Alþýðublaðið - 18.05.1994, Page 4

Alþýðublaðið - 18.05.1994, Page 4
4 (a) ALÞÝÐUBLAÐIÐ UMRÆÐA Miðvikudagur 18. maí 1994 PALLBORÐIÐ: Árni Finnsson Um Maguús Guðmundsson og nýjustu „uppljóstranir44 hans Af geftiu tQeftií vilja Greenpeace-samtökiii benda á eftirfarandi: MAGNÚS GUÐMUNDSSON kvikmyndagerðarmaður, án alls vafa sá umdeildasti sem íslendiitgar hafa átt. Árni Finnsson segir til að mynda um Magnús: „Greenpeace- samtökin hafa ekki hrundið afstað ófrœgingarherferð gegn Magnúsi Guðmundssyni, en að sjálfsögðu hafa samtókin varið heiður sinn og bent á tengsl hans við hagsmuna- aðila. Magnús dœmist af verkum sínum og vinnuaðferðum...Ömurlegasta afleiðing þeirrar rógsherferðar, sem borið hefur nafn Magnúsar Guðmuitdssonar víða um heim, er sú að eðlileg umrœða um umhverfismál hefur átt erfitt uppdráttar á Islandi. I Ijósi skammtíma hagsmuna hefur áróðri Magnúsar verið hampað.“ Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Greenpeace hafa ekki staðið að gerð myndar um smáhvala- dráp í Venezuela. Greenpeace hafa barist gegn fjöldadrápi á höfmngum sem hlýst meðal ann- ars af túnfiskveiðum. Samtökin telja að vandamálið felist fyrst og fremst í þeim aðferðum sem beitt er við túnfiskveiðamar, en ekki í smáhvalaveiðum sem slíkum. Greenpeace hafa þar af leiðandi ekki hafið herferð gegn smá- hvaladrápi í Venezuela. Enn síður hafa Greenpeace staðið að fölsunum á mynd um smáhvaladráp. Vert er að hafa í huga að Magnús Guðmundsson hefur áður verið dæmdur fyrir falskar ásakanir á hendur Green- peace þess efnis að samtökin hafi falsað myndefni. Greenpeace hafa ekki hmndið af stað ófrægingarherferð gegn Magnúsi Guðmundssyni, en að sjálfsögðu hafa samtökin varið heiður sinn og bent á tengsl hans við hagsmunaaðila. Magnús dæmist af verkum sínum og vinnuaðferðum. I maí 1992 dæmdi norskur dómstóll Magnús Guðmundsson til að greiða Greenpeace- samtökunum þar í landi 30 þúsund norskar krónur í skaðabætur vegna meiðyrða sem fram komu í mynd hans. Lífs- björg í norðurhöfum. Ásakanir hans þess efnis að Greenpeace hefði falsað myndskeið í mynd um kópadráp og að Greenpeace hafi stundað svik og pretti í starfi sínu vom dæmdar dauðar og ómerkar. í aðfaraorðum dómsins segir meðal annars: „Um þessar mundir verður Greenpeace að teljast hafa mikil áhrif í umhverf- ismálum og því verða samtökin að sætta sig við að þau séu litin gagnrýnisaugum. Þó svo að það gefi tilefni til að fallast á að ræða megi allfrjálslega um samtökin ganga ummælin í mynd Magnús- ar, sem falla undir 247. grein hegningarlaganna, svo langt að við því verður að bregðast. Með ummælunum er vegið að Green- peace með óréttmætum hætti. Að áliti dómsins er engin nauðsyn fyrir stefnda að taka svo sterkt til orða til að láta í ljósi álit sitt á samtökunum. Ef slíkt orðbragð væri heimilað hefði það í för með sér að þjóðfélagsumræðan yrði lítilsverðari og grófari og er það engum í hag. (Feitletrun undirritaðs) Ekki er því unnt að firra stefnda ábyrgð varðandi þær ásakanir sem hann hefur borið fram.“ ★ Árið 1993 voru sumar ásak- anir Magnúsar Guðmundssonar úr myndinni Lífsbjörg í norður- höfum endurteknar í sjónvarps- þætti á Nýja Sjálandi. Sjónvarps- stöðin baðst síðar formlega af- sökunar eftir að Greenpeace hafði bent á staðreyndir málsins. ★ Kvikmyndagerð Magnúsar og áróðursferðir hafa verið styrktar af íslenskum stjómvöld- um, sjávarútvegshagsmunum í og Noregi og Nýja Sjálandi og hægriöfgasamtökum í Banda- ríkjunum. Tilefnislausar og falskar ásakanir á hendur um- hverfissamtökum einkenna kvik- myndagerð hans. Hann beitir rógtækni sem felst í því að koma umhverfissamtökum í vamar- stöðu og neyða þau til að afneita fölskum og tilbúnum ásökunum. Nöfn virtra umhverfissamtaka eins og Greenpeace og World Wide Fund for Nature em nefnd í sömu andrá og nafn samtaka sem vilja ganga miklu lengra og krefjast algjörar friðunar dýra- tegunda. Með þeim hætti tengist málstaður Greenpeace við mál- stað sem er samtökunum óskyld- ur. ★ í Bandaríkjunum og víða um heim hafa myndir Magnúsar Guðmundssonar verið ákaft hylltar og kynntar af tímaritinu „21st Century Science and Technology“, sem gefið er út á vegum Lyndon LaRouche. Pólit- ískt vistfang hans er yst á hægri væng bandarískra stjómmála. Lífsbjörg í norðurhöfum var fyrst kynnt í Bandaríkjunum á blaða- mannafundi í júní 1989, sem Magnús Guðmundsson hélt und- ir umsjón og með fjárhagslegum stuðningi fyrmefnds tímarits. ★ Magnús Guðmundsson var titlaður ráðgjafi við gerð danskr- ar sjónvarpsmyndar, „Manden í Regnbuen“, sem fól í sér enn eina árásina á Greenpeace og David McTaggart, fyirum for- mann Greenpeace Intemational og nú heiðursformann. Eftir að myndin hafði verið sýnd á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2, baðst sjónvarpsstöðin David McTaggart formlega afsökunar á sumum þeim ásökunum sem fram komu í fréttatilkynningu frá stöðinni til kynningar myndinni. ★ Upplýsingaefni frá Lyndon LaRouche hefur gegnt stóm hlut- verki við alþjóðlega kynningu á dönsku sjónvarpsmyndinni. ★ Magnús Guðmundsson hef- ur fært út kvíarnar og veitir nú hagsmunaaðilum í kjamorkuiðn- aði þjónustu sína. Hann hefur komið fram á blaðamannafund- um á vegum kjamorkuiðnaðarins í Japan, Suður-Kóreu og Brasil- íu. Hagsmunaaðilar í kjamorku- iðnaði í Belgíu og Kanada hafa einnig haldið sérstakar sýningar á myndum hans. Brasilískir fjöl- miðlar hafa greint frá jrví að ný- afstaðin heimsókn kvikmynda- gerðarmannsins þar í landi hafi verið skipulögð og kostuð af samtökum hagsmunaaðila í kjamorkuiðnaði. ★ Magnús Guðmundsson hef- ur tvívegis verið dæmdur fyrir brot á höfundarétti. Fyrst 1989 í Englandi þegar hann og Edda Sverrisdóttir voru dæmd fyrir brot á höfundarrétti Greenpeace á mynd um kópadráp. Nú síðast í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot á höfundarrétti Eddu Sverr- isdóttur á myndinni Lífsbjörg í norðurhöfum. ★ I síðustu viku birti norska dagblaðið Verdens Gang þriggja síðna greinaflokk um tengsl Magnúsar og norska hvalveiði- sinna við samtök bandarískra hægri-öfgamanna. Samtök sem sett hafa baráttu gegn umhverfis- vemdarsamtökum á oddinn. Það væri að ganga of langt að saka norska fjölmiðla um að hygla Greenpeace. Ömurlegasta afleiðing þeirr- ar rógsherferðar, seni borið hefur nafn Magnúsar Guð- mundssonar víða um lieim, er sú að eðlileg umræða um um- hverfismál hefur átt erfitt upp- dráttar á íslandi. í ljósi skammtíma hagsmuna hefur áróðri Magnúsar verið hamp- að. Starf Greenpeace er snýr að verndun sjávar gegn meng- un, afvopnun á höfum úti, til- raunum með kjarnavopn, banni gegn notkun ósoneyð- andi efna, banni gegn iosun geislavirks úrgangs í hafið, gróðurhúsaáhrifum og ábyrgri stjórnun fiskveiða - svo dæmi séu nefnd - hefur ekki fengið þá umfjöllun sem nauðsyn ber til. Þetta er ekki síst ömurlegt í ljósi þess að framtíðaröryggi Islendinga er alvarlega ógnað ef málstaður umhverfisvernd- ar lýtur lægra haldi. Fyrir hönd Greenpeace International, Arni Finnsson. Tryggingastofnun: TRYGGINGASTOFN- UN ríkisins og Ríkisspítal- ar hafa skrifað undir samninga við fjórar prent- smiðjur uin prentun á fréttabréfum, skírteinum, eyðublöðum og öðrum gögnum fyrir tugi milljóna króna árlega. Samningur- inn er gerður í kjölfar út- boðs og hefur í för með sér milljónasparnað. Samningamir eru við Fé- lagsprentsmiðjuna, Hag- prent, Litlaprent og Litróf. Karl Steinar Guðnason for- stjóri Tryggingastofnunar segir að útboðið sé hluti af aukinni áherslu stofnunar- innar á spamað og hag- kvæmni í rekstri. Ríkisstofn- anir þurfi eins og aðrar stofnanir að aðlagast við- skiptaháttum nútímans. Á síðasta ári átti Trygginga- stofnun viðskipti við yfir 10 prentsmiðjur fyrir um 28 milljónir króna. Að sögn Karls Steinars hefur náðst um 30% spamaður með þessu útboði. Auk útboðsins hefur yfir- stjóm Tryggingastofnunar gert ýmsar breytingar sem bæta eiga þjónustu við við- skiptavini. Állir starfsmenn stofnun- arinnar taka þessa dagana þátt í þjónustunámskeiði þar sem áhersla er lögð á góða framkomu og samskipti við viðskiptavini. 1 apríl vom tekin í notkun bein símanúmer til nokkurra deilda stofnunarinnar þar sem viðskiptavinir geta hringt beint til starfsmanna í ákveðnum málaflokkum. Bótaþegar fengu í síðasta mánuði símaskrá Trygg- ingastofnunar sem einnig verður í væntanlegri síma- skrá Póst og síma. Einnig var tekið í notkun grænt númer, 996044, fyrir gjaldfrí símtöl frá fólki á landsbyggðinni. Aðalsíma- númer Tryggingastofnunar verður áfram 604400. Tíu ný Mnerki á 50 ára afinælinu TÍU NÝ frímerki verða gefin út í tilefni 50 ára af- mælis lýðveldisins. Fyrstu fimm frímerkin eru helg- uð listum og menningu á lýðveldistímanum. Þá er frímerki með mynd af Gísla Sveinssyni og lýð- veldismerkinu og svo fjög- ur frímerki sem sýna alla forseta lýðveldisins. Steinþór Sigurðsson hannaði fyrstu fimm frí- merkin en myndefni þeirra er tónlist, listiðn, kvik- myndalist, listdans og leik- list. Frímerkin koma út 25. maí og er verðgildi þeirra hvers um sig 30 krónur. Þann 14. júní kemur ann- að frímerki í tilefni afmælis- ins. Myndefni þess er lýð- veldismerkið 1944 og mynd af Gísla Sveinssyni en hann lýsti yfir gildistöku stjómar- skrár lýðveldisins Islands á Lögbergi 17. júní 1944. Þröstur Magnússon hannaði frímerkið en verðgildið er 30 krónur. Fjögur frímerki verða gefin út á Þjóðhátíðardaginn 17. júní í hátíðarörk en þau sýna alla forseta lýðveldis- ins. Verðgildi hvers merkis er 50 krónur en smáörkin verður seld á 200 krónur. Þröstur Magnússon hannaði frímerkin og einnig sérstaka myndskreytta bók sem kem- ur út sama dag. í bókinni verður saga lýðveldisins rakin í stuttu máli og birt æviágrip forsetanna með myndum af þeim og viðeig- andi frímerkjum tyllt við. Einnig verða í bókinni tvær smáarkir með forsetafrí- merkjunum, önnur stimpluð á útgáfudegi en hin óstimpl- uð. Bókin verður prentuð í Odda og gefin út í tveimur útgáfum. Önnur er með texta á íslensku, þýsku og dönsku en hin með texta á íslensku, ensku og frönsku. Pósthús verður starfrækt í tjaldi á Þjóðhátíðinni á Þing- völlum 17. júní. Þar verður hægt að fá forsetafrímerkin stimpluð á útgáfudegi en einnig er hægt að panta þau á öllum pósthúsum og hjá Frímerkjasölu Pósts og síma.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.