Alþýðublaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
Hvað segja bóksalar vítt og breitt um landið um metsöluhöfundana í jólabókaflöðinu?
„Hallgrímur Helgason hefur tekið gríðarlegan sölukipp"
- segir Erling Erlingsson í bókabúð Máls og menningar við Laugaveg. Mannakynni Vilhjálms Hjálmarssonar fikra sig í metsölu-
hæðir, en sem fyrr tróna Ólafur Jóhann Ólafsson, Vigdís Grímsdóttir og Fríða Á. Sigurðardóttir á vinsældatoppi.
Sem fyrr eru það Sniglaveisla Ól-
afs Jóhanns Ólafssonar, Granda-
vegur 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur
og íluktum heimi eftir Fríðu A. Sig-
urðardóttur sem tróna á vinsælda-
toppi íslenskra skáldsagna. Úti á
landi er Vilhjálmur Hjálmarsson
að fikra sig upp metsölulistana með
sín Mannakynni. I ævisagnaflokkn-
um eru Halldóra Briem, Óskar
Halldórsson, Guðmundur Böðv-
arsson, Jakobína Sigurðardóttir,
Gunnar Dal og Aðalheiður Hólm
Span mest keypt og erfitt að sjá hver
skarar þar framúr. Þorgrímur Þrá-
insson mokar út báðum bókunum
sínum í barna- og unglingabóka-
deildum. Mikil umfjöllun og góðir
dómar um bók Hallgríms Helga-
sonar, Þetta er allt ad koma, virðist
nú vera farin að skila sér og hún hef-
ur tekið sölukipp í búð Máls og
menningar við Laugavegipn, Hag-
kaup í Kringlunni og á Isafirði. I
kjölfar toppanna þriggja í íslenska
skáldsagnahópnum (Olafs Jóhanns,
Vigdísar og Fríðu) kemur Einar
Kárason nteð Kvikasilfur. Pétur
Gunnarsson, Guðbergur Bergsson
og Sigurjón Birgir Sigurðsson -
alias Sjón - eru í rólegheitunum þar
á eftir. Pétur þykir selja furðulftið og
kemur það á óvart. Megas með
Bjöni og Svein hreyfist lítt úr hillum
bókabúðanna, sömuleiðis Þórunn
Valdimarsdóttir með sínar Höfuö-
skepnur og Arni Bergmann með
Þorvald víðförla. Þetta kom meðal
annars fram í máli bóksala um land
allt sem Alþýðublaðið ræddi við í
gær. Sem fyrr ber að hafa í huga að
jólasalan er vart hálfnuð; vikan fyrir
jól er sölumest. Bóksalar kvarta lítið
yfir afsláttartilboðum matvöruversl-
ana á bókum; skoða fyrirbærið sem
staðreynd er menn verði að sætta sig
við. Aberandi meiri hreyfing er á
bókasölunni á höfuðborgarsvæðinu
miðað við á landsbyggðinni þar sem
h'tið hreyfist fyrren rétt fyrir jól.
Mál og menning
„Fyrir það fyrsta vil ég minnast á,
að Þetta er allt að kotna eftir Hall-
grím Helgason hefur tekið gríðar-
legan sölukipp; sérstaklega eftir að
frábærir dómar um bókina og aukin
umfjöllun fór að skila sér. Eg held að
verið sé, að prenta nýtt upplag af
bókinni hans. Fríða Á. Sigurðar-
dóttir með / luktum heimi hefur
hinsvegar verið að seljast best hjá
okkur. Þar á eftir koma Kvikasilfur
eftir Einar Kárason og Guðbergur
Bergsson með Ævinlega. Síðan er
Ólafur Jóhann Ólafsson og Snigla-
Hallgrímur Helgason: Bók hans um
hina rammíslensku Ragnheiði
Birnu, hefur fengið góða kynningu
og frábæra dóma. Það skilar sér nú
í sölukipp. A-mynd: E.ÓI.
veislan auðvitað að seljast vel. Það
verður þó að hafa í huga þegar sölu-
tölur hjá Máli og menningu er skoð-
aðar, að viðskiptamannahópur okkar
er öðruvvsi samansettur en annars-
staðar; til okkar koma svo margir fé-
Iagsmenn og við seljum mest af bók-
um sem Mál og menning gefur út. I
ævisagnaflokknum hafa Jakobína
Sigurðardóttir og Gunnar Dal
selst best. Þar á eftir koma Óskars
saga Halldórssonar, minningar Að-
alheiðar Hólm Spans og einnig hef-
ur Lárus hómópati komið á óvart.
Annars finnst mér ævisögurnar ekki
eins sterkar og áður. Krummi hefur
til að mynda selst sáralítið hjá okkur
og Guðmundur Árni er steindauð-
ur. Bókin Oli í Olís mjatlast aðeins.
Svo er til að nefna bækur einsog
bókina um Pálma í Hagkaup sem
mér finnst persónulega vera
hneyksli. Þetta er að stofni til tíma-
ritsgrein sem er blásin út í 90 blað-
sfðna bók með haug af myndum og
risastóru letri,“ sagði Erling Erlings-
son, aðstoðarverslunarstjóri Máls og
menningar á Laugavegi.
Hagkaup
„Salan hjá okkur hefur litast af
þessum tilboðum sem vom í gangi.
Mér finnst salan vera mikið betri en í
fyrra. Þær skáldsögur sem hafa selst
best em Sniglaveisla Ólafs Jóhanns
Ólafssonar, Grandavegur 7 eftir
Vigdísi Grímsdóttur, Kvikasilfur
eftir Einar Kárason og einnig seld-
ust Þetta er allt að koma eftir Hall-
grím Helgason ogAugu þín sóut mig
eftir Sjón ágætlega. I ævisögunum
seljast best Gunnar Dal, Óskar
Halldórsson, Halldóra Briem og
Guðmundur Böðvarsson. Af öðr-
um bókum er til dæmis hægt að
nefna Bankabókina eftir Örnólf
Árnason. Krummi finnst mér lítið
hreyfast og sömuleiðis Guðmundur
Árni, en Oli í OIís hefur farið nokk-
uð. Báðar bækumar hans Þorgríms
Þráinssonar hafa rnikið selst.
Hringadróttinssaga eftir J.R.R.
Tolkien seldist líka upp á tilboðs-
dögunum, en það gerðu nú svo
margar bækur. Eg hef ekkert heyrt
um að framhald verði á þessum til-
boðum,“ sagði Auður Einarsdóttir
bóksölustjóri í Hagkaup í Kringl-
unni.
Akureyri
„Það em rólegheit hjá okkur og
við emm svona að jafna okkur eftir
skellinn sem kom með afslætti Hag-
kaups urn daginn. En við keyrum á
hálfurn dampi ennþá, sala virðist
vera færast nær jólum með hverju ár-
inu. Saga Akureyrar eftir Jón
Hjaltason er söluhæsta bókin hjá
okkur og síðan kemur Sniglaveislan
eftir Ólaf Jóhann. Á lista sem við
tóku saman í gær voru þær efstar. í
þriðja sæti var Saga Halldóru Briem,
íjórða sæti Fjöll og finiindi eftir
Ömar Ragnarsson, fimmta sæti
Mdnnakynni Vilhjálms Hjálmars-
sonar, sjötta sæti Grandavegur 7
eftir Vigdísi Grímsdóttur og svo
kornu ýmsar bækur einsog bókin um
Guðmund Böðvarsson og nokkrar
bama- og unglingabækur. Bækurum
menn einsog Óla í Olís, Hrafn
Gunnlaugsson og Guðmund Árna
hreyfast Iftið, en þó var Óli aðeins
farinn af stað. En þetta er ósköp ró-
legt ennþá," sagði Stefán Jónasson í
Bókabúð Jónasar á Akureyri.
Vigdís Grímsdóttir: Grandavegur 7
eftir skáldkonuna er annað eða
þriðja vinsælasta heimilisfang ís-
lenskra skáldsagnaunnenda þessi
jólin. A-mynd: E.ÓI.
ísafjördur
„Mér finnst ekki hafa gengið
nægilega vel með íslensku skáldsög-
urnar. Það em hinsvegar óvenjulega
margir titlar í þessunt flokki núna og
því getur verið að salan^ dreifist
meira. Sniglaveislan eftir Ólaf Jó-
hann Ólafsson hefur selst best og
sömuleiðis I luktum heimi eftir
Fríðu Á. Sigurðardóttur og Kvika-
Þama sá ég margan efnilegan
starfsmanninn því þau vom fljót að
komast upp á lagið með réttu hand-
tökin,“ sagði Finnur Geirsson for-
stjóri Nóa-Síríus í samtali við blaðið.
Hann fékk heimsókn nokkurra toppa
úr pólitík og atvinnulífi í gær og þeir
lögðu hönd á plóginn við sælgætis-
framleiðsluna.
„Þetta átak er hugsað sem áminn-
ing til okkar allra um að hérlendis er
framleidd góð vara á samkeppnis-
hæfu verði, liður í átakinu ÍS-
LENSKT JÁ, TAKK. Það voru þing-
menn, ráðherrar og forkólfar atvinnu-
lífsins sem lögðu hönd á plóginn við
að minna okkur á að það er atvinnu-
skapandi að kaupa íslenskt," sagði
silfur eftir Einar Kárason. Efstu
dagar Péturs Gunnarssonar ler
minna. Guðbergur Bergsson með
Ævinlega, Höfuðskepnur eftir Þór-
unni Valdimarsdóttur og Þorvald-
ur víðförli Árna Bergmanns seljast
trúnna. Augu þín sáu mig eftir Sjón
hreyfist lítið, en Þetta er allt að
kotna eftir Hallgrím Helgason er
farin af stað og selst ágætlega. I ævi-
sögunum selst best Jakobína Sig-
urðardóttir sem er hér norðan af
ströndum og síðan kemur saga Ósk-
ars Halldórssonar. Af öðmm bók-
um er að nefna Ómar Ragnarsson,
Útkall Alfa TF-SIF, Hvíta risann og
Þeirfiska sem róa,“ sagði Gunnlaug-
ur Jónasson, verslunarstjóri í Bóka-
verslun Jónasar Tómassonar á ísa-
ftrði.
Vestmannaeyjar
„Það er ljóst að ég lendi í því sama
og aðrir; bóksala er minnkandi og
fólkið hér fer mikið til Reykjavíkur.
Mér finnst ástandið verra en í fyrra
og ég sé ekki hvemig við getum
bmgðist við þessu. Samgöngur héð-
an em til dæmis það góðar að ef
svona mikill afsláttur er boðinn í
Reykjavík þá er mjög skiljanlegt að
fólk leiti þangað. Annars er salan
frekar jöfn. Það fer mjög lítið af ís-
lenskum skáldsögum en í ævisögun-
unt seljast Óli í OIís og Óskars
Rannveig
Guð-
munds-
dóttir
félags-
mála-
ráðherra
lék á
alls
oddi í
sæl-
gætis-
verk-
smiðj-
unni.
Halldórsson best,“ sagði Dóra Guð-
laugsdóttir, eigandi Bókabúðarinnar
í Eyjum.
Neskaupstadur
„Það er skárra ástandið núna í
bókasölunni hjá mér, en fyrir stuttu.
Staðreyndin er hinsvegar sú að við
seljum sáralítið af bókum. Mér sýn-
ist salan alltaf fara seinna og seinna
af stað og þrátt fyrir að salan sé svip-
uð núna og í fyrra þá gerist þetta allt
síðustu fjóra til fimm dagana fyrir
jól. Það er helst að Grandavegur 7
eftir Vigdísi Grímsdóttur, Snigla-
veisla Ölafs Jóhanns Ólafssonar
Kvikasilfur eftir Einar Kárason og
bókin hans Ómars Ragnarssonar
seljist. Annars em Mannakynni eftir
Vilhjálm Hjálmarsson sennilega
söluhæsta bókin hjá okkur. Vil-
hjálmur er náttúrlega héðan og fólk
kann að meta slíkar bækur. Kaupfé-
Iagið hér er síðan með 25% afslátt af
tíu vinsælustu bókunum og við get-
um ekkert gert í þvf. Kaupfélagið er
auðvitað á hausnunt, en á meðan
höldum við bara okkar striki. Eg á til
dæmis ekki von á að við fömm útí
svona kjötsölu einsog konan þama í
Árbænum í Reykjavík, við nennum
því ekki,“ sagði Fríður Bjömsdóttir,
sölustjóri bókadeildar Bókaverslun-
ar Brynjars Júlíussonar á Neskaup-
stað.
Helga Guðrún Jónasdóttir hjá Upp-
lýsingaþjónustu landbúnaðarins, en
hún vann að undirbúningi heimsókn-
arinnar í Nóa-Siríus.
Rannveig Guðmundsdóttir félags-
málaráðherra, Benedikt Davíðsson
forseti ASÍ, Halldór Ásgrímsson for-
maður Framsóknartlokksins, Stein-
grímur J. Sigfússon varafomtaður
Alþýðubandalagsins, Salome Þor-
kelsdóttir forseti Alþingis, Ögmund-
ur Jónasson formaður BSRB, Jó-
hanna Sigurðardóttir oddviti Þjóð-
vaka og fleira mektarfólk tók til
hendi í verksmiðju Nóa-Siríus f gær.
Herferðin ÍSLENSKT, JÁ TAKK
stendur nú yfir öðm sinni og var þetta
liður í herferðinni.
Toppamir í gottinu
Kjarasamningar eru lausir eftir 16 daga. Hvað segja verkalýðsforingjarnir?
Hlíf í Hafnarfirði:
Lægstu laun hækki um
10 þúsund
Sigurður T. Sigurðsson: Ég er mjög svartsýnn á
samningamálin.
Verkamannasambandið:
Vinnuveitendur
eru þreyttir
Björn Grétar Sveinsson: Ekki enn verið settar fram kröfur uppá
grjótharða peninga.
„Ég er mjög svartsýnn á samn-
ingamálin. Það sent kom frá ríkis-
stjóminni núna olli mér nokkmm
vonbrigðum. Þessar ráðstafanir sýna
að vísu ákveðinn vilja en ég er ekki
ánægður með að þeir sem betur
mega sín fái bættan sinn hag meðan
hinir verst stöddu eru skildir eftir.
Afnám ekknaskatts er eflaust gott
mál en hann leggst þó ekki á fyrr en
viðkomandi á eign upp á einar ellefu
milljónir," sagði Sigurður T. Sig-
urðsson fotmaður Hlífar í Hafnar-
firði.
Sigurður sagðist frekar hafa sætt
sig við þetta útspil ríkisstjórnarflokk-
anna ef þeir hefðu haft þennan svo-
kallaða ekknaskatt áfram en hækkað
mörkin eitthvað, en sagt jafnframt að
40 þúsund króna mánaðarlaun væm
ekki til að lifa af. Það yrði að gera
eitthvað fyrir það fólk. Einnig ef
skattleysismörkin hefðu hækkað
svolítið meira og ekki hefði verið
farið f vitlausan enda á skatteftirgjöf
lífeyris. Auðvitað ætti iðgjaldið að
vera skattfrjálst.
Sigurður var spurður hvenær hann
ætti von á að eiginlegar samninga-
viðræður færu í gang?
„Þær hljóta að fara í gang milli
jóla og nýárs ef menn vilja ekki sjá
þjóðfélagið rústast. Ég vil persónu-
lega láta reyna á að þeir lægst laun-
uðu fengju tíu þúsund króna hækkun
á ntánuði. Krónutalan væri látin
gilda og svo dæi hún út einhvers
staðar, hvernig sem það væri útfært.
En það er alla vega ljóst að við get-
um ekki haldið svona áfram. Þetta
ástand mótmælir sér sjálft. Það er
alltaf svo að þegar búið er að hækka
við þá sem betur mega si'n og komið
að þeim sem minna mega sín fara
allir raftar á flot, gargandi og gólandi
um að ekki megi fara á stað með
neina kröfugerð, þegar þeir em búnir
að fá sitt. Þetta gildir líka urn blaða-
menn,“ sagði Sigurður.
Hann sagðist vilja leggja áherslu á
10 þúsund króna launahækkun,
hækkun á skattleysismörkum og
létta vægi launaliða í lánskjaravísi-
tölunni. Þá þurfi einnig að koma til
aðgerða í húsnæðismálum.
Viðræður hafa farið fram milli
Dagsbrúnar, Hlífar og Verkalýðs- og
sjómannafélags Keílavíkur unt sam-
vinnu íkjarasamningunum. Sigurður
T. Sigurðsson sagði að það gæti far-
ið svo að þessi félög fæm saman til
samninga og það væri í sjálfu sér
ekkert vantraust á Verkamannasam-
bandið.
„Staðan er þannig hjá okkur að
deildirnar em í viðræðum um st'n sér-
mál sem við höfum kallað svo. Þar er
um að ræða fiskvinnsludeild, deild
verkafólks í byggingaiðnaði og deild
sem sér unt samskipti við opinbera
aðila. Fundir em bókaðir vegna þess-
ara viðræðna allt til 22. desember.
Hins vegar hatá ekki verið settar
fram kröfur upp á gijótharða peninga
„Starfshópar hafa verið að vinna
sína kröfugerð og við höfum rætt við
Dagsbrún um samvinnu við kom-
andi viðræður um nýja kjarasamn-
inga. Það hefur lítið komið út úr því
ennþá. En það er margt sem þarf að
laga fyrir utan lægstu launin,“ sagði
Ragna Bergmann formaður Verka-
kvennafélagsins Framsóknar.
Ragna sagði að ýmsar kröfur fæm
ennþá því við viljum taka sérkröf-
urnar fyrst,“ sagði Björn Grétar
Sveinsson formaður Verkamanna-
sambandsins í samtali við blaðið.
Bjöm var spurður um viðbrögð at-
vinnurekenda. Hann sagði þá vera
ákaflega þreytta. Þeir virtust koma
illa inn í góðærið. Hins vegar væri
ekki farið að reyna vemlega á samn-
ingsvilja vinnuveitenda. Það sem
sameiginlega inn til Alþýðusam-
bands íslands og auk þess væri
Framsókn í Verkamannasamband-
inu. Hún sagði að mikil óánægja
væri í félaginu nteð mikið atvinnu-
leysi sem bitnaði haif á konum. En í
heildarpakkanum væm ýmsar kröfur
sem Alþýðusambandið yrði að taka
á.
„Við vomm með kröfu unt afnám
vægi þyngst á þessari stundu væri að
tryggja starfsöryggi 1' fiskvinnslunni.
„Við emm á tímaáætlun með
þessar viðræður. Við gerðum áætlun
um mánaðamótin maí-júní á sam-
bandsstjórnarfundi og samkvæmt
henni verðum við í viðræðum um
sérmálin í desember og fram í janú-
ar,“ sagði Björn Grétar Sveinsson.
tvísköttunar á lífeyri og ríkisstjórnin
hefur þar komið til móts við okkur.
Hækkun persónuafsláttar var hins
vegar alls ekki nógu mikil. Það em
ýmis atriði í þessum bandormi ríkis-
stjómarinnar sem horfa til bóta en
annað þarf að sækja í hendur ríkisins
eins og alltaf,“ sagði Ragna Berg-
mann.
Verkakvennafélagið Framsókn:
Vill samvinnu við Dagsbrún
Ragna Bergmann: Margt sem þarf að laga fyrir utan lægstu launin.
Steingrímur J. Sigfússon og Sal-
ome Þorkelsdóttir hjálpast að við
konfektkassana.
Veltuaukning í íslenskum iðnaði á
fyrstu átta mánuðum þessa árs er 8%
miðað við sama tíma í fyrra. Samfellt
samdráttarskeið var árin 199! til
1993. Margt bendirtil að þessa aukn-
ingu megi ekki síst rekja til jress að
almenningur leggi sífellt meiri
áherslu á að velja íslenskt. A-myndir:
E.Ól.
Jóhanna Sigurðardóttir oddviti
Þjóðvaka fer fimum höndum um
molana.