Alþýðublaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 8
Miðvikudagur 25. janúar 1995 14. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Framboðsraunir Alþýðubandalagsins Það er Ijóst að hér urðu sárindi - segir Steingrímur J. Sigfússon um stöðu flokksins í Reykjavík. Stefnir að tveimur þingmönnum á Norðurlandi eystra. Steingrímur J. Sigfússon: Það urðu erfiðleikar í Reykjavík og ákveðinn sársauki. Ég spurðist fyrir um það hjá þeim mönnum sem best þekkja til þar hversu stór þessi hópur væri þar sem væri í óánægju. Mér var þá sagt að þetta væru tveir til fjórir einstaklingar. Ágúst Einarsson: Stefna Þjóðvaka verður skýr. Formlegur stofnfundur Þjóðvaka Listar ekki tilbúnir „Ég tel þetta ekki svaravert. Þetta er frétlaflutningur sem er kominn út fyrir þau mörk, ef fréttaflutning skyldi kalla. Eg sé ekki ástæðu til að taka þátt í þessum spuna ykkar Al- þýðublaðsmanna og fjarstæðu- kenndum málflutningi af málum Al- þýðubandalagsins,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon varaformaður Alþýðubandalagsins í samtali við Alþýðublaðið í gær. Steingrímur var spurður álits á þeim ummælum Stefaníu Þor- grímsdóttur, sem situr í stjóm Sósí- alistafélags Reykjavíkur, að fram- boð Ögmundar Jónassonar og Árni Steinar Jóhannsson: Verður í 2. sæti framboðslista Alþýðu- bandalagsins á Norðurlandi eystra. Árni Steinar er garðyrkju- stjóri á Akureyri og bauð sig fram síðast fyrir Þjóðarflokkinn. Hann kemur sem „óháður" á listann. Bryndísar Hlöðversdóttur væri til að bjóða skiptimynt í ríkisstjóm Al- þýðubandalags og Sjálfstæðisflokks að loknum kosningum. Steingrímur var þeirrar skoðunar að fréttir Al- þýðublaðsins af málefnum Alþýðu- bandalagsins, þar sem nafngreindir flokksmenn hafa hver á fætur öðmm Iýst ágreiningi og óeiningu innan flokksins, væru gamlar fréttir sem ekki væri mark takandi á. „Ég held að það sé að skapast mjög góð stemmning í kringum samfylkingu þessara óháðu aðila með Alþýðubandalaginu hér í Reykjavík, á Norðurlandi eystra og víðar. Við gengum frá framboðslista á Norðurlandi eystra í mikilli ein- drægni og meira að segja Alþýðu- blaðinu hefur ekki tekist að þefa þar uppi nokkurn ágreining og er þá langt til jafnað. Og ég held nú og vona að hlutirnir settlist hér í Reykjavík. Það er hins vegar alveg rétt og hefur svo sem ekki verið reynt að leyna því, að það urðu erf- iðleikar í Reykjavík og ákveðinn sársauki. En ég vona að það fari nú að jafna sig,“ sagði Steingrímur. I framhaldi af þessu var Stein- grímur spurður hvort það væri ekki áhyggjuefni fyrir Alþýðubandalagið þegar flokksfólk á borð við Auði Sveinsdóttur, Stefaníu Trausta- dóttur, Alfheiði Ingadóttur og fleiri hefðu lýst því yfir að það vildi ekki lengur vinna með flokknum. „Það urðu hér sárindi og það er Ijóst. Þið haftð greinilega náð í flesta þá nafngreindu einstaklinga sem maður hefur aðallega vitað af í því sambandi. Þetta er ekki ný frétt heldur sama gamla þriggja, fjögurra, fimm, sex vikna gamla fréttin í raun og veru um það,“ sagði Steingrímur. Og ekki gaf hann mikið fyrir stað- festar fréttir Alþýðublaðsins af il- lindum innan Alþýðubandalagsins á Austurlandi vegna framboðsmála: „Ég spurðist fyrir um það hjá þeim mönnum sem best þekkja til þar hversu stór þessi hópur væri þar sem væri í óánægju. Mér var þá sagt að þetta væru tveir til fjórir einstak- lingar, þar af einn sem hefði verið búinn að ákveða að hverfa yfir til Jó- hönnu. Þar er því mikið spunnið úr litlum lopa.“ Árni Steinar á þing Steingrímur J. Sigfússon leiðir lista Alþýðubandalagsins í Norður- landskjördæmi eystra. í 2. sæti list- ans er Arni Steinar Jóhannsson, garðyrkjustjóri á Akureyri, sem bauð sig fram síðast fyrir Þjóðar- flokkinn og kemur sem „óháður“ á listann. I 3. sæti er Sigríður Stef- ánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, og í 4. sæti Örlygur Hnefill Jóns- son, lögmaður á Húsavík. Stein- grímur er afar ánægður með þennan lista og segir hann hafa verið ákveð- inn í sátt og samlyndi. Hann gerir ráð fyrir að flokkurinn fái þar tvo menn kjöma í næstu kosningum. „Við vorum hársbreidd frá því síðast og Arni var með um ellefu hundmð atkvæði, eða nær sjö pró- sent. Það hálfa hefði verið nóg fyrir okkur og við hefðum ekki þurft nema brot af þeim atkvæðum til við- bótar til að fá tvo menn. Við erum nú með mjög sterkt framboð gagn- vart Akureyri þar sem er Arni Stein- ar í 2. sæti og Sigríður í 3. sæti. Þetta þýðir að Sigríður, sem er að mörgu leyti yfirburða manneskja í akureyrskum stjórnmálum, yrði þá varamaður tveggja þingmanna og ég er illa svikinn ef Akureyringar eru ekki spenntir fyrir þeim möguleika að slá þarna tvær flugur í einu höggi," sagði Steingrímur J. Sigfús- son. „Það er ekki von á því að fram- boðslistar verði tilbúnir á fundinum, enda er ennþá nægur tími til að klára þá,“ sagði Agúst Einarsson, pró- fessor og einn af framámönnum Þjóðvaka, í samtali við Alþýðublaðið í gær, er hann var spurður hvort framboðslistar flokksins yrðu kynnt- ir á fyrirhuguðum stofnfundi. Þjóðvaki efnir til formlegs stofn- fundar um næstu helgi í Súlnasal Hótel Sögu. Fundurinn verður jafn- framt landsfundur samtakanna. Þar verður stefnuskrá samþykkt, stjóm kosin og lög afgreidd. Agúst taldi líklegt að fyrir samtökunum yrði for- maður, en vildi að öðm leyti ekki tjá sig um stjómarfyrirkomulag þeirra. „Lögin verða afgreidd á fundinum, þvf er of snemmt að tjá sig um fyrir- komulagið," sagði Agúst. Agúst sagði jafnframt að óform- lega væri kosningabarátta samtak- anna hafin, því farin hefði verið vel heppnuð fundaherferð um landið og fólkið streymdi í samtökin á degi hverjum. „Annars fer hin opinbera kosningabarátta hjá öllum flokkun- um líklega af stað uppúr miðjum febrúar." Agúst sagðist eiga von á fjölmennum landsfundi. „Það er far- ið af stað formlegt starf mjög víða um land og við fáum mikinn hljóm- gmnn við stefnu okkar. Alþýðublaðið spurði Agúst út í ummæli Þorsteins Hjartarsonar, skólastjóra á Skeiðum og líklegs oddvita Þjóðvaka á Suðurlandi, sem höfð voru eftir honum í Sunnlenska fréttablaðinu, að Þjóðvaki myndi hvorki fylgja landbúnaðar- né Evr- ópustefnu Alþýðuflokksins. Agúst sagði að hann hefði ekki heyrt þetta áður. „Ég hef þann sið að tjá mig ekki um það sem ég hef hvorki heyrt né séð. Stefnumálin verða lögð fram á landsfundinum og þau verða skýr,“ sagði Ágúst að lokum. Söfnun Samhugs í verki: 205 milljónir Árangur landssöfnunarinnar Samhugur t verki vegna náttúurhani- faranna í Súðavík hefur farið fram úr björtustu vonum. Símasöfnun stóð vfir í fjóra daga og nemur heildartjárhæð söfnunarinnar nú 205.316.840 krónum. Þessi upphæð samanstendur af 6.496 framlögum inn á banka- reikning númer 800 í Sparisjóðnum í Súðavík og 21.481 framlagi í síma- númeri landssöfnunarinnar 800 5050. Hægt verður að leggja framlög inn á reikning númer 800 í Sparisjóðnum í Súðavík frani til 3. febrúar. Símanúmerið 800 5050 verður opið áfram fyrir þá sem vilja fá upplýs- ingar um landssöfnunina og fyrir þá sem vilja setja framlög á greiðslu- kort. Svarað verður alla daga milli klukkan 8 og 23 fram til 3. febrúar. Aðstandendur söfnunarinnar þakka landsmönnum öllum sem sýndu samhug sinn í verki. Margir eiga um sárt að binda eftir atburði vikunn- ar á Vestfjörðum og mun söfnunarfé renna óskert til víðtækrar fjöl- skylduhjálpar þar. Mikil ólga innan Alþýðubandalagsins á Austurlandi út af framboðsmálum „Hjörierfur vildi mig ekki vid hlid sér" - og um það fékk ég skýr skilaboð, segir Einar Már Sigurðsson varaþingmaður flokks- ins. „Ég hef ákveðið að taka mér pólitískt orlof...Raunar munu það vera fleiri sem ætla í pólitískt orlof svo hér er komin upp nokkur orlofssveit.“ Einar Már Sigurðsson varaþing- maður Alþýðubandalagsins í Aust- urlandskjördæmi segist hafa fengið skýr skilaboð um að Hjörleifur Guttormsson óskaði ekki eftir að hafa hann áfram í öðru sæti á fram- boðslista flokksins. Einar Már segir fylgi flokksins hafa dregist stöðugt saman á Austurlandi síðan 1978 og það hljóti að vera Hjörleifi umhugs- unarefni. Uppstillingamefnd hefur ákveðið að Hjörleifur verði áfram í efsta sæti og hefur það valdið mikilli ólgu meðal flokksmanna eystra. „Það er mitt mat að heilindi manna hafi ekki verið nægileg til að ég félli inn í þessa framvarðasveit flokksins sem á að halda merki hans á lofti. Ég hef heyrt í Ijölmiðlum að Hjörleifur skilji ekkert í því hvað ég er að segja. Hann hafi reynt að hafa sem best samband við mig sem vara- þingmann og ég tekið sæti hans á Al- þingi nokkrum sinnum. Það er auð- vitað mikil breyting frá því sem hann hefur áður sýnt sínum varaþing- mönnum. Ég hef líka reynt að halda góðu samstarfi við hann og gét ekki kvartað undan formlegu samstarfi við hann. En hins vegar varð ég var við ákveðnar breytingar á þessu þeg- ar fór að nálgast framboðsmálin. Það var augljóst að Hjörleifur hafði ekki áhuga á að ég yrði við hliðina á hon- um áfram þó svo að hann hafi aldrei orðað það sjálfur við mig,“ sagði Einar Már í samtali við blaðið í gær. -Fékkstu skýr skilaboð um þetta? , Já, ég held að þau hafi ekki verið mjög óskýr. Hann hefur líka sagt f viðtölum að mér hafi verið boðið að sitja í þriðja sæti listans. Síðan heyri ég í fjölmiðlum að Hjörleifur telur helstu tafir á framboðinu hafi verðið út af þessu. Það kemur mér mjög spánskt fyrir sjónir því mín afstaða hefur legið fyrir alveg frá því ég var um þetta spurður. Það átti því ekki að teija framboðið. Samkvæmt mínum upplýsingum dróst að ganga frá framboðinu vegna þess að menn vildu ræða meira við Hjörleif og hans framtíð." „Ég sé í Morgunblaðinu að Hjör- leifur segir að ég hafi farið gegn hon- um í fyrsta sæti við prófkjör sem hér var fyrir kosningarnar 1991. Þetta orðalag sýnir að hann telur sig eiga sætið og svo dirfist ég til að fara fram gegn honum. Ég gaf kost á mér í for- val samkvæmt þeim reglum sem giltu. Þetta segir meira um Hjörleif en mig. En þetta var býsna jöfn bar- átta og munaði litlu á okkur. Hjör- leifur fékk innan við 50% atkvæða í fyrsta sætið og einhver hefði nú haft hugfast þau úrslit fjómm árum síðar. Flokkurinn fór aðeins niður í fylgi hér við síðustu kosningar eins og hann hefur gert látlaust síðan 1978,“ sagði Einar Már Sigurðsson. I framhaldi af þessu var Einar Már „Hjörleifur Guttormsson telur greinilega að sér dugi ekki minna en tuttugu ár á Alþingi til að koma sinum málum fram," segir Einar Már Sigurðsson. spurður hvort það væri hans skoðun að tími Hjörleifs Guttormssonar sem þingmanns væri í raun liðinn. „Ég held að það sé alveg Ijóst að það var tímabært að taka það til skoðunar hvort hann væri ekki búinn að sitja nógu lengi á Alþingi. Hann er búinn að vera þar í sautján ár en telur greinilega að honum dugi ekki minna en liðlega tuttugu ár til að koma sfnum málum fram.“ -Hvað ætlar þú að gera í stöð- unni? „Ég kýs að orða það svo, að ég hef ákveðið að taka mér pólitískt orlof, en það á fyrst og fremst við á kjör- dæmavísu. Ég verð áfram virkur í bæjarmálapólitíkinni. Raunar munu það vera fleiri sem ætla í pólitískt or- lof svo hér er komin upp nokkur or- lofssveit," sagði Einar Már Sigurðs- son.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.