Alþýðublaðið - 19.05.1995, Side 1

Alþýðublaðið - 19.05.1995, Side 1
Hlllögur Ingibjargar Pálmadóttur heilbrigðisráðherra um lausn á kjaradeilu hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni fá slæmar undirtektir Málið er einfaldlega algjört klúður - segir Bjami Arthúrsson, framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands. „Heilbrigðisráðherra hefur sent okkur boltann til baka en við fáum engin svör um það hvernig á að leysa málið. Ráðherrann segir að það eigi að gera með samningum en fjármálaráðuneytið segir að við megum ekki gera nýja samninga. Málið er einfaldlega algjört klúð- ur,“ sagði Bjami Arthúrsson fram- kvæmdastjóri Sjúkrahúss Suður- lands í samtali við Alþýðublaðið. Um 200 hjúkrunarfræðingar á landsbyggðinni hætta störfum þann 1. júní næst komandi ef ekki tekst að ná samningum um einstaklings- bundin ráðningarkjör þeirra. Heil- brigðisráðherra hefur sent stjórn- endum sjúkrastofnana bréf þar sem tilkynnt er að þeir fái úthlutað nokkru fjármagni til að gera nýja samninga við hjúkrunarfræðinga. Þar segir einnig að fullt samræmi eigi að vera í launasetningu sjúkra- stofnana. Bjarni Arthúrsson segist ekki skilja þetta bréf. Fjármálaráðuneyt- ið sé yfir launamálunum og það banni nýja samninga við hjúkrun- arfræðinga. Ráðuneytin gangi því ekki í takt og það sé erfitt að stjóma ríkisstofnun þar sem gefin séu ein fyrirmæli í dag og önnur á morgun. „Þetta hefur skapað Ieiðinlegan Skil ekki bréf Ingibjargar, segir Bjarni. móral og tortryggni milli stjórn- enda og starfsfólks. Ég veit ekki hvort við eigum að hækka alla aðra til samræmis við hjúkrunarfræð- inga eða lækka aðra starfsmenn til samræmis við hjúkrunarfræðinga,“ segir Bjami Arthúrsson. - Siá viðtal á baksíðu. ■ Einkavæðingarnefnd vill selja fleiri fyrirtæki Ráðherrar hafa gefið ríkisfyrirtæki - segir Guðni Ágústsson alþingismaður „Ég samþykki ekki þennan lista einkavæðingarnefndar. Það kemur ekki til. Svo er það nú stórmál - ef menn gera eitthvað í þessu - að gefa ekki fyrirtækin. Ráðherrum hefur Uð- ist að gefa fyrirtæki rikisins eins og fs- landsbanka og Sfldarverksmiðjur rík- isins,“ sagði Guðni Agústsson. Framkvæmdanefnd um einkavæð- ingu hefur sent frá sér skýrslu um helstu verkefni nefndarinnar. Þar er einnig að frnna Usta yfir íyrirtæki sem nefndin telur brýnt að einkavæða. Þar á meðal eru ríkisbankamir tveir, Húsa- meistari ríkisins, Stofhiánadeiid land- búnaðarins, Rafmagnsveitur ríkisins, Sementsverksmiðjan, íslenskir aðal- verktakar, Áburðarverksmiðjan og Póst- og símamálastofhunin. „Ég hef áður svarað til um einka- væðingu ríkisbankanna. Það er skýrt og klárt að ekkert Uggur fyrir í þeim efnum. Framsóknarflokkurinn hefur ekki leyfi til annars en viðhalda afla vega einum ríkisbanka. Hans æðsta Guðni: Ég samþykki ekki þennan lista einkavæðingarnefndar. Það kemur ekki til. stofnun hefur markað þá stefnu,“ sagði Guðni. „Svo er aftur spurning um það ffammi fyrir hveiju menn standa. Nú sjáum við ÁTYR og blekkingartalið í ÉES-samningum. Við höfum skrifað undir Rómarsáttmála og verðum að gefa áfengisinnflutninginn frjálsan. Það á raunar eftir að skoða það dæmi betur. Og eins og ég benti á áðan: Eiga ráðherrar að hafa vald til að gefa fyrirtæki fólksins?", sagði Guðni Ág- ústsson. í inngangi að skýrslu formanns Framkvæmdanefndar um einkavæð- ingu segir formaður nefndarinnar, Hreinn LofLsson,, meðal annars: ,Með tilkomu framkvæmdanefndar um einkavæðingu hefur í fyrsta sinn verið reynt að samhæfa vinnubrögð við einkavæðingu og hafa yfirumsjón með henni á ákveðnum stað í stjóm- kerfinu. Er þá öðru fremur átt við söluþáttinn. Settar hafa verið sérstakar reglur um framkvæmdina sem taka mið af reynslunni. Samhæfingin hefur reynst vandaverk í ljósi þess að ein- stakir ráðherrar og ráðuneyti hafa ógjarnan viljað sleppa hendinni af framkvæmdinni. Dæmi um þetta er salan á SR-mjöli hf. sem aðeins að hluta til var á vegum nefhdarinnar." Tvær konur og ellefu aldir Þjóðminjasafhið var í gær opnað almenningi eftir að hafa verið lokað í nærfellt ár vegna viðgerða á húsinu. Enn er mikið endurreisnarstarf eftir áður en flaggskipi íslenskrar menn- ingar verður komið í skikkanlegt horf. Þegar ljósmyndari Alþýðublaðsins leit við í gær var verið að pússa og bóna áðuren fyrstu gestir kæmu. í sýningarglugg- anum er kuml frá 9. öld þarsem óþekkt vflcingaaldarkona var lögð til hinstu hvflu. A-mynd: E.Ól. ■ Eldhúsdagur á Alþingi Botninn norður á Höllustöðum -sagði Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins um stefnu ríkisstjórnarinnar. „Forsætisráðherra treysti sér ekki til í ræðu sinni hér áðan að skýra stefhu ríkisstjómarinnar í meginmálum nema í hálfkveðnum vísum. Hann tæpti á nokkmm fyrripörtum; en botnamir em upp í Borgarfirði - eða í þessu tilviki ef til vill norður á Höliustöðum," sagði Jón Baldvin Hannibalsson for- maður Alþýðuflokksins í ræðu sinni við eldhúsdagsumræðurnar í gær- kvöldi. „Orðfærið er slétt og fellt - inntakið vantar. Og hvar ern stjómarfrumvörp- in um breytingar á stjómun fiskveiða og framkvæmd GATT-samningsins, sem þetta þing á að fást við? Þau em hvergi sjáanleg. Hvað dvelur nú Orm- inn langa, Einar Oddur? Aldrei, aldrei, sagðir þú Vestfirðingum fyrir kosningar, myndir þú styðja ríkis- stjóm, sem héldi fram óbreyttri sjávar- útvegsstefnu Þorsteins Pálssonar og Halldórs Ásgrímssonar," sagði Jón Baldvin. Formaður Alþýðuflokksins þakkaði þeim 19 þúsund kjósendum sem veittu Alþýðuflokknum og málefnum hans brautargengi í kosningunum. En afl atkvæðanna hafi ekki verið nóg til að tryggja að stefna jafnaðarmanna yrði áfram mótandi afl í stjóm landsins. „Það er ekki við ykkur að sakast. Kosningaúrslitin sýna ótvírætt, að hefðu forystumenn okkar borið gæfu til að varðveita samstöðu hreyfingar okkar jafnaðarmanna, þá hefði Al- þýðuflokkurinn styrkt stöðu sína í kosningunum; og vafalaust verið áfram við völd - í aðdraganda nýrrar aldar. Heimilisbölið er því þyngra en támm taki. Fyrir vikið em jafnaðar- menn án afgerandi áhrifa á stjórn landsins. Fyrir vikið var Framsóknar- flokknum afhent lyklavöldin í stjóm- arráðinu og Páli Péturssyni félags- málaráðuneytið. Fyrir vikið var forðagæslumönnum framsóknarkerfisins gefið tækifæri til að renna saman í nýja helmingaskipta- stjóm; um varðveislu sérhagsmuna og óbreytt ástand. Þeir kjósendur sem létu telja sér trú um að leiðin til að Jón Baldvin: Ríkisstjórn dauflyndra kerfisflokka. sameina jafnaðarmenn væri að sundra þeim, hljóta nú að naga sig í handar- bökin. Ékki vantaði að við vömðum við því í kosningabaráttunni að ein- mitt þetta yrði lfldegasta niðurstaðan, ef Alþýðuflokkurinn bæri skarðan hlut frá borði í kosningunum. Þetta em dýrkeypt mistök. Það mun koma í ljós á þessu kjörtímabili, hvort við getum sameiginlega látið okkur mistökin að kenningu verða og gert það sem skyldan býður til að bæta fýrir þau,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Formaður Alþýðuflokksins minnti á að innri veikleiki og óleyst vandamál blasa við þegar horft er til framtíðar og sagði: „Lausnir á þessum vandamálum kalla á langtímahugsun, áræði og um- bótavilja ffammi fýrir varðstöðu kerfi- slægra sérhagsmuna. Og það er ein- mitt slflca langtímahugsun, stefhufestu og framtíðarsýn sem hvergi er að finna, hvorki í svokallaðri stefnuyfir- lýsingu stjómarflokkanna né heldur í ræðu forsætisráðherra hér í kvöld. Það er það sem vantar. Og það er það sem vekur ugg í bijóstum fijálslyndra og umbótasinnaðra Islendinga, þegar þeir hugleiða hlutskipti þjóðarinnar undir stjóm þessara dauflyndu kerfisflokka - allt til aldamóta," sagði Jón Baldvin Hannibalsson. ■ Alþýðublaðið Þröstur Þórhallsson skrifar um skák Alþýðublaðinu hefur bæst góður liðsauki þarsem er Þröstur Þór- hallsson skákmeistari. Hann mun á næstunni skrifa vikulega pistla í blaðið. Þröstur, sem er fæddur 1969, er alþjóðlegur meistari í skák, og vantar aðeins einn áfanga til að ná stórmeistaratitli. í dag skrifar Þröstur um glæsileg- an árangur íslensku skáksveitarinn- ar á Ólympíumóti 15 ára og yngri. - Siá blaðsíðu 7.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.