Alþýðublaðið - 24.03.1995, Blaðsíða 8
B8
FRAMTÍÐIN
MARS 1995
-f
■ Sigurður Fannar Guðmundsson er aðeins 23 ára en hefur þegar skrifað tvö leikrit
sem sýnd hafa verið á Selfossi. Nemendur Sólvallaskóla sýna nú leikritið Án gríns
Á fimmtudagskvöldið frum-
sýndí leikhópur 10. bekkjar Sól-
vallaskóla á Selfossi nýtt leikrit,
Án gríns. Fjölmargir nemendur
tóku þátt í uppsetningunni - en
leikritið er eftir ungan Selfossbúa,
Sigurð Fannar Guðmundsson,
23 ára.
„Þetta leikrit fjailar um krakka
sem eru á sama aldri og leikend-
umir, þetta 15 til 16 ára. Á þessum
aldri em þau að vakna til lífsins og
leita að hinum helmingnum af
sjálfum sér,“ segir höfundurinn og
leikstjórinn Sigurður Fannar í
stuttu spjalli.
Leikrit sem þetta er ekki hið
fyrsta sem Sigurður Fannar setur á
fjalimar. Fyrir tveimur ámm
samdi hann og leikstýrði verkinu
Sigurður Fannar: Án gríns er nýtt
leikskáld vaknað til lífsins.
Vaknað til lífsins, en þátttakendur
í þeirri sýningu vom nemendur í
Fjölbrautaskóla Suðurlands. „Og
án gríns er nýtt leikritaskáld nú
vaknað til lífsins, segir Sigurður
Leiklestur í Sólvallaskóla.
Fannar og brosir út í annað - og
boðar þamteð að fleiri leikverk
séu í bígerð.
Það leikrit sem nú er á fjölunum
samdi Sigurður Fannar í jólafríi
sínu frá bókmenntafræðinámi við
Háskóla íslands, en í fríinu dvaldi
hann á Spáni þarsem faðir hans og
sambýliskona em búsett nú. Að-
spurður segist Sigurður Fannar
Vaskur hópur stendur að leiksýn-
ingunni í Sólvallaskóia.
hafa afar gaman af verkefnum
sem þessum, að setja saman leik-
rit. Yrkisefna kveðst hann sífellt
leita, og skoða hið daglega líf út
frá því „með augum þess sem lær-
ir, og þannig leita ég nýrra og
nýrra hugmynda,“ sagði leik-
skáldið að lokum.
Í