Alþýðublaðið - 13.06.1995, Page 5

Alþýðublaðið - 13.06.1995, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ1995 S ALÞÝÐUBLAÐK) á 3 5 samtakanna. Fyrir tuttugu árum var stöðvun slátrunar á bamungum selum miklu brýnna úrlausnarefni heldur en - svo tekið sé eitt dæmi - eyðing ósonlags- ins sem þá hafði reyndar enn ekki verið uppgötvað. Greenpeace gátu þá notað svokallaða lostmeðferð og sýnt viðurstyggilegar myndir af sela- bömum sem barin vom til dauða og þetta dugði auðvitað prýðilega til að skelfa almenning til aðgerða. En á þessum tuttugu ámm sem lið- ið hafa er ósonlags- eyðingin orðin að máli málanna þrátt fyrir að hita- stig tilfinninganna hafi kannski um- talsvert lækkað. Ósonlagseyðingin kallar á flóknari og raunhæfari úr- lausnir en áður fyrr var gripið til - Iíktog þá að hanna og kynna óson- vinalega kæliskápa í samvinnu við stórfyrirtæki. Enn ein ástæðan fyrir Greenpeace til að breyta um starfsaðferðir er sú staðreynd að samtökin em orðin svo myndafræðilega umhverfísstríðinu. Þarafleiðandi em sífellt fleiri græn- friðungar þeirrar skoðunar að tíma- bært sé að skipta frá starfsaðferðum sem beinast að því að gera almenn- ing meðvitaðri um ástand umhverfis- mála og snúa sér að starfi sem bein- ist að því að finna skynsamlegar lausnir á aðkallandi vandamálum. Og Þjóðverjinn Thilo Bode þarf ekki að leita langt yfir skammt eftir úrlausnarefnum f anda nýrra starfs- aðferða sökum þess að Rheinisch- Westfaelische Elektrizaetswerke, stærsti raforkuframleiðandi Þýska- lands, hefur nú fjárfest hvorki meira né minna en 896 milljarða króna í brúnkola-brennsluofns orkubúum. En slíkir brennsluofnar eru einmitt hvað síst umhverfisvinalegir af öll- um aðferðum sem þekktar eru til orkuframleiðslu. Fyrir nokkrum árum hefði svar Greenpeace-samtakanna verið að hertaka orkubúin í beinni útsendingu „Fyrir nokkrum árum hefði svar Greenpeace- samtakanna verið að hertaka orkubúin í beinni útsendingu fjöl- miðla með miklum fjölda herskárra um- hverfisstríðsmanna, klífa reykháfa í mikl- um móð og hylja þá stríðsyfirlýsingaflögg- um og skilið það verk- efni að finna raunhæf- ar úrlausnir eftir fyrir aðra til að glíma við. En tímarnir breytast og mennirnir með." fjölmiðla með miklum fjölda her- skárra umhverfisstríðsmanna, klífa reykháfa í miklum móð og hylja þá stríðsyfirlýsingaflöggum og skilið það verkefni að finna raunhæfar úr- lausnir eftir fyrir aðra til að glíma við. En tímarnir breytast og menn- imir með. Nútímamaðurinn Bode er þegar tekinn til við að fást við þetta nýtil- orðna vandamál í bakgarði sínum og hefur lagt til úrlausnir sem fela í sér orkubúskap með öðrum aðferðum sem kosta álíka mikið og brúnkola- ofnarnir, en veita helmingi minna magni af eiturefnum (mestmegnis karbón-mónoxíði) útí andrúmsloftið. f dag hvílir Rainbow Warrior á hafsbotni - nánar tiltekið á 22 metra dýpi skammt undan eyjunni Motuta- pere - ekki svo ýkja langt frá staðn- um þarsem því var sökkt fyrir áratug. Skipið heldur áfram þeirri stöðu gífurlega umfangsmikil. Á síðustu tíu árum hafa samtökin þróast um- talsvert frá þeim hópi herskárra um- hverfisstríðsmanna sem skipuðu vel auglýsta framvarðasveit samtakanna. Málið er að í dag eru Greenpeace fjölþjóðleg samtök í grunninn með yfir fjóra og hálfa milljón félags- gjaldagreiðandi meðlima, rúmlega eitt þúsund starfsmenn og þraut- skipulagða starfsemi { þrjátíu lönd- um. Sem krefjandi aðgerðasamtök með kraftmikil skilaboð til samfélagsins hafa Greenpeace vissulega efni á því að vera yst útá róttæka kantinum, en sigur hefur afturámóti unnist í hug- sinni að vera minnismerki um þá gömlu, góðu átakadaga samtakanna þegar herskáir og fífldjarfir græn- friðungar skutust útffá móðurskipum sínum á viðkvæmum og hraðskreið- um gúmmíbátum og lögðu sitt af mörkum til að koma umhverfinu rækilega á dagskrá um víða veröld. Þrátt fyrir að Greenpeace muni vitaskuld áfram um ókomna framtíð beita sér með aðgerðum af þessu tagi hafa fullorðnari og þroskaðri um- hverfisstríðsmenn samtakanna sætt sig við þá stefnu að stýra fleyjum sínum um lygnari en þó jafn skað- vænleg vötn meginstraumsins. ■ shh / Byggt Time Flugeldasýning hjá Jóhanni Hjartarsyni Á dögunum lauk talsvert sterku skákmóti í Málmey í Svíþjóð, þarsem Jóhann Hjartarson hafnaði í 5. sæti af tíu keppendum. Okkar maður var óheppinn að ná ekki hærra sæti, enda leiddi hann mótið lengstaf. Bosníu- maðurinn geðþekki, Ivan Sokolov, sigraði eftir jafna og tvísýna keppni. Lokastaðan var þessi: Ivan Sok- olov 6 vinninga (af 9); Ulf Anderson Svíþjóð, Krasenkov Rússlandi, Sadl- ______________I Þröstur Þórhallsson alþjóðlegur skákmeistari skrifar er Englandi 5,5 vinninga; Jóhann 5, Hellsten Svíþjóð 4,5, Hector Svíþjóð 4, Djurhuus Noregi 3, Brynell Sví- þjóð og Vescovi Argentínu 2. Jóhann tefldi af öryggi og yfirvegun framanaf en lenti þó í miklum hremm- ingum í skák við Svíann sókndjarfa,- Jonny Hector. Svíinn fómaði drottn- ingunni í miðtaflinu en Jóhann þorði af einhveijum ástæðum ekki að þiggja fórnina, og vann svo skákina eftir mikið tímahrak. Hvítt: Jonny Hector Svíþjóð Svart: Jóhann Hjartarson Sikileyjarvöm 1. e4c5 2. ROe6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be3 a6 7. Bd3 b5 8.0-0 Bb7 9. Rb3 d6 Á Norðurlandamótinu sem fram fór á Islandi í mars lék danski alþjóða- meistarinn, Erling Mortensen, 9. Re5 gegn Hector og tapaði örugglega. Leikur Jóhanns er án efa sá besti í stöðunni. 10. f4 Rf6 11. Df3 Be7 12. a3 0-0 13. Dh3 g6 14. f5 Dæmigerður leikur fyrir Hector, hann hugsar fyrst og fremst um að sækja að kóngi andstæðingsins. 14.... exf5 15. exf5 Re5 16. Be2 Rc4 17. Bg5 d5 18. Khl Db6 19. Hadl Rxb2 Jóhann er nú orðinn peði yfir en hvíta sóknin er býsna ógnandi á kóngsvængnum. 20. Hd4 Hac8 21. Hdf4 d4 22. Rxd4 Hxc3 Fómar skiptamun til að bh'ðka goð- in en Hector er ekki af baki dottinn. 23. Dxc3 Rxd5 24. fxg6!?? Er virkilega hægt að fóma drottn- ingunni í þessari stöðu? 24.... hxg6? Ekki er einfalt að átta sig á því hvemig Hector hefði bmgðist við ef Jóhann hefði drepið drottninguna en eftir til dæmis 25. gxh7 Kxh7. 26. Bxe7 er hvítur með hrók fýrir drottn- inguna sem er alls ekki nóg í þessari stöðu. Einsog framhald skákarinnar leiðir í ljós fær Jóhann tapaða stöðu en fær smáhjálp frá andstæðingnum í lokin. 25. Dg3 Rxf4 26. Hxf4 Bxg5 27. Dxg5 Dd8 28. Dh6 He8 29. h3? Hector gat gert út um skákina með því að leika 29. Hh4 Df6.... 31. Rf5!! og svartur er óveijandi mát. Nú fær Jóhann afmr á móti að snúa á Svíann í framhaldinu og vinna lið. 29.... Rc4 30. Bf3 Bxf3 31. Rxi'3 Ddl+ 32. Kh2 Dd6 33. h4 He4 34. g3 He2 35. Kh3 Dd7+ 36. g4 Ddl 37 Hd4 Dfl+ 38. Kg3 Hg2 39. Kf4 Dcl+ 40. Rd2 Hxd2 og Hector gafst upp. Fréttir frá Rússlandi Gary Kasparov sigraði ömgglega á PCA-mótinu sem lauk í Novgorod í Rússlandi á dögunum. Staða efstu manna varð annars þessi: Kasparov 6,5 v af 9 mögulegum. Short, Kramnik, Ivanchuk og Topalov allir jafnir með 5,5 v. + Minning María Þorsteinsdóttir 24. maí 1914-4. júní 1995 Kveðja frá Menningar- og friðarsamtökum íslenskra kvenna. Mannaböm eru merkileg..., segir Nóbelsskáldið og þessi undrun og gleði yfir lífinu minnir á Maríu Þor- steinsdóttur og gerir hana minnis- stæða. Hún sem átti, þrátt fyrir allt, bjartsýni og hrifhæmi unglingsins al- veg fram í andlátið. María var Skagfrrðingur að ætt og uppruna, fædd 24. maí 1914 að Hrólfsstöðum í Blönduhlíð. Foreldrar hennar voru hjónin Margrét Rögn- valdsdóttir og Þorsteinn Bjömsson frá Miklabæ. Mikla ást hafði María bundið við föðurmóður sína og sagði það hafa verið hátíðarstundir bemsku sinnar þegar hún heimsótti ömmuna. Þegar María riíjaði upp þessar bemskuminn- ingar varð mér hugsað til föðursystur hennar, ljúflingsins og rithöfundarins, Sigríðar Björnsdóttur, frá Miklabæ. Þannig var einnig samband Maríu við móður sína sem lést í hárri elli. Ung vom þau bæði, María og Frið- jón Stefánssoh, þegar leiðir þeirra lágu saman í reykjavík. Hann var Austfirð- ingur og bjó sig undir verslunarstörf, sem varð hans aðalstarf um ævina. Friðjón Stefánsson var merkur rit- höfundur og liggja eftir hann skáld- sögur og smásagnasöfn. Ég er þess fullviss að hann er meðal þeirra höf- unda, Oddnýjar Guðmundsdóttur, Halldórs Stefánssonar og fleiri, sem síðar meir verða gaumgæfðir og verk þeirra skoðuð sem nærmyndir af þeirri kynslóð sem var virk um miðja tuttug- ustu öldina. . Þau María og Friðjón eignuðust þrjú böm, Þorstein Stefán, Herborgu Margrét og Katrínu Guðrúnu. Auk þess ólu þau upp sonardóttur sína Freyju Þorsteinsdóttur. Öll vom þéssi börn góðum gáfum gædd og María fylgdist með námi þeirra frá upphafi með miklum áhuga. Það mun hafa verið laust eftir 1950 sem upp kom mikil umræða innan Kvennréttindafé- lags Islands um nauðsyn nánari sam- vinnu á milli skólans og heimilanna. Þá gengust nokkrar félagskonur fyrir því að stofna foreldrasamtök við skóía borgarinnar. Að þessu ftumheijastarfi gekk María Þorsteinsdóttir af miklum áhuga og var formaður Foreldrafélags Laugarnesskóla um nokkurra ára skeið. Eins og fyrr er að vikið var eigin- maður Maríu verslunarmaður að menntun og staríi og var kaupfélags- stjóri meðal annars í Vestmannaeyj- um. Þegar þau hjónin fluttu til Reykja- víkur hafði Friðamefnd kvenna verið stofnuð og síðan Menningar- og frið- arsamtök kvenna. Hún sótti þing og fundi fyrir hönd friðarsamtakanna og einnig Kvennaforum Sameinuðu þjóð- anna í Kaupmannahöfn 1980. Á árum „kalda stríðsins" fór María ekki varhluta af árásum herdindla og Nató-hluthafa og gerðu þessir aðilar sitt til þess að naín Maríu varð þjóð- kunnugt. Af stolti bar hún einnig Len- ín-orðuna sem henni var veitt til við- urkenningar fyrir störf að friðarmál- um. Bar þetta nokkuð að sama bmnni. Það var okkur, samstarfskonum hennar í M.F.f.K. gleðiefni að hafa hana glaða og andlega heila á meðal okkar á námsstefnu í Mýrdal, helgina áður en hún lést. Við sendum öllum afkomendum Maríu samúðarkveðjur og vitum að andlát hennar kom á óvart, því hún var enn svo ung í and- anum. Heiður og þökk sé Maríu Þor- steinsdóttur fyrir baráttu hennar fyrir friði og jafnrétti. Fyrir hönd M.F.Í.K., Þórunn Magnúsdóttir varaformaður.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.