Alþýðublaðið - 25.01.1995, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995
ALÞYÐUFLOKKURINN
ALÞÝÐUFLOKKURINN
- Jafnaöarmannaflokkur íslands
Aukaþing 4.-5. febrúar
Aukaþing Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands
- verður haldið á Hótel Loftleiðum í Reykjavík helgina 4. til
5. febrúar næstkomandi.
Þingið er opið öllum flokksmönnum, en aðeins þeir sem
kjörnir voru fulltrúar á 47. flokksþing Alþýðuflokksins í Suð-
urnesjabæ, sumarið 1994, hafa atkvæðisrétt.
Dagskrá aukaþingsins verður nánar auglýst síðar.
Upplýsingar um þingið eru gefnar á aðalskrifstofum Al-
þýðuflokksins, sími 91-29244, myndsendir 91-629155.
Framkvæmdastjórnin.
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR
Aðalfundur 25. janúar
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður haldinn
miðvikudaginn 25. janúar.
Mozart leikur kvartett sem hann tileinkaöi Joseph Haydn vegna mikilla áhrifa Haydn á tónlist hans.
Fundurinn verður í Rósinni - félagsmiðstöð jafnaðar-
manna í Reykjavík- og hefst klukkan 20:30.
Kór Bústaðakirkju heiðrar einn mesta snilling allra tíma
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
UNGIR JAFNAÐARMENN
Kosningaþing 28. janúar
Ungir jafnaðarmenn halda kosningaþing laugardaginn 28.
janúar næstkomandi. Þingið verður í Alþýðuhúsinu í Hafn-
arfirði (við Strandgötu) og er dagskrá þess eftirfarandi:
09:30 Skráning og móttaka þinggagna.
10:00 Setning: Ávarp Jóns Þórs Sturlusonar formanns Ungra
jafnaðarmanna.
10:15 Ávörp gesta: Rannveig Guðmundsdóttir félagsmálaráð-
herra og Petrína Baldursdóttir alþingismaður.
11:15 Skýrsla framkvæmdastjórnar: Baldur Stefánsson kosn-
ingastjóri Ungra jafnaðarmanna.
11:30 Kynning á drögum að kosningastefnuskrá: Magnús Árni
Magnússon.
11:45 Hádegisverðarhlé.
13:15 Kosningastarf Jafnaðarmanna: Arnór Benónýsson.
14:00 Hópastarf: (a) Stefnuskrá, (b) Skipulag, (c) Veiðar, (d) Út-
gáfa og áróður.
16:00 Kaffihlé.
16:30 Niðurstöður hópastarfs.
17:00 Almennar umræður.
18:00 Kosning í embætti (þar á meðal í embætti veislustjóra
Ungra jafnaðarmanna).
18:15 Afgreiðsla kosningastefnuskrár.
18:30 Kvöldverðarhlé.
21:00 Jörfagleði Ungra jafnaðarmanna. Skemmtiatriði: Mis-
heppnaðir brandarar Ungra jafnaðarmanna; Skelfilegi
ráðherrakvartettinn skemmtir (sér); Nató-skyggnulýsingar
Gunnars Alexanders; Evrópu(sam)bandið leikur fyrir
dansi og kvartettinn „Meir N orð" brillerará milli atriða.
(Þinggjald er 1.000 krónur og innfalið í því er hádegisverð-
ur og kaffiveitingar allan daginn. Þeir sem þurfa að ferðast
lengra en 150 kílómetra til þingsins þurfa ekki að greiða
þinggjald.)
Allar nánari upplýsingar gefur Baldur Stefánsson, kosn-
ingastjóri Ungra jafnaðarmanna (vinnusími 91-29244,
myndsendir 91-629155, tölvupóstfang (E-mail) bald-
stef@centrum.is).
Framkvæmdastjórnin.
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG PATREKSFJARÐAR
Aðalfundi frestað
Aðalfundi Alþýðuflokksfélags Patreksfjarðar og nágrennis
- sem halda átti laugardaginn 4. febrúar í Félagsheimilinu á
Patreksfirði - hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Formaður.
Mozart í239 ár
Leikfclag Menntaskóians við
Hamrahlíð frumsýndi um síðast-
iiðna helgi leikritið Ofsóknin og
morðið á Jean-Paul Marat flutt af
vistmönnum Charenton-geð-
veikrahæiisins undir stjórn
markgreifa de Sade.
„Hvað gerist, þegar sjálfur
maðurinn sem sadisminn cr
kenndur við sviðsetur leikrit sem
fjallar um morð á einum helsta
foringja frönsku stjórnarbylting-
arinnar 1789, á geðveikrahæli ár-
ið 1808 með eintómum geðsjúk-
lingum í hlutverkum?“ spyrja
MH- ingar í kynningu verksins.
„Þetta er sögulegt verk sem
hlandað er heimspekilegum sam-
ræðum milli Marat og de Sade,
miklum söng, sögu byltingarára
Frakklands, sálfræði, geðveiki,
gleði og sorg, morð og kimni.“
Það er Rúnar Guðbrandsson
sem stýrir uppfærslu á þessu
magnaða leikriti eftir Peter We-
iss, tónlistarstjóri er Guðni
Franzson, búningahönnuður er
Linda Björg Arnadóttir og Aróra
Skúladóttir sér um förðun á þeim
43 leikendum sem taka þátt í sýn-
ingunni.
Sýningar á verkinu verða alls
átta og lýkur þeim 2. febrúar.
Miðaverð er krónur 500 fyrir
skólafóik, en krónur 1.000 fyrir
aðra. Sýnt cr í Tjarnarbíói.
ustu erkibiskupsins þar í borg. Þrigg-
ja ára að aldri hóf Mozart skyndilega
að leika á sembal fjölskyldunnar án
þess að hafa hlotið nokkra formlega
kennslu.
Innan tveggja ára hafði hann náð
fullkomnu valdi á bæði sembalnum
og fiðlunni, samið sín fyrstu tónverk
og leikið opinberlega á hljóðfæri.
Grídarleg frægd
strax á unga aldri
Leopold áttaði sig strax á óvenju-
legri snilligáfu sonar síns og skipu-
lagði hljómleikaferðalög um Evrópu
fyrir hann ári síðar, þegar Mozart var
sex ára.
A því ferðalagi spilaði hann fyrir
Habsborgar-keisaraynjuna Maríu
Theresu, frönsku hirðina og enska
konunginn.
Níu ára að aldri samdi Mozart sína
fyrstu sinfóníu og þremur ámm eftir
það var fyrsta ópera hans frumflutt í
Vín. Sama ár kom hann í fyrsta skipti
fram sem stjómandi og fór í hljóm-
leikaferðalag um gjörvalla Italíu þar-
sem hann spilaði fyrir páfann og
hreif hann og aðra áheyrendur uppúr
skónum með snilli sinni.
Þess má geta, að á mörgum af
fyrstu hljómleikaferðalögunum var
systir Mozart, María Anna Mozart,
með í för en hún var einnig mikil-
hæfur hljómlistarmaður hvers hjón-
band batt enda á ferilinn.
Févana grafinn
í ómerktri gröf
Það var síðan ekki fyrr en hann var
orðinn 25 ára að Mozart ákvað að
finna sér fasta búsetu. Arið 1781
flutti hann til Vínar og hóf störf hjá
erkibiskupi nokkmm. Þar var illa
farið með unga snillinginn og launin
vom lúsarleg. Hann yfirgaf þess-
vegna erkibiskupinn eftir aðeins eitt
ár og kvæntist Constanze Weber
(1763-1842).
En þrátt fyrir ótrúlega frægð var
Mozart stöðugt skuldum vafinn. Ar-
ið 1787 réði þýski keisarinn Joseph
II sem yfirtónskáld sitt, en launin
héldu áfram að vera ömurleg og hag-
ur tónskáldsins vænkaðist lítt; versn-
aði ef eitthvað var.
Mozart fékk ekki einu sinni greitt
fyrir mörg stórbrotnustu verk sín á
þessu tímabili.
Hann seldi sína síðustu ópem,
Töfraflautuna, til almenningsleik-
húss árið 1791 og það var fram-
kvæmdastjóri þess sem auðgaðist á
verkinu, ekki tónskáldið sjálft - frek-
ar en vanalega.
Wolfgang Amadeus Mozart
Chrysostom lést þetta sama ár úr
taugaveiki og var þá að leggja síð-
ustu hönd á hina mikilfenglegu Sdlu-
messu. Hann var févana og stór-
skuldugur og var samkvæmt því
grafinn meðal fátæklinga í ómerktri
gröf.
239 ára afmæli Wolfgang Ama-
deus Mozart Chrysostom verður
fagnað af kór Bústaðakirkju á fæð-
ingardegi snillingsins, föstudaginn
27. janúar næstkomandi, en hann
fæddist í Salzburg í Austurríki þann
dag árið 1756 og lést 35 ámm síðar.
Þijátíu manna kór Bú-
staðakirkju mun á
föstudaginn klukkan
20:30 flytja, ásamt
sextán manna
hljómsveit, tvö
verk eftir Moz-
art, það fyrra -
D omi n i c u s
messu í C-dúr-
mun hann hafa
samið þrettán
ára gamall, en
síðara verkið
samdi hann
fjórum ámm síð-
ar, Exultate Jubil-
ate.
Svo skemmtilega
vill til, að einsöngvarí í
síðara verkinu, Guðrún Jóns-
dóttir, á afmæli sama dag og Moz-
art. Aðrir einsöngvarar verða Elín
Huld Arnadóttir, Ingunn Osk
Sturludóttir, Guðlaugur Viktors-
son og Þórður Olafur Búason.
Konsertmeistari er Laufey Sigurð-
ardóttir og stjómandi Guðni Guð-
mundsson.
Wolfgang Amadeus
Mozart Chrysostom
Rifjum stuttlega upp feril snill-
ingsins: Wolfgang Amadeus Mozart
Chrysostom er óumdeilanlega eitt af
stórkostlegustu tónskáldum vest-
rænnar tónlistarsögu; ef ekki það
stórkostlegasta. Hann lést aðeins
35 ára gamall, en á stuttri ævi
náði hann tökum á öllum
stílum sem fyrir var að
finna á þessum tímum
og samdi meistaraverk í
nær öllum deildum
tónlistarinnar; frábær-
ar ópemr einsog
Töfraflautuna, magn-
aðar sinfóníur, yndis-
lega kvartetta, hug-
ljúfa píanó- og fiðlu-
konserta, dásamleg
kammerverk og feiknin
öll af annarskonar tón-
list. AIls er vit-
21 ars
snillingur:
Wolfgang
Amadeus
Mozart
Chrysostom.
að um 600
verk sem hann
skildi eftir sig.
Starfsferill
Mozart var
jafn ótrúlegur
og hælileikar
hans. Hann var fæddur í Salzburg,
borg við rætur Austum'sku alpanna,
þarsem faðir hans, Leopold Mozart
(1719-1787), var vel þekktur hljóð-
færaleikari og tónskáld og var í þjón-
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð sýnir
„Ofsóknin og morðið á Jean-PaulMarat flutt afvistmönnum
Charenton-geðveikrahœlisins undirstjórn markgreifa deSade
a
MH-ingar í hlutverkum sínum.