Alþýðublaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995
Ff
Drepið mig!
Drepi
mig!
í haust handtók norska lögreglan 41 árs Palestínu-
konu í Osló. Þetta var fræg hryðjuverkakona,
Souhaila Sayeh, sem sautján árum áður hafði lifað
af þegar þýsk sérsveit batt enda á eitt frægasta flug-
rán sögunnar í Mogadishu. Framburður Sayeh þykir
varpa nýju ljósi á alþjóðlegt net hryðjuverka.
Myndimar af ungu konunni urðu
að eins konar tákni fyrir hryðju-
verkin sem heimsbyggðin óttaðist
ákaflega á seinni hiuta áttunda ára-
tugarins. Hún lá nánast helsærð á
bömm cn var ekki á því að gefast
upp. „Við niunum sigra,“ hrópaði
hún hástöfum, „og líka þótt þið
drepið mig.“ Þvínæst rétti hún upp
hendina og gerði sigurmerki með
fingmnum. „Kill me, kill me!“ æpti
hún án afláts.
Þetta var í lokin á harmleik sem
kom heiminum í opna skjöldu.
Nokkmm mínútum áður hafði sér-
sveit úr þýsku lögreglunni bjargað
áttatíu og tveimur farþegum og
áhafnarmeðlimum sem voru gíslar
fjögurra hryðjuverkamanna frá Pal-
estínu. Það tók aðeins fimm mínútur
að ráða niðurlögum Paiestínumann-
anna á flugvellinum í Mogadishu í
Sómalíu 18. október 1977. Sérsveitin
sprengdi upp dyr flugvélarinnar,
réðist inn í farþegarýmið
og hóf skothríð úr vél-
byssum. I valnum lágu
þrír flugræningjanna.
Aðeins fjórir gíslanna og
einn lögreglumaður
særðust lítillega. Björg-
unaraðgerðin heppnað-
ist fullkomlega. Þegar
Helmut Schmidt, kansl-
ara Þýskalands, bámst
fréttirnar komst hann við. „Ég hafði
ekki búist við þessu,“ sagði hann.
Hið skelfilega flug Lufthansavél-
arinnar „Landshut“ hafði staðið í
fimm daga. Henni var rænt á flug-
vellinum í Palma de Mallorca 13.
október. Síðan var flogið um Róm,
Larnaka, Bahrein, Dubai og Aden
og Ioks til Mogadishu. A leiðinni var
flugstjórinn, Júrgen Schumann
skotinn til bana af flugræningjun-
um.
(11
Upplýsingabæklingur
um sumarstarf í
Reykjavík 1995
í lok aprfl kemur út upplýsingabæklingurinn „Sumarstarf í Reykjavík 1995“.
Verður bæklingnum dreift til allra barna í Grunnskólum Reykjavíkur.
Félög og samtök sem standa fyrir námskeiðum fyrir börn og unglinga í
Reykjavík geta fengið birta kynningu á starfsemi sinni.
Lokaskil á efni er 10. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 622215.
■■■■
íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur
i“
Viðtalstímar
borpartulllpúa
í Reykjavfk
I upplýsingaþjónustu ráðhússins
ertekið á móti bókunum
og þar eru veittarfrekari upplýsingar
um viðtalstíma borgarfulltrúa
í síma 563 2005
Alfreð Þorsteinsson mánudaga frá kl.12-13 í húsi Rafmagnsveitu Reykjavíkur Suðurlandsbraut 34, sími 560 4600
Árni Sigfússon þriðjudaga frá kl.15:50-17 í ráðhúsinu
Árni Þór Sigurðsson miðvikudaga frá kl. 10:30-12 á skrifstofu Dagvistar barna, Hafnarhúsinu, sími 552 7277
Guðrún Ágústsdóttir föstudaga frákl.10-12 í ráðhúsinu
Guðrún Zoega föstudaga frá kl.11-12 í ráóhúsinu
Guðrún Ögmundsdóttir miðvikudaga frá kl.13-15 í ráðhúsinu
Gunnar Jóhann Birgisson mánudaga fró kl.10-11 í ráðhúsinu
Hilmar Guðlaugsson mánudaga frá kl.11-12 í ráðhúsinu
Inga Jóna Þórðardóttir fimmtudaga frá kl.10-12 í ráðhúsinu
Jóna Gróa Sigurðardóttir þriðjudaga frá kl.11-12 í ráðhúsinu
Pétur Jónsson miðvikudaga frá kl.14-15 í ráðhúsinu
Sigrún Magnúsdóttir miðvikudaga frá kl.10:30-12 í ráðhúsinu
Steinunn V. Óskarsdóttir mánudaga frá kl.13-15 á skrifstofu ÍTR Fríkirkjuvegi 11, sími 562 2215
Vilhjálmur P. Vilhjálmsson þriðjudaga og föstudaga frá kl.10-11 í ráðhúsinu
Haust í Þýskalandi
Þetta var hið svokallaða „haust
Þýskalandi“. Það ríkti upplausn f
Sambandslýðveldinu og borgarar
voru fullir skelfingar yfir válegum at-
burðum. Atburðarásin hófst 5. sept-
ember. Liðsmenn Rauðu herdeild-
anna (RAF) rændu Hanns Martin
Schleyer, formanni þýska vinnuveit-
endasambandsins, á miðri götu í
Köln. I árásinni vom fjórir fylgdar-
menn Schleyers drepnir. Hryðju-
verkamennimir heimtuðu að ellefu
félagar þeirra yrðu látnir lausir úr
fangelsi, þar á meðal Andreas Baa-
der, stofnandi RAF.
Yfirvöld voru ekki á því að láta
undan. Hryðjuverkamennimir gripu
til þess ráðs að hafa samband við fé-
laga sína í svokallaðri Þjóðarfylkingu
til frelsunar Palestfnu (PFLP). Sam-
tökin töluðu sig saman um að efna til
flugráns til að leggja enn frekari
áherslu á kröfumar.
Morguninn sem til-
kynnt var í útvarpi að
flugránið hefði mistekist
fundust lík þriggja helstu
foringja RAF í Stamm-
heim- fangelsinu í Stuttg-
art. Andreas Baader,
Gudrun Ensslin og Jan-
Carl Raspe höfðu svipt
sig lffi. Það var á kreiki
orðrómur að þau hefðu
verið myrt og olli miklum
óróa; samkvæmt fram-
burði félaga þeirra og eft-
irgrennslan alþjóðlegrar
rannsóknamefndar er
óyggjandi að þau fyrir-
fóm sér.
Daginn efitir fann lög-
regla yfirgefna Audi-bif-
reið í bænum Miilhausen í
Elsass. I skottinu var líkið
af Hanns Martin Schley-
er. Hann hafði verið drep-
inn með þremur byssu-
skotum í höfuðið.
I Mogadishu vom lík þriggja
hryðjuverkamanna. Leiðtogi
þeirra, Zohair Yousif Akache
(23 ára), lá dauður í flugstjóm-
arklefanum. Hin fagra unnusta
hans, Nadia Duaibes (22 ára),
beið bana á klósettinu. Þriðji
flugræninginn, Nabil Harb (23
ára), dó af skotsámm strax og
komið var með hann út á flug-
völlinn.
Aðeins ein þeirra lifði og lifir
enn - unga konan sem lá æp-
andi á bömnum.
Viðtalstímar borgarstjóra eru á miðvikudögum milli kl. 10 og 12.
Panta þarf tíma í síma 563 2000 kl. 8:20 daginn áður.
SMsíofa borgarstjóra
Souhaila Sayeh borin nánast hi
flugvélinni í Mogadishu. Hún ga
„kill me, kill me" og varð fyrir vil
araba.
Hún hefur sagt frá að Palest-
ínumenn hafi ætlað að ræna
fsraelskri farþegaflugvél
Nairobi í Kenya 1976, en áætl-
unin farið út um þúfur vegna
þess að Mossad, leyniþjónusta
Israels, komst á snoðir um
hana. Hún hefur upplýsingar
um sprenginguna í júmbóþotu
Pan-Am flugfélagsins yfir
Lockerbie 1988, en þar biðu
270 manns bana. Sayeh segir
að hryðjuverkaforinginn frægi,
Abu Nidal, hafi staðið þar að
baki.
Sayeh á Mallorca nokkrum dögum
fyrir flugránið. Hún smyglaði hand-
sprengjum í snyrtitösku.
Sayeh leysir frá
skjódunni
A jreim tíma varð hún þekkt
út um allan heim undir nafninu
sem stóð í fölsuðu vegabréfi frá
íran: þá hét hún Soraya Ansari.
Undanfarin ár hefur hún búið í
Noregi undir sínu rétta nafni:
Souhaila Sami Andrawes
Sayeh.
13. október síðastliðinn
knúðu lögreglumenn dyra á
heimili hennar í Osló. Eftir
mikla leit hafði þýsku lögregl-
unni tekist að hata upp á henni.
Hún var handtekin og flutt til
yfírheyrslu. I fyrstu vildi hún
mjög erfið viðskiptis. Hún
brotnaði hvað eftir annað sam-
an, fáldi sig undir borði, í sífellu
bruddi hún verkjatöflur, enda
þjáist Souhaila Sayeh enn af
skotsárunum sem hún hlaut í
Mogadishu: byssukúlu í gegn-
um lunga og nokkrar kúlur sem
varð að nema úr fæti hennar í
miklum skurðaðgerðum. Að
sögn lækna þjáist hún af stöðug-
um verkjum og verður oft að
notast við hækjur.
Þýska lögreglan er þess fysandi að
fá ýmis svör um flugránið: Nutu flug-
ræningjamir stuðnings einhverra rík-
isstjóma? Eða veittu einhveijar leyni-
þjónustur aðstoð? Hvaða alþjóðasam-
tök hryðjuverkamanna tóku beinan
eða óbeinan þátt?
Smátt og smátt fór viðhorf Sayeh
að breytast. Að kvöldi 3. nóvember
barði hún á klefadymar í fangelsinu í
Drammen og vildi fá að tala við
Lennart Kyrdalen lögregluforingja.
Hún sagðist hafa ákveðið að leysa frá
skjóðunni.
Framburður Sayeh varpar ekki að-
eins nýju ljósi á hildarleikinn í októ-
ber 1977, heldur dregur hún upp
glögga mynd af starfsháttum alþjóð-
legra hryðjuverkasamtaka, sam-
keppni milli þeirra og samstarfi. í frá-
sögn hennar verður þetta að smá-
heimi þar sem allir virðast þekkja alla.
Og það gerði líka Sayeh. Hún
þekkti vel Wadi Haddad, foringja
PFLP, sem fyrir dauða sinn 1978
hafði skipulagt ótal tilræði og hiyðju-
verk. Hún þekkti Mundir el-Kassar
sem þekktur er fyrir að útvega hryðju-
verkamönnum vopn og situr nú í
fangelsi í Madrid, ákærður fyrir að
hafa látið Palestínuaröbum í vopn
sem notuð vom til að ræna farþega-
skipinu Achille Lauro 1985.
Hún var persónulega nákomin
Carlos, öðm nafni Ilich Ranu'rcz
Sánchez, hinum illræmda hryðju-
verkamanna sem sagður er bera
ábyrgð á meira en áttatíu morðum og
handtekinn var í Súdan í fyrra. Það er
sagt að Carlos hafi farið á fjömrnar
við Sayeh og viljað eiga hana fyrir
konu.
Hin dularfulla
Monika Haas
Markverðast þykir þó þýsku lög-
reglunni að heyra framburð Sayeh um
kynsystur sína, Monika Haas. Þessi
46 ára kona hefur lengi legið undir
gmn um að hafa flutt vopn til Mall-
orca í október 1977 og fært þau flug-
ræningjunum.
Monika Haas hefur þvemeitað að
hafa átt nokkum þátt í flugráninu.
Gmnurinn sem að henni hefur beinst
hefur hingað til byggst á flugmiðum
og skráningarseðlum hótela á Mall-
orca, auk þess sem upplýsingar um
hana hafa fundist í skjalasafni Stasi,
leynilögreglu Þýska alþýðulýðveldis-
ins. En það hefur ekki verið nóg til að
leiða Monika Haas fyrir rétt. Allt þar
til Souhaila Sayhe kom til sögunnar.
Frásögn hennar hefur staðfest gmn
þýskra lögreglumanna. Hún hefur
sagt frá konu sem hún þekkti undir
nafninu „Amal“ og birtist á hótelher-
bergi Zohair Akache á Mallorca
stuttu fyrir flugránið. Konan ýtti á
undan sér bamavagni. I honum var
bam, en líka maigar dósir utan af
ensku sælgæti. I dósunum segir
Sayeh að vopnin hafi verið falin.
Vegna þessa framburðar vttr
Monika Haas loks handtekin 8. nóv-
ember síðastliðinn.
Þessar tvær konur sem nú em á
fimmtugsaldri eiga margt sameigin-
legt. Mótunarár þeirra vom hinn óróa-
sami sjötti og sjöundi áratugur og
báðar urðu þær smátt og smátt þeirrar
skoðunar, eins og fleira róttækt ungt
fólk, að unnl væri að breyta heimin-
um með vopnavaldi. í fyrstu vildi
reyndar hvomg þeiira beita vopnum,
aðeins leggja málstaðnum lið, en báð-
ar urðu á endanum handbendi sam-
viskulausra byltingarmanna.
Sayeh er Palestínukona af kristnum
ætium, fædd í Líbanon. Henni tók það