Alþýðublaðið - 22.03.1995, Page 8
* -r m~ ~m~ t rnT ■r TkTTk ' % *£> *> 'V.
\WREVFILl/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 88 55 22 MÞYÐUBUBIÐ \WREVF/ÍZ/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 88 55 22
Miðvikudagur 22. mars 1995 46. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins á fundi með fréttamönnum um kosningaáherslur flokksins
Höfum greinilega sérstöðu gegn
endalausu miðjumoði annarra
,Þessi sérstaða kemur meðal annarsfram í landbúnað-
armálum, sjávarútvegsmálum og Evrópusambands-
málum. En það má raunar segja að kosningabarátta
hinna flokkanna felist einkum í því að skamma Alþýðu-
flokkinn," sagði formaður Alþýðuflokksins.
„Sérstaða Alþýðuflokksins kemur
berlega í ljós í samanburði við þetta
endalausa miðjumoð sem hinir
flokkamir bjóða upp á. Þessi sérstaða
kemur meðal annars fram í landbún-
aðarmálum, sjávarútvegsmálum og
Evrópusambandsmálum. En það má
raunar segja að kosningabarátta
hinna flokkanna felist einkum í því
að skamma Alþýðuflokkinn," sagði
Jón Baldvin Hannihalsson, utan-
ríkisráðherra og formaður Alþýðu-
flokksins, á fundi með fféttamönn-
um.
Þau Jón Baldvin, Rannveig Guð-
mundsdóttir félagsmálaráðherra og
Össur Skarphéðinsson umhverfis-
ráðherra kynntu kosningaáherslur
Alþýðuflokksins og svöruðu spum-
ingum fréttamanna á fundi í kosn-
ingamiðstöð flokksins í gær. Meðal
mála sem þar bar á góma var sú
stefna Alþýðuflokksins að sækja um
aðild að ESB og kanna með því
hvort hægt væri að ná viðunandi
samningum. Jón Baldvin ítrekaði þá
stefnu flokksins að í samningavið-
ræðum verði að tryggja áframhald-
andi forræði þjóðarinnar yfir auð-
lindum sjávar innan íslenskrar lög-
sögu. Hann sagði furðu gegna að
sumir segðu að með sérstöðu sinni í
þessu máli hefði Alþýðuflokkurinn
málað sig út í hom. Hann minnti á
niðurstöður skoðanakönnunar Gall-
up þar sem fram kæmi að meirihluti
þjóðarinnar vildi kanna möguleika á
aðild að ESB. Jón Baldvin spurði
hvort þeir kjósendur annarra flokka
sem væm þessu fylgjandi hefðu þá
málað sig út í horn í sínum flokkum
og yrðu að kjósa Alþýðuflokkinn.
Kennaraverkfallið kom til um-
ræðu og var spurt hvers vegna ríkis-
stjómin leysi ekki þetta langvinna
verkfall. Jón Baldvin benti á að það
þyrfti tvo til að ná samningum. Bilið
milli samningsaðila virtist ekki hafa
mjókkað neitt. Þau boð sem samn-
inganefnd ríkisins hefðu lagt fram
jafngiltu samtals um 17 prósent
kjarabót á tveimur ámm meðan
samningar á almennum markaði
hefðu verið um sjö prósent. Kennar-
ar væm hins vegar enn uppi með
kröfur er næmu liðlega 29 prósent
hækkun og útilokað væri að semja á
þeim nótum nema að kollvarpa
vinnufriði og stöðugleika. Hins veg-
ar væri ekki á dagskrá að höggva á
hnútinn með bráðabirgðalögum.
Rannveig Guðmundsdóttir minnti
á að til að bregðast við greiðsluvanda
heimilanna legði Alþýðuflokkurinn
áherslu á að vandinn verði greindur
nánar eftir eðli og umfangi. Það
hefði komið í Ijós að það væm ekki
endilega tekjulægstu Ijölskyldumar
sem skulduðu mest og ættu í mestum
greiðsluerfiðleikum. Hún sagði að
áður en húsnæðislánakerfinu var
breytt biðu átta þúsund umsóknir um
lán og biðtíminn var upp í þrjú ár.
Þessi mál þyrftu hins vegar að vera í
stöðugri endurskoðun. Ekki hefði
náðst fram lagasetning um greiðslu-
aðlögun þeirra sem verst væm stadd-
ir enda hefði umfangsmikil undir-
búningsvinna þurft að fara fram.
Hins vegar legði hún áherslu á að
það þyrfti að koma þessu máli í höftt.
Þá þyrfti að endurskipuleggja félags-
lega húsnæðiskerfið og tryggja
Byggingasjóði verkamanna nægjan-
legt fjármagn til lánveitinga í sam-
ræmi við eftirspum eftir félagslegu
íbúðarhúsnæði.
Össur Skarphéðinsson sagði að
kvótakerfið væri meingallað. Þessu
kerfi hefði aldrei verið ætlað að færa
fiskveiðiheimildir til örfárra sæ-
greifa. Svo væri komið að þorsk-
kvótinn væri nú seldur á nær sama
verði og fengist fyrir veiddan þorsk á
markaði. Nauðsynlegt væri að sam-
eign þjóðarinnar á auðlindum sjávar
yrði fest í stjómarskrá eins og flokk-
urinn hefði barist fyrir. Alþýðuflokk-
urinn vildi koma á veiðileyfagjaldi í
áföngum og hluti af því væri raunar
komið á með stofnun Þróunarsjóðs
til að auðvelda úreldingu í fiskiskipa-
flotanum. Össur sagði að við hefðum
enn sóknarmöguleika í fiskveiðum
og minnti á djúpsjávarveiðar sem hér
væm að mestu ókannaður mögu-
leiki. Veita þyrfti fé af veiðileyfa-
gjaldi til rannsókna á þessu sviði
ásamt öðmm aðkallandi rannsókna-
verkefnum. Össur Skarphéðinsson
sagði að tryggi þurfi stöðu króka-
veiðibáta og vertfðarbáta og tak-
marka veiðar togara á gmrinslóð.
Einnig þurfi að tryggja það að komið
sé með allan fisk að landi án þess að
Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Rannveig Guðmundsdóttir félagsmálaráðherra kynna
Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra: Kvótakerfið er meingallað.
Nú er svo komið að þorskkvótinn er seldur á nær sama verði og fæst
fyrir veiddan þorsk á markaði. Nauðsynlegt er að sameign þjóðarinnar
á auðlindum sjávar verði fest í stjórnarskrá eins og Alþýðuflokkurinn
hefur barist fyrir og koma á veiðileyfagjaldi í áföngum. A-mynd: E.ÓI.
hafa uppi hótanir um stórfelldarrefs- sem völ er á og því brýnt að halda
íngar.
I kosningaáherslum Alþýðu-
flokksins er meðal annars fjallað um
leiðir til betri og jafnari lífskjara.
Brýnasta verkefnið framundan sé að
varðveita stöðugleika í efnahagsmál-
um og byggja á honum nýtt fram-
faraskeið. Efnahagsbatann beri að
nýta til að jafna kjörin í landinu. Þar
er lögð áhersla á eftirfarandi:
Launahækkanir eiga að vera mest-
ar hjá þeim sem lægst hafa launin.
Lækka þarf matarverð með auk-
inni samkeppni samfara aðild að
GATT og Evrópusambandinu.
Auka þarf atvinnufrelsi bænda
með því að taka upp búsetustuðning
í stað núverandi kerfis.
Lækka þarf framfærslukostnað
með lækkun á opinberri þjónustu,
meðal annars þjónustu bankanna,
Pósts og síma og á fleiri sviðum þar
sem fákeppni eða einokun ríkir.
Beita skal skattakerfinu á mark-
vissan hátt til kjarajöfnunar. Mark-
miðið er að tekjur til gmnnfram-
færslu einstaklinga og fjölskyIdu séu
í raun tekjuskattsftjálsar. Framlengja
ber hátekjuskattinn og taka upp (jár-
magnstekjuskatt eins fljótt og auðið
er.
Lágir vextir eru ein mesta kjarabót
fréttamönnum kosningaáherslur Alþýðuflokksins.
að sameign þjóðarinnar á fiskimið-
unum verði bundin í stjómarskrá.
Alþýðuflokkurinn leggur áherslu
á að umsókn um aðild og endanleg
ákvörðun um aðild eru tvær aðskild-
ar ákvarðanir. Takist samningar
verður samningurinn lagður ffam til
kynningar og umræðu og endanlegr-
ar afgreiðslu í þjóðaratkvæða-
greiðslu. I þessu máli er það þjóðin
ein sem milliliðalaust á seinasta orð-
ið um það, hvernig hagsmunir henn-
ar verði best tryggðir.
Aðild Islands að Evrópusamband-
inu er liður í þeirri baráttu jafnaðar-
manna að tryggja íslenskri alþýðu
sambærileg lífskjör og velferðarríki
Evrópu bjóða þegnum sínum. Nær
70% af útflutningi þjóðarinnar fer til
landa ESB. Jöfn staða okkar og
keppinauta okkar á þessum mikil-
væga markaði getur haft úrslitaáhrif
á þróun íslensks efnahagslífs. I kjöl-
far aðildar að Evrópusambandinu
kæmi fullur markaðsaðgangur fyrir
sjávarafurðir og aukin fullvinnsla
sjávarfangs innanlands. Almennt
eftiahagsumhverfi innanlands verður
sambærilegt við það sem er innan
ESB, sem ætti að leiða til aukins
stöðugleika og hagvaxtar.
Kaupmáttur launa eykst stórlega
strax frá fyrsta degi aðildar, enda
mun verð landbúnaðarafurða geta
lækkað um allt að 35- 45%, ef treysta
má niðurstöðum skýrslu Hagfræði-
stofnunar Háskóla Islands.
Á næsta kjörtímabili verða ífam-
lög til menntamála að hafa forgang.
Alþýðuflokkurinn mun beita sér fyr-
ir því að auka framlög ríkisins til
menntamála verulega á næstu ámm.
Flokkurinn vill að gerð verði skóla-
áætlun til nokkurra ára þar sem
skipulögð verði uppbygging í
menntamálum. Tryggja þarf fastar
Ijárveitingar til skóla á háskólastigi
til lengri tíma en nú er.
Samkeppnishæfi íslands og ann-
arra þjóða ræðst í sífellt meira mæli
af menntunarstigi og þróttmiklum
rannsóknum og þróunarstarfi. Þetta
gildir ekki síst um vaxandi samstarf
Evrópuþjóða og hugsanlega inn-
göngu Islands í ESB. Þátttaka í vís-
inda- og þróunarstarfi ESB er rann-
sóknum og vísindum hér á landi
fast við núverandi stefnu í vaxtamál-
um.
Alþýðuflokkurinn vill að minnst
einum milljarði króna á ári verði var-
ið í aðgerðir gegn atvinnuleysi.
Markmiðið er að enginn verði iðju-
laus og óvirkur í okkar samfélagi.
Til lengri tíma er hagvöxtur og
uppgangur í efnahagsmálum besta
vopnið gegn atvinnuleysi. Reynslan
hér á landi og erlendis sýnir þó að
sérstakra aðgerða er þörf til að sigr-
ast á vandanum. Áherslu skal leggja
á starfsmenntun og endurmenntun
atvinnulausra þannig að þeir eigi
þess kost að laga sig að breyttum að-
stæðum. Hluti aðgerðanna er stuðn-
ingur við nýsköpun fyrirtækja og
varanlega atvinnusköpun. Þessi við-
fangsefni beinast sérstaklega að
þeim sem búið hafa við langvarandi
atvinnuleysi, en snerta líka atvinnu-
þátttöku kvenna, ungs fólks og fatl-
aðra.
Alþýðuflokkurinn vill að ísland
sæki um aðild að Evrópusamband-
inu eins fljótt og auðið er. I samn-
ingaviðræðum verður að tryggja
áframhaldandi forræði þjóðarinnar
yfir auðlindum sjávar innan íslenskr-
ar efnahagslögsögu. Til að taka af öll
tvímæli leggur Alþýðuflokkurinn til
lyftistöng. Öflugt menntakerfi ásamt
framsæknu vísindastarfi er lykillinn
að nýsköpun í atvinnumálum og
menningarlegu sjálfstæði þjóðarinn-
ar.
Fjölskyldan er homsteinn samfé-
lagsins og uppspretta lífsgilda. Al-
þýðuflokkurinn vill að ríkisvaldið
marki sérstaka fjölskyldustefnu til að
stuðla að betri hag fjölskyldunnar í
landinu. Meðal annars þarf að skapa
skilyrði til að draga úr togstreitu á
milli atvinnu foreldra og fjölskyldu-
lífs, tryggja að stofnanir samfélags-
ins, ekki síst skólar, taki mið af þörf-
um fjölskyldunnar og eigi við hana
góða samvinnu; stuðla að gerð fjöl-
skylduáætlana og auka ráðgjöf við
fjölskyldur, meðal annars til að
koma í veg fyrir upplausn þeirra;
auka hlut feðra í uppeldi bama sinna
og draga úr misrétti og fordómum í
garð ólíkra fjölskyldugerða.
Alþýðuflokkurinn vill að sett
verði löggjöf um fjölskylduráð sem
verði stjómvöldum til ráðgjafar í
málefnum fjölskyldunnar og að
stofnaður verði sérstakur fjölskyldu-
sjóður.
Jafn kosningaréttur óháður búsetu
eru mannréttindi. Skoðun jafnaðar-
manna er sú, að grundvallarregla
lýðræðisins sé: einn maður - eitt at-
kvæði. Besta leiðin til að leiðrétta þá
mismunun sem nú ríkir í þessum efn-
um er að gera landið allt að einu kjör-
dæmi. Samhliða þessu þarf að sam-
eina sveitarfélög og færa verkefni frá
ríkinu til sveitarfélaga, þannig að
ákvarðanir færist nær fólkinu sjálfu.
Alþýðuflokkurinn vill halda áfram
á braut aukins fijálsræðis í atvinnu-
málum. Frjáls viðskipti og sam-
keppni leiða til aukinnar hagkvæmni
og bættra lífskjara. Frjálst markaðs-
kerfi og vestræn efnahagsstjómun
em markmið sem flokkurinn mun
ekki víkja frá. Örlög Færeyinga em
víti til vamaðar.
Atvinnugreinar næstu aldar
byggja á þekkingu, hugmyndum og
verkkunnáttu. Hlutverk stjómvalda
er að leggja til frjósaman jarðveg og
styðja með almennum hætti við þá
sem vilja sá til nýrrar uppskem.
Á tímum æ meiri alþjóðlegrar
samkeppni og samvinnu þarf að
A-mynd: E.ÓI.
opna íslenskt samfélag þannig að
þekking og hæfdeikar Islendinga fái
notið sín. Alþýðuflokkurinn vill
draga úr þeirri óhóflegu samþjöppun
valds sem nú ríkir í atvinnulífinu og
afnema óþarfa hömlur á atvinnu-
frelsi.
Gera þarf sérstakt átak til að laða
erlenda fjárfestingu til landsins og
aðstoða íslensk fyrirtæki við alþjóð-
leg verkefni.
Til að bæta stefnumótun hins op-
inbera og jafna starfsskilyrði at-
vinnuveganna ber að afnema úrelta
skiptingu stjómarráðsins eftir at-
vinnugreinum, svo og allt stuðnings-
kerfi atvinnulífsins, og stofna eitt at-
vinnumálaráðuneyti.
Fjárfestingalánasjóðir atvinnu-
veganna verði sameinaðir í einn öfl-
ugan fjárfestingalánasjóð.
Stofnaður verði Nýsköpunarsjóð-
ur atvinnulífsins til að styðja vöm-
þróun, tilraunaframleiðslu, markaðs-
setningu og stofnun nýrra fyrirtækja.
Sérstaka áherslu ber að leggja á
stuðning við útflutning og erlend
samskiptaverkefni.
Rannveig Guðmundsdóttir fé-
lagsmálaráðherra: Fjölskyldan er
hornsteinn samfélagsins og upp-
spretta lífsgilda. Alþýðuflokkur-
inn vill að ríkisvaldið marki sér-
staka fjölskyldustefnu til að
stuðla að betri hag fjölskyldunnar
í landinu. Meðal annars þarf að
skapa skilyrði til að draga úr tog-
streitu á milli atvinnu foreldra og
fjölskyldulífs A-mynd: E.ÓI.