Alþýðublaðið - 31.01.1995, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Sjálfsvald
Pallborðið
Margir finna fyrir því að hafa ekki
stjóm á aðstæðum í lífi sínu og finna
til vanmáttar gagnvart hinu flókna
og óútreiknanlega samfélagi. Mörg-
um finnst sem smátt og smátt hafí
þeir misst úr höndum sér öll tækifæri
til að hafa áhrif á sitt nánasta um-
hverfí í hendur atvinnustjómmála-
manna og kerfisk-
arla. Og þetta er
ekki einungis til
finning sem fólk
hefur, þetta er stað-
reynd sem það
stendur frammi
fyrir. Hver kannast
ekki við hinar
endalausu undir-
skriftasafnanir
gegn ýmsum framkvæmdum hins
opinbera, sem atvinnustjómmála-
mennimir og kerfiskarlamir taka
við? Þeir hlæja að ,Jcverúlöntunum“
og fara sínu frarn eins og ekkert hafi
í skorist. Svo halda þeir því ffam að
„engin stórvirki hafi verið unnin án
andstöðu almennings.“ Erþetta lýð-
ræðið sem við viljum búa við, góðir
íslendingar? Höfum við ekki ein-
hversstaðar farið út af sporinu þegar
svo er komið?
Við borgum til ríkisins í formi
skatta og hvað svo? Höfum við ein-
hver sérstök áhrif á hvemig þeim
peningum er varið? Þeim er meðal
annars varið til að halda uppi hér á
landi svo óhagkvæmum atvinnuveg-
um að ísland býr við lægstu ffam-
leiðni sem þekkist í hinum vestræna
heimi. A meðan er ráðist að mennta-
kerfinu og háskóli landsins er í önd-
unarvél sökum fjársveltis. Er það
þetta sem fólkið vill? Er þetta demó-
kratía, eða stjóm lýðsins?
Hið alltumlykjandi vald ríkisins
hefur alið þjóðina upp í þeim anda að
ekkert geti orðið nema fyrir tilstuðl-
an þess. Þannig byrja allir á að fara
með kröfu á hendur ríkinu þegar eitt-
hvað á að gera. Það er eðlilegt. Þegar
fólkið hefur það á tilfinningunni að
það ráði ekki sjálft ferðinni, þá miss-
ir það tengslin við samfélagið og sér
ríkisvaldið sem einhverskonar
pabba, sem sæki í sína endalausu
sjóði vasapeninga fyrir bömin sín.
Fólk er firrt frá þeirri staðreynd að
það borgar launin hans pabba, þar
sem það hefur annars ekkert með
gjöminga hans að
gera.
Þessu mótmæl-
hin nýja kyn-
Magnús Árni
Magnússon
slóð jafnaðar-
manna af krafti.
Við getum ekki
skrifar þolað það lengur
að réttur einstak-
linganna í þessu
þjóðfélagi sem
kallar sig lýðveldi, einskorðist við
misvægan kosningarétt á fjögurra
ára fresti og pópúlískar kröfugerðir
kóna á borð við Ögmund Jónasson,
sem er fljótur að kasta hlutleysis-
grímunni þegar hann sér tækifæri til
þess að verða einn af valdhöfunum.
Þess vegna boðum við hugmynd-
ina um sjálfsvald. Það snýsl um að
teygja lýðræðið alla leið að einstak-
lingurn sjálfum. Samfélag fijálsra
manna verður að snúast um það að
einstaklingar sýni frumkvæði, taki
sig saman og geri út um samfélags-
leg málefni á lýðræðislegan hátt í
sínum hópi. I þessu felst meðal ann-
ars að frjálsum félagasamtökum
verði í stórauknum mæli falin um-
sjón með verkefnum sem nú em í
höndum hins opinbera. Leik- og
gmnnskóli em til að mynda alveg
borðleggjandi dæmi um svið þar
sem foreldrar eiga að hafa meira að
segja um hvemig málum er háttað.
Þegar komið er ofar í skólakerfið
ætti valdið að færast í síauknum
mæli til nemendanna sjálfra, því fyr-
ir hverja er skólinn ef ekki fyrir nem-
endur? I dag miðast allt hins vegar
við að takmarka áhrif nemenda á
skólakerfið, eins og sjá má í
tillögum menntamálaráðherra um
Viti menn
„Þessu mótmælir hin nýja kynslóð jafnaðarmanna af krafti. Við get-
um ekki þolað það lengur að réttur einstaklinganna í þessu þjóðfé-
lagi sem kallar sig lýðveldi, einskorðist við misvægan kosningarétt á
fjögurra ára fresti og pópúlískar kröfugerðir kóna á borð við
Ögmund Jónasson, sem er fljótur að kasta hlutleysisgrímunni
þegar hann sér tækifæri til þess að verða einn af valdhöfunum.“
hlutverk nemendafélaga.
Önnur hugmynd er sú að einstak-
lingar geti sjálfir ákveðið á ársgrund-
velli í hvað tekjusköttum þeirra er
varið. Þeir eiga að geta valið það
sjálfir, hvort það er íþróttafélagið,
söfnuðurinn, skólinn eða hvaðeina
sem þeim sjálfum hugnast og upp-
fyllir ákveðin skilyrði um viðtöku-
bæra aðila og upplýsingaskyldu
gagnvart borgurum og stjómvöld-
um. Hveijum er betur treystandi til
að byggja upp sitt nánasta umhverfi
af natni og hugkvæmni en borgurun-
um sjálfum? Er okkur virkilega ekki
treystandi til annars en að kjósa
stjómmálaflokka, sem fæstir endur-
spegla neinar hreinar línur, á fjög-
urra ára fresti? Einnig felst í þessari
hugmynd að einstaklingamir sjálfir
semji um sinn vinnutíma og geri sína
eigin kjarasamninga, sem þó bijóti
ekki í bága við ákveðnar lágmarks-
upphæðir og hámarks vinnuálag.
Sjálfsvaldið kemur aldrei alveg í
stað fulltrúalýðræðis, þar eð ríkis- og
sveitarstjómir munu áfram hafa næg
verkefni til að fást við, en ekki má
gleyma því að samhygð og jöfnuður
eiga rétt eins heima í srnæm og
óformlegri einingum. Sjálfsvald er
aðferð til að hámarka áhrif einstak-
lingsins á eigið líf. Ég boða frekari
útskýringar af hálfu nýrrar kynslóðar
jafnaðarmanna á næstunni.
Höfundur er heimspekinemi
og situr í framkvæmdastjórn
Alþýðuflokksins - Jafnaðarmanna-
flokks íslands.
Þessi frétt í Alþýðublaðinu
er bara einsog annað í því
ágæta blaði, sem er skenunti-
legt, fyndið og hressilegt á
morgnana. En tengsl þess við
veruleikann eru svona álíka
og skáldskapur Davíðs Stef-
ánssonar sem Alþýðublaðið
hefur skrifað mikið um.
Ólafur Ragnar Grímsson aö fjalla um
fréttir Alþýðublaösins af meintum
framboðsraunum Alþýðubandalagsins
í Reykjanesi. Morgunpósturinn í gær.
Það er ekki einleikið hvernig
þessir forystumenn komu
fram á þessum fundi. Hann
var einsog illa leikin
amerísk bíómynd.
Þórarinn V. Þórarinsson um
framkomu Guðmundar jaka og fleiri
verkalýdsleiötoga á fundi með VSÍ.
Morgunpósturinn í gær.
Grein í stórblaðinu
New York Times:
Hvergi fleiri lögfræðingar
en á íslandi.
Fyrirsögn í DV í gær.
Kvennalistinn mælist varla
annarsstaðar en í Reykjavík.
Frétt í DV i gær um nýja
skoðanakönnun.
Kvennalistakonur á
Reykjanesi hafa nú lagt
fram hinn „kórrétta" fram-
boðslista sinn. Helga Sigur-
jónsdóttir bæjarfulltrúi í
Kópavogi sigraði sem kunn-
ugt er í forvali, en hún féll
ekki í kramið hjá flokksfor-
ystunni og því var haldið
nýtt forval. Þar bar Kristín
Halldórsdóttir sigur úr být-
um einsog lög gerðu ráð fyr-
ir. Hún er á sínum stað í 1.
sæti listans, en síðan koma
Bryndís Guðniundsdóttir
kennari í Hafnarfirði, Krist-
ín Sigurðardóttir fram-
kvæmdastjóri í Mosfellsbæ,
Birna Sigurjónsdóttir að-
stoðarskólastjóri í Kópavogi
og Jóhanna B. Magnús-
dóttir umhverfisffæðingur í
Mosfellsbæ. Konumar sem
skipa fimm efstu sætin á
listanum em því allar
menntakonur, og ekki er
aldursdreifingin mikil: Þær
em á aldrinum 44—55 ára.
Fylgi Kvennó á Reykjanesi
er nú með alminnsta móti,
enda finnst flokkurinn varla
í skoðanakönnunum annars-
staðar en í Reykjavík...
Slöpp mæting á lands-
fundi Þjóðvaka kom
nokkuð á óvart enda höfðu
forystumennimir búist við
að minnsta kosti 250 fund-
argestum. Reyndin varð sú
að einungis 130 létu sjá sig
á laugardaginn og var l'und-
arsalurinn hálftómur. Á
sunnudag vom enn færri.
Aðeins 108 tóku þátt í for-
mannskjöri og við af-
greiðslu stefnumála voru
innan við 80. Síðan gengu
um tíu manns af fundi og þá
vom aðeins eftir tæplega 70.
Þess má geta að til þess að
manna framboðslista um
Um langt skeið nutu Hannes bóndi og háfættu kjúklingarn-
ir hans gifurlegrar hylli í sýslunni - eða allt þar til Stefán á
næsta bæ við Hannes og fjölskyldu varð sér útum langkú.
Hinu megin
land allt þarf 126 frambjóð-
endur...
Við getum sagt þær
ánægjulegu fréttir fyrir
ljóðavini og bókmennta-
áhugamenn að senn er von á
tveimur nýjum ljóðabókum
frá Máli og menningu. Höf-
undarnir em báðir í hópi
okkar virtustu skálda, Ingi-
björg Haraldsdóttir og
Thor Vilhjálmsson. Þau
lásu úr nýju bókunum á
skáldakvöldi Besta vinar
ljóðsins í síðustu viku, og
hlutu frábærar undirtektir.
.Sjaldgæft er að stóm for-
lögin gefi út ljóðabækur á
þessum árstíma, en bæði
Ingibjörg og Thor eiga
dyggan og traustan hóp les-
enda...
Ogeð
dagsins
„Gamlar hefðir þurfa ekki endilega
að vera góðar. Sumar em þess eðlis
að þær mættu vel falla í gleymsku.
Ég geri mér fyllilega grein fyrir því
að ég tilheyri mjög fámennum
minnihluta jæssarar þjóðar þegar
ég held því fram að þorramatur sé
slík hefð. En það verður bara að
hafa það.. .Það skiptir miklu máli
hvernig matur lítur út. Fagurgrænt
grænmeti, blóðrautt nautakjöt eða
litríkir ávextir endurspegla líf og
ferskleika. Það gerir þorramatur
ekki. Hann er litlaus, náfölur, grár
og gugginn og hefur yfir sér óheil-
brigt yfirbragð.. .Þorramatur ilmar
ekki. Það er af honum óþefur.
HrúLspungar, súrt slátur og annað
af því tagi lyktar líkt og mjólkur-
vara sem gleymdist í ísskápnum
áður en maður hélt í langt frí til út-
landa.. .Annar þorramatur, svo sem
hákarl, minnir aftur á móti einna
helst á einhver efni sem hægt væri
að nota ef salemið stíflaðist.“
Steingrímur Sigurgeirsson, mat-
hákur Moggans, lýsti skoöunum
sínum á þorramattæpitungulaust í
dálki sínum „Matur og vín" siðast-
liðinn sunnudag.
Fimm á förnum vegi Fylgdist þú með landsfundi Þjóðvaka?
Særún Ægisdóttir, verslunar-
maður: Nei, ég hef engan áhuga á
Þjóðvaka.
Bjarni Ólafsson, eftirlaunaþegi:
Nei, landsfundur Þjóðvaka fór alveg
fram hjá mér.
Lárus Karl Ingason, Ijósmynd-
ari: Nei, bara sjávarútvegsumræð-
unni í ijölmiðlum.
Vermundur Þórðarson, smið-
ur: Nei, ekki neitt, ég hef voðalega
lítinn áhuga á Þjóðvaka.
Þórey Sigurðardóttir nemi: Nei,
Þjóðvaki er ekki mitt áhugamál.
Landsfundir eru
nokkurskonar brúðkaups-
afmæli og Iandsfundur
Þjóðvaka um helgina var því
nokkurskonar brúðkaup.
Frammistaða Agústs
[Einarssonar] hefur því
verið ámóta og brúðguma
sem má sjá á eftir brúðurinni
útúr svefnherberginu með
formælingar á vör.
Palladómur eftir Ás í Morgunpóstinum
í gær um Ágúst Einarssonar, þarsem
sérstaklega var fjallað um frammistöðu
hans við að búa til sjávarútvegsstefnu
Þjóðvaka. Hún varð til þess að 10
menn gengu af fundi.
Veröld ísaks
uvs
Ar1
Skipsskaðinn skelfilegi sem varð er
1.513 manns drukknuðu þegar Tit-
anic sökk árið 1912, erekki mesta
manntjón á sjó sem orðið hefur.
Langt því ffá! Titanic-slysið er til að
mynda dvergvaxið við hliðina á
þeim harmleik sem átti sér stað 33
árum síðar, árið 1945, þegar þýska
skipinu Wilhelm Gustloff var sökkt
á Eystrasalti í sprengjuárás rúss-
neska kafbátsins S-13. Tæplega 8
þúsund manns - mestmegnis konur
og böm - drukknuðu eftir að þýska
skipið Gustloff sökk. Það er næstum
því fimmfaldur sá ijöidi sem hlaut
vota gröf í Titanic á hafsbotni.
Byggt á staðreyndasafni vlsindaskáld-
sagnahöfundarins Isaac Asimov.