Alþýðublaðið - 12.04.1995, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
S k o ð a n
Að vera, eða vera ekki - í ríkisstjórn
„Að sigra er að tapa, og í ósigri
getur falist mikill sigur,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir, fyrrverandi
varaformaður Alþýðuflokksins, í
Pallborðið
Jón Þór
Sturluson
skrifar
frægri ræða í Keflavík síðastliðið
sumar. Þetta er að mörgu leyti lýs-
andi fyrir úrslit kosninganna. Báðir
stjórnmálaflokkarnir tapa nokkru
fylgi en halda þó meirihluta sínum á
þingi. Um leið vinnur Framsóknar-
flokkurinn verulega á, sérstaklega á
suðvesturhorninu en samt sem áður
er óvíst hvort hann fái tækifæri til
stjórnarþátttöku. Það er óneitanlega
sigur í ósigri að ríkisstjómin geti
haldið áfram árangursríku samstarfi
í önnur fjögur ár, í ljósi þess að hún
naut ákaflega lítilla vinsælda á
meðal þjóðarinnar allt undir það
síðasta á kjörtímabilinu ef marka
má skoðanakannanir.
Fækkun þingmanna Alþýðu-
flokksins úr 9 í 7 gerir það að verk-
um að valdahlutföll í endurnýjaðri
viðreisn verða líklega önnur en nú
em, enda hafa þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins lýst því yfir að taka beri
tillit til breytts þingstyrks stjómar-
flokkanna. Tæpur meirihluti á Al-
þingi kallar á vel útfærðan stjómar-
sáttmála. Innihald slíks stjómarsátt-
mála er aðalatriðið þeirra viðræðna
sem nú fara í hönd. Skipting ráðu-
neyta á milli og innan flokka er
aukaatriði að svo stöddu.
Nýliðin kosningabarátta er að
mörgu leyti sigur fyrir Alþýðu-
flokkinn. Eftir erfiða tíma, klofning
og spillingammræðu, tókst flokks-
mönnum að ná vel saman í kosn-
ingabaráttunni. Allar vangaveltur
um klofning innan flokksins til-
heyra fortíðinni og Alþýðuflokkur-
inn kemur nú fram heilsteyptur og
samstiga. Þetta er ekki síst ungu
fólki að þakka. Það var áberandi
hversu ungt fólk lét mikið til sín
taka í kosningabaráttunni og vakti
það aðra flokksmenn til dáða. Eg
vil þakka félögum mínum í Sam-
bandi ungra jafnaðarmanna hjartan-
lega fyrir stórkostlegt og óeigin-
gjarnt starf í þágu jafnaðarstefnunn-
ar á undanförnum vikum og mán-
uðum. Eg er viss um að ef þeirra
hefði ekki notið við hefði útkoma
flokksins orðið mun verri en hún
var. Auk þess sem andinn í flokkn-
um hefði vafalaust ekki náð að lifna
eins hressilega og hann gerði ef
krafta unga fólksins hefði ekki not-
ið við.
Alþýðuflokkurinn hefur skyldum
að gegna gagnvart þessu unga fólki,
og verður að taka tillit til þess í
framtíðinni, ekki síst nú í stjómar-
myndunarviðræðum. Af viðtölum
mínum við unga jafnaðarmenn nú
eftir kosningarnar er að heyra að
vilji sé fyrir áframhaldandi stjómar-
samstarfi. Við teljum einfaldlega að
það sé þjóðinni fyrir bestu. við
verðum hins vegar að tryggja að
okkar helstu stefnumál komist
áleiðis í stjómarsamstarfinu. Ef
ekki tel ég betur heima setið.
Tveir málaflokkar em ungum
jafnaðarmönnum hjartfólgnastir:
Evrópumál og menntamál. Við telj-
um nauðsyn að fá einhverja lend-
ingu í Evrópumálum í næstu ríkis-
stjórn, þannig að málið komist inn í
stjórnmálaumræðuna. Ein leið til
þess er að ný ríkisstjóm setji í gang
ítarlega athugun á áhrifum aðildar
sem stýrt yrði af nefnd sem í myndu
sitja fulltrúar stjómvalda, aðila
vinnumarkaðarins, og sérfræðingar
á sviði Evrópufræða og efnahags-
mála. Hlutverk slíkrar nefndar væri
„Nýlidin kosningabarátta er að mörgu leyti
sigur fyrir Alþýðuflokkinn...Þetta er ekki
síst ungu fólki ad þakka. Það var áberandi
hversu ungt fólk lét mikið til sín taka í
kosningabaráttunni og vakti það aðra
flokksmenn til dáða. Ég vil þakka félögum
mínum í Sambandi ungra jafnaðarmanna
hjartanlega fyrir stórkostlegt og óeigin-
gjarnt starf í þágu jafnaðarstefnunnar á
undanförnum vikum og mánuðum."
að ritstýra allri rannsóknavinnu er
tengist Evrópumálum, bæði EES og
ESB. Eitt mest aðkallandi verkefni
nefndarinnar væri að undirbúa þátt-
töku íslands í undirbúningsráð-
stefnu Norðurlandaráðs fyrir ríkjar-
áðstefnu Evrópusambandsins sem
haldin verður á þessu ári og síðan
að fylgjast grannt með framgangi
ríkjaráðstefnunnar.
Alþýðuflokkurinn sagði í kosn-
ingaþaráttunni að nú í kjölfar auk-
ins efnahagsbata væri rétt að styðja
frekar við menntun í landinu. Frek-
ari útgjöld til menntamála em nauð-
synleg. Sömuleiðis tók flokkurinn
undir með nefnd þingflokksins um
Lánasjóð íslenskra námsmanna, að
rétt væri að hefja aftur mánaðar-
greiðslur námslána, að lækka þyrfti
endurgreiðslutillit og að auka þyrfti
sveigjanleika í úthlutunarreglum.
Alþýðuflokkurinn verður að standa
við þessi fyrirheit. Fyrsta skrefið
væri að stofna alvöru viðræðunefnd
með námsmannahreyfingunum um
breytingar á lögum um Lánasjóð-
inn.
Alþýðuflokkurinn stendur fyrir
ótal önnur þjóðþrifamál sem ekki er
hægt að telja öll upp hér og ljóst er
að nokkur andstaða er við mörg
þeirra í Sjálfstæðisflokknum. Það
verður því enginn leikur að smíða
nýjan stjómarsáttmála. Alþýðu-
flokkurinn má ekki halda áfram í
ríkisstjóm með Sjálfstæðisflokkn-
um nema vemlegt tillit verði tekið
til umbótamálajafnaðarmanna. Við
megum ekki eiga þátt í að mynda
ríkisstjóm um óbreytt ástand því að
Alþýðuftokkurinn hefur skyldum
að gegna, bæði gagnvart framtíðar-
kynslóðum fslendinga og jafnaðar-
mannaflokki framtíðarinnar. Aðrir
flokkar en Alþýðuflokkurinn em
hæfastir til að viðhalda óbreyttu
ástandi.
Höfundur er hagfræðingur og formað-
ur Sambands ungra jafnaðarmanna.
Það hlaut að gerast: Plastprinsessan
Barbie er mætt á Netið - það er að
segja á Veraldarvefinn (WWW). Á
netfanginu http://deeplhought.
armory.com/~zenugirl/barbie.html
er að finna heimasíðu bandaríska of-
urbeibsins; heimasíðu sem komið
var á laggimar af hálfbiluðum Bar-
biesöfnurum er fræða okkur þar um
allt það sem við vildum alls ekki vita
um Barbie og datt ekki í hug að
spyija um. Perlumar í safninu em
tvær: Annarsvegar stórfróðleg grein
um afhverju eymalokksútgáfan af
Ken er svona hrikalega umdeild og
hinsvegar Furðufuglasirkus Barbie
þar sem gefur á að líta ýmsar útgáfúr
af dúkkunni er seint munu lenda í
búðarhillum aðgengilegum almenn-
ingi: Til dæmis Barbie tölvuþijótur
(heimskar ljóskur hvað!), Barbie
póstmorðingi (óvæntur snúningur!)
og síðan Barbie sem Nicole heitin
Simpson (frekar smekklaust!). Hve-
nær verður komið upp heimasíðu
fyrir Gaflarann - hvers á hann að
gjalda, ha...
Ekki er mikil kátína innan
Alþýðubandalagsins
vegna kosningaúrslitanna.
Flokkurinn bætti engu við
sig, þrátt fyrir að hafa verið í
stjórnarandstöðu og fengið
til liðs við sig „óháða"
frambjóðendur. Alþýðu-
bandalagsmenn standa
frammi fyrir öðru kjörtíma-
bili í stjórnarandstöðu, auk
þess sem Ólafur Ragnar
Grímsson lætur af for-
mennsku í haust. En það
eru meiri sviptingar í flokkn-
um. Framtíð Vikublaðsirts,
málgagns Alþýðubanda-
lagsins, er nú í algerri
óvissu. Hildi Jónsdóttur
ritstjóra var ýtt til hliðar í
upphafi kosningabaráttu og
Páll Vilhjálmsson settur í
hennar stól. Blaðið er hins-
vegar rekið með halla og á
frekar örðugt uppdráttar,
enda þykir það fráleitt búa
yfir sömu snerpu og Þjóð-
viljinn sálugi. Því gæti svo
farið á næstunni að enn eitt
málgagn Alþýðubandalags-
ins lognaðist útaf...
Liðsmenn Þjóðvaka reyna
að bera sig vel í fjölmiðl-
um, en innan flokksins er
bullandi gremja og
óánægja yfir slakri útkomu í
kosningunum. Sumir kenna
því um, hve alþýðubanda-
lagsmenn voru áberandi á
framboðslistum, en þeir
leiddu lista í fimm kjör-
dæmum af átta. Það voru
einmitt þessirfyrrum liðs-
menn Alþýðubandalagsins
sem áttu frumkvæði að því
að Þjóðvaki útilokaði sam-
starf við Sjálfstæðisflokkinn.
Sú yfirlýsing, ásamt örsmá-
um þingflokki, er ávísun á
pólitíska einangrun Jó-
hönnu Sigurdardóttur í
pólitík. Þannig vilja hinir
stjórnarandstöðuflokkarnir
sem minnst af Þjóðvaka
vita...
Rokktröllið síunga Rúnar
Júlíusson heldur uppá
hálfrar aldar afmæli á skír-
dag. Flann á að baki skraut-
legan feril, bæði í fótboltan-
um og rokkinu: Lék með
ÍBK, Flljómum, Trúbrot,
Geimsteini svo nokkuð sé
nefnt. Þá hefur hann spilað
og sungið á mörgum tug-
um hljómplatna. Nýlega
lauk upptökum á nýrri plötu
Rúnars og Bubba Mort-
hens en þeir stofnuðu sam-
an hljómsveitina GCD, sem
sló í gegn fyrir örfáum ár-
um. Gömlu mennirnir ætla
svo að ferðast um landið í
sumar og trylla lýðinn. En
Rúnar heldur semsagt uppá
afmælið á Hótel íslandi á
fimmtudagskvöldi, og við
heyrum að þar verði mesta
fjör ársins...
"FarSide" eftir Gary Larson.
Haninn svaradi augnaráði mínu alls óhræddur og starði
einbeittum augum á mig. Vald hans og sjálfsöryggi var
yfirþyrmandi. Fyrir neðan staldraði hæna í gættinni á
hænsnakofanum og leit varfærin í kringum sig. Ég lét
kvikmyndavélina ganga áfram. Ahh... Þeir voru óviðjafn-
anlegir: „Hænsnfuglarnir í mistrinu".
Fimm á förnum vegi
Hvaða stjórnmálaflokkar eiga að mynda næstu ríkisstjórn?
Finnborg Scheving, sér-
kennslufræðingur: Framsókn og
íhaldið eiga að mynda næstu ríkis-
stjórn.
María Fjóla Pétursdóttir, hús-
móðir: Eg vil hafa þetta óbreytt frá
því síðast: Sjálfstæðisflokk og Al-
þýðuflokk.
Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Kvennalistaforkólfur: Ég vil sjá
Kvennalistann í ríkisstjóm ásamt
þeim flokkum sem styðja okkar
helstu baráttumál heiíshugar.
Njörður Sigurjónsson, nemi:
Ég vil að Alþýðubandalag og Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi næstu ríkis-
stjóm.
Súsanna Stefánsdóttir, bréf-
beri: Ég vil að Framsóknarflokkur-
inn og Sjálfstæðisflokkurinn myndi
næstu ríkisstjóm.
Eftir að kosningaúrslitin
liggja fyrir er erfitt að sjá, að
Jóhanna Sigurðardóttir eigi
sér framtíð í íslenskum
stjórnmálum.
Víkverji Morgunblaðsins í gær.
Á Ungó, húsi Leikfélags
Dalvíkur, svífur Mávurinn inn
í hug áhorfenda. Hann þarf
ekki að elta snjóplóg.
Guðbrandur Gíslason, leikdómur
um sýningu Leikfélags Dalvikur.
Mogginn í gær.
Ég velktist ekki í vafa um
að ég vildi að þessi stjórn
héldi áfram og ég tel að
það hafi tekist.
Einar Oddur Kristjánsson, nýbakaður
alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
Mogginn f gær.
Staða Alþýðuflokksins í
þeim viðræðum hlýtur að vera
veik, en ekki skal þó afskrifa
þann möguleika að ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar sitji áfram.
Það er vissulega ekki í sam-
ræmi við skilaboð kjósenda
í kosningunum.
Forystugrein Tímans f gær.
Þó ég sé úr Vestmannaeyjum
mun ég starfa fyrir kjördæmið
allt og ekki verða eins frekar
en annarra.
Lúövík Bergvinsson, yngsti alþingis-
maöurinn, íTímanum í gær.
Niðurstaða þingkosninganna
síðastliðinn laugardag er
ótvíræð. Þjóðin hefur veitt
Sjálfstæðisflokki og Alþýðu-
flokki umboð til þess að end-
urnýja stjórnarsamstarf sitt
til næstu fjögurra ára.
Leiðari Morgunblaðsins í gær.
Skömmu fyrir miðnætti á
laugardag sáu lögregiumenn
14 ára ungling á ferli í
Háholti. Þar sem hann gat
ekki gert grein fyrir ferðum
sínum utan dyra á þessum
tíma var hann færður í
hendur foreldrunum.
Dagbók lögreglunnar. Mogginn í gær.
Bandaríski læknirinn Francis
Peyton Rous hefur þurft að bíða
lengst allra eftir að hljóta verðskuld-
uð Nóbelsverðlaunin. Árið 1911
uppgötvaði hann vírus sem veldur
ákveðinni tegund af krabbameini.
Það var síðan ekki fyrr en árið 1966
- fimmtíu og fimm árum síðar! -
sem þetta afrek Rous var dæmt
nægilega merkilegt til að vera verð-
launað af Nóbel. Vísindamaðurinn
var þá enn á lífi og enn við vinnu -
áttatíu og sjö ára gamall. Hann lést
fjórum árum seinna og var við
vinnu þangað til yfir lauk.
Byggt á Isaac Asimov's
Book of Facts.