not- færðu sér kolaskort til að okra á kolunum). Þá var lagt til að bærinn hætti að selja lóðir í bæjarlandinu, og að lagður yrði verðhækkunar- skattur á eignarlóðir við höfnina. í þessari stefnuskrá komu ffam mörg þau mál sem Alþýðuflokkurinn barð- ist fýrir í bæjarstjóm næstu árin. Ekkert útsvar, ekkert atkvæði „Alþýðulistinn" var skip- aður Jóni Bach formanni Há- seta- félagsins, Jörundi Brynjólfssyni formanni Dagsbrúnar og Ágústi Jós- efssyni prentara og varafor- manni Dagsbrúnar. Það kom hins vegar í ljós, að Jón Bach hafði af einhverjum orsökum ekki verið á skrá yfir útsvars- gjaldendur í Reykjavík árið 1915, og hafði því hvorki kjörgengi né kosningarétt, eins og lögin vom þá, jafnvel þótt hann hefði greitt útsvar á árinu. Jörundur var því fluttur upp í fyrsta sætið, en Krist- ján V. Guðmundsson gjald- keri Dagsbrúnar settur í það þriðja. Arið 1915 hafði kosninga- lögum til Alþingis verið breytt þannig að skattgreiðsl- ur vom ekki lengur skilyrði fyrir kosningarétti, en reglum um kosningar til bæjarstjóm- ar hafði ekki enn verið breytt, er þama var komið sögu. Samstaða til sigurs Listi alþýðufélaganna hlaut flest atkvæði þeirra er buðu fram og kom að öllum þremur fulltrúunum, en Heimastjómarmenn (íhaldið á þeim tíma) fengu hina tvo. Úrslitin urðu því mikill sigur JÓN BACH formaður Hásetafé- lags Reykjavíkur. fyrir verkalýðsfélögin. Annars urðu úrslitin þessi: Alls kusu 2028, en 36 gerðu ógilt: Verkalýðsfélögin - 911 atkvæði og 3 fulltrúar, Heimastjómarmenn - 634 at- kvæði og 2 fulltrúar, Ýmis góðgerðarfélög - 204 at- kvæði, Sjálfstæðismenn - 163 atkvæði og Kaupmanna- listi - 80 atkvæði. Niðurstöðuna mátti að hluta þakka stuðningi þver- summanna úr Sjálfstæðis- flokknum gamla (róttækir þjóðfrelsismenn), en Jömnd- ur og Ágúst vom báðir fram- arlega í flokki þeirra og svo hins vegar sundmngu borg- araaflanna. Aðalástæða úr- slitanna var að sjálfsögðu samstaða þeirra sem stóðu að framboði verkalýðsfélag- anna. Sannast þar enn að samstaðan dugar til sigurs. Helstu heimildir: Dagsbrún, blað jafnaðarmanna 1915-16, Tíu ára starfssaga Sjómanna- félags Reykjavíkur eftir Pétur G. Guðmundsson og Funda- gerðabókASÍ 1915-18. Borgarstjórnarkosnipgar standa nú fyrir dyrum. Bú- ist er við umskiptum í stjórn borgarinnar að lokn- um kosningum. Góðar lík- ur eru á að meirihluta Sjálfstæðisflokksins verði hnekkt með sameiginlegu átaki jafnaðarmanna, sam- vinnumanna, kvenna og frjálslyndra kjósenda. Stór- tíðindi munu gerast í stjórnmálalífi höfuðstaðar- ins 28. maí 1994. í tilefni af því skulum við nú líta aftur í tímann og rifja upp stór- tíðindi í stjórnmálum Reykjavíkur sem gerðust fyrir næstum níu áratug- um. Áriðer 1916. Ijanúarmán- uði eru haldnar kosningar til bæjarstjómar Reykjavíkur. Þar gerist það að framboðs- listí „alþýðufélaganna" fær þijá bæjarfulltrúa af þeim fimm sem kosið er um. Ekki náðist þar með meirihlutí í bæjarstjóminni, því aðeins var kosið um þriðjung bæjar- stjómarinnar í einu. Þá, eins og nú, sátu 15 full- trúar í bæjarstjóm, þó íbúar Reykjavfkur væm um 15 þúsund. I bæjarstjóm var kosið til sex ára, þannig að þriðjungur fulltrúa var kjör- inn annað hvert ár. Hefði listi verkalýðsfélaganna því þurft að vinna þrennar kosningar á sex áram til að ná meirihluta í borgarstjóm, en ekki gekk það eftir. En hvemig stóð á því að listi „alþýðufélaganna" náði meirihluta bæjarfulltrúa í kosningunum árið 1916? Ólafur og Jónas stofna félag Heimsstyijöldin fyrri er í algleymingi og áhrif hennar á Islandi farin að segja til sín með siglingatregðu og vöra- skorti. Verðlag á helstu nauð- synjum heimilanna hefur hækkað mjög, en kaupið hef- ur ekki hækkað að sama skapi. Verkalýðsfélögin í Reykjavík eru í miklum upp- gangi. Jafnaðarmenn hafa náð forystu í verkalýðsfélög- unum og áhrif þeirra aukast. Haustið 1914 var Verka- kvennafélagið Framsókn stofnað og formaður þess varð Jónína Jónatansdóttir. ÓLAFVR FRIÐRIKSSON íham. Starfaði það við hlið Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar sem áður var komið tíl. Það vora einmitt Dagsbrúnar- menn vora helstu bakhjarlar nýs vikublaðs sem hóf göngu sína í Reykjavík sumarið 1915. Blaðið hét Dagsbrún, blað jafnaðarmanna. Ritstjóri var Olafur Friðriksson, kaupmannssonur frá Akur- eyri, þá nýfluttur til bæjarins. Blaðið boðaði aukin áhrif al- þýðu á stjóm landsmála og bæjarmála. Hásetar á toguram höfðu ekki átt sér neitt félag. Haust- ið 1915 komu nokkrir úr þeirra hópi að máli við Olaf Friðriksson og hófu undir- búning félagsstofnunar. At- hygli vakti annar maður sem stóð að stofnun félagsins með sjómönnum. Það var ungur menntamaður, sem kenndi við Kennaraskólann og skrif- aði blað ungmennafélaganna, Skinfaxa. Hann var Jónas Jónsson frá Hriflu. Ólafur Friðriksson sat í fyrstu stjóm Hásetafélags Reykjavíkur sem stofnað var í október 1915, en Jónas frá Hriflu var einn af endurskoð- endum félagsins. Formaður hins nýja félags var Jón Bach háseti. Auk þessara félaga störf- uðu tvö iðnaðarmannafélög í bænum, Hið íslenska prent- arafélag og Bókbandssveina- félag Reykjavíkur. Öll þessi félög stóðu að framboðinu íjanúar 1916. Sameiginleg nefnd félaganna Upphafið að samstarfi fé- laganna má rekja til félags- fundar í Dagsbrún skömmu eftir stofnun Hásetafélagsins, þar sem samþykkt var eftir- farandi tillaga: Fundurinn óskar eftir að samband komist á milli Dagsbrúnarfj, Hásetafjelags- ins, verkakvennafj, Prentar- ajj og Bókbindarajj, og kýs 2 menn til að koma því í framkv. í samráði við vœnt- anlegar nejhdir úr ofan- greindumfélögum. REYKJAVÍKURHÖFN um 1920. stjómmálalíB höfuðstaðarins „Alþýðufélögin“ sigra í bæjarstjórnar- kosningum í Reykjavík árið 1916 Stórnðindi í

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.