Alþýðublaðið - 15.12.1994, Síða 4

Alþýðublaðið - 15.12.1994, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 Vití menn Víkverji þekkir ekki boð- skap bókarinnar „Heiða fremur sjálfsmorð“, en nafnið þykir honum ekki smekklegt. Það er erfitt að ímynda sér að nokkur geti hugsað sér að setja þessa bók í gjafapappír undir jólatréð. Víkverji Moggans í gær. Bókin, sem um ræöir, er ný skáldsaga Hafliða Vilhelmssonar. Hermt er að Stúfur verði á Ingólfstorgi í dag og á morgun Þvörusleikir. Og svo koll af kolli fram að jólum. Guðmundur Magnússon, leiöari DV í gær. Það er alltaf vel mætt í messur í Selfosskirkju og mér er sagt að aðsókn hafí jafnvel aukist eftir að nýi presturinn, Þórir Jökull Þorsteinsson, var kosinn síðastliðið haust. Hann er glæsilegur maður og því er fleygt að margir foreldrar komi í messurnar með heima- sætur sínar ógiftar. Regína Thorarensen, fréttapistill frá Selfossi. DV í gær. Mér finnst það ótrúlegt að ég sé að verða sjötugur. Paul Newman í Spegli Tímans í gær. Verðbólga hefur verið mest í heiminum í Perú og náði hún hámarki árið 1990 í 7.650%, en síðan hefur ótrúlegur árangur náðst og nú er verðbólg- an aðeins 2% á mánuði. Úr ferðagrein Hjartar Gíslasonar um Perú. Mogginn í gær. Þetta er argasta lygi. Benedikt Davíðsson forseti ASÍ um þau ummæli Sighvats Björgvinssonar að vægi launa i lánskjaravísitölu hefðu verið aukin á sínum tíma að beiðni full- trúa samtaka launafólks. Tíminn i gær. Rifjar Hannes Hólm- steinn upp, að í umræð- um um málið í borgar- stjórn lagðist Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg- arfulltrúi Kvennafram- boðsins, gegn smíði Kringlunnar. Taldi hún, að þar væri um að ræða „hrapallega mistök í skipulagsmálum4 ‘. Ritdómur Björns Bjarnasonar aiþingis- manns um ævisögu Pálma í Hagkaup eftir Hannes H. Gissurarson. Mogginn í gær. Deila hefur risið um það í Bretlandi hversu mörg eyðnipróf hertogaynjan af York, Sara Ferguson, hafi farið í. DV í gær. Atvinnumál og hlutverk stj órnmálamanna „Að loka úti erlendar fjárfestingar á íslandi er mol- búahugsunarháttur og við komum okkur sjálfum í koll með honum. Við eigum að feta í fótspor ná- grannalanda og örva erlendar fjárfestingar með al- mennum aðgerðum og upplýsingu.“ Ljóst er að atvinnumál verða með- al helstu kosningamála næsta vor. Allir flokkar og frambjóðendur segj- ast leggja áherslu á atvinnumálin. Hins vegar er veralegur munur á því hvað að baki stendur þegar að er gáð. Atvinnumál era víðtækt hugtak. Það innifelur meðal annars skamm- tímaaðgerðir til að draga úr atvinnu- leysi, langtíniauppbyggingu arðbærs atvinnulífs, utanríkisverslun, erlend- ar tjárfestingar, hvert hlutverk ríkis- ins eigi að vera og margt fleira. Alþýðuflokk- urinn hefur haft skýra og skyn- samlega stefnu í þessum mála- flokki eins og öðram. Flokkur- inn hefur talið nauðsynlegt að taka á atvinnu- leysi með skammtímaaðgerðum á borð við átaksverkefni og hefur beitt sér í því efni. Hins vegar er ljóst að atvinnu- leysi verður aðeins útrýmt til lengri tíma litið á grandvelli heilbrigðs og sjálfbærs atvinnulífs sem keppt get- ur á jafnréttisgrandvelli við atvinnu- líf annarra landa. Atvinnustefna Al- þýðuflokksins miðar að uppbygg- ingu íslensks atvinnulífs eftir þessari framtfðarsýn. Heilbrigt atvinnulíf þarf stöðugt efnahagsumhverfi, lága verðbólgu og hóflega vexti. Núverandi ríkis- stjórn hefur tekist með varfærni og hófsemi að stýra efnahagsmálum þannig að þessi markmið hafa náðst. Einhverjum hefði þótt það saga til næsta bæjar fyrir 10 áram að Island væri með lægstu verðbólgu í Evr- ópu. Kollsteypustefna stjómarand- stöðunnar, með gengisfellingum, óraunhæfum kjarasamningum og umframeyðslu úr ríkissjóði myndi rasta þeim árangri sem náðst hefur. Heilbrigt atvinnulíf þarf tolla- og haftalaus tengsl við önnur lönd, þar sem verslun og viðskipti geta gengið fyrir sig á jafnréttisgrandvelli. Þetta er smærri ríkjum sérstakt hagsmuna- mál. Atvinnustefna Alþýðuflokksins birtist meðal annars í tfmamóta- samningum um EES og GATT sem bjóða íslensku atvinnulífi ný tæki- færi á erlendri grand. Stjómarand- staðan er hrædd við allt sem útlenskt er og vill helst loka fsland inni á bak við tollmúra. Það er ekki stefna sem skilar minna atvinnuleysi og aukn- um hagvexti í framtíðinni. Heilbrigt at- vinnulíf þarf stöð- ugt flæði þekkingar og fjármagns milli þeirra sem hafa hugmyndir og framkvæði og þeirra sem vilja fjárfesta í nýsköp- un. Því fleiri teng- ingar sem bjóðast þarna á milli, því betra. Að loka úti erlendar fjárfestingar á íslandi er molbúahugsunarháttur og við kom- um okkur sjálfum í koll með honum. Við eigum að feta í fótspor ná- grannalanda og örva erlendar fjár- festingar með almennum aðgerðum og upplýsingu. Alþýðuflokkurinn áttar sig á þessu með Sighvat Björg- vinsson iðnaðar- og viðskiptaráð- herra í broddi fylkingar. Stjómar- andstöðuflokkarnir eru enn og aftur fullir vanmetakenndar fyrir hönd ís- lensku þjóðarinnar og telja að með þessu sé verið að selja landið með manni og mús. Sá málflutningur til- heyrir annairí öld en þeirri sem við nú lifum á. Raunar tel ég persónu- lega það okkur í hag að leyfa útlend- ingum að kaupa jarðir á Islandi og óþarfi að setja öfgakenndar girðing- ar við því eins og nú stendur til. Heilbrigt atvinnulíf verður ekki byggt upp með sjóðasukki og öðram sértækum bjargráðum stjórnmála- manna. Rikisstyrkir og niðurgreidd lán era afar vandmeð- farin tæki. Stjóm- málamenn eiga ekki að velja úr fyrirtæki eða einstakar at- vinnugreinar og ausa í þau styrkjum og lán- um eins og gert var í fiskeldi og loðdýra- rækt með hörmuleg- um afleiðingum. Besta form áhættu- fjármagns er hlutafé sem fjárfestar greiða úr eigin vasa. Næst- besta formið er hluta- fé eða víkjandi lán frá sjálfstæðum sjóðum sem stjórnað er fag- lega, hafa virkt eftirlit með fjárfestingum sínum og eiga að skila arði af þeim. Ókeypis eða ódýrt fjármagn getur bein- línis skaðað fyrirtæki sem eiga að standa sig í erlendri sam- keppni, til lengri tíma litið. Ekkert kemur í staðinn fyrir eigendur sem eru vakandi og sofandi yfir rekstrin- um, velta fyrir sér hverri krónu. sníða sér stakk eftir vexti og láta hlutina gerast með síg- andi lukku. Hver er sá stjómmála- maður sem getur séð fyrir sér næstu útflutningsleið Islendinga? Hefði sá maður komið auga á mögulegar gjaldeyristekjur af Björk, Sigurjóni Sighvatssyni, Kristjáni Jóhannssyni og tölvuveirabananum Friðriki Skúlasyni? Reyndar er umhugsunar- efni að af þessu unga hæfileikafólki er aðeins einn sem hefur sína starfs- stöð á Islandi. Er það kannski af því að hér snýst allt um fisk og landbún- að? Stjómarandstöðuflokkarnir með Framsókn í broddi fylkingar líta svo á, eins og raunar allt of margir kjós- endur, að stjómmálamenn eigi með beinum hætti að færa björg í bú og atvinnu í hérað. Menn sitja jafnvel með hendur í skauti og bíða eftir að þingmennimir komi færandi hendi með peninga úrríkissjóði, endurreisi gjaldþrota útgerðir eða fiskvinnslu- fyrirtæki í óbreyttri mynd svo blekk- ingarleikurinn geti haldið áfram með nokkur viðbótarfet í hengingaról- inni. A meðan beðið er bölva menn stjómmálamönnunum í sand og ösku fyrir að vera ónýtir og svíkja fögra loforðin. Einhvem tíma kemur að því að þessir ágætu kjósendur átta sig á því að atvinnustefna andskotans skilar minna en engu. Þegar sá efsti dagur rennur upp mun Alþýðuflokkurinn njóta góðs af sinni heilsteyptu raun- sæisstefnu. Það kemur ekkert í stað- inn fyrir fólkið sjálft og frumkvæði þess. Stjómmálamennirnir eiga að sjá um að umhverfið sé eins hagstætt og unnt er miðað við ytri aðstæður fyrir heilbrigð og sjálfbær fyrirtæki. Af öðram atvinnumálum er farsælast að þeir skipti sér sem minnst. Höfundur er kerfisfræðingur og sit- ur í stjórn Félags frjálslyndra jafn- aðarmanna. Pallborðið Vilhjálmur Þorsteinsson skrifar Hinumegin Stöð 2 ætlar að efna til mikillar skemmti- og hátíðardagskrár á jóladag. Þar verður spilað, sungið og talað, en umsjón þátt- arins verður í höndum Kolfinnu Baldvinsdóttur sem mun hafa verið valin úr hópi fjölda umsækj- enda til að gegna þessu starfi. Ymsir gestir munu koma þama við sögu, en meðal annars hefur frést að þeir Mörður Arnason og Hannes Hólmsteinn Gissurarson muni kasta af sér grím- unni. Sem þýðir: Að þessu sinni munu þeir ekki taka einhvern vamarlausan stjórnmálamann í bakarí- ið, heldur ræða þeir um fagnað- arerindið og jólin kannski jól bernsku sinnar... Fullvíst er nú talið að Stefán Guðmundsson alþingismaður Framsókn- ar á Norðurlandi vestra freisti þess að fella Pál Pétursson úr efsta sætinu í galopnu prófkjöri flokks- ins í byrjun janúar. Páll hefur verið leiðtogi Fram- sóknar á Norðurlandi vestra undangengin kjör- tfmabil, en vinsældir hans hafa dvínað mjög. Stefán stendur traustum fótum f kjördæminu, og er veldi hans sterkast á Sauðár- króki sem er mikið Fram- sóknarvfgi frá fornu fari. Kunnugir telja þessvegna að honum veitist létt verk að ná oddvitasætinu ef hann kærir sig um... Meira um Norðurland vestra. Talsvert er bollalagt um væntanlegan frambjóðanda Þjóðvaka í kjördæminu. Ekki er talið líklegt að nýi flokkurinn komi manni að, enda standa gömlu flokkamir óvíða jafn fastir fyrir. Engum frambjóðanda utan gömlu flokkanna fjögurra hefur tekist að vinna þar sæti síðan núverandi kjör- dæmaskipan var komið á 1959. Borgarallokkurinn var hinsvegar ekki fjarri takmarkinu 1987. Þá var Andrés Magnússon, vin- sæll læknir á Siglufirði, í framboði en hafði ekki er- indi sem erfiði. Menn reikna helst með að Sveinn Allan Morthens verði frambjóðandi Þjóð- vaka, og er ekki að efa að hann gæti orðið Ragnari Arnalds verulega skeinu- hættur... Prívatmaður dagsins Eftirfarandi dreifibréf barst Alþýðublaðinu í gær, til kynningar á splunku- nýrri bók: I skýrzlukladda þeim, er nú lítur dagsins ljós er fyrsta beina, eða opinbera og undan- bragðalausa frásögn manns, sem FRÍMÚRARAREGLAN hefur beitt sér gegn/tekið fyrir. I eitt og hálft ár hef ég, sem prívatmaðurinn Eiríkur kann- að EÐLI reglunnar, þau öfl, sem að henni standa, ÞJÓNA hennar og VERKLAG. Ég vænti þess að hvort, sem ræð- ur áhugi þinn á að vita tök reglunnar á lýðveldinu, eða viljir eigna þér mestu SPENNUSÖGU þessarar bókavertíðar, þá sé hún vel þess virði... fæst í BÓKA- BÚÐINNl BORG í Lækjar- götu og EYMUNDSON Hlemm. EIRIKUR PRÍVAT- M^ÐUR 070848-4499 FRÍ- MURARA & VAMPYRU- FRÆÐINGUR. Fimm á förnum vegi Hvaða bók langar þig að fá í jólagjöf? Guðbrandur Siglaugsson smiður: íslenska stilfræði. Erling Erlingsson aðstoðar- verslunarstjóri: Óskars sögu Hall- dórssonar. Alexander Alexandersson lögreglumaður: Góða sakamála- sögu og HM-bókina. Finnbogi Gunnlaugsson knatt- spyrnumaður: Grandavegur 7 eft- ir Vigdísi Grímsdóttur og Listin að lifa, bókina um Gunnar Dal. Þórður Geir Þorsteinsson nemi: Bókina hans Guðbergs.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.