Alþýðublaðið - 12.04.1995, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
S k o ð a n i r
UIYBIMiHB
20904. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Siguröur Tómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Mistök
Olafs Ragnars
Eftir fjögurra ára harða stjómarandstöðu átti Alþýðubandalag-
ið mikla möguleika á fylgisaukningu. Kosningabarátta flokksins
lofaði enda góðu í upphafi. Ólafur Ragnar Grímsson gerði hins-
vegar þau reginmistök, að róa til vinstri, samtímis því að gefa
sterklega í skyn að hann stefndi á ríkisstjóm með Sjálfstæðis-
flokknum. Þetta bauð Þjóðvaka, sem var í sámm eftir misheppn-
aðan landsfund, uppá þann óvænta leik að skapa ótvíræðan
vinstri valkost, með því að leggjast afdráttarlaust gegn stjóm
með Sjálfstæðisflokki.
Útspilið stöðvaði fylgishrun Þjóðvaka um tíma. En Ólafur
Ragnar virtist tapa áttum við þennan leik Jóhönnu, einsog sást
glöggt af slælegri ffammistöðu hans í íjölmiðlum. Svar hans,
seint og um síðir, fólst í drögum að samstarfsyfirlýsingu
„vinstri“ stjómar, sem þjóðin vissi þó að hann hafði ekki áhuga
á.
Þetta reyndust enn ein mistökin hjá Ólafi Ragnari. Yfírlýsing-
una kynnti hann með hefðbundinni flugeldasýningu á blaða-
mannafundi, þarsem það vakti helst athygli fréttamanna að
skyndilega vom horfin loforðin góðu um miklar kauphækkanir
til hinna lægst launuðu, auk þess sem þar mátti fínna hugmynd-
ir alþýðuflokksmanna um veiðigjald. Forystumenn annarra
flokka gerðu heldur ekki meira en að brosa út í annað að tilburð-
um formanns Alþýðubandalagsins, sem vikum saman hafði
ekki viljað útiloka stjóm með Sjálfstæðisflokki. Halldór Ás-
grímsson vísaði þannig Ólafí Ragnari kurteislega á bug, Kvenn-
alistakonum fannst „stjómarsáttmálinn“ ófúllnægjandi og Þjóð-
vakafólk gerði grín að Ólafi. Taugaveiklunarkennt útspil Ólafs
gerði því ekki annað en undirstrika enn frekar ótrúverðugleika
hans og Alþýðubandalagsins.
Þessi mistök Ólafs Ragnars í kosningabaráttunni komu í veg
fyrir vemlega sókn Alþýðubandalagsins. En að líkindum fólu
þau líka í sér lífgjöf Þjóðvaka. Hefði Ólafur haldið rétt á spilum
og sagt frá upphafi að hann stefndi að vinstri stjóm, þá hefði
Þjóðvaki ekki fengið færi til að stöðva fylgishrunið sem byijaði
eftir landsfund hreyfingarinnar. Alþýðubandalagið hefði að öll-
um líkindum fengið vemlegan hluta af fylgi Þjóðvaka.
Þjóðvaki getur því þakkað Ólafi Ragnari flesta þeirra fjögurra
þingmanna sem flokkurinn fékk að lokum. Alþýðubandalagsins
bíður það hinsvegar að skipta um formann við fyrsta tækifæri.
Vargöld
Nú þegar snjóa leysir á Balkanskaga bendir allt til þess að alls-
herjar stríð sé yfirvofandi. Stjóm Tudjmans í Króatíu vill losna
við friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna og heija sókn á hendur
Serbum sem ráða þriðjungi króatískra landsvæða. Bardagar em
að hefjast aftur í Bosníu-Herzegóvinu, í Kosovo er vopnaður
friður og ástandið í Makedóníu verður sífellt ótryggara.
Ef bardagar blossa upp í Kosovo og Makedóníu em allar líkur
á því að nágrannalöndin dragist með beinum hætti inn í átökin.
Albanía, Búlgaría, Serbía og Grikkland telja sig eiga beinna
hagsmuna að gæta í Makedónfu, og Albanir fylgjast grannt með
afdrifum frænda sinna þar og í Kosovo.
Eina leiðin til að hindra að blóðbaðið haldi áfram á Balkan-
skaga felst í því að setja stjómum Króatíu og Serbíu afdráttar-
lausa úrslitakosti. Báðum ríkjum er stjómað af þjóðemisofstæk-
ismönnum sem hafa litla ást á lýðræðinu og svífast einskis í
valdabrölti og útþenslustefnu. Linkind alþjóðasamfélagsins
gagnvart stríðsglæpamönnum fyrmm Júgóslavíu hefur þegar
kostað stórkostlegar mannfómir. Saga síðustu ára segir okkur
því miður að lítil ástæða sé til bjartsýni.
Leggjum niður fjórflokkinn
- Endurreisum fjórflokkakerfið
Hver skyldi hafa fundið upp glós-
una um fjórjlokkinnl Vilmundur?
Sennilega, því hugsunin að baki er
upphaflega róttæk og frumleg - í
henni er sprengiafl og óþol, en um
leið fylgir henni hamagangur og
ruglandi og hún leiðir svo sem ekki
til neins. Þetta er hugsunin um að
sami rassinn sé undir þeim öllum,
sem má vissulega til sanns vegar
Vikupiltar
Guðmundur
( Andri
1 |W % Thorsson
\ /Áá 6 skrifar
„Alþýðuflokkurinn
er einhentur. Og
það sem verra er:
hann vill vera ein-
hentur. Um leið og
vex fram vinstri
stúfur er hann
höggvinn af -
kratar hafa tekið
full alvarlega boð
Krists: Ef hönd þín
hneykslar þig, þá
sníð hana af."
færa, en þá gleymist að stjómmála-
menn gæta ákaflega ólíkra hags-
muna. Þeim er veitt aðhald úr ólíkum
áttum. Við eigum til allrar hamingju
fáa stjómmálamenn á borð við Dav-
íð Oddsson sem einkum er upptek-
inn af því að byggja forógnarmikla
minnisvarða um stórhug sinn eins og
kemur ágætlega fram í lýsingu
Hrafns Gunnlaugssonar í nýlegri
ævisögu á því þegar þeir stóðu tveir
og fylgdust með vígslu Perlunnar og
Hrafn skildi að Davíð var í stjóm-
málum sem listamaður að láta
drauma rætast, en skildi ekki að
þama var Davíð Oddsson að henda
ómældu almannafé í að reisa prest-
vígðan helgidóm án guðs, galtómt
tákn án táknmiðs, gullkálftnn sem
snýst um sjálfan sig og vísar á sjálfan
sig - og stórhug Davíðs. Því að Dav-
íð lítur á kjósendur sem þegna og
hefur það helst ffam að færa í land-
búnaðar-, sjávarútvegs- og Evrópu-
málum - stjómmálum - að fólk skuli
bara treysta því að hans ákvörðun
verði rétt og sanngjöm þegar hann sé
búinn að hlýða á málflutning okkar
þegnana. Yfirleitt em nútfmastjóm-
málamenn hættir að líta á okkur sem
þegna.
Hver er þessi fjórflokkur sem allir
klifa á? Flokkamir sem voru hér við
iýði áður en Samtök fijálslyndra og
vinstri manna vom stofnuð? Var það
slæmt flokkakerfi? Þá var að
minnsta kosti auðveldara fyrir okkur
kjósendur að gera upp hug okkar...
Eftir þær sálarkvalir sem ég leið í
kjörklefanum hugsaði ég: ekki gera
mér þetta aftur kæm vinir. Eg gat
tekið undir með Shady Owens: Eg
elska alla... Og það rann upp fyrir
mér að við eigum að afnema fjór-
flokkinn en endurreisa fjórflokka-
kerfíð. Fjórflokkurinn sem ber að af-
nema er þessi: Alþýðuflokkur, Al-
þýðubandalag, Kvennalisti og Þjóð-
vaki. Þetta em þeir flokkar sem eiga
samleið af öllum ástæðum. Málið
snýst í rauninni einungis um það að
vinstri armur Alþýðuflokksins snúi
aftur heim - að Héðinn komi heim úr
fimmtfu og sjö ára herleiðingu, hann
er búinn að vera lengur þama úti en
Móses - að þið Alþýðuflokksmenn
sættið ykkur við Héðin, en flæmið
hann ekki burt jafnóðum og hann
endurfæðist. Herinn og Nató skiptir
ekki lengur máli - hins vegar verður
að vera vinstri armur í öllum jafnað-
armannaflokkum. Alþýðuflokkurinn
er einhentur. Og það sem verra er:
Hh
hann vill vera einhentur. Um leið og
vex fram vinstri stúfur er hann
höggvinn af - kratar hafa tekið full
alvarlega boð Krists: Ef hönd þín
hneykslar þig, þá sníð hana af...
Sem örvhentur maður særi ég krata
til að láta vinstri stúfínn nú vaxa.
Fyrr verður hér ekki stór og öflugur
jafnaðarmannaflokkur á evrópska
vísu sem reistur er í senn á Erasmusi
frá Rotterdam, Jóni Sigurðssyni og
Karli Marx með endurbótum Bern-
steins og Kautskís og öðrum evr-
ópskum og íslenskum mannúðar-
hugsuðum.
Niðurstaðan af þessum kosning-
um er sú að kjósendur höfnuðu þess-
um fjórflokki, þessum fjórskipta
jafnaðarmannaflokki og sendu þar
með ómeðvitað þau skilaboð að hér
ættu Sjálfstæðismenn og Framsókn-
armenn að fara með völd. Þeim væri
treystandi, þar væri ekki hver höndin
upp á móti annarri. Þeir kusu það
sem þeir þekkja. Þeir kusu fjór-
flokkakerfið gamla.
Ég legg til að vinstri menn hætti
að stofna aftur og aitur Samtök
frjálslyndra og vinstri manna. Málin
sem sundruðu þeim - hin raunveru-
legu málefni sem ágreiningur var um
- eru útrædd. Sjálfstæðisflokkurinn
og Framsókn eru gæsluflokkar fyrir
áframhaldandi fjáraustur til fyrir-
tækja um allt land, hafa þá hugsjón
að skattborgarar skuli standa undir
jeppakaupum og annarri græjudellu
svonefndra athafnamanna. Fjór-
flokkurinn til vinstri er hins vegar
betur til þess fallinn að gæta al-
mannahagsmuna, standa vörð um
velferðarkerfið eins og það er kallað.
Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og
víður og umburðarlyndur Krata-
flokkur - hvað er þá eftir? Villta
vinstrið sem þarf að endurreisa. Yst
á kantinum þarf að vera altematífur
og grænn Ilokkur sem veitir stórum
krataflokki aðhald frá vinstri og er
miklu hreinlífari og um leið frjórri í
afstöðu sinni til þjóðmála en Al-
þýðubandalagið sem veit ekkert
hvað það á að gera við sjálft sig.
Slíkur flokkur á ekki að vera í ríkis-
stjómum. Hann á að vera andstöðu-
hluti kerfisins. Hann á ekki að gera
samsekan. Hann á ekki að vera
íjöldafiokkur heldur hugmynda-
banki. Þar yrði samankomið allt
skrýtna og skemmtilega fólkið, það
fólk sem hefur efasemdir um hag-
vöxtinn, er á móti karlveldinu, vill
nota lífrænan áburð á jörð og samfé-
lag; hefur sýn ljóðsins á mannfélag-
ið.
Sjálfur myndi ég kannski kjósa
slíkan flokk vegna þess að hann væri
nauðsynlegt afí - en það myndi ég
einungis gera sæll og glaður ef ég
vissi af stóram og öflugum krata-
flokki við hliðina, sem myndi sjá um
þetta allt saman.
a t a I
Atburdir dagsins
1540 Prentun lýkur á þýðingu Nýja testa-
mentisins í þýðingu Odds Gottskálksson-
ar. Fyrsta bókin sem prentuð var á ís-
landi. 1919 18 létu lffið í snjóflóðum við
Siglufjörð. 1945 Franklin D. Roosevelt,
farsæll forseti Bandaríkjanna á árum
kreppunnar miklu og seinna stríðs, deyr.
1961 Rússar senda mannað geimfar á
braut um jörðu, og Júrí Gagarín verður
þannig fyrsti maðurinn sem ferðast um
geiminn. 1989 Boxmeistarinn Sugar Ray
Robinson deyr.
Afmælisbörn dagsins
Lionel Hampton bandarískur jazzisti,
1913. Maria Callas grísk ópemsöng-
kona, 1923. Bobby Moore bresk fót-
boltahetja, lék 108 landsleiki fyrir Eng-
land, 1941.
Annálsbrot dagsins
Það vor (annan dag hvítasunnu), vom
1 2 .
drepnir ræningjar á Patreksfirði af Eng-
elskum og Islenzkum, og tekið þeirra
skip, höfðu verið dmkknir og ætlað að
ræna landið.
Ballarannáll, 1617.
Lokaord dagsins
Elsku Gerda, ég þakka þér hvem dag sem
við höfum verið saman.
Hinstu orð ítalska píanóleikarans
og tónskáldsins Ferruccios Busoni,
1866-1924, við konu sína.
Málsháttur dagsins
Oft man ég Grím með betra bragði.
Ord dagsins
Þótt haldir þú um hálan stig,
hataður og snauður,
allir lofa og elska þig,
er þú liggur dauður.
Kristján Guðlaugsson.
Bylting dagsins
Stofnuðum um þetta leyti [1922], fáeinir
„áhugamenn" vísi að leynifélagi til að
undirbúa byltingu í Reykjavík. Samdi ég
þar ásamt öðmm skolli genialt plan, er
lagt var fyrir einn leynifundinn, og fjall-
aði um skipulagningu á töku bæjarins á
einni nóttu og þar með valdatöku eða
stjómarbyltingu að morgni.
Steindór Sigurðsson rithöfundur og
Iffsnautnamaður; IVIenn og kynni.
Skák dagsins
Skák dagsins var tefld í Vín, borginni
sem eitt sinn fóstraði marga af helstu
skákmeistumm veraldarinnar. Savc-
henko hefur hvítt og á leik gegn Alcxsei
Ivanov. Hvítur vinnur lið með snoturri
fléttu og í örfáum leikjum hrynur svarta
staðan til gmnna.
1. Hxf7+! Rxf7 2. Re6+ Ke8 3. Bxb5+
Hxb5 4.Rxc7+ Kd7 5. Rxb5 Hb8 6. a4
Kc6 7. Hc3+ Hér fékk Ivanov loks nóg
og lagði niður vopn.
Faxmynd: HH