Alþýðublaðið - 10.01.1995, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995
ALÞMBIMIID
20850. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Hver er nú
apaköttur?
Á föstudaginn birti DV niðurstöður skoðanakönnunar sem
meðal annars sýndu að persónulegar óvinsældir Ólafs G. Ein-
arssonar menntamálaráðherra höfðu fímmfaldast frá siðustu
könnun. í fyrradag tilkynnti Alþýðubandalagið í Reykjanes-
kjördæmi að Guðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðarmaður
hefði lent í einu af efstu sætum í skoðanakönnun meðal flokks-
manna um skipan framboðslista fyrir kosningamar í vor. Milli
þessara tveggja frétta er einkar ógeðfellt samhengi.
Guðný Halldórsdóttir var einn af höfundum hins umdeilda
áramótaskaups Sjónvarpsins. Þar voru tveir stjómmálamenn
teknir fyrir í hverju atriðinu á fætur öðm: Ólafur G. Einarsson
og Ámi Sigfússon. Sérstaklega var spjótum beint að mennta-
málaráðherra með yfirdrifnum hætti. Fjöldamargt er gagnrýnis-
vert við störf og embættisfærslu Ólafs G. Einarssonar á kjör-
tímabilinu, en ástríðufullur áhugi umsjónarmanna skaupsins á
að ata persónu ráðherrans auri leiddi þá handan við allt velsæmi
- og fyndni.
Miklar deilur urðu um skaupið, en að sönnu virtist nokkuð
fjarstæðukennt að ásaka umsjónarmenn þess um pólitískar of-
sóknir. Skýringin virtist einfaldlega vera fólgin í mislukkaðri -
eða að minnsta kosti mistækri - kímnigáfu. Fréttir af framboðs-
málum Alþýðubandalagsins á Reykjanesi setja hinsvegar þetta
ófyndna mál í nýtt ljós.
Forval Alþýðubandalagsins á Reykjanesi fór fram í síðustu
viku. Haft er eftir heimildamanni í frétt Alþýðublaðsins í dag,
að Guðný hafi „hlotið svo góða auglýsingu uppá síðkastið“, og
þessvegna hafi hún fengið glimrandi kosningu. Hin „góða aug-
Iýsing“ Guðnýjar var áramótaskaupið, sjónvarpsþáttur sem
næstum allir landsmenn horfa á, þarsem æran var tætt var af Ól-
afí G. Einarssyni - efsta manni á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi. Hin „góða auglýsing“ fleytir nú Guðnýju
í framboð fyrir Alþýðubandalagið í Reykjaneskjördæmi. Hin
„góða auglýsing“ Guðnýjar Halldórsdóttur er án efa helsta
ástæða þess að óvinsældir Ólafs G. Einarssonar fímmfölduðust
í einu vetfangi. Hver er nú „skíthæll“ og „apaköttur“?
Hundalógík
í Reykjavík
I Reykjavík er í gildi afkáraleg reglugerð um hundahald.
Fyrsta grein reglugerðarinnar hljóðar svo: „Hundahald er bann-
að í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur.“ Samkvæmt 2. grein er
borgarstjóm hinsvegar heimilt að veita einstaklingum leyfi til
hundahalds, að uppfylltum ótal skilyrðum. Á skrá Heilbrigðis-
eftirlits Reykjavíkur em í kringum 1100 hundar. Hundahald er
því bannað í orði en leyft á borði.
Nú em hinsvegar teikn á lofti um að einhverjir boigarfúlltrú-
ar vilji láta til skarar skríða gegn hundum í Reykjavík. Ámi Þór
Sigurðsson, borgarfulltrúi R-listans, virðist ætla að verða ein-
hverskonar krossfari í baráttu gegn hundahaldi. í DV í gær lýs-
ir hann yfír því, að hundar „passi illa“ í borg. Ámi Þór vill hætta
að veita undanþágur frá hundahaldi og „sjá til“ með þá hunda
sem þegar em í borginni. I þessum orðum er fólgin lítt dulin
hótun í garð hundaeigenda í Reykjavík.
Það er vonandi að meirihlutinn í borgarstjóm Reykjavíkur
finni sér verðugri verkefni en heilagt stríð gegn hundum. Á
hinn bóginn er sjálfsagt að breyta hinni fráleitu reglugerð sem
bannar hundahald um leið og það er leyft. Ámi Þór Sigurðsson
á rætur í þeim stjómmálaflokki sem hefur mest dálæti á boðum
og bönnum. Það er hinsvegar stefna sem „passar illa“ hjá frjáls-
lyndu og nútímalegu stjómmálaafli á borð við Reykjavíkurlist-
ann.
Rökstólar
Sjálfur skaust hann í iðu landsmálanna sem ritstjóri Þjóðviljans,
sem honum tókst með góðra manna hjálp að skilja við gjald-
þrota, og nota flokkstengsl í bankaráði Landsbankans til að
koma þrotabúinu í geymslu í skúffu góðviljaðra bankastjóra,
þar sem það þrífst í góðu yfirlæti.
Góðvild
bankastjóra
Langflestir stjómmálamenn hasla
sér völl í landsmálum af því þeir hafa
þar einhver erindi að reka; og í upp-
hafi bera sumir jafnvel með sér hug-
sjónir í farteskinu. Frá þessu eru þó
undantekningar. Fyrir hvað stendur
til dæmis Svavar Gestsson?
Flann hefur sjálfur sagt í viðtali
við Alþýðublaðið að blaðið sé ger-
samlega marklaust af því það sé
flokksblað. Sjálfur skaust hann í iðu
landsmálanna sem ritstjóri Þjóðvilj-
ans, sem honum tókst með góðra
manna hjálp að skilja við gjaldþrota,
og nota flokkstengsl í bankaráði
Landsbankans til að koma þrotabú-
inu í geymslu í skúffu góðviljaðra
bankastjóra, þar sem það þrífst í
góðu yfirlæti. En ef frá er talin
Pravda á tímum Stalíns, þá gat ekki
hreinræktaðra flokksblað en einmitt
Þjóðviljann sáluga. Svavar Gestsson
var því ritstjóri blaðs sem samkvæmt
hans eigin skilgreiningu var alger-
lega marklaust, og hann hlýtur því að
vera eini maðurinn sem að eigin áliti
kom gersamlega marklaus inn í
stjómmálin.
í upphafi
var svavar
I upphafi var að vísu svo, að Svav-
ar var krónprins örfárra, en valda-
mikilla manna í Alþýðubandalaginu,
sem trúðu á hugsjónir kommúnism-
ans. Um langan aldur ríkti eins konar
dulið tvíveldi í flokknum, þar sem
tókust á annars vegar sanntrúaðir
kommúnistar, dreggjar gamla
Kommúnistaflokksins frá kreppuár-
unum, og hins vegar ftjálslyndari
sósíalistar sem rifu með sér hrif-
næma, vel gefna unga menn á borð
við Ragnar Arnalds. Einar Ol-
geirsson var lengi vel leiðtogi
kommanna innan Alþýðubandalags-
ins, í fyrstu sem virkur foringi og
fram í háan aldur sem hugmynda-
fræðilegt leiðarhnoða hópsins. Helsti
lautinant hans innan flokksins var
Ingi R. Helgason. Þegar Lúðvík
Jósepsson hætti fyrirvaralítið þátt-
töku í stjómmálum fyrir 1980 þurfti
nýjan kyndilbera fyrir arfleifð
kommúnismans. Og Svavar Gests-
son, sem fyrir tilstilli hópsins hafði
ungum verið lyft til ritstjóra á Þjóð-
viljanum, varð fyrir valinu.
Met í klúðri
Svavar santeinaði allt sem þurfti
til að búa til strengjabrúðu djúpra
hugsuða á borð við Inga R. og Einar
Olgeirsson, sem var enn í fullu and-
legu fjöri. Svavar hafði verið í námi í
Austur-Þýskalandi meðan öryggis-
gæslan Stasi réði lögum og lofum,
var viðráðanlegur eins og Ólafur
Ragnar Grúnsson átti síðar eftir að
kynnast, fylgdi flokkslínunni á
hveijum tíma út í æsar - og vera
hans á Þjóðviljanum sýndi hvorki til-
burði til gagnrýni né frjórrar hugsun-
ar.
Svavar Gestsson var með öðrum
orðum eins og klipptur út eftir for-
skriftinni sem fylgt var í skólum
austur-þýsku kommúnistanna, þar
sem ungir menn úr leir voru hnoðað-
ir til að fylla upp í módel fyrirmynd-
arleiðtoganna.
Það er óþarfi að rekja formanns-
feril Svavars Gestssonar. Honum
tókst að klúðra sínu eigin pólitíska
lífi með þvílíkum hætti, að fáum nú-
lifandi mönnum tækist að leika það
eftir. Ólafur Ragnar, sem í upphafi
hafði lítinn stuðning í Alþýðubanda-
laginu, tók örstuttan tíma í að brjóta
hann niður, og hirti af honum for-
mennskuna eins og frægt er orðið -
með hjálp örfárra stráka og stelpna
úr háskólanum, sem tættu Svavar
sundur án þess að nota nema annað
heilahvelið.
Eítir Svavar lá þá ekkert nema
hafa komið Alþýðubandalaginu nið-
ur í 5 til 6 prósenta fylgi, auk þess
sem hann launaði mentor sínum
gömlum, Inga R. Helgasyni, með því
að gera hann að forstjóra Brunabóta-
félagsins. Ingi, Iciðtogi gamla geng-
isins, sem fram á þennan dag hefur
haft umtalsverð ítök í Alþýðubanda-
laginu, launaði honum á móti með að
tryggja honum áfram þingsæti fyrir
flokkinn. Og í því sat Svavar, og
sleikti sárin.
Ekki ég, ekki ég!
Sá karakterþáttur sem gömlu
hugsuðunum fannst eftirsóknarverð-
astur í Svavari Gestssyni var einmitt
skortur hans á hugmyndalegu sjálfs-
trausti, sem gerði það að verkum að
hann fylgdi jafnan straumnum, og
var yfirleitt á sama máli og þeir sem
voru í kringum hann.
Svo hrundi Berlínarmúrinn, og
kommúnisminn fór í vaskinn. Allir
„bræðraflokkarnir“ í Austur-Evrópu
uppgötvuðu skyndilega, að Lenín
hafði haft rangt fyrir sér, og komm-
únisminn verið leiður misskilningur.
Að bragði gerðist það þá, að Svav-
ar Gestsson vaknaði einn morgun og
uppgötvaði það lika, að hann hafði í
rauninni aldrei verið kommúnisti!
Síðan hefur hann keppst við að af-
neita þeirri hugmyndafræði, sem
hann varði þó löngum rösklega fyrr á
tíð. Vera má, að sú afneitun gagnist
honum lítt, þegar öll leyndarskjöl
Stasi öryggislögreglunnar verða
komin ffam í dagsljósið í fyllingu
tímans. En vitað er að hún hélt skjöl
yfir íslenska ungkommúnista í Aust-
ur-Þýskalandi, - þó svo Svavar sé
raunar ekki sá þingmaður Alþýðu-
bandalagsins, sem helst er talinn
þekkja innviði Stasi af eigin raun.
En með afneitun sinni á eigin for-
tíð undirstrikar Svavar Gestsson þá
markleysu sem hefur einkennt hans
pólitíska feril. Fyrst hann stendur
ekki lengur fyrir þann sósíalisma
sem hann lærði í Austur-Þýskalandi,
fyrir hvað stendur hann þá? Svarið er
einfalt og öllum ljóst, - en vissulega
heldur dapurlegt:
Svavar Gestsson stendur ekki fyr-
ir neitt!
Silfur Svavars
Fyrir utan að vera þingmaður hef-
ur Svavar aldrei gert neitt nema vera
leigupenni pólitfskrar slefnu, sem
hann sjálfur kannast ekki lengur við.
Hvað ætti hann svo sem að taka sér
fyrir hendur ef flokkurinn svipti
hann þingsætinu, sem auðvitað er
löngu kominn tími á?
Af þessum sökum er Svavari
Gestssyni það hrein nauðsyn að
hanga á þingsætinu, hvað sem það
kostar, af því hann hefur einfaldlega
ekki að neinu að hverfa.
Þetta skilur hann mæta vel. Þess-
vegna kaus hann að svíkja bestu
stuðningsmenn sfna með því að gera
bandalag við helsta tjandmann sinn í
lífinu, Ölaf Ragnar, um skiptingu
vonarsæta á framboðslista Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík - og hafna
prófkjöri. Þannig kom hann í veg
fyrir að löngu tímabær atlaga yrði
gerð að honum sjálfum, en urn leið
sveik hann til dæmis stuðningsmann
sinn Auði Sveinsdóttur, sem óðfús
vildi láta reyna á vaxandi styrk sinn í
prófkjöri, og hefði að líkindum náð
öðru sætinu. Fyrir vikið er líklegt að
hún hrekist úr flokknum. Stefanía
Traustadóttir, varaþingmaður og í
innsta stuðningskjama Svavars, hef-
ur jafnframt ákveðið að láta af starfi
innan hans, og lesendur Alþýðu-
blaðsins þekkja vel viðbrögð Alf-
heiðar Ingadóttur (R. Helgasonar).
Mannkynssagan þekkir mörg
dæmi um menn, sem selja vini og
sannfæringu fyrir eigin hag. Fáir áttu
hins vegar von á því að Svavar
Gestsson skipaði sér á gamals aldri í
þann hóp. En vonandi ávaxtar hann
silfurpeningana vel. Kannski hann
gæti notað vextina til að grynnka á
skuldum þrotabús Þjóðviljans við
Landsbankann...
Dagatal 10. janúar
Atburðir dagsins
1645 William Laud, erkibiskup af
Kantaraborg, hálshöggvinn í Lund-
únum. 1917 Buffalo Bill deyr; per-
sónugervingur Villta vestursins.
1935 Mary Pickford og Douglas Fa-
irbanks, umtalaðasta parið í Holly-
wood, slíta hjónabandi sfnu. 1946
Þjóðabandalaginu slitið, og það leyst
af hólmi með Sameinuðu þjóðunum.
Afmælisbörn dagsins
Paul Heinreid kvikmyndaleikari,
fæddur í Vínarborg; lék meðal ann-
ars í Casablanca, 1908. Gustaf Hu-
sak leiðtogi kommúnista í Tékkó-
slóvakíu 1969-87, 1913. Rod Ste-
wart rokkstjama, 1945.
Annálsbrot dagsins
Þar í Trékyllisvík var ófriður af aft-
urgöngudjöfli sem og í Skagafirði.
Sjávarborgarannáll, 1654.
Málsháttur dagsins
Líkar em menjar draums og skugga.
Náttúra dagsins
Kannski verður „Heimsbókmennta-
saga“ Kristmanns Guðmundssonar
langlífasta verk hans. Það kemur til
af þeirri náttúm svívirðingarinnar að
geymast sem vamaður kynslóð fram
af kynslóð.
Ritdómur Bjama Benediktssonar frá Hofteigi
um Heimsbókmenntasögu Kristmanns; Þjó6-
viljinn 22. nóvember 1955.
Orð dagsins
Að drepa sjálfan sig
er synd gegn lífsins herra,
að lifa sjálfan sig
er sjöfalt verra.
Hannes Hafstein.
r r
Lokaorð dagsins
Berti...
Hinstu orð Viktoríu Englandsdrottningar
(1819-1901). Umræddur Berti var eiginmaður
Viktoríu.
Skák dagsins
Staðan í skák dagsins kom upp í við-
ureign tveggja stigalágra skák-
manna, Floreans og Orals sem
hafði svart og átti leik. Oral hristi
framúr erminni snotra fléttu sem
knúði Florean til uppgjafar í fáum
leikjum enda var þá drottningu hans
bani búinn. Hvað gerir svartur?
1. ... Bxh3! 2. Bg5! He8!! 3. gxh3
Dg3+ 4. Dg2 Bxd4+ 5. Khl Hel+
6. Hxel Dxel+ Hvítur gafst upp.