Alþýðublaðið - 31.01.1995, Qupperneq 8
MWBUBLJm
Þriðjudagur 31. janúar 1995
17. tölublað - 76. árgangur
Verð i lausasölu kr. 150 m/vsk
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB og frambjóðandi Alþýðu-
bandalagsins. „Búnir að fá nóg af
þessum prelátum," segir deildar-
stjóri Sýsluskrifstofunnar á Húsa-
vík. A-mynd: E.ÓI.
Starfsfólk Sýslu-
skrifstofunnar á
Húsavík sendir bréf
til Ögmunds
Jónassonar
Vantraust
á Ogmund
„Dómgreindarleysi og
skynsemisskortur hjá
Ögmundi,11 segir Pálmi
Pálmason deildarstjóri um
framboð formanns BSRB
fyrir Alþýðubandalagið.
„Það eru flestir búnir að fá nóg af
þessum prelátum sem sitja í 4 til 12
nefndum og tveimur störfum með
fleiri hundruð þúsunda króna á mán-
uði.“ sagði Pálmi Pámason, deild-
arstjóri á Sýsluskrifstofunni á Húsa-
vík, í samtali við Alþýðiiblaðiö í gær.
Sjö af þeim starfsmönnum skrifstof-
unnar sem eru í BSRB hafa sent Ög-
mundi Jónassyni bréf það sem þeir
lýsa vantrausti á hann. Astæðan er sú
að Ögmundur hefur nú þegið 3. sæt-
ið á framboðslista Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík.
„Við teljum Ögmund ekki geta
sinnt okkar hagsmunamálum ef hann
sest inn á þing. Hvað gerist ef hann
sest í ríkisstjóm? Er hann þá ekki
beggja vegna borðsins?“ sagði Pálmi
ennfremur.
Pálmi benti jafnframt á að Kristín
Astgeirsdóttir alþingismaður hefði
mótmælt kröftuglega þeim hug-
myndum að fækka alþingismönnum
úr 63 í 50 á þeim forsendum að þetta
væri svo mikil vinna. Svo ætlaði Ög-
mundur bara að gegna báðum þess-
um veigamikilu embættum. „Þetta er
ekkert annað en dómgreindarleysi
og skynsemisskortur,“ sagði Pálmi.
Hann kvað starfsmennina á sýslu-
skrifstofunni hafa sent afrit af bréf-
inu á aðrar sýsluskrifstofur landsins
til þess að fleiri tækju upp á því að
senda inn mótmæli við framboði
Ögmundar. Bréfið er á þessa leið:
„Hr. Ögmundur Jónasson formað-
ur BSRB. Bréf þetta er ritað til yðar í
tilefni þeirra frétta að þér séuð hér
með búinn að lýsa yfir framboði yð-
ar til Alþingis við næstkomandi
kosningar. Samkvæmt fréttum er
þetta framboð „Alþýðubandalagsins
og óháðra“. Þér segið að þátttaka yð-
ar sé „ópólitísk" við undirrituð telj-
um að svo geti engan veginn talist.
Við teljum að starf formanns BSRB
sé fullt starf og að þingmannsstarfið
sé það einnig, þar af leiðandi sjáum
við ekki hvemig þér ætlið að starfa
fyrir samtök okkar svo viðunandi sé.
Að auki má benda á að augljós hætta
er á hagsmunaárekstrum og ljóst er
að samtök okkar hafa ekki efni á því
að hafa í forystu aðila sem ekki getur
beitt sér af fullu afli. Af ofansögðu
má ljóst vera að við undirrituð getum
ekki treyst forystu yðar og lýsum hér
með yfir vantrausti á yður. Undirrit-
að: Starfsfólk Sýsluskrifstofunnar á
Húsavík."
Átök og ágreiningur á Þjóðvakafundinum
Uppskeruhátíðin sem brást
Mun færri sóttu fundinn en höfðu skráð sig. Afgreiðsla mikilvægra málaflokka með þeim hætti að fjöldi fólks gekk af fundi.
„Þama varð til ósköp lítið flokks
eigendafélag fyrrnm félagsmanna
Birtingar og Alþýðuflokks með
dressing frá Flokki mannsins. Við
kosningu stjórnar var beitt sömu
brögðum og tíðkuðust í Alþýðu-
bandalaginu fyrir 1980 og má segja
að það hafi komið óþægilega á óvart.
Það var ekki að sjá að þama væri
mikið nýtt eða mikil siðbót á ferð-
inni,“ sagði einn af viðmælendum
blaðsins sem sat stofnfund Þjóðvaka
um helgina.
Stofnfundurinn var ekki sú upp-
skeruhátíð sem Jóhanna Sigurðar-
dóttir og fylgismenn hennar höfðu
vænst. Um 250
manns hafði skráð
sig til þátttöku en
af þeim mættu
ekki nema um 130
við setningu fundarins. Síðdegis á
sunnudag var fjöldi fundarmanna
kominn undir hundraðið. Ágreining-
ur blossaði upp þegar ganga átti frá
ályktunum í nokkmm málaflokkum
og hópur manna gekk á dyr í fússi.
Sumir þeirra hafa sagt sig úr Þjóð-
vaka. Við lok landsfundarins var Jó-
hanna Sigurðardóttir kosin for-
maður Þjóðvaka með 108 atkvæðum,
Svanfríður Jónasdóttir varafor-
maður og Ágúst Einarsson ritari.
Það skyggði það nokkuð á gleði
forsvarsmanna Þjóðvaka að kurr var
kominn upp meðal ýmissa fylgis-
manna hreyfingarinnar vegna ólýð-
ræðislegra vinnubragða við umræður
um framboðsmál. Þorlákur Helga-
son, náinn bandamaður Jóhönnu,
lýsti því opinberlega yfir að þröng-
sýni ríkti við val á framboðslista og
gerði tilraun til að komast í 5. sæti á
lista Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík en var hafnað.
Sundurleitur hópur
Það var sundurleitur hópur sem
mætti til leiks á landsfund Þjóðvaka á
laugardaginn. Þama mátti sjá all-
marga kunna einstaklinga sem áður
höfðu starfað undir merkjum Al-
þýðubandalagsins og Alþýðutlokks-
ins. Ennfremur fólk sem var í Banda-
lagi jafnaðarmanna á sínum tíma auk
einstaklinga sem ekki hafa fest rætur
í neinum flokki eða haft þar stutta
viðdvöl. Þá munu nokkrir hafa kom-
ið þama aðeins fyrir forvitnis sakir.
Meirihluti fundarmanna var af höf-
uðborgarsvæðinu.
Framsöguræðu Jóhönnu Sigurðar-
dóttur var vel tekið en hins vegar
kom var ekkert í ræðunni sem kom
mönnum á óvart enda fyrst og fremst
um að ræða ítrekun á fyrri yfirlýsing-
um hennar um tilganginn með stofn-
un Þjóðvaka.
Hitnar í kolunum
Þegar farið var að afgreiða álykt-
anir málefnahópa við framhald fund-
arins á sunnudaginn fór að hitna í
............ kolunum. Ágúst
Fréttaskýring
Einarsson stýrði
þeim hópi sem
móta átti stefnu í
sjávarútvegsmál-
um. Hópurinn klofnaði í afstöðunni
til sjávarútvegsmála en meirihlutinn
samþykkti ályktun sem lögð var fyrir
landsfundinn.
Þegar ályktunin kom þar til af-
greiðslu var eins og sprengju hefði
verið varpað í salinn. Margir vom af-
ar ósáttir með þessa ályktun og breyt-
ingartillaga var lögð fram. Sú tillaga
fékkst hins vegar ekki rædd en þess í
stað samþykkt með 40 atkvæðum
gegn 38 að vísa tillögunni til stjómar
Þjóðvaka. Við þessa meðhöndlun
reiddust fylgismenn tillögunnar, tóku
saman pjönkur sínar og stormuðu á
dyr. Fyrir útgöngumönnum fór Kári
Jónasson úr Sandgerði og hyggst
hann skoða nánar hvort framhald
verði á aðild hans að Þjóðvaka.
Jóhannes fór heim
Ekki óx eindrægni fundarmanna
þegar kom að ályktun um landbúnað-
armál.Jóhannes Gunnarsson for-
maður Neytendasamtakanna lagði
fram breytingartillögu við ályktun-
ina. Sú tillaga fékkst ekki rædd, held-
ur var ákveðið að vísa henni til
stjómar en bera ályktunina upp. Jó-
hannesi blöskraði þessi málsmeðferð
sem hann telur skýlaust brot á öllum
venjulegum fundarsköpum eins og
fram kemur í viðtali við Jóhannes hér
í blaðinu. Hann taldi sig ekki eiga
neitt frekara erindi á fundinum og fór
heim.
Forystumenn Þjóðvaka. Svanfríður Jónasdóttir varaformaður og Ágúst
Einarsson ritari ræða við Guðrúnu Árnadóttur fundarstjóra á landsfund-
inum. A-mynd: E.ÓI.
Frambodsmál í óvissu
Á undirbúningsfundi Þjóðvaka í
haust var sagt að framboðslistar yrðu
lagðir fram á landsfundinum. Þetta
gekk ekki eftir. Engir framboðslistar
vom lagðir fram og er ástæðan ein-
faldlega sú að engir framboðslistar
em tilbúnir. Ymsir liðsmenn Þjóð-
vaka segja fullum fetum að mætir
menn og gæðakonur hafi vikum sam-
an beðið við símann eftir því að Jó-
hanna hringi og bjóði sæti á fram-
boðslista. Það hafi hins vegar ekki
heyrst í Jóhönnu og nú séu margir
þeir sem vildu gefa kost á sér í frarn-
boð orðnir afhuga því. Jóhanna vilji
fáum hleypa nærri sér til að taka
ákvarðanir í framboðsmálum og þar
ætli fámenn klíka að velja og hafna.
Stjórnarkjör
Mörður Árnason var formaður
kjömefndar og þegar kosningar hóf-
ust í stjórn kom í ljós að á kjörseðli
vom aðeins nöfn þeirra sem nefndin
var búin að ákveða að tækju sæti í
stjóm. Þeir sem vildu koma öðmm að
urðu þá að handskrifa nöfn þeirra á
seðilinn. ,J>essi gömlu trikk hafa
meira að segja verið aflögð í Alþýðu-
bandalaginu og hafa ekki sést þar eft-
ir 1980,“ sagði einn fundarmanna við
blaðið.
Auk þeirra þriggja sem kjörin vom
í aðalstjóm vom 36 kosnir í stjóm
Þjóðvaka.
Heidarlegra vinnubragda
krafist
Stjómmálaályktun fundarins er
stutt og almennt orðuð. Þar segir f
upphafi:
„Þjóðvaki er sjálfsprottin hreyfmg
fólks sem hefur tekið höndum saman
um breyttar áherslur og vinnubrögð í
íslenskum stjómmálum. Þjóðvaki
leggur áherslu á að viðhöfð verði
heiðarleg og ábyrg vinnubrögð í
stjómmálum, opinberri stjómsýslu
og atvinnuh'fi. Meginmarkmið hreyf-
ingarinnar er að vinna að öflugri at-
vinnuuppbyggingu, jafnrétti í tekju-
og eignaskiptingu, og að spoma við
söfnun auðs og valds í fárra manna
hendur.“
I ályktuninni segir ennfremur að
með þessari hreyfmgu sé leystur úr
læðingi kraftur fólksins sjálfs sem
muni sameina félagshyggjufólk í öfl-
uga hreyfingu.
Þjóðvaki klofinn í sjávarútvegsmálum
Meirihlutinn ræður
- segir Ágúst Einarsson prófessor. Hópur manna gekk af fundi þegar
naumur meirihluti ákvað að senda breytingartillögu til stjórnar Þjóðvaka.
„Það var fjallað ítarlega í nefnd um
sjávarútvegsmál og önnur atvinnu-
mál. Þar varð niðurstaðan sú að sam-
þykkja eina aðaltillögu með nokkmm
breytingum og vfsa öðmm breyting-
artillögum til stjómar. Það vom
greidd atkvæði um þetta f nefndinni
og samþykkt með tuttugu og einu at-
kvæði gegn tíu að leggja þetta svona
fyrir landsfundinn. Þeir sem verða
undir hafa rétt til að endurvekja sínar
tillögur og það gerði hópur manna
sem kom með breytingartillögu sem
var ásamt öðmm breytingartillögum
við nefndarálit vísað til stjómar til
frekari skoðunar," sagði Ágúst Ein-
arsson prófessor í samtali við Al-
þýðublaðið í gær.
Ágúst sagði að landsfundur Þjóð-
vaka um helgina hefði verið vel
heppnaður og skemmtilegur. Það
kámaðí þó gamanið síðdegis á sunnu-
daginn þegar samþykkt var með
naumum meirihluta, eða fjörutíu at-
kvæðum gegn þijátíu og átta að vísa
breytingartillögu við sjávarútvegs-
ályktun Þjóðvaka til stjómar. Nokkur
hópur manna gekk út í mótmælaskyni
og vom Suðumesjamenn þar áber-
andi. Ágúst Einarsson sagði að eðli-
lega hefði verið staðið að afgreiðslu
málsins á fundinum og menn yrðu að
una úrslitum í atkvæðagreiðslu.
„Afgreiðsla á sjávarútvegstillögun-
um var alveg í samræmi við það sem
gerst hafði áður í nefndinni og í sam-
ræmi við vilja þingsins enda var það
þingið sem tók ákvörðun um málið.
Hins vegar em sjávarútvegsmálin
alltaf tilfmningamál og það var mjótt
á munum í atkvæðagreiðslunni þann-
ig að sumir tóku úrslitin óstinnt upp.
Við þvf er ekkert að segja. Niðurstaða
í svona hreyfmgu hlýtur að fást með
atkvæðagreiðslu," sagði Ágúst.
Hann var spurður hvort þama hefði
verið tekist á um hagsmuni trillukarla
og annarra smærri útgerða annars
vegar og hins vegar stórútgerða sem
hann væri talsmaður fyrir.
„Þetta snýst ekkert um það. Efnis-
lega snýst breytingartillagan um að
skipta landinu upp í byggðasvæði,
skipta upp strandveiði- og djúpveiði-
flota, færa togskip útaf gmnnslóð og
taka upp sóknarmark á línu, net og
handfæri. Þetta em mjög margháttað-
ar tillögur sem vom ekki nákvæm-
lega útfærðar þannig að þær vöktu
mjög margar spumingar. Það var því
almennur vilji fyrir því að þær kæmu
ekki í þessu formi inn í sjávarútvegs-
stefnuna heldur fæm til nánari skoð-
unar hjá Þjóðvaka.“
Ágúst var spurður hvort ekki hefði
komið til greina að ræða þessi mál til
lykta.
„Þetta var afgreitt í nefndinni með
þeim hætti sem ég hef lýst og síðan
hafa menn rétt til að koma aftur upp
með tillögur. Ég kom fram með til-
lögu í samræmi við nefndarálitið og
að þetta færi til stjómar því það vom
margir sem vildu ekki að þetta hyríi
út af borðinu og aðrir vildu ekki að
breytingatillögumar yrðu samþykkt-
ar. Ef þingið hefði viljað greiða at-
kvæði um tillöguna sem slíka og sam-
þykkja hana eða fella þá hefði þingið
fellt þessa frávísunartillögu og tekið
hana til atkvæða. Það er ekkert sem
segir að það sé betri málsmeðferð eða
ekki.
Það er ekkert óalgengt að málum
sé vísað til nánari skoðunar stjórna
enda bara venjuleg málsmeðferð.
Þingið tók þá afstöðu og menn verða
að sætta sig við það þvf meirihlutinn
ræður í þessu máli,“ sagði Ágúst Ein-
arsson.
Átökin á landsfundi Þjóðvaka
Þvermóðska og
spilling Agústs
- er ástæðan fyrir því að uppúr sauð,
segir Guðbjörn Jónsson Þjóðvakamaður.
„Allt þetta havarí sem varð á
landsfundinurn tengist þvermóðsku
og spillingu Ágústs Einarssonar.
Það var búið að leggja fram ómælda
vinnu til að komast hjá svonalöguðu
en það er engu líkara en Ágúst hafi
keypt Þjóðvaka. Lýðræðisleg vinnu-
brögð vom ekki viðhöfð á þessu
landsfundi," sagði Guðbjörn Jóns-
son í samtali við Alþýðublaðið.
Guðbjöm er nú starfsmaður Fé-
lags starfsfólks í veitingahúsum en
hefur komið við sögu ýmissa félaga-
samtaka. Hann gagnrýnir mjög
framgöngu Ágústs Einarssonar pró-
fessors á landsfundi Þjóðvaka þegar
fram kom breytingartillaga við
ályktun um sjávarútvegsmál.
„Það var samkomulag í vinnu-
hópnum um sjávarútvegsmál fyrir
landsfundinn, að þar yrðu málin
rædd til þrautar. Vinnuhópur á lands-
fundinum náði hins vegar ekki sam-
eiginlegri niðurstöðu en ákveðið að
þessir mismunapunktar sem þarna
vom kæmu fram í breytingartillögu.
Ágúst Einarsson lagði þetta til sjálf-
ur. Meðan að almennar umræður
voru á fundinum eftir að búið var að
loka mælendaskrá gerði Ágúst sam-
komulag við einn af flutningsmönn-
um og Jóhönnu Sigurðardóttur
um að þessi tillaga kæmi til atkvæða
og var meira að segja mjög jákvæður
um að henni yrði bara bætt við.
Síðan gerist það um tíu mínútum
seinna að hann labbar sig í ræðustól
og gerir þá tillögu að þessar breyt-
ingartillögur fari til stjómar og það
var naumlega samþykkt. Þama braut
Ágúst á öllum sínum félögum sem
hann hafði verið að vinna með, braut
samkomulagið við Jóhönnu og hann
braut fundarsköp því ekki má koma
með dagskrártillögu eftir að búið er
að loka mælendaskrá. Ágúst valtar
yfir allt sem heitir siðferði og lýð-
Guðbjörn Jónsson: Allt þetta
havarí sem varð á landsfundinum
tengist þvermóðsku og spiilingu
Ágústs Einarssonar. A-mynd: E.ÓI.
ræði. Það gengu að ég held allir Suð-
umesjamennimir út og margt af
landsbyggðarfólkinu," sagði Guð-
bjöm Jónsson.
Hann sagðist engu vilja spá um
hvaða áhrif þessi átök hefðu á Þjóð-
vaka til langframa. Þetta væri innan-
hússmál í stjóm Þjóðvaka. Það væri
verið að fara á stað með hreyfingu
sem ætlaði að beita lýðræðislegum
vinnubrögðum og berjast gegn sið-
spillingu. Stjóm Þjóðvaka þyrfti að
byrja á að hreinsa til í sínum innstu
röðum. Eina leiðin til að sýna að
Þjóðvaki stæði við orð sfn um bar-
áttu gegn siðspillingu væri að láta
Agúst Einarsson segja af sér í stjórn
hreyfingarinnar. Sjálfur kvaðst Guð-
björn ætla að bíða og sjá til fram á
næsta landsfund, enda hefði hann
aldrei ætlað sér mikla þátttöku í
Þjóðvaka þótt hann væri þar enn fé-
lagi.