Alþýðublaðið - 12.04.1995, Side 1
■ Vandi landbúnaðarins og viðræður stjórnarflokkanna
Ekki vid neinn í ríkisstióm-
inni að sakast
- segir Egill Jónsson alþingismaður en hefur áhyggjur af vanda sauðfjárbænda.
„Þessar viðræður stjómarflokk-
anna eru fyrir mér algjörlega af-
slappað umhverfi. Þær em fullkom-
lega eðlilegar og nauðsynlegur að-
dragandi til frekari ákvarðana eins
og allir vita,“ sagði Egill Jónsson
alþingismaður í samtali við Alþýðu-
blaðið.
Egill var spurður hvort hann teldi
að jafna mætti ágreining stjómar-
flokkanna í landbúnaðarmálum í
þeim viðræðum sem nú fara fram
um möguleika á framhaldi stjómar-
samstarfsins.
„Þessi ríkisstjóm hefur tekið
ýmsar mikilvægar ákvarðanir. Ég
hef mestar áhyggjur af því hvemig
komið er fyrir landbúnaðinum og
sérstaklega sauðíjárræktinni. Þar
eru gríðarleg vandamál. Hins vegar
hafa þau ekki komið neitt til kasta
þessarar ríkisstjómar því þar að
baki er búvörusamningurinn. I þeim
efnum er ekki við einn eða neinn í
ríkisstjórninni að sakast. Þetta er
hins vegar vandi sem mér hefur ver-
ið ljóst allt kjörtímabilið að myndi
koma upp og eftir fund Bændasam-
takanna fyrir skömmu sjá allir
hvemig horfir í þessum efnum. Ég
veit ekki til þess að þar sé neitt sér-
stakt ágreiningsefni milli stjómar-
flokkanna," sagði Egill Jónsson.
Egill Jónsson: Þessar viðræður stjórnarflokkanna eru fyrir mér algjör-
lega afslappað umhverfi. A-mynd: E.ÓI.
■ Dagens Næringsliv
segir Jón Baldvin
Hannibalsson reka
harða fiskveiðistefnu
Hefur
beygt
Rússa
og
Norð-
menn
Spáð er samningum
um kvóta í Smugunni í
náinni framtíð.
I grein í norska blaðinu Dagens
Nœringsliv segir að Jón Baldvin
Hannibalsson styðji fullum fet-
um ótakmarkaðar veiðar íslend-
inga í Smugunni því hann viti að
Norðmenn hafi ekki stuðning til
að stöðva þær veiðar. Hin harka-
lega fiskveiðistefna Jóns Bald-
vins hafi beygt bæði Rússa og
Norðmenn. Því meira sem íslend-
ingar veiði í Smugunni þeim mun
betri spil hafi Jón Baldvin á hendi
þegar samið verði um kvóta við
Norðmenn og Rússa.
Greinarhöfundur segir að vonir
standi til að hægt verði að leysa
fiskveiðideilu Norðmanna og
Rússa við íslendinga skömmu
eftir þingkosningamar á íslandi.
Ekki hafi verið hægt að semja á
liðnu hausti því þá hafi norski
sjávarútvegsráðherrann átt nóg
með að vetja sjávanítvegssamn-
inginn við ESB fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna. Sömuleiðis
hafi verið erfitt fyrir ríkisstjóm
Davíðs Oddssonar að semja rétt
íyrir kosningar.
- Siá umfiöllun á blaðsíðu 8.
|«ry«*i,m°nn f u n d a
Sighvatur Björgvinsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Davíð Oddsson og Friðrik Sophusson funduðu í gærdag og spáðu í spilin.
Forystumennirnir fóru yfir stöðuna í Ijósi kosninganna og ræddu hugsanlegt áframhaldandi samstarf. í raun þurfa ekki að fara
fram formlegar stjórnarmyndunarviðræður því stjórnin hélt velli í kosningunum.
■ Formannskjör nálgast í Alþýðubandalaginu
„Mun gefa kost á mér við formannskjör"
- segir Steingrímur J. Sigfússon, sem telur vel
við hæfi að formaðurinn komi frá Norðurlandi
eystra þar sem flokkurinn sé sterkastur þar.
„Mér er ekkert að vanbúnaði
fyrst spurt er, að segja það alveg
ákveðið að ég mun gefa kost á mér
við formannskjör. Norðurland
eystra er orðið það kjördæmi
landsins þar sem staða Alþýðu-
bandalagsins er sterkust og þá
sennilega ekki nema vel við hæfi
að formaðurinn komi þaðan,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður í samtali við Alþýðu-
blaðið.
Ólafur Ragnar Grímsson mun
láta af formennsku í Alþýðu-
bandalaginu í haust samkvæmt
reglum flokksins. Steingrímur J.
Sigfússon alþingismaður og vara-
formaður flokksins hefur verið
nefndur sem líklegur arftaki Ólafs
Ragnars og hefur nú staðfest að
hann muni gefa kost á sér. Einnig
hefur Margrét Frímannsdóttir verið
í umræðunni um embættið. For-
maður Alþýðubandalagsins er
kjörinn í allsherjaratkvæða-
greiðslu flokksmanna.
Steingrímur sagðist hafa bægt
frá sér öllu tali um formannsmálið
í kosningabaráttunni og þá beðist
undan ölium spurningum þar að
lútandi. En það væri ekkert í úr-
slitum kosninganna nema síður
væri sem mælti gegn því að hann
gæfl kost á sér til formanns. Öllum
væri frjálst að bjóða sig fram til
þessa embættis og það yrði bara
að koma daginn hvaða undirtektir
framboð hans hlyti.
Steingrímur: Mér er ekkert að
vanbúnaði fyrst spurt er, að segja
það alveg ákveðið að ég mun
gefa kost á mér við formannskjör.
A-mynd: E.ÓI.
Ólafur Ragnar: Lætur af for-
mennsku í Alþýðubandalaginu í
haust samkvæmt reglum flokks-
ins. Steingrímur J. og Margrét
Frímanns hafa verið nefnd sem
líklegustu arftakar hans.
A- mynd: E.ÓI.
Margrét: Hefur ekki leitt hugann
að formannsframboði í Alþýðu-
bandalaginu. A-mynd: E.ÓI.
■ Margrét Frímanns-
dóttir í formanns-
framboð?
Ekki leitt
hugann
að því
„Þú verður að bíða með að
spyrja að þessu. Ég hef ekki leitt
hugann að því, enda fór allur tím-
inn í kosningabaráttuna,“ sagði
Margrét Frímannsdóttir alþingis-
maður í örspjalli við Alþýðu-
blaðið.
Margrét var spurð hvort hún
hefði í kjöifar þingkosninganna
tekið ákvörðun um að bjóða sig
fram til formanns í Alþýðubanda-
iaginu. Fyrir nokkrum vikum
kvaðst Margrét vera að íhuga
slíkt framboð. I kosningabarátt-
unni var því haidið á lofti af Al-
þýðubandaiagsfólki á Suðurlandi
að ef Margrét fengi góða kosningu
styrkti það hana við formanns-
framboðið. Alþýðubandalagið
tapaði hins vegar 2,8% atkvæða á
Suðurlandi í kosningunum.
■ lb - konan í lífi Jóhanns
Sigurjónssonar
„Ég elska þig
og sólina!"
Minning Jóhanns Sigurjónssonar
skálds er sveipuð dularljóma. Hann varð að-
eins 39 ára en skildi eftir sig leikrit sem
halda nafni hans á loft og fáeinar ódauðleg-
ar Ijóðperlur. Ingeborg, konan í lífi Jó-
hanns, var harðgift skipstjórafrú þegar fund-
um hennar og íslenska skáldsins bar saman
en hún varð stærsta ástin hans, örlagavaldur
og vemdari. Jóhann lést árið 1919 en Inge-
borg lifði í 15 ár eftir það. í Alþýðublaðinu
10. desember 1934 birtust minningarorð um
Ib eftir F.E. Vogel.
- S já umfjöllun á blaðsíðu 9
■ Eggert Haukdal - í
viðtali um pólitíkina
„Laminn niður
af flokksbræðr-
um mínum"
Það er vissulega sjónarsviptir af Eggerti
Haukdal en hann kemur ekki til með að
sitja næsta þing. Þessi sunnlenski bóndi hef-
ur aldrei verið sem hver önnur rolla í sjálf-
stæðisréttinni heldur hefur gustað af honum
enda liggur Eggert ekki á skoðunum sínum.
f viðtali við Jakob Bjarnar Grétarsson velt-
ir hann fyrir sér niðurstöðum kosninganna
og vandræðamönnunum Jóni Baldvin,
Steina Páls, ,Johnson ‘, Kristjáni Ragn-
arssyni og Halidóri Asgrímssyni og hinum
og þessum vandamálum. Eggert vísar því á
bug að það sé honum að þakka að Lúðvík
Bergvinsson hafi komist á þing - Þorsteinn
Pálsson hafi verið arkitektinn að því.
- Sjá umfjöllun á blaðsíðu 11