Alþýðublaðið - 10.01.1995, Qupperneq 1
Sótt að Ragnari Arnalds í forvali Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra:
Hörð barátta
- segir Anna Kristín Gunnarsdóttir á Sauðárkróki, sem telur stöðu sína tvísýna eftir
miklar smalanir Siglfirðinga.
„Siglfirðingar virðast líta á þetta
forval sem átök milli byggðarlaga,
en ég gef kost á mér út á jafnréttis-
sjónarmið,“ sagði Anna Kristín
Gunnarsdóttir á Sauðárkróki, en hún
sækist eftir öðru sæti á framboðslista
Alþýðubandalagsins til Alþingis-
kosninga í vor í Norðurlandskjör-
dæmi vestra. Þar er fýrir Sigurður
Hlöðversson, varaþingmaður frá
Siglufirði, en hann hyggst ekki láta
sætið af hendi baráttulaust.
Forval Alþýðubandalagsins á
Norðurlandi vestra erf tvennu lagi. I
því fyrra, sem haldið var um miðjan
desember, náði Anna Kristín öðru
sætinu með átta atkvæða mun.
Stuðningsmenn Sigurðar á Siglufirði
hafa einsett sér að láta það ekki ger-
ast á nýjan leik og náðu að smala inn
í félag sitt, áður en kjörskrá var lok-
að unt síðustu helgi, hátt á sjöunda
tug félagsmanna. Það fer nærri að
vera tvöföldun á félagaskránni. A
meðan Siglfirðingar stóðu í ströngu
við að smala virðist sem stuðnings-
menn Önnu Kristínar hafi sofið á
verðinum, því innan við tugur bættist
við félagaskrána á Sauðárkróki.
Sigri Sigurður forvalið verður það
túlkað sem mikill ósigur fyrir Ragn-
ar Arnalds, oddvita listans, þar sem
hann er sagður hafa beitt sér fyrir
Önnu Kristínu, þó hvorki hún né
Sigurður Hlöðversson vilji kannast
við afskipti Ragnars af slagnum um
annað sætið. Einnig herma heimild-
armenn blaðsins úr innviðum Al-
þýðubandalagsins að margir Sigl-
firðingar hyggist stíga skrefið til
fulls og kjósa Sigurð í fyrsta sætið í
stað Ragnars.
Þegar Alþýðublaðið hafði sam-
band við Sigurð Hlöðversson til að
spyrja hann út í ástandið, sagði hann
sig vera einn af helslu stuðnings-
mönnum Ragnar Arnalds. „Ragnar
Amalds ber af öðrum stjómmála-
mönnum þessa lands eins og gull af
eir,“ sagði Sigurður. Hann taldi
stöðu sína fyrir forvali um næstu
helgi vera „ágæta,“ og sagðist ekki
kannast við nein átök. Allt væri í
hinu mesta bróðemi.
Ekki var keppinautur hans um
annað sætið á sama máli og sagði
Anna Kristín að baráttan væri hörð
og „mikil átök“ í gangi. Aðspurð unt
Ragnar Arnalds: Hann ber af öðr-
um stjórnmálamönnum þessa
lands eins og gull af eir, segir Sig-
urður Hlöðversson sem keppir að
öðru sæti á Norðurlandi vestra.
hvort að hún myndi taka úrslitunum
ef þau yrðu á þann veg að hún næði
ekki öðru sætinu, sagði Anna Kristfn
að hún tæki þeim en „svo kemur í
ljós hvað ég geri.“
Annað sem talið er geta mglað
stöðuna á Norðurlandi vestra er þrá-
látur orðrómur innan Alþýðubanda-
lagsins þess efnis að Ragnar Amalds
taki við formennskunni í flokknum á
næsta landsfundi, sem mun vera í
haust, af Ólafi Ragnari Grímssyni.
Þessi ráðstöfun mun vera liður í
stærri áætlun Ólafs Ragnars um að
taka á ný við formennskunni að
tveimur ámm liðnum, en lög flokks-
ins gera honum það ókleift að sitja
lengur en fram á haustið. Hins vegar
er ekkert sem mælir gegn því að
hann taki að sér formennskuna á ný
efitir stutt hlé. Ólíklegt þykir að
Ragnar Amalds sitji lengur á þingi
en næsta kjörtímabil, þar eð þá hefur
hann setið samfleytt í þrjátíu og
funm ár, eða frá árinu 1963.
Bæði Sigurði og Önnu hugnaðist
vel sú tilhugsun að Ragnar yrði for-
maður Alþýðubandalagsins, þó þau
teldu að meint flétta hefði ekkert
með framboð Alþýðubandalagsins á
Norðurlandi vestra að gera.
Krytur innan Reykjavíkurlistans?
Arni Þór vill hundabann,
borgarstjórínn segir nei
„Ég er fylgjandi því að banni við hundahaldi sé
framfylgt vegna þess að borgarbúar voru spurðir að
því sérstaklega í atkvæðagreiðslu fyrir sex árum hvort
þeir vildu aflétta banni við hundahaldi. Þeir svöruðu
mjög afgerandi að þeir vildu viðhalda banni við
hundahaldi. Af þeim sökum finnst mér að það eigi að
vera í gildi,“ sagði Árni Þór Sigurðsson, flmmti borg-
arfulltrúi Reykjavíkurlistans, í DV í gær.
Alþýðublaðið spurði Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur borgarstjóra hvort hún væri sama sinnis og Árni:
„Ég held að það sé mjög erfitt að snúa til baka með
þetta mál. Það er bara þannig komið, að það er mjög
mikið af hundum í borginni og erfitt að eiga við þetta.
Hvað á til dæmis að gera við þá hundaeigendur sem
þegar hafa fengið leyfi? Það er nú hægara um að tala
en í að komast. Einsog staðan er núna sé ég ekki að
hægt verði að banna hundahald í náinni framtíð."
Guðný Halldórsdóttir ofarlega á blaði
alþýðubandalagsmanna á Reykjanesi:
Guðný hefurfengið góða
auglýsingu uppá síðkastið
- segir alþýðubandalagsmaður á Reykjanesi. Ólafur Ragnar í efsta sæti.
Vantar
konur á
Austurland
íbúum á Austurlandi fækkaði úr
13.023 frá 1. desember 1993 í
12.909 á sama tíma í fyrra sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Hagstof-
unnar. Þetta er fækkun um 114
manns eða 0,88%.
Blaðið Austri vekur athygli á því
að á landinu öllu eru karlar 782 um-
fram konur og það sé athyglisvert
hversu stór hluti þeirra er búsettur á
Austurlandi þar sem karlkyns íbúar
eru 585 umfram konur. Það er aðeins
í Bæjarhreppi sem fleiri konur eru
heimilisfastar en karlar.
100 ára
kaup-
staoar-
afmæli
Seyðis-
fjarðar
Seyðisfjörður átti 100 ára
kaupstaðarafmæli 1. janúar síð-
astliðinn, en konungur Islands
og Danmerkur tók þá ákvörðUn
árið 1894 að veita honum kaup-
staðarréttindi strax uni áramót-
in. Uppúr því upphófst mikill
blómatími á Seyðisfirði og kaup-
staðurinn var í fararbroddi á Is-
landi með ýmsar nýjungar. Al-
þýðublaðið tileinkar blaðið í dag
Seyðisfirði og óskar Seyðfirðing-
um til hamingju með áfangann.
„Guðný Halldórsdóttir hefur feng-
ið góða auglýsingu uppá síðkastið,"
sagði alþýðubandalagsmaður í
Reykjaneskjördæmi í samtali við Al-
þýðublaðið í gær um niðurstöður
skoðanakönnunar Alþýðubanda-
lagsins í kjördæminu. Þar lenti Guð-
ný óvænt mjög ofarlega á lista. 376
félagar tóku þátt í könnuninni, sem
opin var öllum llokksmönnum, og
gátu þeir úlnefnt sex manns til fram-
boðs. Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, varð
efstur. 80% þátttakenda tilnefndu
hann.
Röð næstu manna er ekki gefin
upp, aðeins nöfn þeirra í stafrófsröð
sem lentu í 2. til 7. sæti. Þau eru:
Guðný Halldórsdóttir kvikmynda-
gerðarmaður og bæjarfulltrúi í Mos-
fellssveit, Jóhann Geirdal bæjarfull-
trúi á Suðumesjum, Lúðvík Geirsson
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, Pétur Vil-
bergsson vélstjóri í Grindavík, Sig-
ríður Jóhannesdóttir varaþingmaður
á Suðurnesjum og Valþór Hlöðvers-
son bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Santkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins lentu Jóhann og Sigríður
rnjög ofarlega á listanum, og í heild
virðist hlutur Suðurnesjamanna hafa
verið mikill. Talsverð smölun hefur
verið að undanfömu í flokksfélög í
öllum stærri bæjarfélögum kjör-
dæmisins, einkurn á Suðumesjum og
í Kópavogi.
Góð útkoma Guðnýjar Halldórs-
dóttur vekur mesta athygli, en hún
hefur verið mjög f sviðsljósinu
vegna gagnrýni á áramótaskaupið,
sem hún er, ásamt fleirum, höfundur
að. Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins kemur Guðný til álita í ann-
að sætið, enda er talsverð andstaða
við að Sigríður Jóhannesdóttir skipi
það áfram. Bæði Suðurnesjamenn
og Kópavogsbúar gera sterkt tilkall
til að fá 2. sætið.
Sendiherra Rússa á íslandi: Skylda rússneskra stjórnvalda að tryggja
mannréttindi íTétsjeníu. A-mynd: E.ÓI.
Blóðbaðið í Tétsjeníu:
Grosní er
glæpahreiður
- segir Júríj Reshetov sendiherra
Rússlands á Islandi: Átökin mannskæð
vegna þess að rússneski herinn hefur ver-
ið hikandi í aðgerðum sínum.
„Dúdajev, sem var foringi í rúss-
neska flughemum, hefur hótað að
fljúga sjálfur og eyðileggja
Moskvu," sagði Júríj Reshetov,
sendiherra Rússlands á Islandi, í er-
indi sem hann fiutti á laugardag í
húsakynnum MÍR. Reshetov varði
hemað Rússa á hendur Tétsjenum,
og sagði að um innanríkismál Rússa
væri að ræða. Grosní, höfuðborg
Tétsjeníu, hefði á síðustu ámm orðið
eitt helsta glæpahreiður rússneska
sambandsríkisins, og Dúdajev og
hans menn hefðu þverbrotið bæði
lög um þjóðarétt og stjómarskrá
Rússlands.
Sendiherrann, sem talar skínandi
góða íslensku, Ijallaði vítt og breitt
um ástandið í Rússlandi. Hann sagði
uppgang þjóðemisöfgaflokka mikið
áhyggjuefni, og þeir væm ein helsta
ógnin við stjóm Jeltsíns. Spilling
væri líka gríðarlegt vandamál, meðal
annars vegna þess að háttsettir emb-
ættismenn, sem sakaðir væm unt
spillingu, sætu áffam í embættum án
þess að hafa verið hreinsaðir af ásök-
unum. Þá varaði sendiheiTann ntjög
eindregið við fyrirhugaðri stækkun
NATO til austurs, og sagði að með
því væri Rússum stillt upp við vegg.
„Rússland er vestrænt ríki,“ sagði
Reshetov. „NATO og Rússland eiga
raunhæfa möguleika á að taka hönd-
um saman.“
Varðandi Tétsjeníu sagði Res-
hetov, að átökin hefðu verið jafn
mannskæð og raun bæri vitni vegna
þess að rússneski herinn hefði verið
hikandi í aðgerðum sfnum. „Ibúar
Tétsjeníu em rússneskir ríkisborgar-
ar,“ sagði hann, og því væri herinn
varfærinn í aðgerðum sínum. Það
væri hinsvegar skylda stjómvalda að
tryggja mannréttindi í landinu. Tét-
sjenískir uppreisnarmenn réðu yfir
miklu vopnabúri, enda hefði rúss-
neski herinn „gleymt nokkur hundr-
uð flugvélum og nokkur hundmð
skriðdrekum" þegar herstöðvum var
lokað þar fyrir fáeinum missemm.
Júríj Reshetov sagði að þegar væri
hafinn undirbúningur að uppbygg-
ingu Grosní. Hann sagði það til
marks um varfæmi rússneska hers-
ins, að þeir hefðu auðveldlega getað
lagt forsetahöllina í Grosní f rústir,
það hefði „ein flugvél á hálftíma“
auðveldlega getað. Það hefði hins-
vegar ekki verið gert.
Um kvöldið sýndi sjónvarpið síð-
an nýjar myndir frá Grosní - þarsem
forsetahöllin stóð í ljósum logum.