Alþýðublaðið - 24.03.1995, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 24.03.1995, Blaðsíða 2
B2 FRAMTÍÐIN MARS 1995 4 / i ■i______AðkM IrÍKlL/Jjíii Gl/1/ MÁLGAGN UNGRA JAFNAÐARMANN Á SUÐURLANDI Útgefandi Alprent Ritstjóri Jakob Bjarnar Grétarsson Umbrot Gagarín hf. Prentun Oddi hf. Ungt fólk á að hafa skoðanir - og áhrif Stjórnmálafræðinemar í Háskóla íslands hafa að undanförnu staðiðfyrir vel heppnaðri áróðursherferð, og hvatt ungt fólk til að mynda sér skoðanir á stjórnmálum. Síðustu árin hefur hreinlega ekki verið í tísku meðal ungs fólks að hafa áhuga á pólitík. Þetta er sem betur fer að breytast. í rauninni hefur enginn hópur jafnmikla ástæðu til að hafa skoðanir á pólitík og unga fólkið. Mörgum finnst auðvitað að pólitík sé eintómt karp um tölur og túlkanir, en í reynd snúast stjórnmál- in um líf okkar og framtíð. En ungt fólk á ekki bara að hafa skoðanir. Ungt fólk á að hafa áhrif! Ungir kjósendur ættu að skoða vandlega hvaða flokkar treysta ungu fólki til að skipa efstu sæti framboðslistanna. Lúðvík á þing! Lúðvík Bergvinsson, þrítugur lögfræðingur úr Eyjum, er í 1. sæti á lista Alþýðuflokksins á Suðurlandi. Hann er eini fulltrúi ungu kyn- slóðarinnar sem á möguleika á þingsæti. Meðalaldur þingmanna Suðurlands er 52 ár. Enginn þeirra er undir fertugu. Ungt fólk þarf að eiga kröftugan málsvara á Alþingi. Lúðvík er maður sem ungt fólk getur treyst fyrir sín- um málum. „Reyndar er pabbi minn kmti, en..." - rætt við Elvar Gunnarsson, kosningastjóra Alþýðuflokksins á Suðurlandi. „Það sem mér þykir skilja fram- boðslista Alþýðuflokksins að frá list- um hinna flokkanna er að efstu menn listans eru ungir menn sem vilja berjast fyrir hugmyndum nýrra tíma. Þetta er listi unga fólksins. Sérstaklega tel ég að stefha flokksins íEvrópumálum nái til ungs fólks - enda er aukinn samruni Is- lands við Evrópuþjóðir okkur til hagsbóta. Uti í Evrópu opnast okkur auknir möguleikar til menntunar og eins til atvinnu. Við erum að búa til stærra Island." Þetta segir Elvar Gunnarsson, kosningastjóri Alþýðuflokksins á Suðurlandi, 22ja ára gamall málara- nemi. Með snerpu og dugnaði veitir hann kosningaskrifstofu Alþýðu- flokks að Eyrarvegi I5 á Selfossi forstöðu, en starf þetta felst að miklu leyti í því að halda uppi tengslum við kjósendur út um víðar byggðir Suð- urlands. Ekkert hik er í huga Elvars um að Alþýðuflokkurinn boði rétta stefnu; íslensku þjóðfélagi til heilla. Evrópumálin og boðuð stefna flokksins um inngöngu í ESB vegur þar þyngst. „I samtölum mínum við ungt fólk kemur berlega í ljós talsverð fáffæði um Evrópumálin. Ég vil eindregið hvetja fólk - burtséð frá því hvaða aldri - til að kynna sér málin. Aðild að ESB myndi færa mikil tækifæri. Fram til aldamóta þarf að skapa hér á landi 2.000 ný störf á ári. Slík störf þurfa aðallega að vera fyrir vel- menntað fólk, svosem á sviði tækni, vísinda og rannsókna. Þau störf verða ekki sköpuð með núverandi stefnu okkar í utanríkismálum. Að vísu stóð Alþýðuflokkurinn fyrir inngöngu okkar íslendinga í EES en engu að síður þarf að sækja um fulla aðild að ESB. Mareir óttast_að slíkt séu landráða, en llkast til yrðu áhrif okkar Islendinga innan sambandsins tiltölu- lega mikil - og fullt tillit yrði tekið til hagsmuna okkar. svo sem í sjávarútvegsmálum," segir Elvar. „Það þykir mörgum inn að ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Það er svo praktískt segir ungt fólk - en hugsar ekki lengra. Það hugsar ekki til þess að Alþýðuflokkurinn er sá íslenski stjómmálaflokkur sem síst er bund- inn af hagsmunabandalögum og get- ur því tekið ákvarðanir sínar án þess að vera háð þeim. Slíkt er kostur fyr- ir stjómmálaflokka," segir Elvar og hann bætir við; „Margt ungt fólk tek- ur afstöðu í stjómnálum án sjálf- stæðs mats, fyrst og síðast vegna þess að þetta kjósa mamma og pabbi. Reyndar er pabbi minn krati en ég hef þó lagt mína eigin mælistiku á hlutina og þess vegna skipa ég mér undir merki Alþýðuflokksins." Það var nokkur erill á skrifstofu Alþýðuflokksins þegar þetta var tek- ið. Reyndar voru frambjóðendumir, þau Bergsteinn Einarsson og Katr- ín Bjarnadóttir, rekin yfír á H.M.- Café svo blaðamaður og Elvar gætu spjallað saman í góðu tómi. En þá djöflaðist síminn þess í stað af tví- efldum þrótti og á endanum kom þriðji frambjóðandinn, Hrafn Jök- ulsson, í vísitasíu og þá var ákveðið að láta staðar numið í viðtali þessu. Er þá reyndar eftir að segja ffá íþróttaunnandanum og tónlistar- manninum, Elvari - sem þess utan er í sambúð með Maríu Örlygsdóttur - en fyrir á hún eina dóttur, Sif, 3ja ára sem segir hverjum sem heyra vill að hún sé krati. Þannig hefur Elvar áhrif í störfum sínum á hina eldri - en ekki síður unga og væntanlega kjósendur, sem reyndar fá ekki kjör- gengi fyrr en eftir 15 ár eða svo. En það borgar sig að byija snemma! Guðni þorði ekki Að undanförnu hafa Hrafn Jök- ulsson, 2. maður á A-lista og Gudni Ágústsson, oddviti Fram- sóknar á Suðurlandi, átt í nokkrum skoðanaskiptum í fjölmiðlum. Leik- urinn hófst í Dagskránni en barst þaðan inn á síður Morgunbladsins. Snerra þeirra félaga hefur vakið talsverða athygli út fyrir kjördæm- ið. Þannig vildu Dagsljóssmenn á Sjónvarpinu fá Hrafn og Guðna til að skiptast á skoðunum í sófanum á fimmtudagskvöldið. Hrafn var strax til í slaginn en þegar sjón- varpsmenn höfðu samband við Guðna kom babb í bátinn: Hann þverneitaði að láta sjá sig í Dags- Ijósi. Það er afar óvenjulegt að stjórnmálamenn hafni tækifæri til að koma fram í sjónvarpi - og lík- lega einsdæmi í kosningabaráttu... Frambjóðandi unga fólksins - á fimmtugsaldri Framsóknarmenn auglýsa Isólf Gylfa Pálmason grimmt um þessar mundir, enda er hann að hasla sér völl á sviði landsmálanna í fyrsta skipti. Það hefur hinsvegar vakið talsverða kátínu að ísólfur Gylfi er auglýstur sem sérstakur fulltrúi Félags ungra framsóknar- manna! ísólfur Gylfi er náttúrlega á besta aldri, fæddur 17. mars 1954. Hann varð þannig 41 árs á dögun- um - og við óskum hinum korn- unga frambjóðanda á fimmtugs- aldri auðvitað innilega til hamingju með það... Skringilegar auglýsingar sjálfstæðismanna Sjálfstæðismenn hafa að undan- förnu birt auglýsingar á forsíðu Sunnlenska þar sem ungt fólk er látið standa fyrir máli sínu og út- skýra afhverju í veröldinni það kýs Sjálfstæðisflokkinn. Við vitum fyrir víst að í mörgum tilvikum eru svör- in samin á flokkskontór sjálfstæðis- manna, og þess eru líka dæmi að ungt fólk hafi ekki einu sinni gefið leyfi til þess að láta nota nafn sitt og mynd í þessum tilgangi. Þessi siðlausu vinnubrögð hafa eðlilega ekki fallið í góðan jarðveg hjá ungu fólki... Skoðanakönnun Haukdals Eggert Haukdal brást hinn versti við þegar Sunnienska frétta- bladid bírti skoðanakönnun um daginn, enda fannst óðalsbóndan- um á Bergþórshvoli að „Suður- landslistinn" fengi ekki alveg nógu mikið fylgi. Hann lét að því liggja að könnunin væri tómt svindl - en það eru vitaskuld alvarlegar ásak- anir, bæði í garð Sunnlenska og Gallup. Eggert fékk þessvegna Fé- lagsvísindastofnun til þess að gera nýja könnun. Þar ætlaði Eggert náttúrlega að fá miklu meira fylgi og sanna ótvírætt að „rífandi gang- ur" væri hjá Haukdælingum. Nú liggur könnunin fyrir - en ekkert bólar á niðurstöðunum. Sam- kvæmt okkar heimildum gáfu þær Eggert ekki tilefni til bjartsýni, og nú þvertekur hann fyrir að nokkur könnun hafi verið gerð! Vegir Haukdals eru órannsakanlegir...

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.