Alþýðublaðið - 31.01.1995, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995
RAÐAUGLYSINGAR
Veiðistjóraembættið
óskar að ráða starfsmann
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfsvettvangur er í Hafnarstræti 97 á Akureyri. Starfið
felst meðal annars í útgáfu veiðikorta, tölvuvinnslu, veiði-
skýrslna og annarra gagna, kynningu á lögum og reglu-
gerðum um veiðar og aðrar nytjar af villtum fuglum og
spendýrum á íslandi, svo og almennum samskiptum við
veiðimenn um allt land. Einnig uppgjör á endurgreiðslum
til sveitarfélaga á kostnaðarhlut ríkisins vegna eyðingar
refa og minka.
Reynsla af tölvuvinnslu (gagnagrunnum) og staðgóð þekk-
ing á íslenskri náttúru er skilyrði.
Háskólapróf í raungreinum er æskileg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
berist
Veiðistjóraembættinu,
pósthólf 465,
602 Akureyri,
fyrir 14. febrúar 1995.
Frá Starfsmannafélaginu Sókn
Allsherjaratkvæða-
greiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs Starfsmannafé-
lagsins Sóknar.
Tillögur skulu vera skv. B. lið 21. greinar félagslaga Sóknar.
Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu félags-
ins eigi síðar en kl. 12 á hádegi mánudaginn 6. febrúar
1995.
Kjörstjórn
Starfsmannafélagsins
Sóknar.
Menningarsjóður
Umsóknir um styrki
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Menning-
arsjóði skv. 1. gr. reglugerðar um sjóðinn nr. 707/1994.
Hlutverk Menningarsjóðs er að veita útgefendum og/eða
höfundum fjárhagslegan stuðning til útgáfu þeirra þóka á
íslenskri tungu, sem verða mega til eflingar íslenskri menn-
ingu. Sérstök áhersla skal lögð á að efla útgáfu fræðirita,
handbóka, orðabóka og menningarsögulegra rita. Jafn-
framt getur sjóðurinn veitt fjárhagslegan stuðning annarri
skyldri starfsemi, s.s. vegna hljóðbókagerðar.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum til
stjórnar Menningarsjóðs, menntamálaráðuneytinu, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. mars 1995. Umsóknar-
eyðublöð fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins.
Stjórn Menningarsjóðs.
flNNKAUPADEILD REYKJAVÍKURBORGAR
Útboð
F.h. Malbikunarstöðvar Reykjavíkurborgar er óskað
eftirtilboðum í 13.500-16.300 tonn af asfalti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík.
Tiiboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 23. mars
1995, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
RAÐAUGLYSINGAR
INNKAUPADEILD REYKJAVÍKURBORGAR
Útboð
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eft-
ir tilboðum í jarðvinnu leikskóla við Laufrima.
Helstu magntölur:
Uppgröftur990 m3
Fylling 360 m3
Lagnir 24 m
Verkinu á að vera lokið 10. mars 1995.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 15.
febrúar 1995, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
INNKAUPADEILD REYKJAVÍKURBORGAR
Útboð
F.h. gatnamálastjórans í Reykjavík, er óskað eftir tilboð-
um í kaup á gangstéttarhellum.
Magn:
40 x 40 x 5 sm 7.000 stk.
40 x 40 x 6(7) sm 24.000 stk.
Afhendingu skal lokið fyrir 1. júlí næstkomandi.
Útboðsgögn verða afhent á Innkaupastofnun Reykjavíkur-
borgar, Fríkirkjuvegi 3, gegn kr. 1.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 7. febrúar
1994, kl. 15.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
ALÞYÐUFLOKKURINN
§ALÞÝÐUFLOKKURINN
- JAFNAÐARMANNAFLOKKUR ÍSLANDS
Aukaþing 4.-5. febrúar
Aukaþing Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands
-verður haldið á Scandic Hótel Loftleiðum í Reykjavík helg-
ina 4. til 5. febrúar næstkomandi.
Þingið er opið öllum flokksmönnum, en aðeins þeir sem
kjörnir voru fulltrúar á 47. flokksþing Alþýðuflokksins í Suð-
urnesjabæ, sumarið 1994, hafa atkvæðisrétt.
Dagskrá:
Lauaardaaur 4. febrúar
10:00 Þingsetning.
10:15 Ávarp Jóns Baldvins Hannibalssonar,
formanns Alþýðuflokksins.
11:30Ávörp gesta.
12:00 Hádegisverður.
13:00 Kosningastefnuskrá: Kynning.
13:30 Umræður.
15:30 Kaffihlé.
16:00 Vinnuhópar um Evrópumál taka til starfa.
17:00 Þingi frestað til morguns.
19:00 Kratablót í Víkingasal: Framboðslistar kynntir.
Sunnudaaur 5. febrúar:
10:30 Evrópustefna: Kynning.
12:00 Hádegisverður.
13:00 Evrópustefna: Umræður og afgreiðsla.
15:00 Kosningastefnuskrá: Afgreiðsla.
16:00 Þingi.
Upplýsingar um þingið eru gefnar á aðalskrifstofum Al-
þýðuflokksins, sími 91-29244, myndsendir 91-629155.
Framkvæmdastjórnin.
Einn þekktasti markaðsmaður heims á íslandi
Jack Trout með
námsstefnu á
vegum Stjómunar-
félagsins
Þann 23. febrúar næstkomandi
mun Jack Trout, einn þekktasti
markaðsmaður heims, flytja erindið
22 lögmál markciðarins á náms-
stefnu sem Stjómunarfélag Islands
gengst fyrir á Hótel Loftleiðum í
samstarfi við IMARK, Islenska
markaðsklúbbinn. Þetta er í annað
sinn sem Jack Trout kemur til ís-
lands, en síðast var hann hér á landi
fyrir fimm árum, en þá komust færri
að en vildu.
Jack Trout er ásamt félaga sínum,
A1 Ries, höfundur byltingarkenndra
kenninga um markaðssetningu þar
sem þeir vega harkalega að ýmsum
áratuga gömlum kenningum mark-
aðsfræðinnar. Bækur Jack Trout og
A1 Ries, Positioning, Marketing
Warfare og Bottom-up Marketing,
eru taldar í hópi áhrifaríkustu bóka
sem komu fram á síðasta áratug. Frá
því að þeir gáfu kenningum prúss-
neska hershöfðingjans Clausewitz
nýtt líf, hefur staðfæring (position-
ing) vöm og þjónustu verið talinn
sjálfsagður þáttur í nútímalegu
markaðsstarfi.
A námsstefnunni - sem stendur
frá klukkan 09:00 til 15:00 - fjallar
Jack Trout um þau áhersluatriði sem
fram koma í nýjustu bók hans A1 Ri-
es, um þau 22 lögmál markaðarins
sem skilja á milli sigurs og skipbrots
í nútíma viðskiptalífi. Þeir félagar
hafa nú tekið saman þá þekkingu og
reynslu sem fram kemur í fyrri bók-
um þeirra og greint 22 lögmál sem
ráða velgengni á markaðnum. For-
svarsmönnum íslenskra fyrirtækja
og stofnana gefst hér því gott tæki-
færi til að kynnast þeim hugmyndum
sem nú hrista upp í markaðsstefnu
flestra fyrirtækja í heiminum. Jack
Trout er líflegur og hrífandi fyrirles-
ari sem beitir nýjustu tækni við fram-
setningu hugmynda sinna. Umsagnir
margra þeirra sem sóttu námsstefnu
Jack Trout fyrir fimm árum voru á þá
leið að hér væri um að ræða einn
þann frambærilegasta og skemmti-
legasta fyrirlesara sem þeir hefðu
nokkum tíma hlýtt á.
Fróðlegur en dýr
fyrirlestur
Skráning á námstefnuna fer fram
hjá Stjómunarfélagi íslands í síma
562 1066, meðan húsrúm leyfir.
Þátttakendur em því hvattir til að
skrá sig tímanlega. Þátttökugjald á
námstefnuna er hinsvegar ekki gefið,
en það er krónur 24.900 (almennt
verð) og félagsverð SFI er krónur
21.165 (15% afsláttur). Innifalið í
þátttökugjaldi em mappa með náms-
stefnugögnum (ítarefni) og hádegis-
verður. Þess skal þó getið, að ef þrír
starfsmenn sama fyrirtækis skrá sig,
fær fjórði þátttakandinn að fljóta
með frítt.
I tilkynningu um námstefnuna 23.
febrúar er haff eftir Friðþjófi Ó.
Johnson, forstjóra O. Johnson &
Kaaber:
„Kenningar Jack Trout í markaðs-
málum em bæði djarfar og fmmleg-
ar. Fyrirlestrar hans em þeir fróðleg-
ustu og líflegustu sem ég hef séð.
Samanþjappað innihald þeirra ætti
að höfða til allra, ekki síst þeirra sem
stjóma Islandi hf. Fyrirlestur um efni
nýjustu bókar hans ætti að verða
jafnvel enn betri og hagnýtari en sá
sem hann hélt hérlendis fyrir fimm
ámm.“
ALÞYÐUFLOKKURINN
JAFNAÐARMENN Á SAUÐÁRKRÓKI
Fundur í kvöld
Jafnaðarmenn á Sauðárkróki halda fund í kvöld, þriðjudag-
inn 31. janúar.
Fundurinn verður í fundarsal Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra og hefst klukkan 20:30.
Dagskrá:
1. Bæjarmálin.
2. Alþingiskosningar.
3. Önnur mál.
Jafnaðarstefnan - sókn til sigurs!
Stjórnin.
JAFNAÐARMANNAFÉLAG EYJAFJARÐAR
Aðalfundur 1995
Aðalfundur Jafnaðarmannafélags Eyjafjarðar verður hald-
inn miðvikudaginn l.febrúar. Fundurinn verður í sal Fiðlar-
ans að Skipagötu 14 (IV. hæð) á Akureyri og hefst klukkan
20:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Undirbúningur aukaflokksþings Alþýðuflokksins - Jafn-
aðarmannaflokks íslands.
3. Önnur mál.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í að leggja
grunn að öflugu starfi á kosningaárinu 1995.
Stjórnin.