Alþýðublaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995 Aimiiiiiiruiii 20859. tölublað Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566 Útgefandi Alprent Ritstjórar Hrafn Jökulsson Sigurður Tómas Björgvinsson Umbrot Gagarín hf. Prentun Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing Sími 625566 Fax 629244 Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Skilaboð frá Neskaupstað Mikill styrr stendur um uppstillingu á framboðslista Alþýðu- bandalagsins á Austurlandi, og áhrifamiklir flokksmenn hafa opinberlega lýst vantrausti á Hjörleif Guttormsson. Sumir hafa gengið svo langt að segja sig úr flokknum, og hafa hreinlega kveðið upp úr með að þeir treysti sér ekki til að mæla með hon- um til setu á Alþingi. Einar Már Sigurðsson, varaþingmaður Hjörleifs á yfirstandandi kjörtímabili, hefur í fjölmiðlum ásak- að Hjörleif um svik og óheilindi í samstarfí, en ljóst er að Hjör- leifur beitti sér harkalega gegn því, að Einari Má yrði boðið annað sæti listans. Svo djúpt ristir óánægjan með Hjörleif Gutt- ormsson, að mikilvægir flokksmenn sem litið hefur verið til sem framtíðarmanna Alþýðubandalagsins, hafa sagt sig úr flokknum. Þetta er mikið persónulegt áfall fyrir Hjörleif. En hin djúp- rista óánægja með hann er ekki síður þungt áfall fyrir Alþýðu- bandalagið, því Hjörleifur hefur verið í forystusveit flokksins um árabil. Vantraustið á Hjörleif Guttormsson er þó ekki nýtt af nálinni. Skemmst er að minnast þess, að hörð hríð var að hon- um gerð þegar flokkurinn stillti upp lista fyrir kosningamar 1991. En þá lá við borð að Einari Má Sigurðssyni og Bimi Grétari Sveinssyni, formanni Verkamannasambandsins, tækist að fella Hjörleif út af listanum í prófkjöri. Nú var hinsvegar ekki viðhaft prófkjör. Um allt kjördæmið hafa félagar í Alþýðu- bandalaginu kvartað undan áhugaleysi hans á málefnum kjör- dæmisins, þannig að það em í sjálfu sér lítil tíðindi, þó óánægja með störf hans brjótist upp á yfírborðið. Hitt ber nýrra við, þeg- ar í ljós kemur, að í sjálfu höfuðvígi hans og flokksins, Nes- kaupstað, ríkir nú útbreitt vantraust á Hjörleif. Oánægjan með Hjörleif Guttormsson er ofur skiljanleg. Hann virðist líta svo á að hlutverk sitt á Alþingi sé fyrst og fremst að berjast gegn því að ísland auki þátttöku sína í samstarfi Evrópu- þjóðanna. Hann barðist manna harðast gegn aðild landsins að Evrópska efnahagssvæðinu. Kjördæmið og fólkið sem hann var kosinn fulltrúi fyrir sitja hins vegar á haka hins önnum kafna Evrópuandstæðings. Það em þingmenn annarra flokka sem sinna þeim. Nú em hinsvegar allir orðnir sammála um gildi aðildarinnar að EES, og jafnvel fyrrum andstæðingar hennar ljúka upp einum rómi um að í henni felist afar mikilvæg vöm fyrir íslenskt atvinnulíf. Allir nema Hjörleifur, sem í hugum manna er að verða að dínósámsi horfinnar hugmyndafræði, sem féll með Berlínarmúmum. Bersýnilega gengur honum illa að losa sig við farteskið, sem hann tók með sér eftir margra ára nám í Austur-Þýskalandi. En það vekur óneitanlega athygli, að þeir menn sem flokkur- inn hefur litið til sem framtíðarforystu í héraði og jafnvel á landsvísu, menn eins og Guðmundur Bjamason bæjarstjóri, Smári Geirsson, Albert Einarsson og Einar Már Sigurðsson treysta sér ekki til að sitja á sama framboðslista og Hjörleifur Guttormsson. Sumir treysta sér ekki einu sinni til að vera með honum í flokki. Hvers vegna ættu þá Austfirðingar að kjósa Al- þýðubandalagið með Hjörleif Guttormsson í fararbroddi, þegar hans eigin flokksmenn treysta honum ekki fyrir hagsmunum kjördæmisins? Þetta em óneitanlega skýr skilaboð frá kjama Alþýðubanda- lagsins til kjósenda á Austfjörðum. „Af persónulegum ástæðum“ ^ Aríðiindi skllnhnð (il þcimtetn dauða brn Ijnsn « roynOí({lni Vjln+ ' X blni'BO. 4 pmiof t t nd finM taújtlcgj lbls. 2. >'■ , , dcymið t llj twiLuiuif- .ía 'ZéfesÍÆ **. SVólinnog lýðricðið rn[rJ6fr ístdrJilunref.nn n'OlnlWoncfnu bim uplnUiM 19»mlienji »IA lýilndli Iiuiilmn þjóðfelniþ. Gnluúi bycdr á etindi »tui wbi oiljyEli ií iýfl- veJJluiSsictfru I fcjnst BU. 8-9 3. thl. 4. nrg 20. jnnúar 199: Ritstjóni 0| afgreiðsla sími 17501 250 ki Óháðir ganga til liðs við Alþyðiibandalagið Fjölmargir einstaklingar sem liafa veriö óháðir stjórnmálailokkum treysta kjöifcsluna 1 íslenskum stjómmalum. ' „nutLaúin fcenur veHt- vA A]þfðub»i».W<ip.1 i rötkw M renlion uj ikynsunjn ún-iit .n F.wl-r ubádc* i UðkI Dntp t Gi.uunKj.ií, lton.il U .oau þnð, ráAtruntJi u-m nn úczi f gxr, utn ðluifln ble. 1-í. A ur bJu....------------------------- — X Au])lnn fiin'lui i'Júðrj og 6- bxrnni UuTulðUjvii r lorul- Uvuoð efor oiðairu atiu.” tepc Junr nuttibuudinitJ diutoldb.£n imi nra uB byísje upp nun»u»julcjin fr.unlimlimil vetOur þw r»IJ |i|>W3f4l*e efbt niflunUiðuieínu I. Kujcui)nd <em fvngifl bcfur >Hi«qðnMnnnir i viir«rð.lrm.ihup Muiiíð áskritlarsímftMi 17500 Ríkisforstjórar ógna Kolkrabbaveldinu SlgnL. SMnltcppnÍMtnfaiinir buntuv )>w fitt % insit Kvafl iuh. lifirw ng |u civliwi l«,rUia»"Tvr m Srongrmirt J Sigfiu.nn hdúr um Itjnjwir. ur eignoiiiiúl,. fcing Júilki-Jibui.’- vjrifir. I-jíl I ondJiookj'K Einn wVi.vlHub opnhcilt^n Iptþviyfu jllunnvfiit lcugtl í llbi.Ji icrflur löKð befur lllau vepur Lundfl MúwiuMI bljfloiu urOofll ]nfl tn. afl incnn 1 um bicno niLiui. cfla áfdflanlcy biun í ujipluú þíngJulds I Ibcirn ð oiirt livetiu tUU ciusokra lOc- borfl rifl Hoifl StjVirgoiiton og bfln tr |u icin ]ufl Jufi vcrifl iaii I viini. cn Ujyrsltn er (din umin isetírfpiuniu 05 -Kofa.iiu cni ImMa l’ileson <« {nflo saniLqipni brndur iqdmtnd-i 1 hnJmn jfljnja fyrir TÍiliHptnrtflhcrrv *d bdftni milal. fri nnfcirum tqrttncnda ttfcranin- SiraVippnÍMmfmm » iipplýBnpun, Sícingrúiu. J. Sigfúiiuruc KOlfl HciciiJilirulijf luniia að það snt ana cjp -fynHai,a. cn ofl cfcii liafi vcofl nnkið liy^e i Jcpad Kvllú- j’br biniluliUiiu, iim- tmlniin JcjnYjHpsrar iflusbtiiJuniu hfcjTslni lidut renfl f nnntlu um SFUbeefliuu rji.nsúfcnuiie fcv-eml lieimifdnm VMtubl.iAtins tcm Kifi pwan.i túia viða i aronno- tvesigii ara tfcctð ng w miog li.nleg. Framboðslisti Alþýðubaudalagsins á Austurlandi samþykktur sambljóða KC kÁittturfanili Imm naurt ril fnntlir á CgíKn.lcidum mUiitaulapLmJifid 18. Jaiiiar or voru þar unadkomnir luB- tniat fri drta nlþýfliiliinitiLigsfclflguni. FinmaAur kjönlieiTÚiráncini, l'ntiircnn Dcrpttua 1 Cglfmúfliim, Lytuia JjgifcH og vjr M.ignus Strfliuson 1 FltknJOa- Crfli akipoflnr fimdarttjófi ng Immddur HcJgama li íicydkiiirði Kjlularricavú í uppl1.1l> s.-jmJijUcU fiimliirúui cwiúfljr- "t tauflningsltvc4(ii til Súfliftinja nj aiuiarra VcadícDiiaga vcgna áfalla uad- .m^cnebuu d jga. A fimdnmm Jngdi uppstilliniinebiij Lfimlxjiusnfln frun tjllnpi afl frimliniW- lilU 'VJjlýflublllJlljgulil / kfúcJaanuiu f kntn»ri.li aI|)raoskr.sninpiffl I ucfmhnni ictuxiiu Arna f'iira Pcnjrulúmr Fartrui-,- taka áfcviifflun ihii lioti lutaru niafl libibfin af þvi icm álwflifl v þjflubandaljginu f Oðriun k|W Jot.uni Miltil cnulorÐU-os sokni'liveiir uln i fiuuDnom tcm ondirscriluAi það 10-lifta Alþýflnbandalagsní i lofflandj koen- Ragnor me. 83 prósenl fjTSÍa sæti Scinui tnofafl forval. JiÝflubandalapiiat i N... IjndskjflnLutJ vcsua frain «m slöusiu helgi. H at Atn.ilde Ijingmaflnr I pifta birabipi i fyrtta IbaaiLt cai 1 |<afl ia.ti fcU 177 aikrjTOlaf2U cflj B 1 bflm saiú Jonú Sis> móiSvrraion van|>iii(Pnfl txknifrxflmipcr á SigKifiri únbuu ralflámli fvniu tii h> tm bindJndL I þrtflja l*nó Ann.1 Krittui fipn fcjdki I fiútfla sa.LÍ loiu prr0itrj.il obs JotD t i i |vji wafá np i ímruo m I Sigiabiúncult'nar. Afl sopi Kjris Ciaim fonn.iriii ufipsdllingame U1 afl oufcuiicgn ilqcui t os ikúa ul kjjí JnnuriSi | niðurroðan lirjur fvrit Við, sem vinnum á öðru litlu blaði, óskum hérmeð Páli til hamingju með ritstjóra- starfið; og jafnframt þær veglegu breyt- ingar sem strax urðu á Vikublaðinu hans. Þær breytingar eru svo athyglisverðar að áhugamenn um fjölmiðla ættu ekki að láta Vikublaðið framhjá sér fara. Hinn nýi rit- stjóri hefur nefnilega bryddað uppá þeirri nýbreytni að birta gamanmál og spaug á útsíðum, - og kalla það fréttir. Vikublaðið, hið virta málgagn Al- þýðubandalagsins, fékk nýjan rit- stjóra í síðustu viku. Kannski fór það framhjá þjóðinni að mestu: en sú var tíð að meir og stríðar gustaði um rit- stjóra flokksmálgagns Alþýðu- bandalagsins en flesta aðra á vi'gvelli hinnar pólitísku umræðu. Þetta var vitaskuld á velmektardögum Þjóð- viljans; málgagns þjóðfrelsis, sósíal- isma og verkalýðsbaráttu - muniði? Sviptingar á Þjóðviljanum sáluga, að ekki sé talað um ritstjóraskipti, urðu tilefni langvinnra bollalegginga í ijölmiðlum vikum og mánuðum saman. En nú er Þjóðviljinn aðeins til sem söguleg heimild: annarsvegar í hillum vestur í Þjóðarbókhlöðu, hinsvegar í kommóðuskúffu hjá vel- viljuðum bankamönnum sent enn hafa ekki fengið greiddar milljónim- ar hundrað sem uppá vantaði þegar þrotabúið var gert upp. Nei, sú tíð er víst vel og rækilega liðin að mannabreytingar á málgagni Alþýðubandalagsins veki athygli. Reyndar fóru ritstjóraskiptin svo hljótt fram að ekki einu sinni Viku- b 1 a ð i ð sjálft sagði frá þeim. En til þess að upplýsa þann hluta þjóðarinn- ar sem hefur allan sinn dag- lega vfs- dóm úr Alþýðublaðinu þá skal hér- með fært til bókar að það var Hildur Jónsdóttir sem vék úr sessi fyrir Páli Vilhjálmssyni. Við, sem vinnum á öðru litlu blaði, óskum hérmeð Páli til ham- ingju með starfið; og jafnframt þær veglegu breytingar sem strax urðu á Vikublaðinu hans. Þær breytingar eru svo athyglisverðar að áhuga- menn um fjölmiðla ættu ekki að láta Vikublaðið framhjá sér fara. Hinn nýi ritstjóri hefur nefnilega bryddað uppá þeirri nýbreytni að birta gam- anmál og spaug á útsíðum, - og kalla það fréttir. Fullt nafn: Hjörleifur Guttormsson Helsta spaugfrétt Vikublaðsins á föstudaginn var birtist á baksfðu undir fyrirsögninni: Framboðslisti Alþýðubandalagsins á Austurlandi samþykktur samhljóða. I fréttinni er svo sagt frá fundi kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Austurlandi þarsem téður fram- boðslisti var samþykktur. Orðrétt, leturbreyting er mfn: „Af hálfu upp- stillingamefndar kom fram að Einar Már Sigurðsson varaþingmaður hefði af persónulegum ástæöum ekki gefið kost á því að taka sæti á listan- um og lýstu margir vonbrigðum sín- um með það.“ Hljómar vel. En vekur að vfsu upp eina spurningu frá þeim sem til þekkja: Athverju talaði Vikublaðið ekki við Einar Má Sigurðsson og fékk nánari skýringar á þessum per- sónulegu ástæðum? Svarið er auð- vitað einfalt: Hinar persónulegu ástæður Einars Más heita fullu nafni Hjörleifur Guttormsson. Við á Alþýðublaðinu tókum ómakið af vinum vorum á Vikublað- inu og heyrðum hljóðið í Einari Má. Svör hans birtast á baksíðu Alþýðu- blaðsins í dag. Þar segir varaþing- maðurinn, aðspurður hvort tími Hjörleifs á þingi sé liðinn: „Ég held að það sé al veg ljóst að það var tíma- bært að taka það til skoðunar hvort hann væri ekki búinn að sitja nógu lengi á Alþingi. Hann er búinn að vera þar í sautján ár en telur greini- lega að honum dugi ekki minna en liðlega tuttugu ár til að koma sínum málum fram.“ Já, þeir kunna að orða hlutina fyr- ir austan. En þetta eru semsagt hinar persónulegu ástæður sem Vikublað- ið okkar var að tala um. „Eindrægni og sóknarhugur" Það var meira grín í Vikublaðs- fréttinni. Henni lauk á þessum orð- um: „Mikil eindrægni og sóknarhug- ur ríkti á fundinum sem undirstrikaði það mark- mið að vinna tvö þingsæti á G-lista Alþýðubanda- lagsins [á Austfjörðum] í komandi kosningum. Bravó! Að vísu neitar varaþingmaðurinn að vinna með þingmannin- um, að vísu er Smári Geirsson þungavigtar- maður á Neskaupstað hvergi á listan- um og vill ekkert af Hjölla vita, og að vísu er Snorri Styrkársson, félagi hans, búinn að segja sig úr Alþýðu- bandalaginu vegna ofríkis Hjörleifs - en að öðru leyti: eindrægni og sóknarhugur. Þetta er miklu meira en góð blaða- mennska: þetta er bráðfyndin blaða- mennska. En við spyrjum hinn nýja ritstjóra Vikublaðsins bara einnar samvisku- spumingar: Ekki vill svo til að tftt- nefnd frétt sé fremur afrakstur fax- tækisins en ítarlegrar heimildavinnu ritstjórnarinnar? Með öðram orðum: Hvenær urðu þau ánægjulegu tíma- mót í sögu íslenskrar blaðamennsku að Hjörleifur Guttormsson gerðist fréttaritari Vikublaðsins? Tilraun til vidtals Um daginn gerði blaðamaður Al- þýðublaðsins heiðarlega tilraun til þess að eiga símaviðtal við Hjörleif Guttormsson um framboðsmálin á Austurlandi. Hjörleifur er að upplagi mikill geðprýðismaður, og vill til að mynda miklu frekar glugga í góða bók en standa í þrasi við menn. Kannski hafði Hjörleifur barasta far- ið öfugu megin framúr þegar Al- þýðublaðið gerði tilraun til spjalls: Austfjarðagoðinn mddi útúr sér fúk- yrðaflaumi um fabúlur Alþýðublaðs- ins, og ofsóknir á hendur Aiþýðu- bandalaginu. Á Austfjörðum rikti eindrægni og sóknarhugur meðal al- þýðubandalagsmanna. Allt annað væri lygi, óhróður, della og dylgjur. Punktur. Hjörleifur neitaði einfald- lega að taka mark á ummælum fé- laga sinna í Alþýðubandalaginu - af því þau birtust í þessu litla blaði hér. Kaldar kvedjur Sömu sögu er reyndar að segja af Svavari Gestssyni. Að undanförnu hafa margir helstu stuðningsmenn hans sagt í samtölum við Alþýðu- blaðið að Alþýðubandalagið sé steindauður flokkur, þar sé ekkert pólitískt starf unnið, þar hafi flokks- forystan myndað bandalag til að sniðganga fyrri ákvörðun um próf- kjör og svo framvegis og svo fram- vegis. Auður Sveinsdóttir, Stefanía Þorgrímsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Stefanía Traustadóttir - allar hafa þær verið burðarásar í flokknum sfn- um. En af því þær segja Alþýðu- bandalaginu til syndanna í Alþýðu- blaðinu, þá er nú einfaldlega ekkert að marka það. Segir félagi Svavar. Hann sagði reyndar líka að ekkert væri að marka fiokksblöð. Kaldar kveðjur fyrmm ritstjóra Þjóðviljans til - Vikublaðsins kannski?! Einsog gengur Hrafn Jökuisson skrifar Dagatal 25. janúar Atburdir dagsins 1533 Hinrik VIII Bretakóngurgengu að eiga Önnu Boleyn. 1732 Ni'u manns fórust þegar snjóflóð féll á bæinn Brimnes við Seyðisljörð. Jafnmargir komust h'fs af. 1917 Bandaríkin kaupa Jómfrúareyjar af Hollendingum fyrir 25 milljónir dala. 1952 Sveinn Bjömsson, fyrsti forseti íslands, lést. 1990 íslensku bókmenntaverðlaunin veitt í fyrsta skipti, og komu í hlut Stefáns Harðar Grímssonar. Afmælisbörn dagsins Robert Burns skoskt stórskáld, 1759. William Sommerset Maug- ham breskur rilhöfundur og leik- skáld, 1874. Virgina Woolf bresk skáldkona, 1882. Edvard Sche- vardnadze fyrrum utanríkisráðherra Sovétríkjanna og núverandi leiðtogi Georgíumanna, 1928. Annálsbrot dagsins Vestmannaeyjar uppsigldust ei þetta sumar sökum fiskleysis og sóttu til Eyrarbakka kaupstefnu. Eyrarannáll, 1692. Bródurbetrungur dagsins Ef séra Ama [Þórarinssyni] var borið á brýn, að hann hefði tamið sér að umgangast sannleikann með hæfi- legri léttúð, svaraði hann gjaman: „Þið ættuð að kynnast honum Ágústi bróður mínurn." Margrét Jónsdóttir; Við Þórbergurefúr Gylfa Gröndal. Heimtufrekja dagsins Gæfan er einsog konan: því meira sem hún gerir fyrir oss, því meira heimtum vér af henni. Napóleon keisari. Málsháttur dagsins Kartnögl og njórafótur komast ekki í himnaríki. Njórafótur: klumbuíótur. Ord dagsins Opinberað eitt er snjallt ætlað þér að sjáir. Upp þú skera ávallt skalt eins og hér þú sáir. Matthías Jochumsson. Skák dagsins Indverjinn Anand og rússneski Bandaríkjamaðurinn Kamsky em líklegir til að bítast uin æðstu metorð í skákheiminum næstu áratugi. An- and er vel uppalinn heiðursmaður, sóknarskakmaður af náð og teflir einatt af ótrúlegum hraða. Kamsky hinsvegar fór á mis við allt uppeldi, en lýtur stjórn metorðasjúks föður. Þeir feðgar eru jafnan til leiðinda og armæðu hvar sem þeir koma. Kam- sky, sem enn er bara um tvítugt, get- ur aftur á móti tefit einsog engill. Við lítum á skák Anands og Kamsky sem tefld var á Indlandi árið 1990. Alit er í uppnámi og svartur albúinn að spinna mátnet. Anand, sem hefur hvítt og á leik, snýr vöm í sókn með einum bráðsnjöllum leik. Hvað gerir hvítur? 1. Hdl!! Bg6 2. Hdd7 Hel+ 3. Kg2 13+ 4. Kh3 Hvíti kóngurinn er kominn í ömgga borg en hinn svarti kollega hans er bráðfeigur. Kamsky gafst upp með sínum venjulega fýlu- svip.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.