Alþýðublaðið - 10.01.1995, Side 8
Þriðjudagur 10. janúar 1995
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins og Jóhann G. Bergþórsson frá Sjálfstæðis-
flokki að taka við völdum í bæjarstjórn Hafnarfjarðar:
Meirihlutinn var óstarfhæfur
- segir Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi. Staða
bæjarverkfræðings var ekki rædd í viðræðunum
við Jóhann Bergþórsson sem Davíð og Friðrik
beittu báðir þrýstingi. Tryggvi segir Jóhann ekki
verða bæjarstjóra. Annar bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði, ætlaði einnig ætlað að
ganga til samstarfs við Alþýðuflokkinn en gaf eft-
ir undan þrýstingi. Alþýðubandalagsmaðurinn
Lúðvík Geirsson líkir ástandinu í Hafnarfirði við
Chicago á tímum A1 Capone.
„Þessi staða kom einfaldlega upp
vegna þess að það var engin sam-
staða í meirihlutanum um fjárhags-
áætlunina og ýmis önnur veigamikil
bæjarmál. Meirihlutinn var orðinn
óstarfhæfur og gat ekki tekið ákvörð-
un um eitt né neitt. Þá fómm við að
kanna okkar gang því það gengur
ekki upp að ekki sé starfhæfur meiri-
hluti í sveitarféiagi," sagði Tryggvi
Harðarson bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokkins í samtali við blaðið í gær-
kvöldi. Viðræður stóðu þá yfir milli
fulltrúa Alþýðuflokks og Jóhanns G.
Bergþórssonar um myndun nýs bæj-
arstjómarmeirihluta í Hafnarfirði.
Allt benti til að af myndun nýs meiri-
hlutayrði.
Þegar ljóst varð að Jóhann G.
Bergþórsson ællaði að leggja fram
breytingartillögur við fjárhagsáætlun
meirihlutans á fyrirhuguðum bæjar-
stjómarfundi í dag fórekki milli mála
að uppúr myndi sjóða milli Jóhanns
og annarra úr meirihlutanum. Sam-
kvæmt heimildum Alþýðublaðsins
var Jóhann beittur þrýstingi af háffu
formanns og varaformanns Sjálf-
stæðisflokksins, Davíðs Oddssonar
og Friðriks Sophussonar, til að hætta
við að kljúfa sig út úr meirihlutanum.
Var beitt hótunum og blíðmælgi á
víxl í gær og fyrradag en Jóhann lét
sig hvergi.
Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði
reyndu einnig að koma á samstarfi
AÍþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks í
bæjarstjóm en kratar höfðu ekki
áhuga. Raddir vom uppi um að annar
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, Ellert
Borgar Þorvaldsson, myndi fýlgja
Jóhanni í samstarf við Alþýðuflokk,
en sagt er að hann hafi ekki þorað að
rísa gegn flokknum.
„Eftir að við höfðum þreifað fyrir
okkur kom í ljós að hugmyndir Jó-
hanns Bergþórssonar og okkar fóru
að mörgu leyti saman varðandi af-
greiðslu fjárhagsáætlunar og fleiri
mála. Þama opnaðist leið til að koma
rekstri bæjarins á stað,“ sagði
Tryggvi ennfremur. Hann sagði að til
meirihlutsamstarfs Alþýðubandalags
og Sjálfstæðisflokks hefði verið
stofnað eftir kosningar með þeim
hætti að menn hafi verið barðir til
samstarfs og hótanir í gangi. Það
hefði því bara verið tímaspursmál
hvenær slíkur meirihluti springi,
enda hefði hann ekki gert neitt nema
að reyna að klekkja á fyrrverandi
bæjarstjóm. Tryggvi var spurður um
fréttir þess efnis að embætti bæjar-
verkfræðings og áhugi Jóhanns á því
hafi verið aðalástæðan fyrir viðræð-
um um nýjan meirihluta.
„Þetta mál hefur í sjálfu sér ekkert
að gera með okkar viðræður. Hann
gerði samning við gamla nieirihlut-
ann um þetta mál sem virðist hafa
verið reiðubúinn til að bjóða honum
embættið aftur eins og fram kom í
fréttum. En við emm ekki að semja
um embætti bæjarverkfræðings og
það kemur þessum viðræðum ekkert
við. Þetta embætti verður bara aug-
lýst eins og lög gera ráð fyrir.“
-En verður Jóhann þá ef til vill
bæjarstjóri?
„Nei.“
-Hvernig fara skipti á meirihluta
fram formlega í bæjarstjórn?
„Það myndi líklega fara fram á
þann hátt að við bæmm ffarn van-
traust á bæjarstjórann," sagði
Tryggvi Harðarson.
„Eg er jafn agndofa á þessum at-
burðum eins og flestir bæjarbúar sem
ég hef hitt að máli. Maður á ekki
mörg orð yfir þær uppákomur sem
hér eiga sér stað, en það er kannski
helst að leita fyrirmynda til Chicago í
kringum 1930,“ sagði Lúðvík Geirs-
son bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins og var þá væntanlega að vísa til
þess tíma er Al Capone var á hátindi
sínum.
„Það hefur ekkert komið uppá í
meirihlutasamstarfi Alþýðubanda-
lags og Sjálfstæðisflokks sem gefur
tilefni til að slíta samstarfinu. Það er
heldur ekki að finna tillögur um eitt
né annað frá Jóhanni G. Bergþórs-
syni þar sem em aðrar áherslur en
hingað til hafa verið lagðar. Hann
hefur tekið fullan þátt í þessu sam-
starfi og það er ekki fyrr en þetta fer
að snúa að hans persónulegu málum
að hlutimir fara að taka einhverja
aðra stefnu. En það eina sem hann
hefur lagt til í atvinnumálum em hans
eigin atvinnumál," sagði Lúðvík.
Lúðvík var spurður hvort nýr
meirihluti Alþýðuflokks og Jóhanns
gæti skipt um menn í nefndum og
ráðum úl að ná þar meirihluta.
,Jú, þeir hafa tök á því ef þeim
sýnist svo. Eg veit hins vegar ekki
hvaða lið Jóhann ætlar að setja í
nefndir nema fjölskylduna. En
nefndimar vom bara kosnar til eins
árs út af því að það átti að stokka upp
stjórnkerfið," sagði Lúðvík.
Alþýðubandalagsfélagið í Hafnar-
firði boðaði til fundar um málið í
gærkvöldi.
Blaðinu tókst ekki að ná tali af
Magnúsi Gunnarssyni forseta bæjar-
stjómar í gær þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir.
Nokkrir af forystumönnum Alþýöuflokksins í Hafnarfirði undirbúa fund
með Jóhanni G. Bergþórssyni síðdegis gær. Frá vinstri: Guðmundur Árni
Stefánsson alþingismaður og bæjarfulltrúarnir Ingvar Viktorsson og
Trvaavi Harðarson. A- mvnd: E.ÓI.
Hjörleifur að brjóta
andstöðuna á Aust-
fjörðum á bak aftur:
Menn eru
misjafn-
lega kátir
- segir alþýðubanda-
lagsmaður á Austfjörð-
um.
„A fundi um helgina verður farið
yfir tillögur uppstillingamefndar. I
kringum 18. janúar verður síðan
gengið frá listanum á fundi kjör-
dæmisráðs," sagði Smári Geirsson á
Neskaupstað en hann situr í uppstill-
ingamefnd Alþýðubandalagsins á
Austfjörðum.
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins em tilraunir alþýðubanda-
lagsmanna á Austfjörðum til að
skipta Hjörleifi Guttormssyni út af
listanum að renna út í sandinn. Flest
bendir til þess, að hann verði áfram í
efsta sæti, en hann hefur verið þing-
maður síðan 1978. „Menn eru mis-
jafnlega kátir með þessa niður-
stöðu," sagði alþýðubandalagsmað-
ur á Austíjörðum í samtali við blað-
ið. Hann sagði jafnframt að eini
þungavigtarmaðurinn sem gæti
hugsað sér að fara gegn Hjörleifi
væri Einar Már Sigurðarson á Nes-
kaupstað. Einar Már gerði úlraun til
að velta Hjörleifi fyrir síðustu kosn-
ingar, en mistókst. „Hin misheppn-
aða atlaga Einars Más hefur laskað
hann, og því á hann miklu minni
möguleika nú. Hjörleifur heldur
blessuðu sætinu sfnu,“ sagði annar
heimildarmaður í Alþýðubandalag-
inu.
Hjörleifur
Guttormsson:
Tilrauntil
viðtals
-Hjörleifur?
„Það er hann.“
-Komdu sæll, ég heiti Stefán
Hrafn Hagalín, blaðamaður á Al-
hvðllhlnílinu...
M e s t u v i n n ingslíkur s e m s é s t h a f a
8 MILLJONIR ÓSKIPTAR Á EINN MIÐA 12. JANÚAR
Heppnin
bíðurþín hér
Eina stórhappdrættið þar sem hæsti vinningurinn gengur
örugglega út.
Ef hann gengur ekki út í einum mánuði leggst hann við þann
hæsta næst... og svo koll af kolli. Enginn veit þess vegna
hversu hár hann getur orðið.
Stórgkesilegir aukavinningar: Listaverk eftir marga af
þekktustu listamönnum okkar, í hverjum mánuði.
Tryggðu þér möguleika j^j
V/SA ÆJp Smáiort
... fyrir lífið sjálft
UMBOD I REYKJAVIK
REYKJAVIK:
AÐALUMBOÐ
Suðurgötu 10, sími 23130
NESKJÖR
Ægissíðu 123, sími 19292
ÚLFARSFELL
Hagamel 67, sími 24960
VERSLUNIN
GRETTISGÖTU 26
sími 13665
IÐNA LÍSA, BLÓMABÚÐ
Hverafold 1-3, Grafarvogi,
sími 676320
HAPPAHÚSIÐ
Kringlunni, sími 689780
VERSLUNIN TEIGAKJÖR
Laugateigi 24, sími 39840
ERLENDUR HALLDÓRSSON,
TOPPMYNDIR
Myndbandaleiga,
Arnarbakka 2, sími 76611
0 G NAGRENNI:
VERSLUNIN SNOTRA
Álfheimum 4, sími 35920
GRIFFILL sf.
Síðumúla 35, sími 688911
BÓKABÚÐ FOSSVOGS
Grfmsbæ, sími 686145
BÓKABÚÐ ÁRBÆJAR
Hraunbæ 102, sími 873355
VERSLUNIN STRAUMNES
Vesturbergi 76, sími 72800
MOSFELLSBÆ R:
SIBS-DEILDIN,
REYKJALUNDI
sími 666200
BÓKABÚÐIN ÁSFELL
Háholti 14,sími 666620
KOPAVOGUR:
BORGARBUÐIN
Hófgerði 30, sími 42630
VÍDEÓMARKAÐURINN
Hamraborg 20A, sími 46777
GARÐABÆR:
SIBS-DEILDIN,
VÍFILSSTÖÐUM
sími 602800
BÓKABÚÐIN GRÍMA
Garðatorgi 3, sími 656020
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS
Vilborg Sigurjónsdóttir,
sími 50045
Fáðu þér áskrift í tœka tíð.
Nýtt áskriftarár er að hefjast. Dregið 12. janúar.
Upplýsingar um nœsta umboðsmann ísíma 91-22150 og 23130 j
Verð tniða er óbreytt aðeins 600 kr.
M e i r a e n a n n a r h v e r m i ð i v i n n u r a ð j a f n a ð i
„Sæll vert þú.“
-Við erum að spá í stöð-
una hjá ykkur á Austur-
landi. Segðu mér, hefur
uppstillingarnefnd farið
þess á leit við þig að taka
fyrsta sæti á framboðs-
lista Alþýðubandalagsins
á Austurlandi?
„Sko, ég er nú ekki að
rapportera neitt í ykkur.
Sko, þið hagið ykkur alveg
einsog vitleysingar."
-Nú?
„í fréttaflutningi. Einsog
sést á því að þið eruð,
hérna..., að spyrja menn,
héma..., einhveija þriðju
aðila um málið. Einsog þið
gerið við Smára Geirsson.
En hafið ekki fyrir því þeg-
ar þið talið við sama mann
að bera neitt undir hann.“
-Nú?
„Þannig að ég hef ekkert
við ykkur að tala.“
-Þannig að þú vilt ekk-
ert segja um þetta?
„Ekki neitt.“
-Og ekki um nokkurn
skapaðan hlut...?
„Ég, ég hef bara ekki
neitt við ykkur að tala.
Fréttamiðil sem hagar sér
svona.“
-Og þú vilt ekki neitt
tjá þig um Alþýðubanda-
lagið á Austurlandi?
„Nei. Ekki við ykkur."
-Já, já. Heyrðu allt í
Iagi. Takk fyrir spjallið.
„Mmmm."