Alþýðublaðið - 29.04.1994, Side 13

Alþýðublaðið - 29.04.1994, Side 13
Föstudagur 29. apríl 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 13 Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða: Atvinmileysið hyrfi ef við keyptum Rússafisk íyrir bætumar „MEÐ MEIRI vinnu við fiskvinnsluna út á landi hefði fólk peninga til að kaupa hvers konar þjónustu jafnt á Faxaflóasvæðinu sem annars staðar á landinu. Eg er hand- viss um það að ef þeir fjórir milljarðar króna sem nú fara í atvinnuleysisbætur yrðu settar í að kaupa Rússafísk og vinna hann hér þá hyrfi at- vinnuleysið. Þá skipti ekki máli þótt menn fengju áfram að frysta úti á sjó og flytja hálfunninn físk af Suðurnesjum til Bretlands og Frakklands. Við losnuðum við allt atvinnuleysi,“ sagði Pétur Sigurðsson forseti Alþýðusambands Vestfjarða í samtali við Alþýðublaðið. „Við eigum ekki í neitt annað að sækja en fiskvinnsluna til þess að auka atvinnu. Þar er um frumvinnu að ræða en öll önnur vinna í landinu er afleiðing af vinnunni við fiskinn. Við sjáum að atvinnu- leysið byrjaði í Reykjavík í þjónustugreinunum um leið og það dró úr tekjum úti á landi áður er þar varð atvinnubrestur. Síðan þegar atvinnuleysi er komið út um allt land eykst það um allan helming í Reykjavík," sagði Pétur. „Við erum búin að lifa við þjóðarsátt síðan 1990 sem hefur hald- ið öllu efnahagslífi þjóðarinnar í jafnvægi. Minnkandi verðbólga og lækkun vaxta hefur sparað útgjöld atvinnurekstrarins, hins opin- bera og einstaklinga. Hitt er að verkafólk hefur fómað hluta af kaupmætti með þessari þjóðarsátt. Það er óhjákvæmilegt að sækja það til baka um næstu áramót þegar samningar eru lausir. Það er greinilegt að aðrir í þjóðfélaginu, hópar hálaunamanna sem skammta sér sjálfir laun, hafa ekki látið hjá líða að bæta kjör sín. Hið opinbera hefur ekki dregið úr rekstri og risnu heldur sótt það til þeirra sem hafa haldið aftur af launakröfum sínum með auknum sköttum. Þetta gengur þvert á þau loforð sem vom gefin við upphaf þjóðarsáttar um að lækka skattleysimörkin. Það er því margt sem segir manni að launafólk í landinu hefur ekki fengið ágóðann af því sem bjargað varð. Það sem nú er á döfinni er í rauninni það að deila því réttlátlega sem til er. Við getum ekki lengur búið til peninga til að koma til móts við kröfur manna eins og við gerðum í verðbólgunni. En við vitum að skiptingin er óréttlát. Það er þetta eilífðarmál allra sannra jafnaðarmanna, það er að skipta jafnara,“ sagði Pétur. „Nú er talað um einhvem frelsara í fjármálum, til dæmis í ís- landsbanka og gefið í skyn að almenningur hafi kosið hann í bankastjómina. Þessi maður stofnaði fjármögnunaifyrirtæki fyrir fáum ámm og seldi síðan sinn hlut fyrir 200 milljónir. Hvaðan tók hann þær milljónir? Það skyldi þó aldrei vera að það hafi verið frá því fólki og þeim fyrirtækjum sem em á hausnum og íslandsbanki þarf að púkka upp á. Svona starfsemi tryggir ekki atvinnu eins eða neins. Stjómvöld þurfa að koma inn í og setja reglur sem tryggja að það markmið náist að hér verði full vinna. Það hafa tapast þijú til fimm þúsund störf vegna útflutnings á óunnum fiski og á vinnslu frystitogara úti á sjó. Þessu þurfum við að ná aftur og það er hægt eins og ég sagði í upphafi,“ sagði Pétur Sigurðsson. Hann sagði að spáð væri góðu veðri á ísafirði á verkalýðsdaginn og eflaust mundi hann nota tækifærið og bregða sér á gönguskíði á Breiðadalsheiði um hádegið. Síðan væri opið hús hjá verkalýðsfé- lögunum og boðið upp á veitingar. Ragna Bergmann, formaður verkakvennafélagsins Framsóknar: Hræðilegt atvinnuleysi og eymdarkjör ófaglærðra „ÞAÐ SEM nú ber hæst er þetta hræðilega atvinnuleysi og eymdarkjör ófaglærðra. Hvað er hægt að horfa lengi upp á þetta óskaplega ástand þar sem láglaunafólkið þorir ekki að opna munninn af ótta við að verða rekið? Eg sé því miður ekki hylla undir breytingu til batnaðar og er svartsýn á framtíðina ef stjórnvöld ætla ekki að taka betur á þessum málum,“ sagði Ragna Bergmann formaður Verkakvennafélagsins Framsókn- ar. „Ýmsir hópar í þjóðfélaginu telja sig hafa orðið aftur úr og eru nú að fara upp í launum. En mér finnst láglaunafólkið hafa orðið mest aftur úr, þetta ófaglærða fólk. Staða kvenna er sérstak- lega slæm. Konur fara fyrst út af vinnumarkaðinum og það er beinlínis gert í því að ýta þeim út. En hvað gengur það lengi að horfa upp á þessa eymd í þjóð- félaginu áður en allt springur? Hvað gerist um áramótin þegar samningar verða lausir eftir að búið er að svelta fólk,“ sagði Ragna. Hún sagði að þetta væm spumingar sem hún velti fyrir sér í önn dagsins. Ofaglært fólk væri á 50 til 70 þúsund króna mán- aðarlaunum en það þyrði ekki að opna munninn því þá missti það vinnuna. „Ég held líka að það séu að koma þeir tímar að þeir foreldrar sem em á launataxta verkafólks og foreldrar sem em atvinnulausir hafi ekki efni á að gera bömin sín út í skóla. Hvað gerist þá? Mis- rétti er þegar mikið í þjóðfélaginu en þegar svona er komið þá verða forréttindastéttimar enn fleiri. Atvinnulausar mæður hafa komið til mín og sagt að ef þær fá ekki vinnu eða bömin fái ekki sumarvinnu þá komist þau ekki í skóla næsta vetur. Því miður er ég svartsýn á framtíðina. Atvinnuleysistrygginga- sjóður er að láta peninga í verkefni til að halda uppi atvinnu, en það er bara tímabundið úiræði. Það hefur ekkert gerst. Það er verið að tala um Hvalfjarðargöng og búið. Stjómvöld hafa ekki tekið nógu vel á þessum mikla vanda,“ sagði Ragna Bergmann. Hún sagðist ætla að ganga niður Laugaveginn í kröfugöngu 1. maí eins og hún hefði jafnan gert þennan dag allar götur frá árinu 1950. Síðan væri 1. maí kaffi hjá Framsókn og Sókn. Hervar Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og varaforseti ASI: Stjómvöld hafa ekki staðið við gefin loforð um fé til atvinnuauka „ÞAÐ SEM upp úr stendur er þessi gífurlegi vandi sem atvinnuleysið er og ekki sér fyrir endann á. Ég get ekki séð að það sé mikill vilji til að stemma stigu við auknu at- vinnuleysi. Þetta lagast ekki af sjálfu sér. Stjórnvöld hafa ekki staðið við það sem þau lofuðu við gerð síðasta kjara- samnings um fjárveitingar til atvinnuuppbyggingar. Það vantar nokkur hundruð milljónir upp á að staðið hafí verið við gefin loforð,“ sagði Hervar Gunnarsson formaður Verkalýðsfélags Akraness og varaforseti ASI. Hervar sagði að stjómvöld yrðu að standa við gefin loforð til að hægt væri að skapa þau störf sem átti að skapa. I öðm lagi yrðu stjómvöld að standa við loforðin svo þau yrðu tekin trúanleg. Ef ekki væri staðið við gefin loforð yrði það til þess að ekki yrði aftur skrifað undir viðlíka samkomulag. „Ég held að allir hljóti að vera sámmála um það, að ef það er einhvem tímann réttlætanlegt að flýta verkefnum þá er það þegar við erum í atvinnulegri lægð. Það má segja að það sé kominn tími til að stjóma. Við skulum ekki gleyma því að það liggja inni hjá stjómvölduin fjölmargar tillögur til úrbóta frá aðilum vinnumark- aðarins. Þetta er pakki sem var unnin sameiginlega af samtökum launþega og vinnuveitenda fyrir ári og lagður inn til forsætisráð- herra sem umræðugrundvöllur. Menn lýstu sig reiðubúna til að vinna úr þessu áfram. Þessi pakki er ekki verri en það að ég sé að mörg atriði úr honum em komin á lyklakippu núverandi borgarstjóra. En það hefur ekki orðið framhald á þessari vinnu sem lögð var í pakkann og viljann virðist vanta. Sjálfsagt kemur það til vegna þess að það vantar fjár- magn, en það er líka dýrt að gera út stóran hluta þjóðarinnar í at- vinnuleysi. Menn þurfa að skoða þetta í heild út frá þjóðhagslegri hagkvæmni og það er varla skynsamlegt að taka erlend lán til að greiða atvinnuleysisbætur í stað þess að nota þau til að skapa at- vinnu. Atvinnuleysið hefur skapað skelfilegt ástand víða meðal einstaklinga og fjölskyldna. Atvinnuleysið er ekki bara vegna minnkandi þorskafla heldur kemur þar líka til svokölluð hagræðing hjá fyrirtækjum sem gengur út á það að láta færra fólk afkasta meiru en fleiri gerðu áður,“ sagði Hervar Gunnarsson. Hann sagðist verða heima á Akianesi með sínu fólki á verka- lýðsdaginn. Aðalræðumaður dagsins þar er atvinnulaus, Amar Þór Sigurðsson. Með því vill verkalýðshreyfingin á Akranesi undir- strika baráttu sína gegn atvinnuleysi. Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambands Islands Tekjuskiptingin er óásættanleg „BURTSÉÐ frá öllu at- vinnuleysi þá er tekjuskipt- ingin í landinu með öllu óá- sættanleg. Við höfum gert til- raunir til að leiðrétta þetta en því miður hefur þetta sjálf- virka reikningskerfi þjóðfé- lagsins ævinlega komið því fyrir kattarnef. Við þurfum því að nota einhverjar aðrar aðferðir til að breyta þessu því tekjuskiptingin er slæm og ef eitthvað er þá fer hún versnandi,“ sagði Björn Grét- ar Sveinsson formaður Verkamannasambands íslands. „Annars einkennist staðan í dag fyrst og fremst af þessu atvinnu- ástandi í landinu sem er mjög slæmt og maður sér ekkert í pípun- um sem leysir það til frambúðar. Þessi átaksverkefni sem eru að fara í gang vítt og breytt um Iandið slá kanski á mesta höggið, en ástandið á vinnumarkaðnum einkennist mjög af þessu atvinnu- leysi,“ sagði Bjöm Grétar ennfremur. Hann sagði að innan verkalýðshreyfingarinnar hefðu menn verið að ræða hvað væri til ráða til lengri tíma litið. Þar væri helst að líta til frekari fullvinnslu á fiski og öllu sem tengist honum í ýmsum starfsgreinum. Verkalýðshreyfingin væri að vinna að þessu málum og setja saman atvinnustefnu með þetta að markmiði. Bjöm Grétar Sveinsson sagðist verða á Akureyri 1. maí þar sem hann verður ræðumaður við hátíðahöld dagsins. Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja: Þrátt fvrir illt ástand bjarmar af nýjum degi „ÞAÐ SEM blasir við í dag er fjöldaatvinnuleysi og vax- andi misskipting. Ég er sann- færður um að þetta tvennt helst í hendur. Aukin mis- skipting veldur auknu at- vinnuleysi sem skapar svo aft- ur aukna misskiptingu. Hvort tveggja þarf að uppræta. A öllum sviðum þjóðfélagsins í dag er vaxandi misskipting ásamt samþjöppun á pening- um og valdi hjá fámennum hópum á kostnað fjöldans. Þetta á einnig við á sviði fjölmiðlunar þar sem valdataumarnir og áhrifaþræðirnir liggja í höndum óhugnanlega fárra,“ sagði Ógmundur Jónasson formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja en taldi að það bjarmaði fyrir nýjum degi. „Það sem þarf að hverfa héma er þessi grimma fijálshyggju- stefna og einkavæðingarpólitík sem hefur sett svip sinn á undanfar- in ár. Mér finnst það vera umhugsunarvert að eftir því sem mis- skiptingin eykst, eftir því sem kjör almennings rýrna og atvinnu- leysi grefur urn sig, því meiri ákefð verður í Verslunarráði og hjá fulltrúum stóratvinnurekenda að ráðast til sóknar gegn réttindum launafólks. Við höfum séð mörg dæmi urn þetta upp á síðkastið. Það er greinilegt að þeir efna til sóknar gegn lífskjörunum í skjóli atvinnuleysisins,“ sagði Ögmundur. „Mér finnst það jafnframt vera ljóst að frjálshyggjan er ekki nema svipur hjá sjón og greinilegt að öll innri sannfæring er hrun- in. Það er tilkomið vegna baráttu verkalýðshreyfingarinnar. Þessi dagur, 1. maí, er sá dagur sem menn eiga að stilla saman hugi sína og strengja þess heit að láta aldrei ræna okkur voninni um að hægt sé að reisa samfélag sem er grundvallað á jöfnuði og samvinnu. Ef menn standa þétt saman um þessar grundvallarhugsjónir þá getur ekkert sigrað verkalýðshreyfinguna," sagði Ögmundur ennfremur. „Þótt það hafi blásið á móti nú um nokkurt skeið þá er enginn vafi á því að verkalýðshreyfingunni hefur orðið mjög ágengt í hug- myndabaráttunni gegn þessari fijálshyggju og einokunarstefnu. Þegar þessum baráttumarkmiðum er fylgt eftir með þrotlausri bar- átm og mikilli vinnu eins og til dæmis gert var gegn hinum einka- vædda strætó í Reykjavík, þá vinnst sigur. Þetta SVR-mál er ágætt dæmi um árangur samstöðunnar. Þrátt fyrir þetta illa ástand, fjölda- atvinnuleysi, samdrátt, kreppu og vaxandi misskiptingu, þá er ég sannfærður um að það bjarmar af nýjum degi,“ sagði Ögmundur Jónasson. A baráttudegi verkalýðsins verður Ögmundur annar aðalræðu- maður dagsins við hátíðarhöldin í Reykjavík. Alþýðublaðsmyndir / Einar Ólason

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.