Alþýðublaðið - 03.05.1995, Side 10

Alþýðublaðið - 03.05.1995, Side 10
10 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ1995 BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR Skjalavörður Staða skjalavarðar við Borgarskjalasafn Reykjavík- ur er laus til umsóknar. Starfið felst m.a. í að veita borgarstofnunum ráðgjöf um skjalastjórn. Óskað er eftir starfskrafti með próf í bókasafnsfræði, sagn- fræði eða aðra sambærilega menntun. Nánari upp- lýsingar veitir borgarskjalavörður í síma 632370. Umsóknarfrestur er til 12. maí nk. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda Borgarskjalasafni Reykjavíkur, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík. ÍLEIKSKÓLAR REYKJAVÍKURBORGAR Leikskólastjórar Stöður leikskólastjóra við leikskólana Holtaborg við Sólheima og Hólaborg við Suðurhóla eru lausartil umsóknar. Umsóknarfrestur ertil 15. maí nk. Leikskólakennaramenntun áskilin. Nánari upplýsingar gefur Bergur Felixson fram- kvæmdastjóri og Margrét Vallý Jóhannsdóttir deildarstjóri í síma 552- 7277. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277. B- OOO ** Allsherjar- atkvæðagreiðsla Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör á stjórn, trúnaðarmannaráði og endurskoðendum Félags starfsfólks í veitingahúsum eins og sagt er fyrir í lögum félagsins. Tillögum skal skila á skrif- stofu félagsins, Ingólfsstræti 5, 5. hæð, eigi síðar en kl. 13.00 fimmtudaginn 4. maí nk. Kjörstjórn FSV. Aðalfundur Aðalfundur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu laugardag- inn 6. maí kl. 13.15. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Endurskoðaðir reikningar liggja frammi á skrifstofu félagsins frá 28. apríl. Stjórn Dagsbrúnar. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Norrænir starfs- menntunarstyrkir MEN NTAMÁLARÁÐ UNEYTIÐ Styrkur til háskólanáms íJapan Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslend- ingi til rannsóknanáms í háskóla í Japan háskólaár- ið 1996. Ætlast er til að styrkþegi hafi lokið háskóla- prófi og sé yngri en 35 ára, miðað við 1. apríl 1996. Þar sem kennsla við japanska háskóla fer fram á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi leggi stund á japanska tungu a.m.k. um sex mánaða skeið. Umsóknum um styrkinn, ásamt staðfestum afritum prófskírteina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhóls- götu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. júní nk. Sérstök um- sóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 28. aprfl 1995. Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að byggja birgðageymslu við Óseyri 9, á Akureyri. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns- veitna ríkisins við Óseyri 9, Akureyri og Laugavegi 118, Reykjavík frá og með miðvikudeginum 3. maí 1995 gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna rík- isins á Akureyri fyrir kl. 10.00, föstudaginn 19. maí 1995, og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu: „RARIK-951004 Akureyri-Útboð 2". Verkinu á að vera að fullu lokið laugardaginn 30. september 1995. Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík. Vinnuskóli Reykjavíkur Skráning unglinga í Vinnuskóla Reykjavíkur fyrir sumarið 1995 fer fram dagana frá 2. maí til 12. maí nk. í afgreiðslu skólans, Engjateigi 11, 105 Reykja- vík, jarðhæð. Opið er frá kl. 8.20-16.15, alla virka daga. Upplýsingum um starfsfyrirkomulag Vinnuskólans sumarið 1995 hefur verið dreift til nemenda í 8. og 9. bekk grunnskóla í Reykjavík. Með upplýsingun- um fylgdi skráningarblað og skrá unglingarnir sig til vinnu með því að fylla það nákvæmlega út og skila til Vinnuskólans. Vinnuskóli Reykjavíkur. ■ Þjóðleikhúsið sýnir nýtt verk eftir Guðmund Steinsson Munu Stakkaskipti feta ífótspor Stundarfriðar? Sena úr Stakkaskiptum: Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir, Helgi Skúlason, Kristbjörg Kjeld, Edda Arnijótsdóttir, Árni Tryggvason og Guðrún S. Gísladóttir í hlutverkum sínum. Guðmundur Steinsson er höf- undur Stakka- skipta, splunku- nýs leikrits sem Þjóðleikhúsið frumsýnir næst- komandi föstu- dag, 5. maí, á Stóra sviðinu. Þetta er síðasta frumsýning vetr- arins hjá leikhús- inu. Stakkaskipti fjallar um ís- lenska nútíma- fjölskyldu, þá sömu og sagt var frá í öðru leikriti Guðmundar, Stundarfriði, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu fyrir fimmtán árum síðan. Stundarfriður naut á sínum tíma fádæma vinsælda og sáu yfir fjörtíu þúsund manns þá sýningu. Hvað hefur orðið um þessa fjölskyldu? Hvernig hefur henni reitt af? Margt hefur breyst í samfélaginu á fimmtán árum og heilmikið gerist í lífi einnar fjölskyldu á þeim tíma. Við fylgjumst með stakkaskipt- um á högum þessa fólks og fer engin kynslóð varhluta af harðnandi tímum. Samkvæmt upplýsingum Þjóðleikhússins mun leikritið vera gráglettin og beinskeytt lýsing á nútfmafólki á tímum samdráttar og breyttra lrfsgilda. Guðmundur Steinsson er í hópi okkar fremstu leik- skálda og er þetta sjöunda verk hans sem sýnt er í Þjóðleikhús- inu. Þau fyrri eru Forsetaefnið, Lúkas, Sólarferð, Stundarfrið- ur, Garðveisla og Brúðarmynd- in. Leikstjóri sýningarinnar er leikhússtjórinn sjálfur, Stefán Baldursson, leikmynd og bún- inga hannar Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir og lýsing er í höndum Páls Ragnarssonar. Leikendur eru Helgi Skúla- son, Kristbjörg Kjeld, Guð- rún S. Gísladóttir, Lilja Guð- rún Þorvaldsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Sigurður Sigur- jónsson, Arni Tryggvason, Randver Þorláksson og Edda Amljótsdóttir. In INNKAUPASTOFNUN II REYKJAVÍKURBORGAR v Útboð F.h. gatnamálastjórans í Reykjavík, er óskað eft- ir tilboðum í eftirfarandi verk. Verkið nefnist: Selja- kirkja - Torg. Yfirborðsfrágangur og snjó- bræðsla. Helstu magntölur eru: Uppúrtekt u.þ.b. 1.000 m3 Fylling u.þ.b. 900 m3 Mulin grús u.þ.b. 300 m2 Snjóbræðslulagnir u.þ.b. 3.300 m Hellulögn u.þ.b. 1.000 m2 Skiladagur verksins er 1. september 1995. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með miðvikudeg- inum 3. maí nk. gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 11. maí 1995, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Útboð Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Nor- egs og Svíþjóðar veita á námsárinu 1995-96 nokkra styrki handa íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðirtil framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmis kpnar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á íslandi. Fjárhæð styrks í Danmörku er 19.000 k.kr., í Finnlandi 27.000 mörk, í Noregi 22.400 n.kr. og í Svíþjóð 14.000 s.kr. Umsóknum um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. júní nk. Sérstök umsóknareyðu- blöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 28. apríl 1995. In INNKAUPASTOFNUN 1 REYKJAVÍKURBORGAR v Útboð F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir tilboðum í 100 m2 viðbyggingu við leikskólann Sólborg við Vesturhlíð. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 11. maí 1995, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir tilboðum í fullnaðarfrágang leikskóla og lóð við Gullteig 19. Helstu stærðir: Flatarmál húss 540 m2 Rúmmál húss 2.250 m3 Flatarmál lóðar 4.739 m2 Verkinu á að vera lokið 22. apríl 1996. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með miðviku- deginum 3. maí, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 24. maí 1995, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.