Alþýðublaðið - 29.04.1994, Qupperneq 23
Föstudagur 29. apríl 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 23
Varnarliðið - laus störf
Varnarliðið óskar að ráða yfirverkstjóra og verkstjóra á bif-
reiðaverkstæði Flotastöðvar Varnarliðsins.
Störfin fela í sér verkstjórn, umsjón og almennt eftirlit með við-
gerðum og viðhaldi á bifreiðum Flotastöðvarinnar.
Umsækjendur séu bifvélavirkjar með full réttindi og yfirgrips-
mikla reynslu á sviði viðgerða og verkstjórnar.
Krafist er mjög góðrar enskukunnáttu ásamt góðri framkomu
og lipurð í samskiptum.
Umsóknir berist til Varnarmálaskrifstofu, ráðningardeild,
Brekkustíg 39, 260 Njarðvík, eigi síðar en 8. maí 1994.
Umsóknareyðublöð ásamt starfslýsingum liggja frammi á
sama stað.
Nemendagarðar Hólaskóla
-ÚTBOÐ -
Nemendagarðar Hólaskóla óska eftir tilboðum í byggingu
Nemendagarða að Hólum í Hjaltadal í Skagafjarðarsýslu.
Brúttóflatarmál hússins er 135,5 m2 og brúttórúmmál er 483
m3.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 3. maí
1994, hjá Verkfræðistofunni STOÐ sf., Aðalgötu 21, Sauðár-
króki, gegn kr. 25.000,- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Bændaskólans að Hólum eigi
síðaren kl. 10.45, föstudaginn 27. maí 1994.
Áætluð verklok eru í ágúst 1995.
Nemendagarðar Hólaskóla
Hólum í Hjaltadal.
í FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
I Síðumúla 39 H 108 Reykjavík H Sími 678500
Sýningar og vorhátíð
í féiagsmiðstöðvum aldraðra
á vegum Reykjavíkurhorgar
Félags- og tómstundastarf 25 ára
Sýningar á handavinnu og listmunum aldraðra
og vorhátíð verða í eftirtöldum félagsmiðstöðv-
um aldraðra:
1. Dagana 29. apríl-1. maí, frá kl. 14.00-17.00,
verður opið hús í Hæðargarði 31 og Menn-
ingarmiðstöðinni í Gerðubergi (föstudag,
laugardag og mánudag).
2. Dagana 7.-9. maí, frá kl. 14.00-17.00, verð-
ur opið hús í Seljahlíð v/Hjallasel og í
Hvassaleiti 56-58 (þar verða einnig munirfrá
Furugerði 1).
3. Dagana 14.-16. maí, frá kl. 14.00-17.00,
verður opið hús í Hraunbæ 105, Lönguhlíð 3,
Bólstaðarhlíð 43 og Norðurbrún 1.
4. Dagana 29.-30. apríl verður vorhátíð á Afla-
granda 40. Opið hús allan föstudaginn og á
laugardaginn verður húsið opnað kl. 14.00
og lýkur dagskrá með dansi að kvöldi.
Dagana 13.-15. maí verður sumargleði á Vest-
urgötu 7, opið hús, starfsemi kynnt og dansað.
ALLIR VELKOMNIR.
Geymið auglýsinguna.
Öldrunarþjónustudeild
Félagsmálastofnunar Reykjavfkurborgar.
Jafnaðarmenn í Kópavogi!
1. maí-kaffí í Hamraborg
Alþýðuflokksfélögin í Kópavogi verða með 1. maí-kaffi
næstkomandi sunnudag frá klukkan 16.
1. maí-kafflð verður í Félagsmiðstöð jafnaðarmanna
í Kópavogi að Hamraborg 14a, II. hæð.
Fjölmennum og tökum með okkur gesti!
PÓSTUR OG SÍMI
Útboð
Tilboð óskast í innanhússfrágang í viðbyggingu Pósts og
síma að Austurvegi 24 á Selfossi. Utboðsgögn verða afhent á
skrifstofu fasteignadeildar frá og með þriðjudeginum 3. maí
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu fasteignadeildar þriðjudag-
inn 24. maí kl. 11.00.
Reykjavík 29. maí 1994,
Póst- og símamálastofnunin.
Höfum brunavarnir
í lagi 1. maí!
Brunamálastofnun
ríkisins.
HAFNARFJÖRÐUR
Forstöðumaður
Æskulýðs- og tómstundaráð Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða
forstöðumann við félagsmiðstöðina Vitann. Krafist er mennt-
unar á sviði æskulýðs- og félagsmála. Laun eru samkvæmt
samningum Starfsmannafélags Hafnarfjarðarbæjar.
Allar upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu æskulýðs-
og tómstundaráðs, Strandgötu 8-10, sími 53444. Þar er jafn-
framt tekið á móti umsóknum. Umsóknarfrestur er til 29. apríl
nk.
Æskulýðs- og tómstundaráð Hafnarfjarðar.
HITA- OG VATNSVEITA
AKUREYRAR
Útboð
Hita- og vatnsveita Akureyrar óskar eftir tilboðum í lagningu
aðveituæðar frá dælustöð á Laugalandi á Þelamörk í dælu-
stöð við Austursíðu á Akureyri.
Lögnin er rúmlega 10.000 metrar af 175 mm stálröri í 315 mm
plastkápu. Á lögnina koma nokkur úttök, afloftanir og tæming-
ar. Reiknað er með að verkið geti hafist fyrir miðjan maí og
skal því lokið 30. sept. 1994.
Útboðsgögn fást hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen,
Glerárgötu 30, Akureyri, gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu HVA við Rangárvelli, Akureyri,
þriðjudaginn 3. maí, 1994, kl. 11.00, að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
1. maí í Reykjavík:
Útífundurá
Ingólfstorgi
ÚTIFUNDUR verður á Ingólfstorgi í
Reykjavík á sunnudaginn, 1. maí. Aðal-
ræðumenn þar verða Ögmundur Jónas-
son formaður Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja og Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Dagsbrúnar. Síð-
degis fer fram verðlaunaafhending
vegna 1. maí merkis.
Eins og undanfarin ár mun Fulltrúaráð
verkalýðsfélaganna í Reykjavík, Bandalag
starfsmanna rfkis og bæja og Iðnnemasam-
band Islands standa saman að hátíðarhöld-
um í tilefni dagsins sem verða með hefð-
bundnu sniði. Safnast verður saman við
Hlemm klukkan 13.30 og mun gangan
leggja af stað klukkan 14. Gengið verður
niður Laugaveg, út Austurstræti að Ing-
ólfstorgi til útifundarins.
Aðalræðumenn dagsins verða Ögmund-
ur Jónasson formaður BSRB og Guð-
mundur J. Guðmundsson formaður Dags-
brúnar. Ávarp flytur Brjánn Jónsson for-
maður Iðnnemasambands íslands. Fundar-
stjóri verður Þórunn Sveinbjömsdóttir for-
maður Sóknai'.
Milli ræðuhaldanna leikur Bossanova
Bandið og í lok fundar munu Aðalsteinn
Ásberg og Anna Pálína, ásamt Reyni Jón-
assyni syngja nokkur lög.
Verðlaun afhent
I ár ákvað Alþýðusamband íslands að
efna til samkeppni um gerð 1. maí merkis-
ins meðal nemenda í Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands, sem leggja stund á graf-
íska hönnun, í samstarfi við stjómendur
skólans. Verðlaunaafhending vegna gerðar
1. maí merkisins fyrir árið 1994 fer fram í
húsnæði Listasafns ASÍ 1. maí klukkan
16.30. Fyrsti varaforseti ASÍ, Ingibjörg
Guðmundsdóttir, mun afhenda öllum þeim
nemendum sem áttu tillögur sem valdar
vom til frekari úrvinnslu, bók í viðurkenn-
ingarskyni. Þá verða afhent verðlaun íyrir
þá tillögu sem valin var. Einnig verður
Myndlista- og handíðaskólanum afhentur
styrkur í efnis- og tækjasjóð skólans.
I tengslum við veðlaunaafhendinguna
verður sýning í Listasafni ASÍ á þeim til-
lögum sem valdar vom til frekari úr-
vinnslu. Sýningin verður opin frá klukkan
16 til 19 og verður boðið upp á kaffiveit-
ingar.