Alþýðublaðið - 20.12.1994, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 20.12.1994, Blaðsíða 6
'iH NY101SV3NI$f10llV V1SN31S| 6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 Spennan í þessari mynd er slík aö áhorfandinn fær (klaka)sting fyrir hjartað. Michael Douglas og Sharon Stone í nístandi spennutrylli. Sýnd á nýársdag. Mynd sem þú verður að sjá - ef þú þorir. Óskarsverðlaunamynd Ef þú ætlar aðeins að sjá eina virkilega góða mynd um jólin þá skaltu sjá þessa. Aðalhlutverk: Al Pacino og Chris O'Donnel. Sýnd á jóladag. Mynd fyrir þá sem velja aðeins það besta! Það er spurning hvort myndlykillinn ræðurvið að afrugla þessa óborganlegu gamanmynd um hvernig á ekki að halda jólin. Chevy Chase í essinu sínu! Sýnd á Þorláksmessu. Góð með kæstri skötu. Frábær gamanmynd um veðurfræðing sem vaknar morgun einn og það ersami dagur og var í gær. Og það gerist aftur, og aftur og aftur... Aðalhlutverk: Bill Murray (hreint útsagt frábær). Sýnd á jóladag. Mynd sem þú verður að sjá. TðNABÍÖ Önnur jólin í röð týnist Kevin litli og nú er hann aleinn í New York. Og þar sem Kevin er þar eru ósvikin ævintýri. Sýnd á annan í jólum. Örugglega fyrir alla (nema viðkvæma skúrka). NEMO L I T L I Jólasaga $$ Prúðuleikaranna Gullfalleg teiknimynd með íslensku tali um Nemó litla sem ferðast ásamt íkornanum sínum inn í Draumalandið. Sýnd á nýársdag. Fyrir káta krakka. Prúðuleikararnir með sína eigín útgáfu af hinni sígildu jólasögu um aurapúkann Skrögg eftir Charles Dickens. Sýnd á annan í jólum. Mynd sem Kermitfroskur mælir með. Ein frægasta og besta mynd allra tíma enda var hún tilnefnd til níu Óskarsverðlauna og hlautfern. Sýnd á nýársdag. Mynd sem þú verður að sjá. Bastian finnur dularfulla bók og fyrr en varir er hann orðinn þátttakandi í ótrúlegu ævintýri. Sýnd á jóladag. Örugglega fyrir alla í fjölskyldunni. Sígild stórmynd með James Stewartfrá árinu 1946. Sýnd á aðfangadagskvöld kl. 21. Mynd sem þú verður að sjá.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.