Alþýðublaðið - 19.05.1995, Side 5

Alþýðublaðið - 19.05.1995, Side 5
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 ■ Einar Bragi rithöfundur hefur unnið stórvirki. Hann hefur gefið Ibsens en hann skrifaði 22 leikrit um dagana. Einar Bragi var rúm Jakob Bjarnar Grétarsson ræddi við hann um lömuð útgáfumál á með þýðingar og sjálfumgleði leikstjóra út þýðingar sínar á 12 leikritum þrjú ár að vinna verkið og Islandi, hringlandahátt Það er ekki gróðavænlegt að gefa út leikrit á íslandi og Einar Bragi rithöf- undur hefur orðið var við það. Forlög hafa ekki treyst sér til að taka hin miklu verk hans, þýðingar á leikritum Strindbergs og nú Ibsen, tveggja höf- uðskálda norrænnar leikritunar, til út- gáfu. Einar Bragi hefur því gripið til þess ráðs að gefa þau út sjálfur. Hann segir aðspurður að sum leikrit séu gagngert samin fyrir bók og þar af mörg bestu og þekktustu verk Ibsens sem síðar hafa verið sviðsett um allan heim svo sem Brandur og Pétur Gaut- ur. Þegar þau eru samin var öldin önnur. Þá voru leikrit gefm út og seldust í tugþús- unda eintaka áður en þau voru sett á svið. „Áður fyrr las fólk leikrit sér að fullu gagni og til mik- illar ánægju og ég skil ekki hvers vegna svo ætti ekki að vera enn í dag. Það er sann- færing mín að það sé erfitt að fá alvöru leiklist til að ná fullum blóma ef klassískar leikbókmenntir heimsins eru ekki til á tungum viðkom- andi þjóða. Eins hlýtur það að vera örðugt að ala upp unga leikara ef þeir eiga ekki aðgang að þeim á sinni eigin tungu því þeir auðvitað munu vinna sitt verk hér á landi og miða allan flutning við að hann fari fram á ís- lensku." Útgáfa í uggvæn- legum sporum Einar Bragi segir útgáfú á íslandi háskalega illa á vegi stadda í dag og nefnir um tug forlaga sem hafa gefið upp öndina. Ekkert sambærilegt hafi komið í staðinn hann tel- ur það hreinlega vega að andlegu ffelsi manna að ekki séu nokkur forlög á landinu sem eru sæmilega á vegi stödd og geti keppt hvert við annað. ,Það er helvítis ólán þegar maður er kominn með svona stór verk og verður að horfast í augu við það að útgefend- ur þora ekki að leggja í útgáfu af ótta við að verða fyrir margmilljóna tapi. Ég býst við að sýna megi það með út- reikningum á þennan venjubundna máta að þetta sé óvinnandi verk. Ég man mjög vel eftir setningu sem Hall- dór Guðmundsson hjá Máli og menningu sagði. Það voru greinilega vomur á honum. Honum þótti ekkert gott að þurfa að neita að gefa út Strindberg og skammaðist sín fyrir það undir niðri býst ég við. Hann er afskaplega þenkjandi og segir: Ef við ekki gerum það þá gerir það enginn." Sem var afskaplega eðlileg ályktun. En þama kom fram sá ljóður að eiga bágt með að hugsa eftir óvenjulegum leiðum. Og af því að þetta var óvenju- legt verkefni varð að hugsa á annan máta og finna aðra leið.“ Finnst þér þá metnaðarleysi ein- kenna útgáfu á íslandi? ,JÉg veit ekki hvað á að segja. Hún er einhvem veginn að lyppast niður. Þetta er hræðilegt ástand í íslenskri bókaútgáfu. Nú er svo komið að að- eins eitt forlag gnæfir yfir öll hin og er orðið svo fyrirferðarmikið að ég tel það stórhættulegt. Þar á ég við Mál og menningu. Að eitt forlag sé svona yfirgnæfandi á markaðnum er mjög viðsjárvert." Hrokafullir leikstjórar Leikrit era í æ minna mæli miðuð við að vera lesin. Með aukinni tækni í leikhúsi hefur texti orðið takmarkaðari þáttur í leiksýningum. Einar segir þetta kost og geri mönnum kleift að fá í sýn- ingu það sem gömlu skáldin dreymdi um. En þama er ákveðin hætta. „Kannski hefur þetta átt sinn þátt í að valda ákveðnu virðingarleysi fýrir textanum," segir Einar Bragi. „Mér finnst þess gæta á seinni árum að leik- stjórar séu allt of frakkir og frekir í meðferð sinni á texta, jaftivel klassísk- um texta, og líta svo á að þeir geti far- ið með hann eftir eigin geðþótta. Mér finnst þetta afskaplega hvimleitt og einhver leiðinleg sjálfumgleði í því fólgin að halda að menn geti bætt um fyrir skáldum. Það er ekki á hvers manns færi og menn ættu að fara var- lega í það.“ Ástæðulaust að hrófla við Matthíasi og Einari Ben. Það leikrit Ibsens sem hefur haft einna mest áhrif á Einar Braga, en hann sá uppfærslu á því leikriti í Stokkhólmi fyrir um 40 árum, er Brandur. Brand hefur Einar Bragi hins vegar ekki þýtt. „Nei það fannst mér út í bláinn úr því að hún er til prentuð í þýðingu Matthíasar Jochumssonar. En hefði farið svo eins og gerst hefur um marg- ar aðrar þýðingar, að hún hefði legið einhvers staðar og rykfallið í handriti, þá hefði það komið til áhta. Eins með Pétur Gaut sem Einar Benediktsson hefur þýtt með ágætum, þýðing sem er klassísk í sjálfu sér, heftir verið gefið út oftar ein einu sinni og menn eiga aðgang að. Mér finnst reyndar skaði að ýmsar þýðingar skuh ekki hafa verið geftiar út. Ég tek sem dæmi þýðingu Hall- dórs Laxness á Villiöndinni, eða Önd- inni villtu eins og hann kallaði sína þýðingu. Hann þýddi þetta verk fyrir Þjóðleikhúsið fyrir um 40 árum. Af einhveiju ástæðum hefur hann aldrei gefið það út. Hvort þama hafi verið einhver fyrirstaða hjá útgefendum? Ég veit ekkert hvemig á þessu stendur? Og margir góðir þýðendur hafa þýtt leikrit Ibsen, menn eins og Bjami frá Vogi og Indriði Einarsson og Ámi Guðnason, en þetta hefur legið ára- tugum saman í skúffum og ég veit ekki hvar. Sumum hefur kannski ftmd- ist að það mætti sanka þessum verkum saman og gefa út safti þeirra í þýðing- um ýmissa en það er aðferð sem ég aðhylhst ekki. Hringlandaháttur og ósamræmi í þýðingum „Ég las sem ungur maður kver sem Alexander Jóhannesson prófessor tók saman,“ segir Einar Bragi. „Þar mátti finna 18 þýðingar jafti margra þýðenda á ljóðum Heine. Elstur er Jónas Hall- grímsson og sá yngsti Árni Ola sem lengi var blaðamað- ur við Mogga. Ég var alveg grallaralaus og hugsaði sem svo: Voðalega hefur hann ver- ið einkennilegt skáld þessi Heine. Ég var reyndar ekki svo vitlaus að ég vissi ekki að þetta var harla gott skáld. En þegar aUtaf breytti um tungu- tak við hverja nýja þýðingu var þetta eins og að hlusta á bókmenntalegan búktalara sem sífellt breytti um rödd. Mér fannst þetta svo hroðaleg meðferð á stórskáldi að ég hef aldrei getað gleymt því. Sfðar hefur svoldið verið gert af þessu líka. Ég fékk hingað stóra bók heim með verkum Astrid Lindgren sem Mál og menning gaf út. Þar var sinn þýðandinn að hverju verkinu. Margar þess- ara þýðinga vora mjög góðar hver um sig en þegar bókin var lesin og aUtaf breytti um málfar þá leyst mér ekki á blikuna. Þess vegna er ég miklu hlynntari þvf vinnulagi sem menn eins og Helgi Hálf- danarson hafa haft sem þýðir allan Shakespeare. Það er mjög gott og þarft verk. Eða Þorgeir Þorgeirson sem þýðir megin- hlutann af skáldsögum Williams Heinesens. Nú, Jón Sigurðsson frá Kaldaðamesi, þýddi flestar skáldsögur Knut Hamsun. Svona þarf þetta helst að vera. Það er ekki góð meðferð á góðum skáldum að ótal margir séu að grauta í þeim jafnvel þó hver um sig geti verið góður þýðandi. En karmski er ekki aUtaf auðvelt að fá góðan þýð- anda til að taka höftind í fóstur. Nú er þetta að gerast með góða skáldkonu, Isabelle Allende. Fyrsta bókin eftir hana kom út fyrir nokkrum árum í þýðingu Thors Vilhjálmssonar, fín saga og vel þýdd, Hús andanna. Síðan er búið að gefa út nokkrar skáldsögur eftir hana og aUtaf breytt um þýðanda: Tómas R. Einarsson og Berglind Gunnarsdóttir... ágætir þýðendur en mér lýst ekki á aðferðina. En gæti þá ekki farið svo að tveir menn tækju sama skáldið í fóstur og færu að bítast um það? ,Já, það auðvitað gæti vUjað svo iUa til. Og þó þeir væra ekkert að bítast um það, rithöfundar vinna oftast í kyrrþey, þá gæti farið svo að tveir menn væra óvUjandi að fást við sama höfundinn samtfmis. Ég hef orðið fyrir því einu sinni að ég þýddi skáldsögu eftir Hans Kirk og hafði skriflegt leyfi hans til þess. Svo sest ég við og þýði bókina, hún heitir Þrællinn, en þá vill ekki betur til en svo að Kristinn E. Andrésson hitti Kirk síðar og biður um sama leyfið. Kirk veitir honum það búinn að gleyma hinu. Svoleiðis að við voram tveir að þýða sömu bók- ina. Pálmi H. Jónsson ætlaði að gefa út þýðingu mína en þeir hjá MáU og menningu urðu á undan. Þetta var svo gert upp þannig í sátt að Hans Kirk skrifaði mér og baðst fyrirgefningar, honum hafði bara orðið á gleymska, og tók sjálftir á sig að greiða þýðingar- launin. Handritið liggur vísast ein- hversstaðar í dánarbúi Pálma H. Jóns- sonar. Ég hef aldrei séð það síðan. Talmálið endist illa Einar Bragi segir ólíkt að þýða skáldsögu og leikrit einkum vegna þess að leikrit byggist eingöngu á sam- tölum. „Maður þarf alltaf að hafa í huga hvemig þetta hljómar í eyrum áheyrenda. Einnig að það sé sæmilegt fyrir leikarann að koma því út úr sér. Skáldsaga byggist meira á lýsingum og óbeinni ræðu. Menn era stundum verið að fetta fingur út í þýðingar á leikritum og segja þær of bókmálsleg- ar. Þama er margt að athuga. Höfund- ar eins og Strindberg og Ibsen sömdu ekki leikrit á venjulegu talmáli. Þeir hafa sitt eigið tungutak og ég efast um að maður gæti nokkurs staðar heyrt sænsku eða norsku talaða á þann hátt sem þeir skriftiðu verk sín. Þetta era auðvitað bókmálsverk á vissan máta og sum meira að segja ekki samin með sviðsetningu í huga.“ Nú virðist manni skilja á milli tal- máls og ritmáls, meðan talmálið rokkar til og frá heldur ritmálið sínu striki? Og sé texti manns eins og Guðmundar Kamban skoðaður þá eldist hann illa með hliðsjón af nútíma talmáli? ,Já, það er kannski vegna þess að hann hafi farið of mikið að þessum óskum manna að skrifa það sem þeir kölluðu þá eðlilegt talmál. Það getur einmitt enst mjög illa. Það þarf enginn að ímynda sér það að höftindur eins og Strindberg eða Ibsen hafi verið að skrifa eitthvað sem gæti kallast eðli- legt götumál í Reykjavík árið 1995. Mér dytti auðvitað aldrei í hug að þýða verkin þeirra á slrkt mál, þó ég gæti, sem ég get reyndar alls ekki.“ Margar þýðingar Einars Braga hafa verið færðar á svið. Hvernig er samskiptum Einars Braga háttað við Ieikstjóra? „Yfirleitt fara leikstjórar ffam á það að ég sé með á fyrsta samlestri og ef óskir koma fram um lagfæringu á ein- hverju sem mönnum finnst stirt þá reyni ég ævinlega að bæta úr því. Strindberg sagði oft við leikstjóra: Hvers vegna í andskotanum strikið þið þetta ekki út? ef eitthvað var að þvæl- ast fyrir þeim. Ég er ekki heldur púrít- anskur í þeim skilningi." Styrkir til framhalds- náms í dönsku Danska menntamálaráðuneytið veitir á skólaárinu 1995-96 íslenskum dönskukennurum þrjá styrki til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla í Danmörku. Styrkirnir verða veittir: 1. Starfandi dönskukennurum í grunn- og framhaldsskól- um, sem lokið hafa að minnsta kosti BA-prófi í dönsku eða BEd-prófi með dönsku sem valgrein. 2. Háskólastúdentum sem lokið hafa því námi sem tilgreint er í lið 1. hér að framan og vilja búa sig undir dönsku- kennslu með frekara námi. Styrkþegar þurfa sjálfir að afla sér skólavistar í háskóla- stofnunum í Danmörku, en danska menntamálaráðuneytið mun að einhverju leyti geta haft milligöngu um að útvega styrkþegum skólavist. Fái styrkþegi ekki skólavist skólaárið 1995/96 er honum heimilt að nota styrkinn á skólaárinu 1996/97. Hver styrkur er að upphæð 50.000 danskar krónur, og skal notaður til að greiða ferðakostnað, uppihald og annan kostnað í Danmörku. Umsóknum um styrkina fyrir skólaárið 1995/1996 sendist fyrir 12. júní 1995 til: Dansk-islandsk Fond Skt. Annæplads 5 DK-1250 Kpbenhavn K Umsóknunum skulu fylgja upplýsingar um fyrra nám og störf umsækjenda. Jafnframt skal gerð grein fyrir fyrirhug- uðu námi eða rannsóknum. Nánari upplýsingar veitir formaður Dansk-islandsk Fond: Professor Hans Bekker-Nielsen Odense Universitet Center for Nordiske Studier Sími (0045) 6615 8600 Einar Bragi. „Það er helvítis ólán þegar maður er kom- inn með svona stór verk og verður að horfast í augu við það að útgefendur þora ekki að leggja i útgáfu."

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.