Alþýðublaðið - 24.03.1995, Síða 11

Alþýðublaðið - 24.03.1995, Síða 11
MARS 1995 FRAMTÍÐIN B11 ■ Selfyssingurinn íris Jónsdóttir, 22 ára, er orðin bóndi á Þrasastöðum í Fljótunum. Við slógum á þráðinn norður heiðar til að forvitnast um hagi hennar í fannferginu. íris reyndist vera í góðu formi, þvertókfyrir að mikið væri þrasað á Þrasastöðum, og segir: Náttúruböm hugsa vel um Góöan og blessaðan daginn, er þetta bónda- konan á Þrasastöðum nyrðra? , Jú, það er hún.“ Komdu sæl, þetta er hér á Framtíðinni, viltu spjalla örlít- ið við okkur? „Þó það nú væri.“ Sérkennilegt bæjarnafn hjá ykkur... , Já, það má nú ekki skilja það sem svo að hér séum við alltaf þrasandi - bærinn er kenndur við tröll eða mann sem hét Þrasi.“ Hvar eru Þrasastaðir? - Norður í afdölum? „Ekki alveg, þó mér sé alveg óhætt að fullyrða að núna séu þetta hálfgerðir afdalir í öllum þessum snjó.“ Snjóar hjá ykkur í dag? ,Já... (dillandi hlátur hinumegin lín- unnar)... þessar spumingar hljóma eins og ég sé í beinni útsendingu í út- varpi en ekki í blaðaviðtali." Þú segir nokkuð. En þessi mikli snjór hlýtur að vera óvanalegur fyrir þig sem kemur héðan frá flat- lendinu snjólétta? , Jú, annars er snjórinn ágætur.“ Er hann ekki helst til þreytandi til lengdar? „Eilíf ofankoma og bylur er mjög þreytandi, en ef veðrið er gott er þetta bara ágætt. Best væri náttúrlega ef snjórinn væri aðeins í fáa mánuði, þá gæti maður notið þess að ganga á skíðum, en ...“ Hva, þú hljómar eins og það sé snjór allan ársins hring hjá ykkur? „Nei, kannski ekki alveg, en það er umhverfið Kappklædd stelpa af Selfossi í snjóþungri sveit norðanlands spjallar við Tomma tík. ekki langt frá því. I fyrra var hér snjór frá október til júní og systir mín getur vitnað um, að hún kom hér þann 17. júní og enn var snjór sumsstaðar á túnum. Núna er 3ja metra jafnfallinn snjór hjá okkur á flatlendinu." Það er þá líklega ekki fært til ykkar á venjulegu farartæki? „Nei, hingað er ekki fært yfir vetrar- mánuðina, nema á tröllauknum jepp- um eða á snjósleða. Við fömm á vél- sleða fram eftir og þaðan komumst við keyrandi á Sauðárkrók eða Siglu- ijörð tii að útrétta. Annars emm við vel byrg af mat og nauðsynjavörum, því ekki er alltaf veður til að ferðast." En íris, af hverju ertu þama? , Jig náði mér nú bara í bóndason hér norður í landi. Hann átti þessa jörð og því var tilvalið að heíja hér bú- skap.“ Náðirðu þér í, segirðu, hvar nær maður sér í bændasyni? „Þeir em mjög auðfundnir á bændaskólanum á Hvann- eyri. Og þar kynntist ég Jóni E1 vati, sem var í búfræði- námi eins og ég.“ Hvenær kviknaði áhugi þinn fyrir bústörfum og sveitinni? .Áhuginn kom nú þegar ég var send í sveitina sjö ára gömul. Og áhuginn var svo mikill að ég fór við hvert ein- asta tækifæri með mjólkurbílnum og var þar.“ Hvar varstu í sveit? „ Á Barkarstöðum í Fljótshlíð hjá honum Daða. Þar var ég látin reka beljumar, fylgjast með ánum og reka þær úr túninu. Tengjst þessi áhugi þinn eitthvað ímynd þinni þegar þú varst sjö ára í fótbolta með strákunum og gekkst undir nafninu ,Jitli Gvendur“. Eða getur bóndastaríið verið kvenlegt? „Það getur nú alveg verið kvenlegt eins og hvað annað. Þó getur það vel verið að maður þurfi að vera svolítill íris og Jón Elvar, húsráðendur á Þrasastöðum. „Rómantíkin í sveitinni fylgir kalli náttúrunnar og blómstrar á vorin. skömngur í þessu starfi." Ertu enn kölluð, Jitli Gvendur“? , Já, mamrna kallar mig stundum Gvend og afi, Guðmundur Finnboga- son, gerir það alltaf, enda held ég að upphaflega hafi hann byijað á þessu.“ Veistu af hverju? „Ég held nú að það hafi komið til vegna þess hversu stráksleg ég var frá upphafi." Hvernig var að alast upp á Selfossi? „Fínt, alltaf nóg að gera og prakkar- ast.“ Er þér eitthvað minnisstætt? „Duran, Duran, hin vinsæla hljóm- sveit sem tróð upp á skólaskemmtun- um og böllum. Eg glamraði á tennis- spaða sem virtur gítarleikari hljóm- sveitarinnar, æfingar vom haldnar heima í Reyrhaga.“ Skreppum aftur í Fljótin - hvernig búskap eruð þið með? „Aðallega sauðfjárbúskap, annað gengi víst ekki. Svo emm við með nokkra hesta og eina kú til að mjólka til heimilisins og tvo kálfa.“ Erfið vinna við erfiðar aðstæður? „Nei, nei, ekki svo.“ Er ekki vonlaust að lifa af búskap? „Nóg hefur sá sér nægja lætur. Utan- landsferðir og annar lúxus bíður betri tíma.“ Mér er tjáð að tíkin á bænum heiti Tommi. Kyngreinduð þið hana eitt- hvaðrangteða...? „Tja, eigum við ekki bara að segja að hún sé svo mikill ærslabelgur að hún hafi fengið nafn kattarins, - þetta með kyngreininguna hljómar ekki nógu vel!“ Hvað er gert í f rístundum á Þrasa- stöðum - skroppið á hestbak, lesið eða rætt um pólitík? „Pólitík ber stundum á góma þegar við ræuðm nýjar leiðir til að draga fram lífið. Enginn fer á hestbak í slík- um snjó. Við lesum blöðin sem hing- að berast. Dag, Sunnlenska og stund- um fáum við Alþýðublaðið til að glugga í.“ Hafið þið einhverjar lausnir í land- búnaðarmálum? , J>að er nú eitthvað sem við ræðum okkar í millum - ég ræði það ekki í þessu viðtali. Ertu mikið náttúrubam - hlustar á blómin vakna og fossana hugsa? ,Já, já það get ég alveg gert. Náttúm- böm hugsa vel um náttúmna og um- hverfið og heyra og sjá ýmislegt sem þar gerist." Eykur einangrun ykkar hjóna ekki á rómantíkina í bænum? , Jú, það er nú líklega, auk þess sem rómantík í sveitum fylgir kalli náttúr- unnar. Hún blómstrar á vorin.“ Hugsarðu mikið suður yfir heiðar, eða rennur þér orðið skagfirskt blóð í æðum? „Ég hugsa mikið til fjölskyldu minnar sem öll er fyrir sunnan. Ég verð alltaf Sunnlendingur og skagfirska blóðið getur ekki mnnið í mínum æðum.“ Húsbóndinn tjáði mér, þegar hann svaraði í síntann, að hann væri að steikja dindla af lömhum, er það einhver sérréttur í Fljótunum? „Ég held það sé nú alveg sérréttur Jóns Elvars, þetta botðar hann með bestu lyst og ég smakka einn og einn dindil. Þetta er ágætis snakk.“ Hvað er nú framundan hjá ykkur á þessu herrans ári 1995? „Sauðburður, vinna við sundlaugina í Fljótum í sumar, auk þess sem ég hugsa um Barðskirkju og hitt og þetta annað.“ Viltu í lokin senda kveðjur eða Ijúka þessu spjalli á annan hátt? „Ég þakka bara vel fyrir mig og sendi öllum bestu kveðjur." Þakka þér fyrir skemmtilegt rabb og bcstu kveðjur í bæinn. ■ Sigþóra Guðmundsdóttir skipar 6. sæti á framboðslista Alþýðuflokksins á Suðurlandi. Hér svarar hún ýmsum áleitnum spurningum Steypa? Sjávarútvegsstefna Sjálfstæðisflokksins! Fædd: 23. september 1974 í Vestmannaeyjum. Ertu í sambúð? Já, ég ertrúlofuð og heitirsá hamingjusami Geir Reynisson. Menntun: Útskrifuð sem stúdent af félagsfræðibraut og stefni á að komast að í Kennó. Starf: Málari í Skipalyftunni. Hefurðu stundað einhverjar íþróttir? Ég hef stundað flestar íþróttir sem hægt er að æfa í Vestmanna- eyjum, til dæmis sund, frjálsar íþróttir, badminton, fótbolta, handbolta og borðt- ennis. Síðustu fimm ár hef ég nær ein- göngu haldið mig við fótboltann. Hvað finnst þér um þá umræðu sem er í Eyjum um að sameina ræðu um að sameina félögin því ég tel að það sé af hinu góða fyrir uppbyggingu íþróttalífs í Eyjum. Skemmtilegasta minningin úr íþrótt- unum? Það er alveg tvímælalaust þegar við urðum íslandsmeistarar í knattspyrnu Eyjastelpa og íþrottafikill. Sigþóra hefur stundaö frjálsar íþróttir, sund, handbolta, badminton, fót- bolta, borðtennis - en er nú á atkvæðaveiðum. Hér er frambjóðandinn í fanginu á hamingjusömum Geir Reynissyni. beri Tý og Þór? Ég er hlynnt þessari um- árið 1991. Einnig var mikið gaman þegar stelpurnar sem ég þjálfaði urðu Gull og silfur meistarar í fyrra. Eftirlætis tónlistarmaður: Phil Collins er í miklu uppáhaldi, en annars er ég alæta á tónlist. Hvað telur þú raunhæft markmið hjá íslenska landsliðinu á HM? Ég tel skynsamlegt að taka einn leik í einu en ég tel raunhæft að setja takmarkið á að ná einu af sex efstu sætunum, og þar með tryggja okkur farseðilinn á næstu Ólympíuleika. Uppáhaldsíþróttamaður: Pele og Maradona. Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir eftirtalin orð: Steypa: Stefna Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegsmálum. Kjarkur: Sigur kostar kjark. Sjónvarp: Eldgos. Mörgæs: Nunnudvergur. Ufsaspaði: Reiðhjól. Vinningur: Þvottavél og þurrkari. Eitthvað að lokum: Ég hvet alla til þess að hafa kjark til að taka afstöðu komandi kosningum. Restaurant Q/íícUóe&Ul Forréttur á ávnýcw/eógeáÁc//a Aðalréttur mecá /y^e/e^eááéi^ááu Eftiiréttur Aúóácmá' Verð aðeins 1800 krónur íslenskar. Opið alla helgina frá 10:00 - 14:00 og 18:00 - 22:00

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.