Alþýðublaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995
MMDUDID
20862. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SiguröurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Þjóðvaki
brotlendir
Landsfundur Þjóðvaka átti að verða sigurhátíð Jóhönnu Sig-
urðardóttur, en snerist áðuren yfir lauk upp í beiskan, vand-
ræðalegan og auðmýkjandi ósigur. „Hreyfing fólksins“ var
andvana fædd - Þjóðvaki reyndist á undraskömmum tíma hafa
tileinkað sér flokksræði af því tagi sem vart þekkist lengur hjá
neinum af gamalgrónu stjómmálaflokkunum, að Kvennalistan-
um einum undanskildum. Allt bar að sama bmnni: Helmingi
færri mættu á landsfundinn en ráð var fyrir gert, rétt ríflega
hundrað manns tóku þátt í formannskjöri, bullandi ágreiningur
var um öll helstu stefnumál, hörð gagnrýni kom fram um ólýð-
ræðisleg vinnubrögð og að endingu gekk stór hópur af fundi.
Þetta er sá heimanmundur sem Þjóðvaki fékk með sér í kosn-
ingabaráttuna.
Á sunnudag vom síðan birtar niðurstöður skoðanakönnunar
um fylgi flokkanna. Þjóðvaki mælist nú með aðeins 16% og
hefur því dalað ótrúlega mikið á skömmum tíma. Fyrir örfáum
vikum var fylgi Þjóðvaka komið upp undir 30%. Á sama tíma
er Alþýðuflokknum að vaxa ásmegin, og er nú kominn með
10% fylgi eftir mjög krappa lægð.
Þrátt fyrir að fom draumur Jóhönnu Sigurðardóttur um for-
mannsstól í stjómmálaflokki hafi nú ræst bendir ýmislegt til
þess að hún hafí helstil litla stjóm á sköpunarverki sínu. Að
sönnu hlaut hún rússneska kosningu hundrað manna hóps, en
liðsafli Jóhönnu er sundurleitur í meira lagi einsog þegar er
komið á daginn. Áhrifamestu liðsmenn Þjóðvaka virðast rekn-
ir áfram af einum saman persónulegum metnaði og von um að
persónuvinsældir Jóhönnu fleyti þeim til valda. Ásakanir um
ólýðræðisleg vinnubrögð og gerræði við stefnumótun em til
marks um að fyrirhugað „grasrótarlýðræði“ var aldrei annað en
orðin tóm.
í þessu sambandi hljóta menn líka að spyija um framboðslista
Þjóðvaka. Margauglýst var á stofnfundi flokksins í haust, að
listar yrðu lagðir fram á landsfundi. Það var ekki gert. í Alþýðu-
blaðinu á föstudag var haft eftir félaga í Þjóðvaka að „kjör-
nefndin er bara Jóhanna“. Þetta er semsagt hið virka lýðræði í
hreyfíngu fólksins. Það þarf ekki að koma á óvart: skilningur
Jóhönnu Sigurðardóttur á lýðræðishugtakinu virðist yfirleitt
hafa verið fólginn í því, að lýðræði sé þá aðeins fullkomið þeg-
ar hún sjálf ræður.
Stefnuskrá Þjóðvaka er ennþá að mörgu leyti óskrifað blað,
enda tókst ekki, vegna hatrammra deilna, að afgreiða allar til-
lögur. Málflutningur Jóhönnu um þessar mundir ber hinsvegar
öll merki lýðskmmarans, sem er reiðubúinn að kaupa sér stund-
arvinsældir með því að gera að sínum öll mál sem líkleg em til
að falla í kramið hjá kjósendum. Þannig setur hún fram full-
komlega óábyrga stefnu í velferðarmálum, sem felur í sér einn
risavaxinn félagsmálapakka án þess að fyrir liggi hver eigi að
borga reikninginn. I Evrópumálum og landbúnaðarmálum er
niðurstaðan moðsuða, og ekki að ófyrirsynju að einn lands-
fundarfulltrúi sagði að Þjóðvaki hefði á undraskömmum tíma
tileinkað sér hina eðlu list Framsóknar, og felur í sér að taka
ekki afstöðu í veigamestu málum þjóðarinnar.
Þegar Jóhanna Sigurðardóttir réðst harkalega á ríkisstjómina
á landsfundinum um helgina mátti greina spunahljóð tómleik-
ans í röddinni. Ríkisstjómin hefur unnið látlaust að því, sagði
hún, að gera ríka ríkari og fátæka fátækari. Svona úreltar klisjur
héldu flestir að heyrðu til liðinni tíð. Og vart eru þær samboðn-
ar stjómmálamanni sem fyrir einu misseri vék úr ríkisstjóm eft-
ir að hafa verið þar í sjö ár samfleytt, og staðið að hverri einustu
ákvörðun allan þann tíma. Málflutningur Jóhönnu er því miður
haldlaust geip.
Rökstólar
„Kenning Ólafs Ragnars Grímssonar felur
hinsvegar í sér að ljóð Davíðs Stefánssonar
séu einn risavaxinn svindill frá upphafi til
enda - rétt einsog fréttirnar í AlþýÖublaÖinu.
Við nákvæma rannsókn hefur bókmenntadeild
Alþýðublaðsins komist að annarri og jafnvel
óvæntari niðurstöðu: Ljóð Davíðs Stefánsson-
ar voru full af spámannlegri kynngi; þar má
nefnilega lesa uppskriftina að stjórnmálaferli
Ólafs Ragnétrs Grímssonar. í smáatriðum.“
Dillandi hlátur á
Seltjarnarnesi
Seltimingar vita ekki alveg hvað-
an á þá stendur veðrið um þessar
mundir. I skammdegisrökkri þung-
búinna morgna berst iðulega dillandi
hlátur úr eldhúsinu á Barðaströnd 5.
Nágrannamir áttu víst ekki að venj-
ast slíkri kátínu til skamms tíma enda
húsbóndinn að Barðaströnd 5 þekkt-
ur fyrir flest annað en hafa tilveruna
í flimtingum. En skýringin á hlátrin-
um sem liðast þessa morgna um Sel-
tjamames er fundin: Þar situr Ólafur
Ragnar Grúnsson og hlær hástöf-
um yfir Alþýðublaðinu.
Rannsóknablaðamenn Morgun-
póstsins upplýstu semsagt lands-
menn um það í gær, að fréttir Al-
þýðublaðsins af framboðsmálum Al-
þýðubandalagsins í Reykjanesi em
gleðigjafi formannsins. Á föstudag-
inn sögðum við ffá því, að bakvið
tjöldin er hatrammlega tekist á um 2.
sæti G-Iistans og hóta alþýðubanda-
lagsmenn í Kópavogi - sem verið
hafa dyggustu stuðningsmenn Ólafs
Ragnars - að sniðganga kosninga-
baráttu og taka ekki sæti á framboðs-
lista ef Sigríður Jóhanncsdóttir
verður áfram í 2. sæti. Meðal annars
hafði Alþýðublaðið eftir Flosa Ei-
ríkssyni, formanni kjömefndar, að
hann sæi enga ástæðu til að sitja
áffam í nefndinni ef ekki yrði tekið
tillit til Kópavogsbúa.
Um þetta segir glaðbeittur dr. Ól-
afur:
„Þessi frétt í Alþýðublaðinu er
bara einsog annað í því ágæta blaði,
sem er skemmtilegt, fyndið og
hressilegt á morgnana. En tengsl
þess við veruleikann em svona álíka
og skáldskapur Davíðs Stefánsson-
ar sem Alþýðublaðið hefur líka
skrifað mikið um.“
Bittinú. Ólafur Ragnar Grímsson
er fjölhæfur maður, einsog alþjóð
veit. Þetta er hinsvegar í fyrsta skipti
sem hann bregður sér í hlutverk bók-
menntagagnrýnanda. Og hann ræðst
ekki á garðinn þarsem hann er lægst-
ur: setur fram splunkunýja kenningu
um vemleikafirringu þjóðskáldsins
frá Fagraskógi. Það er því ekki lítið
afrek sem Ólafúr Ragnar hefur unnið
milli hláturrokanna í skammdegis-
rökkrinu á Seltjamamesi.
Sumir eru friðlausir
fæddir
Sú var tíð að heil kynslóð íslend-
inga sótti lífsskilning sinn að vem-
legu leyti í skáldskap Davíðs Stef-
ánssonar. Kenning Ólafs Ragnars
felur hinsvegar í sér að ljóð Davíðs
séu einn risavaxinn svindill frá upp-
hafi til enda - rétt einsog fréttimar í
Alþýðublaðinu. Við nákvæma rann-
sókn hefur bókmenntadeild Alþýðu-
blaðsins komist að annarri og jafnvel
óvæntari niðurstöðu: Ljóð Davíðs
Stefánssonar vom full af spámann-
legri kynngi; þar má nefnilega lesa
uppskriftina að stjómmálaferli Ólafs
Ragnars Grímssonar. I smáatriðum.
Dæmi eitt. Hér fyrr á öldinni var
Ólafur Ragnar Grímsson ungur og
efnilegur framsóknarmaður, pólit-
ískur uppeldissonur sjálfs Eysteins
Jónssonar sem ætlaði honum ríkið
eftir sinn dag. En það fór nú einsog
það fór: framsóknarmenn afþökkuðu
hjálpræði Eysteins og Ólafur Ragnar
leiddi unga framsóknarmenn útá
pólitískt eyðihjam. Um þetta vitnar
vísa Davíðs:
Spurðu mig ekki um heimilishagi
og heilög œttarbönd.
- Sumir eru friðlausir fœddir
ogflýja sín óskalönd.
Útlegð og förustafur
Dæmi tvö. Ólaf Ragnar bar næst
að garði í litlum stjómmálaflokki
sem hét Samtök ftjálslyndra og
vinstrimanna. Hinn ungi foringi fór í
framboð fyrir Samtökin í alþingis-
kosningunum 1974 en hafði ekki al-
veg árangur sem erfiði. Eigi að síður
hafði hann uppi stór orð um að helga
krafta sína þrotlausri uppbyggingu
þessa litla flokks sem veitt hafði
honum pólitfskt hæli. Með frómum
fyrirheitum lokkaði hann til sín
marga fyrrum félaga úr hreyfingu
ungra framsóknarmanna, Möðruvel-
lingana svokölluðu. Ólafur Ragnar
hét því að stýra Samtökunum til sig-
urs og gera þau að móðurskipi sam-
einaðrar vinstrihreyfingar.
En eina óveðursnótt yfirgaf stýri-
maðurinn ungi skipið þarsem það
hraktist í skerjaskarði stjómmálanna.
Að lyktum liðaðist fleytan sundur á
eyðiströnd en skipsbrotsmaðurinn
bankaði óforvarendis uppá hjá Al-
þýðubandalaginu. Þegar hann var
spurður um hin fögm fyrirheit sem
hann hafði gefið félögum sínum í
Samtökum frjálslyndra og vinstri-
manna svaraði hann að bragði með
ljóði Davíðs:
Spurðu mig hrnrki um leit mína og löngun
né loforðin sem ég gaf.
- Sumir verðskulda ekkert amtað
en útlegð ogjorustqf.
Til eru fræ
Dæmi þrjú. I Alþýðubandalaginu
sýndi Ólafur Ragnar strax aðlögun-
arhæfileika sína, en þeir em aðals-
merki hans í stjómmálum. Á fáum
ámm kleif hann af einurð og festu
valdastiga flokksins, og safnaði um
sig röskum hirðmönnum sem vom
reiðubúnir að vaða fyrir hann eld og
brennistein. Og loks stóð hann á pól-
itískum hátindi þegar hann náði
Dagatal 31. janúar
Atburðir dagsins
1926 Útvarpað í fyrsta sinn á íslandi.
1943 Umsátrinu um Stalíngrad lýk-
ur, einum blóðugasta hildarleik allra
tíma. 850.000 þýskir hermenn liggja
í valnum og ótölulegur fjöldi sov-
éskra hermanna og borgara. 1951 20
manns farast með flugvélinni Glit-
faxa út af Vatnsleysuströnd. 1988
Kristján Jóhannsson kemur í fyrsta
sinn fram á sviði Scala-ópemhússins
í Mílanó.
Afmælisbörn dagsins
Franz Schubert austurrískt tón-
skáld, 1797. Anna Pavlova rússnesk
ballerína sem flutti til Lundúna og
stofnaði eigin dansflokk, 1885. Nor-
man Mailer bandarískur rithöfund-
ur, 1923. Phil Collins ensk rokk-
stjama sem hóf feril sem trymbill
Genesis, 1951.
Annálsbrot dagsins
Finn Sigurðsson, nafnkenndan lög-
réttumann, dreymdi marga síð-
klædda menn og höfðu bækur í
höndum, sumar opnar, en sumar
hvolfdu niður. Sá á bjarginu sat,
mælti að þessum mönnum burt-
gengnum:
Vil eg sálin vaki,
í væmu ei gleymi sér,
dauðann ber á baki,
belldið holdið er,
í einu andartaki
æfin og lífið fer.
Afstæðiskenning
dagsins
Sérhver heilagur á fortíð og sérhver
syndari framtíð.
Oscar Wilde.
Orð dagsins
Herðir vor mitt hugarþor,
- hlær mér dirfska í barmi.
Stend ég beinn og ögra einn
öllum lífsins harmi.
Jóhannes úr Kötlum.
Undrun dagsins
Mér hafði aldrei dottið í hug, að hann
ætti eftir að láta í ljós í bundnu máli
jafnmikinn sársauka vegna lífs síns
og tilveru eins og síðar hefur komið í
ljós.
Etelríður Pálsdóttir, móðir Steins Steinarr.
Málsháttur dagsins
Lengi skal lífs biðja.
Skák dagsins
Staðan í skák dagsins er býsna ævin-
týraleg. Tvö svört peð hafa sótt langt
inní herbúðir hvíts, studd léttleikandi
biskupum, drottningu og hróki.
Kranzl hefur hvflt og er skiptamun
völdum í flokknum 1987 í bíræfinni
hallarbyltingu. Hann bókstaflega stal
heilum stjómmálaflokki fyrir augun-
um á Svavari Gestssyni, handhafa
arfleifðarinnar, og öðrum fulltrúum
peysufatasósíalismans. Geri aðrir
betur.
En nú er Ólafur Ragnar búinn að
vera formaður Alþýðubandalagsins í
átta ár - og hann er að falla á tíma.
Síðar á árinu verður Steingrímur J.
Sigfússon kjörinn formaður, en eftir
situr Ólafur Ragnar; rúinn stuðnings-
mönnum, pólitískur bandingi gömlu
kommanna. Það var því ekki alveg
að ófyrirsynju sem vegfarandi á
Barðaströnd heyrði þessar línur
þjóðskáldsins útum eldhúsglugga
hússins númer 5:
Til eru frtr, sem fengu þennan dóm:
að falla í jörð en verða aldrei blóm.
Burt með fífiið!
Innskot að hœtti M. Sjúkdóms-
greiningadeild Alþýðublaðsins hefur
að vísu dálítið aðra skýringu á
óstöðvandi hlátri Ólafs Ragnars
þessa dagana. Þannig er mál með
vexti að til er afar sjaldgæfur og
furðulegur sjúkdómur sem lýsir sér í
því að fómarlömb hans verða heltek-
in af óstöðvandi hlátri þegar þau
komast t uppnám. Frægasti „hlátur-
sjúklingur" sögunnar er vitaskuld
Þorleifur heitinn Repp sem gerði
tilraun til að verja doktorsritgerð við
Kaupmannahafnarháskóla á síðustu
öld. Fjendur Þorleifs espuðu hann
upp, þegar hann bjóst til að svara
andmælendum, með þeim afleiðing-
um að hann hló og ílissaði einsog
vitfirringur frammi fyrir alvöm-
þmngnum prófessorum akadem-
íunnar. Eftir því sem hláturinn hækk-
aði, jókst sálarangist Þorleifs sem
aftur leiddi til þess að hann hló enn
hærra og meira. Að endingu missti
rektor þolinmæðina og hreytti útúr
sér hinum fleygu orðum: Absit risus,
abi scurra! Burt með hláturinn, burt
meðfíflið!
Þorleifur var dreginn úr salnum,
emjandi af hlátri yfir vonsku heims-
ins. Hlátur Ólafs Ragnars yfir óför-
um Alþýðubandalagsins virðist
þannig eiga rætur í samskonar sálar-
angist.
Af þrælum nam
hann þref...
Við þetta hefur bókmenntadeild
Alþýðublaðsins ekki nema einu að
bæta - nefnilega ljóðinu Frambjóð-
andinn effir Davíð Stefánsson.
Dæmi svo lesendur, hver fyrir sig,
hvort vemleikinn og skáldskapur
Davíðs eiga samleið með hinum
ljóshærða draumi vorsins, Barða-
strönd 5, Seltjamamesi:
Hann brestur ekki viljann til þess valds,
sem villir mönnum sýn, unz yftr lýkur.
En vonlaust erað vœnta endurgjalds
afveifiskataflokks, sem alla svtkur.
Hann leitast við að dylja dauðasök
og drottna þar, sem allt er lœvi blandið.
Afþrœlum nam hann þref og login rök -
og þessi maður ó að freLsa lartdið.
yfir en Blatny er með svart og á leik-
inn. Með snjallri fléttu færir svartur
sér í nyt stöðu peðanna. Hvað gerir
svartur?
1.... Hxe4! Nauðsynlegt til að skapa
rými fyrir svarta biskupinn á b5. 2.
fxe4 Dd2!! 3. He2 Gagnslaust er að
drepa drottninguna. Endalokin em
skammt undan. 3. ... Ddl+ 4. Hcl
Bd3+ 5. Hc2 e2 Kranzl em allar
bjargir bannaðar. Hann gafst upp.