Alþýðublaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 2
2
S
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ1995
n
MÞMBUÐID
20925. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Blóðbað í Tuzla
Á fimmtudagskvöldið slátruðu Serbar meira en 70 ungmennum
í borginni Tuzla í Bosmu. Fómarlömbin voru á aldrinum 14 til 28
ára. Á sama tíma létu foringjar Bosníu-Serba birta myndir af frið-
argæsluliðum Sameinuðu þjóðanna sem vom hlekkjaðir einsog
sláturdýr á hemaðarlega mikilvægum stöðum, til að koma í veg
íyrir ífekari loftárásir NATO.
Þessir atburðir hafa vitanlega vakið upp holskeflu óhugs og
andúðar í garð Bosníu-Serba. Það er hinsvegar fyrst og fremst til
marks um ólæknandi sjálfsblekkingu alþjóðasamfélagsins að ein-
hver skuli láta koma sér á óvart þegar Serbar setja ný met í villi-
mennsku. Stríðið á Balkanskaga hefur nú staðið í rétt Qögur ár.
Allan þann tíma hafa ráðamenn heimsins fylgst með helför sem á
sér enga samsvömn í seinni tíma sögu Evrópu. Tahð er að meira
en tvöhundmð þúsund manns, langmest óbreyttir borgarar, hggi í
valnum. í Bosníu bjó hálf fimmta milljón þegar stríðið hófst.
Með „landhreinsunum" hafa Serbar flæmt meira en tvær milljón-
ir manna frá heimilum sínum: og hundmð þúsunda hafa verið í
herkví, í Sarajevo, Tuzla og fleiri borgum. Serbar urðu líka fyrstir
seinni tíma hermanna til að nota kerfísbundnar nauðganir sem
vopn í stríði. Og fyrir tveimur ámm birtu fjölmiðlar ömurlegar
myndir frá fangabúðum Serba, myndir sem virtust ættaðar rak-
leitt frá útrýmingarbúðum nasista.
Linkind og ráðaleysi alþjóðasamfélagsins gagnvart Serbum er
óafmáanlegur smánarblettur. í kjölfar síðustu atburða hafa menn
rokið til og vilja nú skyndilega setja Serbum úrslitakosti. Þetta er
ekkert nýtt. Með reglulegu milhbili síðustu ljögur ár hafa 'ráða-
menn gasprað í fjölmiðlum um að segja við Serba hingað og ekki
lengra. Allar slíkar ráðagerðir hafa hinsvegar gufað upp í sömu
mund og athygli fjölmiðla beinist að öðmm málum. Þetta vita
Serbar. Þeir vita líka að póhtísk samstaða næst ekki milli voldug-
ustu ríkja heims um aðgerðir. Þessvegna bera vitfirringamir sem
myrtu tugi ungmenna í Tuzla ekki höfuðábyrgð á blóðbaðinu.
Ábyrgðin liggur hjá þeim máttlitlu og ótrúverðugu leiðtogum
heimsins sem hafa leyft Serbum að ganga sífellt lengra.
Pósturinn Páll og bjúg-
verpillinn frá Brussel
Páll Pétursson félagsmálaráðherra hefur í nógu að snúast þessa
dagana við að opna póstinn frá Brussel. í gær var til umræðu á
Alþingi stjómarffumvarp, sem félagsmálaráðherra flutti, um at-
vinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðis-
ins (EES). Fyrir örfáum misserum var sami Páll Pétursson
fremstur í flokki málþófshðsins á Alþingi sem barðist með kjafti
og klóm gegn aðild íslands að EES.
Öfugmælasafn Páls Péturssonar og félaga er varðveitt í Alþing-
istíðindum og verður mönnum ævarandi vitnisburður um hvemig
pólitísk glámskyggni og vanþekking náðu áður óþekktum hæð-
um í íslenskum stjómmálum. Hinn 25. ágúst 1992 sagði Páll Pét-
ursson við umræður á Alþingi: „Með svipuðu lögmáh og vatnið
rennur undan brekkunni, hlýtur atvinnuleysi hér að aukast til
stórra muna og innstreymi erlends vinnuafls hlýtur að taka at-
vinnu frá íslendingum og atvinnuleysisstig hér að verða svipað
og annarsstaðar á svæðinu."
Páll Pétursson - ráðherra atvinnumála - skuldar skýringu á því
hvemig þyngdarlögmálið hefur breyst á þremur ámm. Þangað til
sú skýring liggur fyrir, er hætt við að hann verði enn og aftur
fómarlamb bjúgverpilsins frá Brussel. ■
„Halldór Ásgrímsson er traustur og áreidanlegur stjórnmálamaður.
Hann er sá maður sem íslenska þjóðin þarf sem forsætisráðherra.
Halldór Ásgrímsson er traustur og ábyggilegur stjórnmálamaður...
Til lengdar hljómaði þetta einsog Zetor-auglýsing: traustur,
áreiðanlegur, kraftmikill. Greiðslukjör við allra hæfi."
Dóri Zetor spænir í stjórnarráðið
Til upprifjunar fyrir Guðna vin minn og fleiri góða menn.
Gott og vel: stjómmál snúast um
málamiðlanir. En er samt ekki einum
of mikið af því góða að þurfa að éta
ofan í sig heila kosningastefnuskrá?
Þetta er því miður hlutskipti stórvina
minna í Framsóknarflokknum. Davíð
Oddsson raðaði þeim á garðann í
stjómarráðinu og hefur síðan alið þá á
margvíslegu hnossgæti úr loforða-
pakkanum sem afhentur var hæstvirt-
um kjósendum fyrir örfáum vikum.
Einsog gengur
J
Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi
að taka þátt í framboðsfundum á Suð-
urlandi með Guðna Ágústssyni odd-
vita Framsóknarflokksins. Guðni er
maður sem ekki bifast svo léttilega og
straumar tímans láta hann að mestu
ósnortinn. Ræðutækni Guðna er líka
um margt einstök. f púlti er hann ein-
sog meitlaður í stuðlaberg, velur orðin
af gætni og raðar þeim einsog gijót-
garði í kringum sig. Hann er atkvæða-
langur stjómmálamaður. Hann meira
að segja hlær löturhægt og yfirvegað.
Á fundum með Guðna komst ég
ekki hjá því að heyra ýmisleg váleg
tíðindi. Þannig var nefnilega mál með
vexti að ríkisstjóm Davíðs Oddssonar
var að fara með okkur þráðbeint til
helvítis. í stuttu máli: Landbúnaðar-
málin voru í rúst. Húsnæðismálin vom
í rúst. Menntamálin vom í rúst. At-
vinnumálin vom í rúst. Sjávarútvegs-
málin vom í rúst. fsland var í rúst.
Rústir fyrir íslendinga.
Heljarþröm
Guðni Ágústsson var ekki einn um
að flytja þjóðinni svartagall í kosn-
ingabaráttunni. Bölmóður Framsóknar
var svo yfirgengilegur að jafnvel Jóka
& Ólafur Ragnar, heimsendaspámenn
par exellance, urðu hjáróma og dauð-
yflisleg í samanburði. Halldóri tókst
að sannfæra æði marga um að Davíð
og Jón Baldvin væm í þann veginn að
flytja lögheimili íslensku þjóðarinnar
á Heljarþröm.
Maður hefði þessvegna búist við
því, að þegar björgunarsveitir Fram-
sóknar kæmust loksins í stjómarráðið
yrði snimmendis lýst yfir neyðar-
ástandi. Meðan verið væri að hrinda í
framkvæmd hjálpræði Halldórs og
Guðna: 12 þúsund ný störf, hærri hús-
næðislán, afnám skólagjalda, eyðing
ríkissjóðshalla, lægri vextir, launa-
hækkanir, ný landbúnaðarstefna,
skattalækkanir... muniði? (Aukþess
sem nýr þingmaður Framsóknar í
Reykjavík tók að sér, samkvæmt aug-
lýsingu, að jafna atkvæðavægi og
uppræta ofbeldi á heimilum.)
Greiðslukjör við allra hæfi
Og nú stjóma þessar elskur landinu.
Að vísu varð Halldór ekki forsætisráð-
herra einsog hann hafði lofað kjósend-
um. Okkur Guðna fannst það náttúr-
lega miður. Það máttu vita Halldór: í
Aratungu, á Hvoli, Laugarvatni, Sel-
fossi... alstaðar buldu sömu setning-
amar úr munni hins einarða oddvita
sunnlenskra framsóknarmanna: Hall-
dór Ásgrímsson er traustur og áreiðan-
legur stjórnmálamaður. Hann er sá
maður sem íslenska þjóðin þarf sem
forsætisráðherra. Halldór Ásgnmsson
er traustur og ábyggilegur stjómmála-
maður. Hann verður betri forsætisráð-
herraen...
Til lengdar hljómaði þetta einsog
Zetor-auglýsing: traustur, áreiðanleg-
ur, kraftmikill. Greiðslukjör við allra
hæfi.
Réttur dagsins: Loforðasúpa
Já, Dóri 2fetor spændi sannarlega í
stjómarráðið. En einungis til að verða
húskarl hjá Davíð. Menn geta vitan-
lega deilt um hvort kosturinn er rýr:
kosningaloforðasúpa í hvert mál.
En illa þykir mér komið fyrir grand-
vörum hugsjónamanni á borð við
Guðna Ágústsson. Hann trúði því
sannarlega fyrir átta vikum að allt
væri í rúst. Bókstaflega allt.
Og nú fær hann ekkert ffarn af því
sem hann lofaði kjósendum. Bókstaf-
lega ekkert.
Ekki einu sinni blessaða ofurtoll-
ana, sem hann sór og sárt við lagði á
Hvoli og í Aratungu að yrði skilyrði
fyrir þátttöku Framsóknar í ríkisstjóm.
Og svo ætla þeir jafnvel að einka-
væða Búnaðarbankann okkar. Hvað
gera bændur þá? Maðurinn lifir ekki á
kosningaloforðum einum saman.. .■
a t a I 3 0.
m a
Atburðir dagsins
1431 Jóhanna af Örk, frelsis-
hetja Frakka, brennd á báli af
Englendingum í Rúðuborg.
Hún var 19 ára. 1593 Enska
leikskáldið Christopher
Marlowe, 29 ára, drepinn á
búllu í Lundúnum. 1768 Eggeit
Ólafsson varalögmaður og
skáld drukknar á Breiðafirði
ásamt eiginkonu og sex sam-
ferðamönnum. Hann var 42
ára. 1788 Franski heimspek-
ingurinn Voltaire deyr. 1940
30 handteknir fyrir ólæti á
knattspymuleik milli Fram og
Víkings.
Afmælisbörn dagsins
Peter Carl Fabergé rússnesk-
ur gullsmiður, kunnastur fyrir
gullpáskaegg sem keisarahjón-
in gáfu dætram sínum árlega,
1846. Mel Blanc maðurinn
sem lagði Kalla kanínu úl rödd
sína, 1908. Benny Goodman
bandarískurjazzmeistari, 1909.
Annálsbrot dagsins
í Holtum átti 16 eða 17 vetra
gamall piltur bara við karlægri
konu spítelskri, sem varla var
flutningsfær.
Setbergsannáll, 1694.
Lokaorð dagsins
Ó, Rúðuborg, ég óttast að sá
dagur komi að þú iðrist dauða
míns.
Hinstu orö Jóhönnu af Örk, sem
dó á bálkesti í Rúöuborg, þennan
dag fyrir 564 árum.
a
Byltingarmaður
dagsins
Hann réðst á konungsvald og
auðvald og kirkjuna. Hann svf-
virti þetta allt af hlæjandi fögn-
uði. Hann þurrkaði með því
forugt gólfið. Hann réðst á
mannfélagið sjálft. Hann trúði
á byltinguna miklu, sem steypir
öllum nútíðarvöldum af stóli
og leiðir frelsið og jafnréttið til
öndvegis.
Einar H. Kvaran um
Þorstein Erlingsson.
Málsháttur dagsins
Áf útförum sést auðna seggja.
Orð dagsins
Hvað varðar þá um vatnið,
sem vínið rauða teyga?
Hvað varðar þá um jörðina,
sem himininn eiga?
Davíö Stefánsson frá Fagraskógi.
Skák dagsins
Akopjan hinn rússneski stór-
meistari hefur unnið marga
góða sigra. Hér sjáum við
hvemig hann jarðar auðnulaus-
an Stambuljan með einum
einasta leik. Hvað gerir hvítur?
1. Hxg5!! Glæsilegt. Stambulj-
an gafst upp: 1. ... hxg5 2.
Dh5+ og mát er óumflýjanlegt.
JÓN ÓSKAR