Alþýðublaðið - 24.03.1995, Blaðsíða 6
B6
FRAMTÍÐIIM
MARS 1995
A-listinn á Suðurlandi
Kosningamiðstöð
í Vestmannaeyjum
Kosningamiðstöð Alþýðuflokksins í Vestmannaeyjum
er að Heiðarvegi 6. Opið frá 10-22. Alltaf heitt á könn-
unni.
Allir velkomnir - komið og kynnið ykkur málin.
Kosningastjóri er Þorsteinn Hallgrímsson.
Sími11316 & 11017.
Símbréf 11007.
A-listinn á Suðurlandi
A-listinn á Suðurlandi
Kosningamiðstöð
á Selfossi
Kosningamiðstöð A-listans á Selfossi er að Eyrarvegi 15.
Opið tíl 22 alla daga. Alltaf heitt á könnunni.
Allir velkomnir - komið og kynnið ykkur málin.
Kosningastióri er Elvar Gunnarsson.
Sími 22311.
A-listinn á Suðurlandi
A-listinn á Suðurlandi
Kosningamiðstöð
í Hveragerði
Kosningamiðstöð A-listans í Hveragerði er að
Reykjamörk 1. Opið virka daga frá 20-22 og um
helgar frá 14-18.
Alltaf heitt á könnuninni.
Allir velkomnir - komið og kynnið ykkur málin.
Sími34043
A-listinn á Suðurlandi
Hver kann að kjósa?
Það ætti að vera stór stund í lífi
hvers manns og hverrar konu þegar
átján ára aldri er
náð og einstakling-
urinn öðlast rétt til
að kjósa, og hafa
þannig áhrif á
stjóm þessa lands.
Því miður frnnst
mér alltof algengt
að ungt fólk iítur á
þessi sjálfsögðu
mannréttindi sem
hálfgert prump,
sem ekki tekur því að hugsa um eða
nýta sér. Aðrir fara á kjörskrá og
setja X við stafrnn sem mamma eða
pabbi segja að sé sá eini rétti, því
hann hafi gengið í erfðir mann fram
Kosningar I
.....—___i
af manni.
Eg vil hvetja ungt fólk til að kynna
sér stefnuskrá
flokkanna (ef þeir
hafa þá einhveij-
ar) og hugsa að-
eins um hvað er í
gangi. Varist þó
að láta glepjast af
innantómum lof-
orðum um halla-
lausan ríkisrekst-
ur, útrýmingu at-
vinnuleysis, bættri
afkomu heimilanna, hækkun lægstu
launa og stóraukinni félagslegri
þjónustu. Slíkar töfraformúlur geta
allir samið, en við vitum ósköp vel
að þessir hlutir gerast ekki á einni
Margrét
Ingþórsdóttir
„Ég vil hvetja ungt fólk til að kynnast
frambjóðendum Alþýduflokksins á
Suðurlandi. Þar er ungt fólk sem ætlar
sér stóra og góða hluti til að tryggja
framtíð fólksins á íslandi."
nóttu.
Alþýðuflokkurinn hefur nokkra
sérstöðu þegar kemur að utanríkis-
og evrópumálum. Hann er nefnilega
eini flokkurinn sem hefur einhverja
stefnu á því sviði. Hvað veist þú til
dæmis um EES, ESB eða EFTA?
Hugsaðu þig um og skoðaðu málið,
myndaðu þér þínar eigin skoðanir og
ekki láta aðra segja þér fyrir verkum.
Ég vil hvetja ungt fólk til að kynn-
ast frambjóðendum Alþýðuflokksins
á Suðurlandi. Þar er ungt fólk sem
ætlar sér stóra og góða hluti til að
tryggja framtíð fólksins á Islandi.
Vertu ánægð(ur) með sjálfa(n) þig
og skoðanir þínar þegar þú merkir
við í kjörklefanum 8. apríl næst
komandi. Okkar er framtíðin. Höf-
um áhrif á hana.
Alþýðullokkurinn er flokkur með
stefnu!
Stjórnmál og körfubolti
Sunnudagurinn 19. mars.
Hæ, hér sit ég í sæti 32c um borð í
Boeing 747, flugvél British Airways,
á leið til Miami í
Bandaríkjunum.
Já, ég er enn og aft-
ur kominn á flakk,
nú er stefnan sett á
að komast á leik í
NBA-deildinni í
körfubolta; nánar
tiltekið leik Or-
lando Magic og
minna manna
Phoenix Suns, sem
fer fram næstkomandi þriðjudag.
Nú er verið að sýna fréttir í sjón-
varpinu hér í flugvélinni og þar er
verið að tilkynna að Michael „Air“
Jordan er aftur byrjaður að spila, það
ætti nú að gleðja suma en aðrir koma
lil með að gráta endurkomu hans í
NBA.
Richard Dumas er kominn aftur til
Phoenix eftir langt bann úr NBA fyr-
ir eiturlyfjaneyslu og það er mér
rnikið ánægjuefni, en mesta ánægju-
efnið þessa dagana, fyrir Sunnlend-
inga, er án efa þátttaka Lúðvíks
Bergvinssonar fyrir hönd Alþýðu-
flokksins í þessu fagra kjördæmi í
komandi kosningum.
Þar er á ferðinni, ungur og efnileg-
ur maður, sem vert er að skoða nán-
ar. Ég hvet fólk til þess að kynna sér
Lúðvík og hans málefni og þá sér-
staklega ungt fólk, en nánar um það
síðar. Ég lofaði sjálfum mér því að
skrifa um eitthvað annað en pólitík
svo ég held að ég lýsi frekar flug-
þjóninum sem er að þjóna hér, en
annars finnst mér
ég ætti að sleppa
því og fjalla svo-
lítið um ferðalög
eða eitthvað í þá
áttina.
Eins og áður
hefur komið fram
er ég í flugvél á
leiðinni frá Lond-
on til Miami, þetta
er níu tíma flug,
úff það eru nokkrar ferðir með Her-
jólfi, nerna að veðrið sé vont. Vélin
er þétt setin fólki frá ýmsum löndum.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer til
Ameríku, en samt skilst mér að Ree-
book og Nike séu byrjuð að prenta
boli sem á stendur Gis-go-back og
eiga þeir að koma í staðinn fyrir boli
sem á stendur Shaq attack. Svo ef-
laust kemur út tölvuleikur sem mun
heita Gis-go-back versus Shaq att-
ack.
Það er alltaf spennandi að koma á
nýja staði sem maður hefur ekki
komið á áður og í þetta skiptið er
engin breyting þar á. Það skondna er
að ég skil ekki hvemig fólk nennir að
fara endalaust til Spánar eða eitthvað
annað ár eftir ár það er að segja alltaf
á santa staðinn. Það hlýtur að vera
svipað og að ganga alltaf í sömu
nærbuxunum árið inn og út. Nýtt
umhverfi heldur manni alltaf vak-
Kosningar
Gísli „Foster"
Hjartarson
skrifar
Eining
Stjórnmálafundur
meö ungu fólki
Eining, félag ungs félagshyggjufólks, boöar til opins
stjórnmálafundar með ungu fólki, sunnudaginn
26. mars klukkan 20 í Fjölbrautaskólanum.
Kynniö ykkur stjórnmálin - takið afstöðu og hafið áhrif!
Eining
„í fyrsta skipti í langan tíma á fólk í
Suðurlandskjördæmi séns á að koma
ungum manni á þing. Hey, þú! Ég var
ekki að tala um Eggert Haukdal!
Ég meina Lúðvík Bergvinsson."
andi, því augun hafa gaman að sjá
eitthvað nýtt og spennandi.
Ameríkanar hafa alltaf verið sagð-
ir svolítið spes, allt er mest og best í
henni Ameríku, er það ekki? Þetta er
svipað með Islendinga, sem er mesta
„egóista“-þjóð í heimi og þá er eng-
inn landshluti undanskilinn, ekki
einu sinni Þingeyingar.
Jæja, nú að öðrum málum. í fyrsta
skipti í langan tíma á fólk í Suður-
landskjördæmi séns á að koma ung-
um manni á þing. Hey, þú! Ég var
ekki að tala um Eggert Haukdal! Ég
meina Lúðvík Bergvinsson. Ég hvet
fólk til að kynna sér stefnuskrá Al-
þýðuflokksins og reyna að fá tæki-
færi til þess að tala við Lúðvfk, ég
veit að þið verðið ekki fyrir von-
brigðum, skoðið vel sjávarútvegs-
og Evrópumálin, sérstaklega. Við
verðum að ræða við Evrópusam-
bandið og sjá hvers við erum megn-
ug, sfðan ákveður þjóðin hvað gera
skal. Við viljum ekld verða ný Kúba
með kannski Ólaf Ragnar Kastró eða
eitthvað í þá áttina. Verum skynsöm
og fáum ferskan mann á þing og
kjósum Lúðvík, X-A.
Bestu kveðjurfrá Miami.
Gísli „Foster".
MATVORUVERSLUN
C11.M. cafe)
Kaffihús með sál
Eyrarvegi 15, Selfossi, sími 23535
í hádeginu og allan daginn:
Ymsir smáréttir
Heitt á könnunni allan daginn
ásamt Ijúffengu meðlæti
Sá græni er kominn á krana
Lítill 300 krónur, stór 420 krónur
Opið: sun. 12-01 mán. 20-24 brið.-fim.
11-01 föst.-laug. 11-03
Öðruvísi kaffihús
Blautastí staðurinn
íEyjum
HalliReynis
- alla helgina, aldrei betri
Sími 11426