Alþýðublaðið - 24.03.1995, Síða 3
MARS 1995
FRAMTÍÐIN
B3
Hvað á ég að kjósa?
fyrirframtíðina
Guðjón Ægir Sigur-
jónsson skrifar um Al-
þýðuflokkinn, Evrópu-
málin, tækifæri unga
fólksins og þá sem nota
1X2- aðferðina í pólitík.
Innan tíðar ganga Alþingiskosn-
ingar í garð og þá mun íslenska þjóð-
in hafa áhrif á það hverjir fara með
stjóm landsmálanna næstu fjögur ár-
in, eða með öðrum orðum: þá
velur fólk þá fuíltrúa
sem þad treystir best
til að fara með þau
mál sem varða
hvaðeina sem við
gerum í hinu daglega
amstri Það er því ekki laust
við, að það val sem kjósendur standa
frammi fyrir í komandi kosningum
sé þýðingarmikið og gamla góða
lX2-aðferðin við að velja sér stjóm-
málaafl, sem treystandi er til góðra
verka, hlýtur að vera of tilviljana-
Kosningar |
Guðjón
Ægir
Sigurjónsson
skrifar
iur hitti á þann flokk
sem að samræmist best þeim hug-
sjónum sem að maður hefur hug á að
náist fram að ganga.
Það er ekki alltaf auðvelt að velja
úr og gera sér grein fyrir, hvað hver
flokkur er að fara og hvað hver
flokkur vill gera til að ná fram þeim
markmiðum sem að þeir stefna að.
Það er auðvelt að dmkkna í öllum
slagorðunum og áróðurspésunum.
Þess vegna hafa ýmsir, og örugglega
alltof margir, ákveðið að fara þá leið
að berast bara með straumnum og
kjósa þá sem þeir halda að flestir
hinna muni kjósa eða að kjósa bara
það sama og mamma eða pabbi hafa
gert. Og sumir velja sér jafnvel bara
flokk til að halda með, líkt og þeir
völdu sér lið í ensku knattspymunni
á sínu tíma, og kjósa hann, burtséð
frá því hvaða málefni liggja að baki
stefnu flokksins.
Farsælasta leiðin til að gera upp
hug sinn varðandi það hvem á að
kjósa, hlýtur þó að vera sú að gefa
sér örlítinn tíma lil að líta yftr stefnu-
mál flokkanna á gagnrýninn hátt.
Það er vert að pæla aðeins í hvað þeir
hafa gert á undanfömum missemm
(ef þeir hafa verið lil áður) og síðast
en ekki síst hverju þeir geti líklega
áorkað í Ijósi þessa á komandi ámm.
Alþýðuflokkurinn hefur á undan-
fömum ámm verið sá flokkur sem
hefur skapað sér hvað mesta sér-
stöðu þeirra flokka sem hvað lengst
hafa verið við lýði. Sú sérstaða hefur
gmndvallast á því að Alþýðu-
flokkurinn hefur verið
óhræddur við fara
ótrodnar slóðir í leið
sinni að því markmiði
að jafna kjör fólks
og bæta hag okkar
Islendinga . Þetta kom hvað
skýrast fram á síðasta kjörtímabili
þecar Alþýðuf lokkur-
ínn, einn flokka, tók
skýra afstöðu með
EES- samningnum
og sigldi þeim
samningi í raun
farsællega í höfn. Þá vom
fulltrúar annarra flokka tilbúnir til að
tjá sig um það hvurslags böl þessi
samningur myndi leiða yfir þjóðina
og einnig vom þeir fullvissir um að
sjálfstæði þjóðarinnar væri í bráðri
hættu. I dag em raddir þessara sömu
fulltrúa hljóðnaðar og menn geta í
raun varpað öndinni léttar yfir því að
samningurinn náði f höfn vegna þess
að þegar hefur verið sýnt fram á
þjóðhagslega hagkvæmni samnings-
ins og allar þær bölsýnisspár um að
sjálfstæði þjóðarinnar væri stefnt í
hættu hafa reynst á sandi byggðar.
Fyrir komandi kosningar hefur
Alþýðuflokkurinn svo aftur, einn
flokka, tekið sérstaka afstöðu til Evr-
ópumála. Hefur flokkurinn nú lagt á
það ríka áherslu að Island
sæki um aðild að ESB
oa láti þar með á
það reyna hvaða
samningum hægt er
að ná víð sambandið,
með hugsanlega aðild
í huga. Lokaorðið
um þa aðild hefðu þó
alltaf hinir almennu
kjósendur, þar sem um
inngöngu í ESB yrði
kosið i þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Fuiitrú-
ar annarra llokka hafa ekki þorað að
taka þessa afstöðu og reyna annað-
hvort að þagga málið niður með
þeim furðulegu rökum að málið sé
ekki á dagskrá eða reyna að búa til
einhverskonar „Grýluímynd" af
ESB, sem muni hrifsa til sín landið
og miðin og gera ísland að hjáleigu
skriffinna á meginlandi Evrópu.
Það er ljóst að aðild að ESB getur
verið hagstæð fyrir okkur Islend-
inga, ef rétt er á spilunum haldið og
hagstæðir samningar nást. Til þess
aðjeida hlutverk
fslands í þessum
málum er enginn betur
til þess fallinn en
Alþyðuflokkurinn í íjósi
þeirrar reynslu sem við höfum nú
þegar af framgangi þeirra í EES-
málinu.
Fyrir unga kjósendur og næstu
kynslóðir okkar er mikilvægt að í
þessum efnum verði vel á spilunum
haldið til þess að við getum notið
þeirra kjara sem best sem ótvírætt er
að aðild að ESB muni veita okkur.
Hér má til dæmis nefna aukinn
aðgang að mennta-
stofnunum Evrópu-
sambandsríkja, hvort
sem er háskólum eða
öðrum skólastigum.
Þannig má auðvelda þeim sem
dreymir um að fara í nám erlendis að
láta þann draum rætast, auk þess sem
ijölbreytnin yrði meiri enn hún er í
dag. Möguleikar á að
komast til útlanda til
að stunda atvinnu eða
að fá fjármagn
erlendis frá tifatvinnu-
uppbyggingar á
vegum einstaklinga
myndi aukast. Síðast en
ekki síst þá er vert að minnast á það
að samkvæmt niðurstöðum Hag-
fræðistofnunar Háskólans mun
matarverð lækka um
35-45%, en þessu til
staðfestingar þá má
„í Suðurlandskjördæmi er raunhæfur möguleiki
á að ná inn fulltrúa þess hóps er raunverulega
horfir til framtíðar - unga fólksins og fólks sem
vill notfæra sér tækifæri nútímans til að skapa
sem bestar aðstæður. Þetta er þó ekki hægt
nema menn taki raunverulega afstöðu og kjósi
til framtíðar: setji X við A.„
benda á að þessi hefur
orðið þróunin í þeim
löndum sem hafa
gerst aðilar að ESB. Auk
þessa eru ótaldir ýmsir aðrir kostir
ESB aðildar, það er ef íslendingar ná
hagstæðum samningum, þá fyrst og
fremst varðandi fullkominn yfirráð
yfir ftskimiðunum við Iandið.
Aðild að ESB er þó ekki aðeins
eitthvað sem varðar ungt fólk, heldur
alla sem hafa trú á framtíðinni og trú
á hæfileikum sínum og þekkingu og
vill notfæra sér þau tækifæri sem
bjóðast út í ystu æsar. Þannig er
stefna Alþýðuflokksins skynsamleg
að hún miðar að því að skapa bestu
hugsanlegar aðstæður þannig að at-
vinnu-, menningar-, mennta- og
mannlífið fáist sem best þrifist, á
grundvelli þeirra aðstæðna sem að
við sköpum okkur. Jafnvel í land-
búnaðarmálum er þetta stefna Al-
þýðuflokksins þó svo að áróðurs-
meistarar allra „framsóknarflokk-
anna“ reyni að telja mönnu trú um
annað. I landbúnaðar-
málum er Alþýðu-
flokkurinn eini
flokkurinn sem
býður upp á stefnu
sem horfir til
breytinga á því óbreytta
ástandi sem menn eru almennt sam-
mála um að sé slæmt, nema kannski
fyrir fáa útvalda sem njóta góðs af.
Til þess að vinna að þessum mark-
miðum Alþýðuflokksins hefur valist
valinkunn sveit fólks sem telur bæði
gamla refi í pólitík auk ungs, fersks
fólks sem er tilbúið að koma með
ferska strauma inn í stjómmálin og
láta raunverulega til sín taka. Þetta
má í raun segja að endurspegli stefnu
flokksins í því að vinna að markmið-
um er horfi til framtíðar, til dæmis
varðandi atvinnumál og húsnæðis-
mál auk þess það sem snertir framtíð
íslands innan Evrópu. I Suður-
landskjördæmi er
raunhæfur möauleiki
á að ná inn fuíltrúa
þess hóps er raunveru-
lega horfir til
framtíðar - unga
fólksins og fólks sem
vill notfæra sér tæki-
færi nútímans tii að skapa
sem bestar aðstæður. Þetta er þó ekki
hægt nema menn taki
raunveruleaa afstöðu
og kjósi til framtíðar:
setji XviðA.
Höfundur er laganemi og stuðnings-
maður Alþýðuflokksins - Jafnaðar-
mannaflokks (slands.
Gunnþóra
Steingrímsdóttir
framhaldsskólanemi, Selfossi
Ég vil láta reyna á ESB-að-
ild, þarsem hún myndi
auka möguleika fyrir
námsfólk.
Þórir
Tryggvason
iðnnemi, Selfossi
Ég tel að með ESB-aðild
muni hagur ungs fólks
vænkast á næstu árum.
Gudni
Kristinsson
framhaldsskólanemi,
Skarði í Landssveit
Alþýðuflokkurinn ber hag
ungs fólks sér fyrir brjósti.
Gísli R.
Kristjánsson
húsasmiður, Eyrarbakka
Vegna ákveðinnar stefnu
Alþýðuflokksins í Evrópu-
málunum.