Alþýðublaðið - 12.05.1995, Page 8

Alþýðublaðið - 12.05.1995, Page 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MAÍ1995 ú t I ö n d r~ : V ■ ' ’ Hvernig framtíð mun þessi ungi snáði líta í landi sínu? Opið, lýðræðisríki með virkt margflokkakerfi eða áframhaldandi „eins flokks lýðræði" PRI? áður en hann fór ífá og Zedillo hefði getað sest að hreinu borði. Þess í stað fékk hinn nýi forseti vandamálin öll í fangið. Við Zedillo blasti tvennt: Að hreinsa upp í hrúgunni og koma þannig upp um efnahagslegan óstjóm og ábyrgðar- leysi Salinas eða lenda sjálfur í súpunni og verða fómardýrið. Hann valdi fyrri kostinn. Tímabundinn sigur f áróðursstríði Hinn póhtíski leikur ZediUos var að ráðast gegn spillingunni, alla vega á yfirborðinu: Handtökumar á Raúl Sal- inas, bróður týrmrn forseta, og á fýrr- um aðstoðarríkissaksóknara, Mario Ruiz Massieu, hafa lagst vel í fólk. Raúl er ákærður fýrir að skipuleggja morðið á Jose Fransisco sem var ann- ar valdamesti iéiðtogi PRI og bróðir Mario Ruiz. Salinas hafði hins vegar fahð Mario Ruiz til að rannsaka morð- ið á bróður sínum. Nú er hann ákærður fýrir að hylma yfir meintri aðild Raúls í morðinu og að auki grunaður um að hafa þegið miUjónir doUara í mútur af frkniefhabarónum. Carfo Salinas fýrrum forseti gekk af göflunum þegar handtökurnar voru framkvæmdar. TUskipun Zedilios var gegn öUum hefðum flokksvináttunnar og samtryggingarinnar. Zedillo hafði brotið hina óskrifuðu Camarilla-reglu um að þú vemdir þann sem gerir þér greiða eða kemur þér tU valda. ZediUo hefur þar með snúist að hluta til gegn „risaeðlunum“T flokknum. Hann hefur unnið áróðursstríðið, alla vega tímabundið. Salinas hefur orðið að sökudólgnum og gerður útlægur þótt hann neiti því r undarlegu viðtali í New York ekki aUs fýrir löngu. ■ Minnispunktar frá Mexíkó - Ingólfur Margeirsson skrifar 2. grein Ráðist gegn risaeðlunum Ernesto Zedillo, forseti Mexíkó, hefur skorið upp herör gegn spillingu og klíkuskap framtíð eigin flokks, PRI, sem hefur verið einráður í landinu í tæpa sjö áratugi. Pólitískur veruleiki endurspeglar sjaldnast þjóðfélagslegan raunveru- leika. Stjómmálalegar lausnir em alftaf þær lausnir sem em landinu eða al- menningi fýrir bestu. Þetta á ekki síst við í Mexíkó þar sem einn flokkur, PRI - Byltingarsinn- aði stofnanaflokkurinn - hefur ráðið einn ríkjum aUt frá byftingunni fýrir 65 árum. Stundum hefur þetta tímabil ver- ið nefnt „eins flokks lýðræði" vegna þess að hinn sérstaki flokkur er hvorki venjulegur byltingarflokkur né hefð- bundinn einræðisflokkur. PRI stendur frammi fyrir meiri vanda í dag en nokkm sinni. Aukið lýðræði í landinu, kröfur um sanngjamar leikreglur í kjöl- far NAFTA-samningsins við Banda- ríkin og Kanada og þrýstingur almenn- ings um hreinsun í stjómkerfinu munu breyta uppbyggingu og starfsemi PRI. Það er ekki ólíklegt að flokkurinn klofhi í nokkra flokka eða minnki efhr því sem stjómarandstöðunni vex fiskur um hrygg. PRI - sem áður hét PRN, Þjóðlegi byltingarflokkurinn - óx úr rústum byltingarinnar í lok annars áratugarins á þessari öld. Flokkurinn varð samein- ingartákn byltingaraflanna: Bænda, verkamanna og smákaupmanna. Kannski er það athyglisverðasta við mexíkönsku byltinguna, að hún bylti ekki samfélagi kapítalismans, heldur lénsskipulagi. f eðli sínu er því mexí- kanska byltingin mun líkari Frönsku byltingunni en þeirri rússnesku. Byltingarflokkurinn var stofnaður í forsetatíð Plutarco Elías Calles (1924-28) og varð að stórveldi í for- setatíð Lázaro Cárdenas (1934-40) og Miguel Alemán (1946-52). Flokk- urinn var eins konar leið mexíkana ffá upplausnarástandi byltingar til stöðug- leika og jafhvægis. Byltingarf lokkur föðurlegs valds og þjóðarsáttar PRI hefur því aldrei verið byltingar- flokkur í þeim skilningi. Flokkurinn er undarleg samsetning af sterkum stjóm- arflokki, verkalýðshreyfingu, bændum og fésýslumönnum. Leiðtogar flokks- ins hafa alltaf þurft að gæta jafnvægis milli hagsmunahópanna sem mynda stoðir flokksins. Þannig hefur flokkur- inn ákveðið hvort verkalýðshreyfingin eigi að efha til verkfalfa eða ekki, ræðir við vinnuveitendur, beri klæði á vopn- in og þar fram eftir götunum. Flokkur- inn hefur hins vegar aldrei afnumið frjáls viðskipti, samkeppni og mögu- leika einstaklingsins til að komast til auðs og valda. Flokkurinn hefur skap- að kapítalískar æðar í miðstýrðum þjóðarlíkama. Þjóðnýting auðlindanna eins og ol- íulindanna er óumdeild í dag. Þegar talið berst að hinu ríkisreknu oh'ufýrir- tæki PEMEX, sem stofnað var 1938 þegar oh'an var þjóðnýtt, svara Mexí- kanar ferðamanninum á þann veg, að auðvitað eigi þjóðin að eiga þessa auð- lind. Þeir líta á PEMEX líkt og við fs- lendingar metum fiskveiðilögsöguna. PRI hefur í áranna rás orðið að stóm, miðstýrðu föðurvaldi í Mexíkó. Sumir segja það af hinu góða. Margir Mexíkanar sem ég ræddi við, sögðu sem svo, að ekkert pólitískt afl hefði getað tryggt stöðugleika og þjóðarsátt í rúma sex áratugi nema flokkur eins og PRI. „Sjáðu hin löndin í Suður-Amer- íku,- sögðu Mexíkanar gjaman, „þar ríkir upplausn, srfelldar hallarbyltingar og fjarstýring ffá Bandaríkjunum." Klíkur og mútugreiðslur En það er ekki sama við hvem mað-. ur ræðir í Mexíkó um PRI. 'Sumir hægrimenn sem ég ræddi við sögðu sem svo um PRI: Fyrir tilstuðlan flokksins einkennist efnahagur lands- ins og stjómmálaástand af ríkissósíal- isma sem nálgast fymim Sovétríkin að uppbyggingu. Vinstri menn segja hins vegar: PRI hefur skapað hráan kapítal- isma að gerð nítjándu aldar í Banda- ríkjunum. Það er engin löggjöf gegn hringamyndun og stærstu fýrirtækin í eigu örfárra „gmpos“, - kolkrabbafýr- irtækja sem aftur eru í eigu eignar- haldsfýrirtækja bankanna. Það er því erfitt að greina á milli einkageirans og opinberra umsvifa í viðskiptalífi, verslun og peningamálum landsins. Þar að auki bætist við pólitísk spilling sem flestum hefur þótt eðlileg og er hluti af hefð landsins, með rætur allt frá lokum spænska nýlendutímans. „Mordida" er hugtak sem allir þekkja - mútugreiðslur eða gieiði sem er eðlilegur hluti af viðskiptalífmu og jafhvel þáttur af dómskerfmu. í ffam- kvæmd þýðir þetta, að þú borgar emb- ættismönnum eða pólitíkusum fýrir að koma þínum málum áleiðis í kerfmu. Annað hugtak er „Camarilla" sem þýðir klíka. Þetta er eins konar flókið net póhtískrar hollustu innan PRI þar sem stuðningsmönnum stjórnmála- manna er umbunað fyrir vel unnin störf með embættisveitingum og þar sem þeir sem komast til valda fyrir stuðning áhrifamanna í flokknum, vemda velunnara sfna í ffamtíðinni. PRI hefur verið miðstýrður valda- flokkur. Hann hefur skapað bákn emb- ættismanna og flokksgæðinga. Og þeg- ar lokinu hefur verið lyft af flokknum, ríkisstjómum fyrri ára og forsetavaldi, kemur ýmislegt í ljós. Zedillo reynir að hreinsa til Forseti Mexíkó fer með völd í sex ár samfleytt. Endurkjör er bannað með en leggur undir pólitíska Ernesto Zedillo, forseti Mexíkó: Boðar víðtækar stjórnkerfisbreyt- ingar og uppstokkun í efnahags- málum. Mun flokkur hans PRI - Byltingarsinnaði stofnanafiokkur- inn - lifa þær breytingar af? lögum. Hingað til hafa forsetar lands- ins komið úr röðum PRI. nokkurinn sameinast um sinn frambjóðanda og þótt kosningamar eigi að heita ftjálsar, liggur í augum uppi að enginn sigrar frambjóðanda PRI. Það er alvanalegt, að ffáfarandi for- seti bendi á eftirmann sinn. Þetta gerð- ist í síðustu kosningum. Carlo Salinas de Gortiari forseti valdi Emesto Ze- dillo sem eftirmann sinn. Og Zedillo sigraði í kosningunum í fýrra. Ráðgjaf- ar Zedillo vildu fella pesóann strax að loknum kosningum. Það var ekki gert. Ástæðan var stjómmálaleg. Flokkurinn vildi ekki varpa skugga á hinn glæsi- lega feril fráfarandi forseta, Salinas, í efhahagsmálum. Auðvitað hefði Salin- as átt að taka til í efnahagsmálunum Umdeildur forseti Nú hefur Zedillo snúið sér að efha- hagsvandanum; fyrst og ffemst gegn hruninu á gjaldeyrismarkaði. Zedilfo hefur verið gagmýndur fýrir ómarkvissa efnahagsstjórnun. Veik stjómun hefur verið einkenni Zedillos allt frá upphafi. Hann skipaði ekki í ráðherrastólana fýrr en á síðustu mín- útu og hann lofaði umfangsmiklu efha- hagsumbótum en frestaði stöðugt að birta áætlunina. .Xedillo er teknókrat, ekki stjómmálamaður með hugsjónir," sögðu efnahagssérfræðingar sem ég ræddi við í Mexíkóborg. Og gagnrýnar raddir segja gjaman: Hann flýtur áfram í sterkri afneitun í stað þess að leggja ffam trúverðuga stefiiu í efnahagsmál- um. Þessi harða gagnrýni er ekki alveg sanngjöm. Má vera að Zedillo hafi ver- ið tvístígandi í fyrstu en hanri sýnir vaxandi styrk og ákveðni. Tíminn virð- ist ennffemur vinna með honum. Efnahagsaðgerðir Zedillos em eink- um tvíþættar: Herða tökin á vöxtunum og reyna að fá þá niður og skera niður ríkisútgjöld. - Og leggjast á bæn - bæta Mexfkanamir gjaman við. Andstaða frá embættiskerfi og bankaheimi Það má einnig segja Zedillo til hróss, að hann hefur ekki lofað upp í ermina á sér eins og forverar hans. Hann neitar að viðhafa pólitfskt töffa- brögð eins og að skrá gengið rangt, koma á gjaldeyrishöftum, afnema fijálsa álagningu og setja á verðlagseft- irht. Hann hefur einnig boðað erfiðari tíma. Aukna verðbólgu (er nú 14% og stefnir í 40%), með tilheyrandi verð- hækkunum, uppsögnum og atvinnu- leysi og áframhaldandi hávaxtastefhu. Dæmi: Daginn eftír að Zedillo boðaði efnahagsaðgerðir sínar hækkaði raf- magn um 20% og bensínið um 35%. Zedillo hefur boðað efnahagsað- gerðir sínar án þess að ræða við verka- lýðshreyfinguna og viðskiptaheimiim eins og fýrrum PRI- forsetar hafa alltaf gert. Sterk tenging milli flokks og verkalýðshreyfingar er einnig ein ástæðan fyrir því að verkalýðshreyf- ingin í Mexíkó er fremur tannlaus. Hins vegar er ólíklegt, að verkalýðs- hreyfingin andmæh efhahagsáætlunum Zedillos - verkamenn vilja fyrst og fremst vinnu. Miklar launahækkanir koma aftar á kröfugerðarlistanum. Að- alhótunin gegn efnahagsaðgerðum Ze- dillos kemur ffá bankastofnunum, við- skiptaheiminum og embættismönnum. Embættismenn segja, að samdrátturinn í efnahagslífinu í kjölfar aðgerða Ze- dillos kosti 500 þúsund manns vinn- una. 250 þúsund hafa þegar misst vinn- una síðan pesóinn fór að falla fyrir þremur mánuðum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.