Alþýðublaðið - 23.03.1995, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 23. MARS 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
9
U m
ilt að kaupa hér lendur og jarðir,
laxveiðiár og orkulindir til jafns
við Islendinga.“
(DV 7. sept. 1992)
„Félagsleg þjónusta verður lak-
ari vegna þess að menn láta sér
bráðlega nægja staðla þá sem gilda
í Evrópubandalaginu og sömu
sögu má segja um umhverfismál.“
(DV 7. sept. 1992)
Skiptið ykkur af pólitík!
„Ungt fólk á að vera þrýstihópur sem
kemur hagsmunamálum sínum á framfæri
og tekur virkan þátt í því að móta það
samfélag sem það tekur við þegar fram í
sækir. í dag getum við, unga fólkið, haft
áhrif með því að vera vakandi fyrir því sem
er að gerast og taka afstöðu í þeim málum
sem snerta okkur á einn eða annan hátt."
Ungt fólk á að hafa jafnmikil áhrif
eins og aðrir hópar í þjóðfélaginu.
Ungt fólk á að vera þrýstihópur sem
kemur hagsmunamálum sínum á
framfæri og tekur virkan þátt í því
að móta það sam-
félag sem það tek-
ur við þegar fram í
sækir. í dag getum
við, unga fólkið,
haft áhrif með því
að vera vakandi
fyrir því sem er að
gerast og taka af-
stöðu í þeim mál-
um sem snerta
okkur á einn eða
annan hátt.
Nú líður að alþingiskosningum
og þvf ættir þú, lesandi góður, að
mynda þér skoðun á því hvemig þú
telur hagsmuni þína best tryggða og
ekki síst hverjir séu færastir um að
koma þeim
málum á fram-
færi. Ég treysti
Alþýðuflokkn-
um fyrir mínum
hagsmunum,
því hann er ger-
andinn f ís-
lenskri pólitík
og hefur kjark
og þor til að
framkvæma, -
líka óvinsælar
aðgerðir, sem nauðsynlegar eru til
þess að treysta undirstöður velferð-
arþjóðfélagsins. Hann er líka sá
llokkur sem hlustar á ungt fólk, tek-
ur mið af skoðunum okkar og metur
þarfir komandi
kynslóða jafnt á
við þarfir annara
hópa. Þess vegna
hefur Alþýðu-
flokkurinn ungt
fólk jafn ofarlega á
listum sem raun
ber vitni. Ég hvet
alla unga kjósend-
ur til þess að fara
að íhuga mál líð-
andi stundar og ekki síður framtíðar-
innar því við erum framtíð þessa
lands. Við getum ekki haldið áfram
að láta matast af umhverfinu, skeyt-
ingarlaust og án þess að hafast
nokkuð að. Eg hvet alla og þá sér-
staklega unga kjósendur til þess að
kynna sér hvað er í boði, finna sér
samnefnara fyrir sín mál og fylgja
því eftir í komandi kosningum.
En hvað er pólitík? Pólitfk snýst
ekki síst um forgangsröðun útgjalda,
hvemig verja skuli peningunum úr
okkar sameiginlega sjóði, nkissjóði.
Við gerum okkur kannski ekki grein
fyrir því en kynslóðin, sem nú hefur
farið með völdin í rúman áratug,
hefur í raun rekið búið á kostnað
komandi kynslóða, barna sinna og
barnabama. Nú er svo komið að við
þurfum að borga fjórðu hverja
krónu sem við öflum í vexti og af-
borganir af skuldum. Við unga fólk-
ið í dag látum ekki bjóða okkur þetta
lengur. Við megum ekki láta valta
yfir okkur með þessum hætti, ég
segi hingað og ekki lengra. Pólitfk er
ekki bara uppfmning fyrir miðaldra
menn, hún er líka fyrir þig og þá
meina ég einniitt þig!
Höfundur er i Félagi ungra jafnaöar-
manna á Akureyri.
Pallborðið |
aViðar
Einarsson
skrifar
Páll Pétursson frá Höllustöðum:
„Við verðum að veita flota Evr-
ópusambandsins aðgang að fiski-
miðum okkar. Útlendingum verð-
ur heimiit að kaupa hér lendur og
jarðir, laxveiðiár og orkulindir til
jafns við íslendinga."
Hér verður látið staðar numið að
tína út úr þessu merkilega öfugmæla-
safni vitnisburði um þröngsýni, ein-
angmnarstefnu, þjóðrembu og
hræðslu við nýjungar.
Kjósendur góðir, treystið ekki á
menn með slíka framtíðarsýn, það
em betri kostir í boði.
-ane
Aðalfundur
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga
verður haldinn í Alþýðuhúsinu
laugardaginn 25. mars nk. og hefst kl. 10
Dagskrá
1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna fundarins
2. Skýrsla stjórnar
3. Skýrsla kaupfélagsstjóra
Reikningar félagsins
Umsögn endurskoðenda
Tillögur félagsstjórnar um ráðstöfun eftirstöðva o.fl.
4. Afgreiðsla reikninga og tillagna félagsstjórnar
5. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs KEA
6. Erindi deilda
7. Þóknun stjórnar og endurskoðenda
8. Kosningar
9. Önnur mál, sem heyra undir aðalfund skv. félagssamþykktum
Borist hefur tillaga frá Sigfríði Þorsteinsdóttur og fleirum um mótun nýrrar
og framsýnnar staifsmannastefnu fyrir félagið, sem taki m.a. mið af
lögum nr. 26/91 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Stjóm Kaupfélags Eyfirðinga