Alþýðublaðið - 10.01.1995, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐU BLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995
4-
Alþýðublaðið spjallar við sóknarprestinn Róbert Krístjánsson um sögu Seyðisfjarðar:
Seydisfjörður, kaupstadi
„Mikill uppgangur varð á síðari hluta 19. aldar vegna síldveiða Norðmanna úti fyrir Austurlandi. Það var upp úr
1860. Þá fjölgaði íbúunum mikið. Tímamót urðu þegar mikill athafnamaður fluttist til bæjarins frá Noregi og
settist þar að. Otto Wathne byggði upp stórveldi í verslun og sjávarútvegi."
Seyðisfjörður er kaupstaður á
Austfjörðum fyrir botni samnefnds
fjarðar, en íbúar eru hátt í þúsund
talsins. hefstu atvinnuvegir eru sjáv-
arútvegur, sem um 40% íbúanna
starfa við, þjónusta, iðnaður og
verslun. Fjarðará heitir áin sem
skiptir Seyðisfirði í tvennt. Að norð-
an er Fjarðaralda/Alda og að sunnan
Búðareyri. Á Seyðisfirði er meðal
annars elsta landsímahús á Islandi,
upphaflega byggt 1894, rafstöðin
Fjarðarsel, byggð 1912 til 1913, en
hún er fyrsta riðstraums- og há-
spennustöð á Islandi, vatnsveita,
lögð 1903 til 1907 og sjúkrahús,
byggt 1898 til 1901. Kirkjan á Seyð-
isfirði var endurbyggð árin 1921 til
1922.
Byggð á Seyðisfirði á sér langa
sögu. Um þá sögu er enginn maður
fróðari en séra Kristján Róbertsson,
sóknarprestur þar í bæ. Hann hefur
nú lokið við að rita fyrra bindið af
sögu Seyðisfjarðar og stefnir að því
að hún komi út á þessu ári. Alþýðu-
blaðið spjallaði við séra Kristján um
upphaf og þróun byggðarinnar.
Kristján rekur söguna frá upphafi,
með frásögnum af Bjólfí landnáms-
manni og það sem hægt er í gegnum
heimildalítið tfmabil frá landnáms-
öld og fram undir aldamótin 1800.
Það er helst að heimilda sé að vænta
í fomum bréfum og máldögum. Þó
er ljóst að búið hefur verið í firðinum
frá landnámsöld. Sú byggð mun ekki
hafa verið mjög fjölmenn, svona tíu
til ellefu bæir og einhverjar hjáleig-
Það var svo í lok átjándu aldar að
nokkrir danskir kaupmenn ákváðu
að gera tilraun til verslunar um
Seyðisfjörðinn. Það fór fljótlega út
um þúfur, þar eð sú verslun var ólög-
leg og illa séð af yfirvöldum. Hins
vegar var fræjunum þar með sáð og
hugmyndin lifði. Enda að vonum,
því á Seyðisfirði er ein besta náttúru-
lega höfnin á landinu. Héraðsbúar
sýndu þessu tiltæki mikinn áhuga,
því styttra var að versla um Seyðis-
fjörð en Eskifjörð. Seyðisfjörður
hlaut svo löggildingu sem verslunar-
staður árið 1842. Árið 1848 voru
reistar verslanir á Fjarðaröldu og
1851 á Versdalseyri. Þar með var
kominn grundvöllur að því þéttbýli
sem síðar varð.
Mikill uppgangur varð á síðari
hluta 19. aldar vegna síldveiða
Norðmanna úti fyrir Austurlandi.
Það var upp úr 1860. Þá fjölgaði íbú-
unum mikið. Tímamót urðu þegar
mikill athafnamaður fluttist til bæj-
arins frá Noregi og settist þar að.
Otto Wathne byggði upp stórveldi í
verslun og sjávarútvegi. Hann keypti
bryggjur og fiskverkunarhús. Hann
var framsýnn maður og treysti ekki
eingöngu á síldina, heldur hóf að
verka annan fisk, svo sem þorsk, og
versla með hann. Hann stofnaði fé-
lag um út- og innflutning og á skip í
fömm á milli landa með ýmsan
vaming. Wathne var með útibú víðar
á landinu, en höfuðstöðvamar vom
ávallt á Seyðisfirði.
Fólkinu fjölgar og ijölgar. Við
fyrri þéttbýliskjama bætast Búðar-
eyri og Eyrarstaðaþorp. Menn gæla
við kaupstaðarstofnun. Árið 1893 er
hreppnum skipt í tvennt. Árið eftir
ákveður konungur íslands og Dan-
merkur að Seyðisfjörður fái kaup-
staðarréttindi l.janúar 1895. Þaðem
slétt hundrað ár frá þeim atburði og
því fagna Seyðfirðingar og aðrir
landsmenn í ár. Ibúar em við
kaupstaðarstofnun á milli sex og
sjöhundmð og um aldamótin
1900 em þeir 1200 talsins. Síðan
þá hafa verið miklar sveiflur í
íbúafjölda bæjarins.
Seyðfirðingar hafa ætíð verið
mjög framsæknir. Þar byggir
Wathne hús, sem þá er betur útbú-
ið en nokkuð annað hús á íslandi,
með miðstöðvarhitun, vatnssal-
erni og rennandi vatni. Það hús
hýsti síðar fyrstu símstöð lands-
ins, en símsamband við útlönd
komst á í gegnum Seyðisfjörð ár-
ið 1906.1 þessu ágæta húsi em nú
bæjarskrifsofur Seyðisfjarðar-
kaupstaðar.
Sjúkrahús er tekið í notkun á
Seyðisfirði árið 1900, vatnsveitan
er lögð 1903 og ekki má gleyma
því að bærinn er sá fyrsti á land-
inu til að vera allur lýstur með
rafmagni, en árið 1913 er Fjarð-
ardalsvirkjun reist. Hún er rið-
straums- og háspennuvirkjun og
verður strax almenningsrafstöð. Þar
skýtur ýmis iðnaður rótum og er
Vélsmiðja Seyðisfjarðar reist upp úr
aldamótum. Hún verður fljótt
stærsta véla- og jámsmíðaverkstæði
á landinu og starfaði hún allt þar til
fyrir fáum ámm. 1 bænum var fyrsta
sútunarverksmiðja landsins frá þvf á
dögum innréttinga Skúla fógeta, og
stendur húsið sem hýsti hana enn. Á
Versdalseyrir var verksmiðja sem
framleiddi til útflutnings Kínalífs-
elexír, sem var fluttur út sem heilsu-
drykkur og var hann harla eftirsóttur,
þar sem í honum var mikill spíri og
þótti hressandi.
Seýðisfjörður hefur ávallt verið
mikill menningarbær. Þar hófst
blaðaútgáfa fyrir aldamót og um
aldamótin vom gefin út tvö vikublöð
í bænum, Austri, sem Skapti Jóseps-
son ritstýrði og Bjarki, sem skáldið
Þorsteinn Erlingsson sá um, en Þor-
steinn var atvinnurekandi á staðnum
og stofnaði líka fyrsta verkalýðsfé-
lag landsins, einmitt á Seyðisfirði.
Þar varð síðar bókaútgáfa í tengslum
við þær prentsmiðjur sem vom í
bænum og störfuðu þær langt fram
eftir öldinni. Þar var mikið félagslíf
og eymir eftir af því enn. Þar vom
starfræktir kórar uppúr aldamótum
og jafvel kammerhljómsveitir þeirra
borgara er áttu hljóðfæri og kunnu
að spila.
Seyðisfjörður varð ein helsta
bækistöð Bandamanna á Islandi í
seinni heimsstyijöldinni og má segja
að það hafi verið blendin ánægja
sem því fylgdi. Fjörðurinn var girtur
tundurduflum, svo útgerð lagðist að
mestu af. Allt fmmkvæði í atvinnu-
málum var drepið í dróma, því nán-
ast allir bæjarbúar unnu hjá hemum.
Því var bærinn eftir stríð nánast svið-
in jörð miðað við gullaldarskeiðið
þar á undan.
I bænum er meira af gömlum og
fallegum húsurn en í flestum álfka
bæjum á Islandi. Gangskör hefur
verið gerð í því að endurbæta þau,
því ætla má að framtíð sé fyrir ferða-
mannaþjónustu á Seyðisfirði, jafnvel
frekar en á öðmm stöðum landsins
en Seyðisfjörður hefur verið við-
komustaður færeysku bílaferjunnar
Norrænu frá 1975. Bærinn byggist
upp undir miklum norskum áhrifum
og minnir því um margt á norskar
fjarðabyggðir. Þar er einnig veður-
sæld meiri en á flestum stöðum öðr-
um á Islandi á summm.
í stríðinu vom hermennimir þar
margfalt fleiri en íbúarnir og í dag er
það svo að á sumrin er mikið af út-
lendingum í bænum vegna ferjunn-
ar. Það má því með sanni segja að
Seyðisfjörðurhafi alla tíð verið mjög
alþjóðlegur bær. Eins og áður er
nefnt, þá hófst ferlið að stofnun
kaupstaðar með því að hreppnum
var skipt í tvennt. Fyrir fimm ámm
var hringnum lokað er Seyðisfjarð-
arhreppur var sameinaður Seyðis-
firði 1990. Kaupstaðurinn átti hundr-
að ára afmæli á Nýársdag. Alþýðu-
blaðið óskar Seyðisfirði til hamingju
með áfangann.
Vinningstölur
7. jan. 1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
0! 5 af 5 1 4.811.760
0 +4af 5 7 70.500
a 4 af 5 135 6.300
pi 3 af 5 4.106 480
Aðaltölur:
4 I 17
22 28 30
BÓNUSTALA:
Heildarupphæð þessa viku:
kr. 8.126.640
UPPLVSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVABP 451
Húsbréf
Onnur heimild:
íslenska alfræðiorðabókin.
„Seyðfirðingar hafa ætíð verið mjög framsæknir. Þar byggir Wathne hús,
sem þá er betur útbúið en nokkuð annað hús á íslandi, með miðstöðvar-
hitun, vatnssalerni og rennandi vatni. Það hús hýsti síðar fyrstu símstöð
landsins, en símsamband við útlönd komst á i gegnum Seyðisfjörð árið
1906. í þessu ágæta húsi eru nú bæjarskrifsofur Seyðisfjarðarkaupstað-
ar."
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokki:
4. flokki 1992 - 5. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. mars 1995.
Öll númerin veröa birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess liggja upplýsingar frammi í Húsnæöis-
stofnun ríkisins, á Húsnæöisskrifstofunni á
Akureyri, í bönkum, sparisjóöum og verðbréfa-
fyrirtækjum.
cSg húsnæðisstofnun ríkisins
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00
Stutt spjall við Hallstein Friðþjófsson,
formann verkamannafélagsins Fram:
Bjartara framundan
í atvinnumálum
Einn af forystumönnum jafn-
aðarmanna á Seyðisfirði um
langt skeið hefur verið Hall-
steinn Friðþjófsson, formaður
verkamannafélagsins Fram.
Framundan eru annasamir tímar
fyrir verkalýðsforingja í tengsl-
um við komandi kjarasamninga-
viðræður og sagði Hallsteinn
helstu verkefni félagsins nú vera
tengd undirbúningi þar að lút-
andi. Atvinnuástandið á Seyðis-
firði komst talsvert í umræðuna
fyrir fimm árum þegar Fisk-
vinnslan þar í bæ varð gjald-
þrota. Þá missti um þriðjungur
Seyðfirðinga atvinnuna. Al-
þýðublaðið spurði Hallstein um
atvinnuástandið á Seyðisfirði í
dag.
Hallsteinn sagði að það hefði ver-
ið að koma upp úr nokkurri lægð að
undanfömu, sem hefði komið til eft-
ir að frystihúsið á staðnum fór á
hausinn 1989. Menn væru hinsvegar
bjartsýnni nú en löngum áður og
leyfðu sér jafnvel að búast við tals-
verðri loðnu á árinu.
En hvemig skyldi ástandið vera í
pólitíkinni? „Héma ríkir hundgamall
íhalds- og framsóknarmeirihluti,"
sagði Hallsteinn. „Sameiginlegt
framboð félagshyggjuaflanna náði
ekki að skáka honum í síðustu kosn-
ingum og missti jafnvel cinn mann.
Starf vinstri aflanna hefur því undan-
farið verið í talsverðri lægð.“ Um
Alþýðuflokkinn á Seyðisfirði sagði
hann vera svipaða sögu að segja, þó
hann ætti von á því að menn fæm
smám saman að komast í gang fyrir
kosningar.
Hallsteinn er fæddur og uppalinn
Seyðfirðingur og vill hvergi annars-
staðar búa. Hann sagði það vera gott
að búa á Seyðisfirði, en þrátt fyrir
það hefði fólki fækkað umtalsvert á
undanfömum ámm. „Siglfirðingum
hefur fækkað um tvöhundmð á fimm
ámm og það þrátt fyrir að kaupstað-
urinn hafi verið sameinaður Seyðis-
fjarðarhreppi," sagði Hallsteinn.
„Fólkið hefur streymt burt.“ Að-
spurður sagðist hann ekki getað sagt
hvaða hópar það væru sem helst
fæm. Það væm ekkert frekar ungt
fólk á leið í nám, heldur alveg eins
fólk sem misst hefði alvinnuna eða
óttaðist um atvinnu sína.
Þrátt fyrir þetta em þó ýmsir ljósir
Hallsteinn Friðþjófsson: Erum að
komast upp úr lægð.
punktar, svo sem vöxtur í ferða-
mannageiranum á sumrin, í tengsl-
um við ferðir Norrænu. „Þó er það
ekki orðið nógu mikið til að hægt sé
að halda uppi atvinnustarfsemi í
kringunt þær ferðir allt árið um
kring.“
Töluverð menningarstarfsemi er á
Seyðisfirði og má þar nefna nokkuð
virkt leikfélag, „en ntinna er um
hvers kyns tónleikahald," sagði
Hallsteinn að lokum.