Alþýðublaðið - 31.01.1995, Side 1
Formaður Neytendasamtakanna gekk út af landsfundi Þjóðvaka
sátt náðist um þessa lendingu máls-
ins, hefði Agúst stigið upp í pontu
þrátt fyrir að búið væri að loka mæl-
endaskrá og lagt það til að tillögun-
um yrði vísað til stjómar. Það hefði
svo verið samþykkt með einu at-
kvæði. Þá mun hópur manna hafa
gengið af landsfundinum eins og áð-
ur sagði.
Aðspurður hvort að hann væri
hættur að starfa með Þjóðvaka sagði
Njáll að hann ætlaði að sjá hvort að
það væri ekki hægt að rétta þetta við.
„Ef Ágúst segir sig ekki úr stjóm-
inni, þá cr bara að gleyma þessu,“
sagði Njáll að lokum.
Lagt á ráðin Jörundur Guðmundsson umboðsmaður og Mörður Árnason íslenskufræð-
ingur bera saman bækur sínar á landsfundi Þjóðvaka um helgina. Búist var við 250 manns en aðeins helmingur
þeirra lét sjá sig og rétt rúmlega 100 tóku þátt í formannskjöri. A- mynd: E.ÓI.
Landsfundur Þjóðvaka endaði í illdeilum
Krefjumst af-
sagnarAgústs
Einarssonar
Jón: Þjóðvaki er því miður greini-
lega ein deildin enn - líklega sú 5. -
þarsem þeir rugludallar eru sem
kalla sig félagshyggjumenn án
þess að vera það. A-mynd: E.ÓI.
Jón Kjartansson frá
Pálmholti formaður
Leigjendasamtak-
anna segir skilið við
Þjóðvaka
Ósáttur við
merði úr öðr-
um flokkum
„Ég, einsog margir fleiri, ber
mikla virðingu fyrir Jóhönnu Sig-
urðardóttur. Og einsog margir
fleiri batt ég miklar vonir við þessa
hreyfingu. Þessvegna eru það mik-
il vonbrigði að hún hefur ekki val-
ið sér heppilega samstarfsmenn,“
sagði Jón Kjartansson frá Pálm-
holti, formaður Leigjendasamtak-
anna, í samtali við Alþýðublaðið í
gær.
Jón, sem gekk út af landsfundi
Þjóðvaka um helgina ásamt fleir-
um, hefur nú formlega sagt sig úr
flokknum. „Þjóðvaki er því miður
greinilega ein deildin enn - líklega
sú 5. - þarsem þeir rugludallar eru
sem kalla sig félagshyggjumenn án
þess að vera það,“ sagði Jón.
Jón segir að fólkið sem beið
nýrrar hreyfingar verði að bíða
áfram. „Hreyfing sem ekki getur
tekið af skarið í sjávarútvegsmál-
um, atvinnumálum og málefnum
heimilanna getur ekki verið hreyf-
ing fólksins.“
Jón kvaðst afar ósáttur við þau
vinnubrögð sem viðhöfð eru í
Þjóðvaka. „Það á ekki að fá merði
úr öðrum flokkum til að stjórna
vinnubrögðum. Ef þetta á að vera
hreyfing fólksins verða sjónarmið
fólksins að koma fram.“
Ólafur Ragnar segir fréttaflutning af ágreiningi alþýðubandalagsmanna á Reykjanesi tómt grín
„Hver hefur sinn húmor"
- segir Njáll Harðarson, sem gekk af fundi ásamt
fleirum til að mótmæla „ólýðræðislegum vinnu-
brögðum11.
„Það voru um tuttugu manns eftir
í salnum þegar við vorum höfðum
yfirgefið fundinn,“ sagði Njáll
Harðarson, einn af liðsmönnum
Þjóðvaka, í samtali við Alþýðublað-
ið, en hann og stór hópur samheija
hans yfirgaf landsfund Þjóðvakans
um síðustu helgi, til að mótmæla
meintum ólýðræðislegum vinnu-
brögðum sem þar voru höfð í
frammi. þessi hópur mun krefjast
þess að Ágúst Einarsson prófessor
segi sig úr stjóm Þjóðvaka, en í hana
var hann kjörinn um helgina.
„Þetta snerist ekki um mikinn
málefnaágreining. Hins vegar voru
allar lýðræðisreglur þverbrotnar við
stjómarkjör og Ágúst Einarsson kom
í veg fyrir að breytingartillögur sem
við vorum með við sjávarútvegs-
stefnuna væm ræddar,“ sagði Njáll.
Stjómarkjörið fór að sögn þannig
fram að fundarmönnum var afhentur
listi með 36 nöfnum, síðan áttu menn
að merkja við þá sem þeir vildu sjá í
stjóminni. Það er því augljóst að ekki
sátu allir við sama borð þegar kom
að framboði til stjórnar.
Njáll sagði að mikill styrr hefði
staðið um sjávarútvegstillögur Þjóð-
vaka. Hann og fleiri hefðu verið með
ákveðnar breytingartillögur, sem Jó-
hanna Sigurðardóttir og Ágúst
hefðu fallist á að yrðu bomar undir
atkvæði fundarins. Hálftíma eftir að
Njáll Harðarson, Jóhanna Sigurð-
ardóttir og Ágúst Einarsson á
meðan allt lék í lyndi. A-mynd:
E.ÓI.
- segir Flosi Eiríksson formaður kjörnefndar
flokksins í kjördæminu. Fullvíst að Sigríður
Jóhannesdóttir verði áfram í 2. sæti. Alþýðu-
bandalagsmenn í Kópavogi halda til streitu hót-
unum um að sniðganga kosningabaráttuna.
„Ólafi finnst þetta fyndið. Hver
hefur sinn húnior," sagði FIosi Ei-
ríksson, formaður kjömefndar Al-
þýðubandalagsins á Reykjanesr að-
spurður um þau ummæli Ólafs
Ragnars Grímssonar í Morgun-
póstinum í gær, að fréttaskýring Al-
þýðubíaðsins á föstudag um fram-
boðsmál Alþýðubandalagsins eigi
enga stoð í veruleikanum.
Orðrétt segir Ólafur Ragnar í
Morgunpóstinum: „Þessi frétt í Al-
þýðublaðinu er bara einsog annað í
því ágæta blaði, sem er skemmtilegt,
fyndið og hressilegt á morgnana. En
tengsl þess við veruleikann em
svona álíka og skáldskapur Davíðs
Stefánssonar sem Alþýðublaðið
hefur líka skrifað mikið um.“
Einsog Alþýðublaðið skýrði frá er
hörð barátta milli alþýðubandalags-
manna í Kópavogi og á Suðumesj-
um um 2. sæti á lista flokksins í
Reykjanesi. Suðumesjamenn leggja
mikla áherslu á að Sigríður Jóhann-
esdóttir skipi sætið áffam, en Kópa-
vogsbúar hóta að sniðganga kosn-
ingabaráttuna og taka ekki sæti á
lista. Á sunnudagskvöld var fundur í
kjömefnd, sem skipuð er fulltrúum
Flosi: Ég held
að þessi fram-
boðsmál okkar
séu þannig að
við eigum að
leysa þau
heima í héraði
en ekki í Al-
þýðublaöinu.
átta alþýðubandalagsfélaga í kjör-
dæminu.
Ólafur Ragnar Grímsson sat fund-
inn og reyndi eftir megni að miðla
málum, samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins. Allt bendir til að Sig-
ríður skipi áfram 2. sætið en alþýðu-
bandalagsmenn í Kópavogi halda til
streitu hótunum um að taka sér „pól-
itískt orlof‘. Meirihluti kjömefndar
er á bandi Sigríðar, en Flosi hefur
beitt sér mjög fyrir því að Valþór
þyt meðal alþýðubandalagsmanna í
Reykjanesi. Einn viðmælandi sagði
að Ólafur Ragnar hefði lagt að
flokksmönnum að ræða ekki við AI-
þýðublaðið, og annar sagði að frétta-
skýringin hefði „skapað talsvert heit-
ar tilfinningar. Þar var hinsvegar
engu logið. Nú er formaðurinn að
læsa klónum í kjömefndina og því er
honum í mun að forðast alla um-
ræðu.“
Um næstu helgi verður gengið frá
lista Alþýðubandalagsins á tjölskip-
uðu kjördæmisþingi. Framboðsmál-
in þarf því að leiða til lykta á allra
næstu dögum. „Það er því miður
99% ömggt að Sigríður Jóhannes-
dóttir verði áfram í 2. sæti. Viðhorf
málsmetandi manna í Kópavogi hafa
hinsvegar ekkert breyst,“ sagði al-
þýðubandalagsmaður í Kópavogi í
gær. Siá Rökstóla á blaðsíðu 2
Ólafur Ragnar
lagði að al-
þýðubanda-
lagsmönnum á
Reykjanesi að
ræða ekki við
Alþýðublaðið.
Hlöðversson eða annar Kópavogs-
búi fái 2. sætið.
Flosi var spurður hvort eitthvað
hefði verið rangt í fréttaskýringu Al-
þýðublaðsins á föstudag. Hann stað-
festi að rétt hefði verið eftir sér haft,
en sagði ennfremur: „Eg held að
jiessi framboðsmál okkar séu þannig
að við eigum að leysa þau heima í
héraði en ekki í Alþýðublaðinu."
Samkvæmt heimildum blaðsins
vakti fréttaskýringin nokkum úlfa-
Eg tek ekki þátft í
svona skrípaleik
- segir Jóhannes Gunnarsson og telur öll eðlileg fundarsköp I
hafa verið brotin á fundinum.
,Ég bað um orðið til að mótmæla
þessum vinnubrögðum sem em and-
stæð öllum eðlilegum fundarsköp-
um. Eg fékk ekki orðið og þegar ég
ítrekaði hvort ég fengi ekki að taka
til máls var mér sagt að ég fengi það
eftir að búið yrði að afgreiða málið.
Eg tek ekki þátt í svona skrípaleik og
þar af leiðandi ákvað ég að taka ekki
frekari þátt í afgreiðslu mála á þess-
um Iandsfúndi og fór heim til mfn,“
sagði Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna, í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær.
Jóhannes sat landsfund Þjóðvaka
á laugardag og fram eftir degi á
sunnudag. Þá gekk hann af fundi eft-
ir að breytingartillaga sem hann bar
upp við landbúnaðarályktun fundar-
ins fékkst ekki rædd.
„Það hafði verið óskað eftir að
breytingartillögum sem ég var með
yrði vísað til stjórnar. Eg hef alltaf
vanist því að ef vísa á breytingartil-
Iögum eitthvert þá verði einnig að
vísa aðaltillögunni þangað. Það
verður að taka þetta allt í samhengi.
Ég féllst á að mínum breytingartil-
lögum yrði vísað til stjómar því ég
taldi að aðaltillögunni yrði einnig
vísað þangað til umljöllunar. Þegar
ég hins vegar frétti að það ætti að
vísa breytingartillögunum til stjómar
en bera upp aðaltillöguna án þess að
breytingartillögumar fengu fyrst
eðlilega meðferð, bað ég um orðið
um dagskrá til þess að mótmæla
þessum vinnubrögðum en fékk ekki.
Þetta er andstætt öllu því sem heitir
eðlileg fundarsköp," sagði Jóhannes
Gunnarsson.
Hann sagðist aldrei hafa ætlað sér
stóra hluti í pólitík og gengi ekki
með þingmann í maganum. Sem for-
maður Neytendasamtakanna hefði
hann ekki áhuga á að fara á fram-
boðslista neins stjómmálaflokks.
Hann sagðist enn vera í Þjóðvaka.
Hins vegar sætti hann sig ekki við
það þegar eðlileg fundarsköp væm
hunsuð og fá ekki að taka til máls til
að gagnrýna það þegar óeðlilega
væri farið með fundarsköp. „Eg
botna bara ekkert í svona vinnu-
brögðum," sagði Jóhannes.
Jóhannes Gunnarsson:
Ég botna bara ekkert í svona
vinnubrögðum.