Alþýðublaðið - 13.06.1995, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 13. júní 1995
86. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Hver keyptur miöi eflir sókn og vörri gegn krabbameini!
SWAWAWMeiTfl
KRABBAMEINSFELAGSINS 1995
VEITTU STUÐN|NG * VERTU MEÐ!
í þetta sinn voru miðar sendir körlum, á aldrinum 23ja - 75 ára. Við þökkum öllum þeim
sem þegar hafa borgað miðana og minnum hina á góöan málstaö og verðmæta vinninga.
Greiða má í banka, sparisjóði eða póstafgreiðslu fram að dráttardegi, 17. júní.
Vakin er athygli á því að hægt er að bórga með greiöslukorti (Visa, Eurocard).
Hringiö þá í síma 562 1414.
Vinningstölur
laugardaginn:
10. júní 1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
HsafS 1 4.383.600
3+4af5 4 102.730
0 4af 5 123 5.760
J 3 af 5 3.940 410
Aðaltölur
8 H14 H18
BÓNUSTALA:
(10J
Heildarupphæð þessa viku:
kr. 7.118.400
UPPIÝSINGAR, SÍMSVARI 91- 6ð 15 11
LUKKUUNA »9 10 00 • TEXTAVARP 451
■ Deilt um skylduaðild að SHI: Vaka gagnrýnir Röskvu
Óverjandi að stúdentar
séu neyddir til aðildar
- segir Birgir Tjörvi Pétursson, formaður Vöku.
Deilur hafa staðið yfir í Stúdentaráði
Háskóla Islands um nokkurt skeið um
það hvort skylda eigi nemendur til að
greiða gjald til Stúdentaráðs eða gefa
aðild að því fijálsa. Fyrir skömmu lýsti
umboðsmaður Alþingis, Gaukur Jör-
undsson, gjaldtöku Háskólans fyrir
Stúdentaráð Háskóla íslands ólögmæta
í tilefni af kvörtun stúdents yfir inn-
heimtu skrásetningargjalda við HI
skólaárið 1992 til 1993.1 augum Vöku
er þessi niðurstaða mikill ósigur fyrir
Röskvumenn sem hafa verið hlynntir
skylduaðild.
„Við Vökumenn teljum það grund-
vallar mannréttindi að menn gerist fé-
lagar í Stúdentaráði af fúsum og fijáls-
um vilja,“ sagði Birgir Tjörvi Péturs-
son formaður Vöku í samtali við Al-
þýðublaðið. „Okkur er þó áffam um að
menn séu aðilar að Stúdentaráði því
við teljum að hag nemenda sé betur
borgið með starffækslu þess. Þó finnst
okkur ekki verjandi að stúdentar séu
gerðir að félagsmönnum nauðugir vilj-
ugir því við teljum að Stúdentaráð væri
sterkara afla og beittara vopn í barátt-
unni fyrir rétti stúdenta ef þeir stæðu
einhuga að baki því.“
Hvemig útskýrirþú afstöðu Röskvu?
„Rök Röskvu í málinu eru að þau
treysta ekki hveijum og einum til að
meta hvað gott er fyrir hann. Þau halda
að fótunum verði kippt undan starfi
Stúdentaráðs ef aðild verður gefin
fijáls því margir muni þá sjá sér hag í
því að borga ekki aðildargjöld. Þeir eru
margir sem ekki sjá að sú vinna sem
Stúdentaráð ynnir af hendi er til hags-
bóta fyrir stúdenta einfaldlega vegna
þess að þeir þekkja illa starfsemina, en
ef stúdentar vita hvað fer ffam í ráðinu
geta þeir auðvitað ekki tekið sjálfstæða
ákvörðun um aðild."
Þið eruð ekkert hrœddir við flótta
nemertda úr Stúdentaráði ef aðild
verður gefin frjáls?
„Nei, við erum ekkert hræddir við
það. Við treystum okkur alveg til þess
að afnema skylduaðild og reka Stúd-
entaráð þannig að stúdentar geti ekki
verið án þess. Það er ljóst að það geng-
ur ekki að halda úti skylduaðild, því
margir eru óánægðir með þá tilhögun.
Hins vegar væri það stórmál ef það
kæmi í ljós að menn vildu ekki gerast
aðilar að Stúdentaráði. Við teljum
þó engan vegin hægt að skylda
menn til þess, enda lögfest ákvæði í
stjórnarskránni sem mæla gegn
slíkri skyldun."
Heldurðu að nemendur HÍþekki illa
starfsemi Ráðsins?
„Það hefur komið fram í skoðana-
könnunum að margir hafa ekki hug-
mynd um hvað Stúdentaráð hefur upp
á að bjóða. Áhuginn er lflca h'till ef tek-
ið er mið af síðustu kjörsókn, en hún
var aðeins 50%. Ég hef áhyggjur af
þessu áhugaleysi og því hve stúdentar
vita h'tið um starfsemina. Ég vil skrifa
það á reikning meirihlutans. Hann stóð
fyrir kynningarátaki í haust og eyddi í
það 300.000 krónum, en það hefur
greinilega ekki skilað sér. En Stúdenta-
ráð er þarft og á að starfa, þó okkur
greini á um aðferðir við Röskvu, því
við treystum okkur alveg til að reka
það sem hagsmunasamtök með fijálsri
aðild.“
■ Reykjavíkurlistinn hélt gríðarmikla götuhátíð í miðbæ Reykjavíkur síðastliðinn laugardag. Meðal dagskráratriða
var kvöld-djamm á Kaffi Reykjavík þarsem ýmislegt gerði liðið til gamans sér. Langbest lukkað þótti uppboð á per-
sónulegum munum úr eigu borgarfulltrúa Reykjavíkurlistans sem Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi varaborg-
arfulltrúi, stjórnaði með fyrirsjáanlegum tilþrifum. Látum Ijósmyndir Einars Ólasonarta\a sínu máli
Þegar Reykjavíkurlistaliðið skemmtir sér...
Meðal uppboðsgripa var forláta leð-
urjakki úr klæðaskáp Alfreðs Þor-
steinssonar, hins valinkunna borgar-
fulltrúa Framara, sem Linda Vil-
hjálmsdóttir stórskáld sýndi af stakri
lipurð og íburðamiklum kynþokka -
sem fáa á sér líka hér í borg.
Mörður Árnason íslenskufræðingur
(og Lindu-maki) gat vitaskuld ekki
látið gullið tækifæri ganga sér úr
greipum: hann bókstaflega varð að fá
leðurjakkann góða og bauð
því í flíkina hvað mest
hann mátti. Kvennalista-
maðurinn Bergþór hló dátt
á meðan.
Eftir að Merði hafði heppn-
ast hið ótrúlega - að yfir-
bjóða alla viðstadda -
bjuggust fiestir við að hann
myndi afhenda spúsu sinni
gripinn þarsem hún hafði
fyrr tekið sig svo vel út í
honum, en onei - aldeilis
ekki. Ódámurinn ætlaði Al-
freðs- leðrið sjálfum sér.
Það var bókstaflega tryllt fjör á Kaffi Reykjavík á laugar-
dagskvöldið. Kristín Dýrfjörð fóstrumeistari, Ingibjörg
Stefánsdóttir allsupplýsingafulltrúistaðar, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir stjóri og Hjörleifur Sveinbjörnsson
„Kína-maður" brostu sem mest þau máttu.
Forláta undirföt úr dýpstu fylgsnum nær-
klæðnaðargeymslu borgarstjórahjónanna
voru meðal þeirra dýrgripa sem uppboðs-
stjórinn Össur Skarphéðinsson lýsti fala.
Þessar munu koma úr fórum Hjörleifs og
iukkulega náði Solla borgarstjóri að festa sér
stykkið.
■ Vestfirðingar
óttast um hag sinn
Bæjarstjórn
Vesturbyggð-
ar mótmælir
fiskveiða-
frumvarpi
- og smábátafélagið Eld-
ing í ísafjarðarsýslu segir
fyrirheit ríkisstjórnarinnar
í málinu að engu orðin.
Bæjarstjóm Vesturbyggðar hefur
sent frá sér bréf til ráðamanna þar sem
hún mótmælir því harðlega ef frum-
varp um breytingar á lögum um stjóm
fiskveiða verður samþykkt óbreytt á
Alþingi. Smábátafélagið Elding í Isa-
fjarðarsýslu komst að þeirri niður-
stöðu á fundi í síðustu viku, að tillögur
sjávarútvegsráðherra Þorsteins Páls-
sonar um breytingar á stjóm fiskveiða
séu ekki til þess fallnar að uppfylla
fyrirheit ríkisstjórnarinnar um at-
vinnuuppbyggingu. Elding fylgir
stefnu Landssamtaka smábátaeigenda
í málinu.
Bæjarstjóm Vesturbyggðar telur að
enginn landshluti hafi orðið fyrir jafn-
miklum aflasamdrætti og suðursvæði
Vestfjarða á undanförnum árum.
Vesturbyggð hafi nú aðeins yfir að
ráða 33 prósentum af þeim aflaheim-
ildum sem hún hafði þegar kvótakerf-
ið var tekið upp árið 1984. Leggur
bæjarstjómin til að einungis verði tek-
ið upp eitt kerfi, en ekki tvö, tii að
stjóma sókn smábáta, en hún telur að
það afla þeirra að þakka að í þessum
landshluta skuli enn haldast byggð. í
tillögu bæjarstjómar Vesturbyggðar er
óskað eftir því að tekið verði upp
róðradagakerfi þar sem smábátaeig-
endur geti valið sína róðradaga sjálfir
og að sókninni verði beint á þann árs-
tíma sem minnsta hættu skapar fyrir
smábátasjómenn, en sama viðhorf
kemur fram í ályktun þeirra samtaka.
Bæjarstjóm Vesturbyggðar skorar á
þingmenn að gera viðunandi breyting-
ar á frumvarpinu svo ekki kom til
frekari byggðaröskunar í landinu. Þá
skorar hún sérstaklega á þingmenn
Vestfjarða að standa við þau loforð
sem smábátaeigendum vorum gefin
fyrir kosningamar í vor.
Smábátafélagið Elding í ísafjarðar-
sýslu sér ekki fram á annað, nái frum-
varpsdrög ráðherrans fram að ganga,
en fleiri sjómenn verði neyddir til að
velja fisk til löndunar, að stór hluti
smábátaeigenda verði gjaldþrota og að
þau þorp sem em háð afla smábátanna
leggist í eyði og verðmæti þar verði
þar með að engu gerði. Elding og
Landssamband smábátaeigenda krefj-
ast þess að krókaveiðar verði gefnar
frjálsar, þó þau telji að hægt verði að
sættast á tillögur minnihluta sjávarút-
vegsnefndar Alþingis um stundar sak-
ir. Elding skorar því á þingheim „að
forða ríkisstjóminni lfá þeirri skömm
sem tillögur ráðherra eru,“ svo vitnað
sé í ályktun fyrmefnds fundar.