Alþýðublaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 25.01.1995, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Hafnfirðingurinn Gestur G. GestSSOIl, fyrsti varaformaður Sambands ungra jafnaðar- manna og leiðtogi ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði, í samtali við Stefán Hrafn Hagalín „Annaðhvort er maður krati eða íhald(( Gestur G. Gestsson, 26 ára, er gaflari í húð og hár; fæddur, skírður, fermdur og búsettur í Hafnarfirði. í stíl við það alltsaman segir Gestur, að ef hann einhvem tím- ann muni giftast sambýliskonu sinni, Kristínu Þórarins- dóttur, þá fari athöfnin fram í Hafnarfirði. Gestur er til- tölulega nýkjörinn sem fyrsti varaformaður Sambands ungra jafnaðarmanna, hefur verið leiðtogi ungra jafnaðar- manna í Hafnarfirði um árabil og stefnir á að klára nám í hagfræði og stjórnmálafræði við Háskóla íslands í vor. Stefán Hrafn Hagalín ræddi við Gest í gær um leið hans inní flokkinn og framtíð hans þar; einangrun ungra jafnað- armanna í Hafnarfirði; „fundameinlokur“; unga sjálfstæð- ismenn; átökin í prófkjörinu á Reykjanesi; kosningastefnu Alþýðuflokksins; lætin í kringum Jóhönnu; meinta öfund í garð hanfirskra jafnaðarmanna; stöðu Guðmundar Arna og jafnaðarmanna í Hafnarfirði; stóra og sterka jafnaðarmannaflokkinn; Jóhann G. Bergþórsson; „þægilega innivinnu“; kynjakvóta og innri skiptingu stjómmálaflokka eftir kyni og aldri...; og sitthvað fleira. -Hvenær og afhverju gekkstu til liðs við jafnaðarmenn? „Verandi Gaflari hefur maður í raun bara um tvennt að velja: annað- hvort er maður krati eða fhald. Þar sem ég er ekki af Mathiesen-ættinni og hafði horft upp á aðgerðaleysi meirihluta sjálfstæðismanna og óháðra - og síðan þann mikla upp- gang sem varð í bænum þegar kratar tóku völdin - þá varð það, ásamt því að eiga samleið með helstu stefnu- málum Alþýðuflokksins, til þess að ég gekk til liðs við flokkinn." -Að hverju hefurðu starfað inn- an raða jafnaðarmanna? „Störf mín innan raða flokksins hóf ég sem formaður Félags ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Síðast- liðið haust var ég svo kosinn sem fyrsti varaformaður Sambands ungra jafnaðarmanna." -Hófstu störf sem íormaður í Hafnarfirði; er framabrautin virkifega svona hröð innan AI- þýðuflokksins? „Ég held það sé upp og ofan. Sá hópur sem skipaði FUJ- stjómina f Hafnarfirði þegar ég kom inn í starf- ið var að stómm hluta til nýr í starf- inu. Þetta var ferskur og skemmtileg- ur hópur og því hægt að segja um okkur flest að framabrautin hafi ver- ið hröð.“ -Þú hefur dottið inn og út úr starfmu. Afhverju? „Pólitík og þátttaka í henni er fyrst og fremst áhugamál hjá mér. Nám og fjölskylda hafa forgang. Þess vegna hefur maður verið misvirkur f starfinu." -Eg man fyrst eftir þér sem for- manni Nemendafélags Fjöl- brautaskólans i íhaldsbænum Garðabæ fyrir átta árum. Varla var það rökrétt framhald að ganga til liðs við jafnaðarmenn? „Nei, alls ekki. Rökrétt framhald af formennsku Nemendafélagsins í FG hefði verið formennska í Félagi ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ. Reyndar getur það vel verið, að ég sé eini maðurinn sem hafi verið for- maður í FG og ekki seinna rneir orð- ið formaður eða stjórnarmaður Hug- ins, Félagi ungra sjálfstæðismanna þar í bæ.“ -Félag ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði hefur á undanförnum árum verið talsvert einangrað inn- an Sambands ungra jafnaðar- manna. Hversvegna? „Þetta stafar fyrst og fremst af því, að mikið hefur verið að gera á heimavígstöðvum okkar í Hafnar- firði. Það er alltof algengt, að Félög ungra jafnaðarmanna á hverjum stað leggi alla sína krafta í sameiginlegt starf Sambandsins og ekkert sé að gerast hjá þeini sjálfum. Sambandið á að mínu viti fyrst og fremst að vera samræmingaraðili milli félaga. Yfir- stjórn SUJ á að styrkja starfið heima í byggð, en ekki taka til sín alla krafta félaga í tilgangslausum funda- meinlokum." -Tilgangslausar fundameinlok- ur, hvað er það? „Ég kalla það tilgangslausar fundameinlokur, þegar allir kraftar þess fjölmarga hæfileikafólks sem er að finna innan raða Sambandsins fara í tíða og langa fundi sem skila litlu af sér. Þetta er að mínu mati einn stærsti gallinn á skipulagi SUJ. Vissulega er nauðsynlegt að funda, móta stefnuna og ræða málin. Það verður þó að gerast án þess, að í það fari heilu og hálfu dagamir. Við verðum að muna, að þátttaka í pólit- ísku starfi er áhugamál þeirra sem starfa innan SUJ - ekki atvinna. Fundir verða því að vera skilvirkir, þannig að allur sá tími sem fólk má sjá af í þetta áhugamál fari ekki í til- gangslitlar fundasetur. Sambands- stjórnarfundurinn sem ungir jafnað- armenn héldu fyrir rúmri viku er gott dæmi um hvernig fundir eiga alls ekki að vera. Hann var alltof lang- dreginn og ómarkviss." -Nú er þetta félag í Hafnarfirði stærsta aðildarfélag SUJ. Er ekki hægðarleikur fyrir ykkur að taka völdin í krafti fulltrúafjölda ykk- ar, frekar en að standa flest fyrir utan og gagnrýna? „Það er nokkuð til í þessu. Við hefðum nefnilega hæglega getað tekið öll völd innan æðstu stjómar SUJ, sérstaklega áður en lögum Sambandsins var breytt sfðastliðið haust. Við hefðum kannski einnig mátt beita okkur meira til að færa Sambandið í það horf sem við vild- um. En ég held að við höfum stigið skref í þessa átt nú í haust þegar við Hafnaríjarðarkratar fjölmenntum á sambandsþingið. Einangmnin hefur verið rofin.“ -Svo ég haldi mig áfram við SUJ; hvað réttlætir aldursskipt- ingu í stjórnmálaflokkum - og bcinu framhaldi af því: hvað finnst þér um kynjaskiptingu? „Ég held, að með því að skipta svona upp, sé auðveldara að virkja fólk til þátttöku í stjórnmálum. Ungt fólk hefur önnur baráttumál og ann- að sjónarhom á lífið og tilveruna en það eldra. Hvað varðar kynjaskipt- ingu finnst mér, að ekki eigi að vera neinar reglur i gangi um hana. Meta á fólk af verðleikum. Ef það er haft í heiðri þá kemur það að sjálfum sé að álíka mikið er af kynjunum í valda- stöðum innan flokkanna." -Þú ert þá andsnúinn kynja- kvótanum sem viðhafður er sem vinnuregla innan SUJ og Alþýðu- flokksins, eða hvað? „Þesskonar reglur em settar á, vegna þess hve konur hafa átt erfitt uppdráttar innan flokkanna og þar af leiðandi verið fámennar í valdastöð- um þeirra. Slíkar reglur leysa hins- vegar engan vanda að endanlegu. Menn verða að spyrja sig hvers vegna konur hafa lent í þessari að- stöðu. Það er mitt mat að þær hafa ekki verið metnar að verðleikum. Konur hafa þurft að horfa upp sér hæfileikalausari menn komast áfram á kynferðinu einu saman. Þessu þarf að breyta. Það á ekki að skipta máli hvort þú ert karl eða kona. Einsog ég sagði áðan: Fólk á að vera vegið og metið eftir öðmm mælistikum en kynferði." -Mér hefur oft fundist að nokk- ur öfund - og jafnvel óvild - hafi á stundum ríkt innan Alþýðuflokks- ins í garð jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Afhverju andar köldu? „Maður hefur svo sem fundið fyr- ir þessu. Þegar við til dæmis tókum okkur til í Hafnarfirði og fjölmennt- um á sambandsþingið síðastliðið haust ætlaði allt vitlaust að verða og samsæriskenningar af öllum stærð- um og gerðum tröllriðu þinginu. Af hveiju þetta kemur til, er erfitt að segja. Við Hafnarfjarðarkratar vinn- um heiðarlega og látum verkin tala. Þetta hefur skilað sér í því að flokk- urinn er stærsta stjómmálaaflið í Firðinum. Ég held að það megi læra af þessu. Við eigum að koma upp úr skotgröfunum og vinna saman að því sem skiptir máli. Gera Alþýðu- Ifokkinn að jafn öflugum flokki og bræðrafiokkarnir í Skandinavíu eru. Það gengur aldrei upp ef við af tómri öfund rífum niður það sem vel er gert í stað þess að læra af því.“ -Gamli draumurinn um stóra jafnaðarmannaflokkinn blundar í þér. Hvernig sérðu hann verða að veruleika? „Fyrst og fremst þurfum við jafn- aðarmenn að læra að vera ósammála og rífast, án þess að hlaupa í fjöl- miðla eða kljúfa flokkinn. Til þess að geta orðið fjöldahreyfmg gengur skotgrafahernaðurinn einfaldlega ekki upp. Auðvitað hljótum við að vera ósammála um mörg mál. Við verðum hins vegar að fara hafa vit á því að rífast og skammast fyrir lukt- um dyrum. Ná þannig sameiginlegri niðurstöðu og standa saman út á við sem sterk og öflug heild.“ -Nú er nýlokið prófkjöri Al- þýðuflokksins á Reykjanesi þar sem þú skipaðir þér í hóp stuðn- ingsmanna Guðmundar Árna. Eru engin sárindi í gangi af hálfu Hafnfirðinga? „Mín skoðun er sú, að við hefðum verið með sterkari lista á Reykjanesi ef Guðmundur Ámi hefði náð fyrsta sætinu; það hefði komið betur út fyr- ir flokkinn ef það hefði gengið eftir. Það sem hinsvegar stendur uppúr eftir þetta prófkjör er hin gífurlega góða þátttaka. Nær níu þúsund manns völdu á listann, tæpum þrem- ur þúsundum fleiri en hjá Sjálfstæð- isflokknum fyrir stuttu. Það sýnir okkur hvað hægt er að gera ef vel er að málum staðið. Ég held, að geti enginn verið sár eftir svo glæsilegt prótkjör. Þátttakan fór fram úr öllum vonum og að stuðningsmönnum flokksins hafi fjölgað þetta mikið í Kópavogi er auðvitað árangur sem er alveg frábær. Nú er það auðvitað oddvita flokksins á Reykjanesi að tryggja að þessi fylgisaukning skili sér líka í kjörkassana. Þátttakan í Hafnarfirði var einnig framar öllum vonum sem undirstrikar sterka stöðu flokksins þar. Við Hafnarfjarðarkrat- ar emm ekkert fýluvinafélag og munum nú snúa okkur af öllum krafti að næsta verki, sem er að tryggja góðan árangur flokksins í komandi kosningum." -Hvernig sérðu stöðu flokksins í upphafi kosningabaráttu eftir um- rótið í flokknum sem náði há- punkti með Jóhönnu- og Guð- mundarmálum? „Prófkjörið sýndi og sannaði að Guðmundur Árni stendur sterkt í sínu kjördæmi. Ég held að allt fjöl- miðlafárið í kring um hann hafi keyrt svo um þverbak að fólk hafi ofboðið, séð í gegnum moldviðrið. Það, hversu vel hann kemur út, með tæp- lega þijú þúsund og átta hundmð at- kvæði í fyrsta sæti, hefur styrkt þá trú rnína að fólk sjái í gegnum fjöl- miðlafár af því tagi sem hann lenti í. Almenningur er skynsamari en margur hyggur. Sú staðreynd að Jó- hanna skyldi kljúfa sig úr flokknum á hinsvegar eftir að reynast okkur jafnaðarmönnum erfið í næstu kosn- ingum. Að flokkur tapi stjómmála- manni, sem hefur notið stuðnings og trausts langt út fyrir raðir flokksins og verið með landsins vinsælustu stjórnmálamönnum, hlýtur að verða mikil blóðtaka. Afturámóti sé ég ekki, að nokkur málefnaágreiningur hindri það að þessi öfl geti síðar meir sameinast. Það er allavega von mín.“ -Hvað með þessi læti í kringum Jóhann G. Bergþórsson? „Jóhann G. Bergþórsson er vanda- mál Sjálfstæðisflokksins, en ekki okkar Hafnarfjarðarkrata. Hitt er svo annað mál, að gaman verður að sjá, hverslags hótunum eða gylliboðum forsætisráðherrann beitti fyrir sig til að brjóta Jóhann. Það mun koma í !jós.“ -Hvaða áherslur og stefnumál eiga jafnaðarmcnn að setja á odd- inn í kosningbaráttunni? „Málefnalega stöndum við traust- um fótum. Við eigum að undirstrika, að Alþýðuflokkurinn er sá flokkur sem tekur ábyrga afstöðu til mála. Við lofum ekki því sem ekki verður við staðið. Það er auðvelt mál að segjast ætla efla velferðarkerfið, segjast ætla auka atvinnu eða segjast ætla jafna launamismun í landinu. Alþýðuflokkurinn gengur skrefinu lengra og segir líka hvemig á að gera hlutina. Þetta er spurning um mark- mið og leiðir. Á það held ég að við eigum að leggja áherslu því fólk er orðið þreytt á innihaldslausum lof- orðum um paradís handan við næstu kosningar svo lengi sem rétt - ef þannig má taka til orða - er kosið.“ -Hver helduröu að úrslit alþing- iskosninganna verði og sýnist þér að einhverjar breytingar verði á stefnu flokksins eða forystu á næstu misserum? „Þar sem ég er ekki skyggn hef ég ekki hugmynd um hvemig næstu kosningar fara. Hinsvegar er ljóst að flokksmenn allir verða að lyfta grett- istaki eigi flokknum að takast að halda óbreyttum hlut í komandi kosningum. Hvað stefnu flokksins varðar þá á hún örugglega eftir að breytast því það liggur í eðli jafnað- arstefnunnar, að aðlagst breyttum tímum og aðstæðum. Forystan á náttúrlega líka eftir að breytast, hvort það verður á næstu misserum eða ekki hef ég ekki hugmynd um.“ -Hvað stendur uppúr í huga þínum af atburðum síðasta árs í stjórnmálum? „Hrafnsmálið kemur fyrst upp í hugann, enda einn furðulegasti gjörningur seinni tíma. Innanflokks er brotthvarf Jóhönnu úr flokknum það sem stendur upp úr.“ Að lokum; þínar eigin framtíð- aráætlanir - í stjórnmálum og einkalífi - hverjar eru þær? Er at- vinnustjórnmáiamaðurinn þér hugnanlegt fyrirbæri? „Mínar framtíðaráætlanir lúta fyrst og fremst að þvf að ljúka námi. Það er því vonandi að þær nái ekki lengra en til næsla vors. Að vera at- vinnustjómmálamaður er mér alls ekki hugnanlegt. Ég held að til þess að geta staðið í þeirri vinnu og álagi - á þeim launum sem stjómmála- mönnum á Islandi er boðið uppá - verði maður að vera hugsjónastjóm- málamaður. Ég er því algerlega ósammála þingmanninum sem lýsti vinnu sinni sem hugggulegri inni- vinnu.“ A-mynd: E.ÓI.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.