Alþýðublaðið - 06.07.1995, Síða 3
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Með puttann ígatinu...
„Ég trúi því ekki fyrr en tekið er á að hinn
þingeyski sómadrengur Guðmundur Bjarnason
ætii sér að verða síðasti varðhundur fullkom-
lega úrelts landbúnaðarkerfis hvort sem litið
er til frumframleiðslu, vinnslu eða dreifingar.
Honum mun ekki duga að bregða sér í hlut-
verk litla drengsins hollenska sem um árið
stakk puttanum í gatið á sjávarvarnargarðin-
um og bjargaði þannig byggð sinni."
í fyrradag áttu sér stað merkileg
tíðindi í sögu þjóðarinnar.Til lands-
ins bárust fyrstu landbúnaðarafurð-
irnar sem leyfilegt er að flytja til
landsins samkvæmt svokölluðu
GATT-samkomulagi. Stöð 2 birti ít-
arlega frétt um málið og fylgdi henni
eftir með örstuttum spjallþætti þar
sem Jóhannes í Bónus, Vilhjálmur
Egilsson og Jón Baldvin Hannibals-
son leiddu saman hesta sína. Veltu
menn þar fyrir sér hvort hér væru á
ferðinni tímamót fyrir íslenska neyt-
endur og kannski ekki sfður íslensk-
an landbúnað og afleiddar greinar
Pallborðið
Arnór
■PtP Benonýsson
skrifar
hans. Sýndist sitt hverjum sem von
var, en erfiðast átti framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs (málsvari frelsis
og framfara) með að koma hugsun
sinni og viðhorfum til skila. Enda
þurfti hann að þessu sinni að tjá sínar
eigin skoðanir en ekki aðeins að
leggja út af orðum Davíðs formanns.
Nóg um það.
En merkilegast þótti mér í þessum
tíðindum að bændafyrirtækið Slátur-
félag Suðurlands reið á vaðið með
innflutningi á mjólkurís frá Bret-
landi. Því eins og markaðsstjóri fyir-
tækisins sagði: ef við gerum það
ekki, þá gerir það bara einhver annar.
Auðvitað var óþarfi að undrast.
Þetta ágæta fyrirtæki hefur nú um
nokkurt skeið flutt inn sósur og jukk,
sem í bland við örlítið magn af ís-
lensku kjöti verður að skyndimat -
sem síðan er markaðssettur undir for-
merkjum þjóðernishyggju, 1944:
matur fyrir sjálfstæða Islendinga.
Kannski má þannig búast við að
ísinn breski verði kynntur undir slag
orðinu: 1882-ís fyrir sanna sam-
vinnumenn.
Þetta var nú útúrdúr.
En það eru teikn á lofti. Talið er að
ostar, jógúrt og mjólkurís munu
verða þær landbúnaðarafurðir sem
helst geti keppt við innlenda fram-
leiðslu í verði eftir þá spennitreyju
sem stjórn völd hnepptu GATT-
samninginn í. Og auðvitað verður
tryggður lámarksaðgangur að ís-
lenska markaðnum fyrir erlenda
framleiðslu.
Menn standa jú við gerða samn-
inga.
Einokunarfyrirtækið Osta- og
smjörsalan mun flytja inn osta.
Mjólkursamsalan jógúrt og SS sér
um ísinn.
Þannig munu þessir aðilar halda
áfram að ríkja yfir markaðnum og í
krafti einokunaraðstöðu sinnar halda
áfram að stjórna neyslunni; beina
henni í réttan farveg - sjálfum sér til
hagsbóta.
En ekki síður haldið hugsanlegri
samkeppni niðri. Þetta eru aðferðir
sem samvinnuíhaldið hefur beitt um
allt land áratugum saman. Hver man
ekki Baulu, KEA og Bónus á Akur-
eyri og nú síðast afgreiðslu Guð-
mundar Bjarnasonar á málefnum
Mjólkursamlags Borgarness - svo
tekin séu nýleg dæmi?
í það minnsta er afar athyglisvert
að sama dag og SS renndi í hlað með
útlenska ísinn sinn var Jóhannes í
Bónus stöðvaður í Tollinum með
soðin kalkúnalæri.
Tilviljun eða hvað?
Ég trúi því ekki fyrr en tekið er á
að hinn þingeyski sómadrengur Guð-
mundur Bjamason ætli sér að verða
síðasti varðhundur fullkomlega úrelts
landbúnaðarkerfis hvort sem litið er
til frumframleiðslu, vinnslu eða
dreifingar. Honum mun ekki duga að
bregða sér í hlutverk litla drengsins
hollenska sem um árið stakk puttan-
um í gatið á sjávarvamargarðinum og
bjargaði þannig byggð sinni. Því und-
irstöður þessa varnargarðs eru
morknar og ekki spuming um hvort,
heldur hvenær hann brestur og flóðið
hrífur drenginn unga með sér.
Það er einföld krafa bæði neytenda
og bænda að stjórnvöld hafi frum-
kvæði að því að losa landbúnaðar-
framleiðsluna úr klafa ofstýringar og
einokunar. Það dugir ekki lengur að
beita aðferðum Bakkabræðra og bera
myrkrið út í húfunum sínum.
Þjóðin er upplýstari en svo.
Höfundur er leikari og situr í fram-
kvæmdastjórn Alþýðuflokksins.
Einn af fjölmörgum góð-
kunningjum Alþýðu-
blaðsins innan Kvennalist-
ans er Þórunn Svein-
bjarnardóttir, stjórnmála-
fræðingurinn skeleggi,
sem skipaði 3. sæti listans í
Reykjavík fyrir síðustu al-
þingiskosningar - sællar
minningar. Hún hefurverið
starfskona Kvennalistans
um nokkurra ára skeið og
lét nýverið hressilega til
sín taka í Evrópusamtökun-
um sem Olafur Þ. Steph-
ensen Moggablaðamaður
stýrir af röggsemi (og
skemmtilegu virðingarleysi
gagnvart rómantíska þjóð-
ernissinnanum Davíð
Qddssyní og forystu Sjálf-
stæðisflokksins). Þær fréttir
bárust okkur hinsvegar til
eyrna fyrir skemmstu að
Þórunn hefur sagt starfi
sínu hjá Kvennalistanum
lausu - „ætli hún hafi ekki
bara fengið sinn skammt í
bili," sagði heimildarkona
innan listans - og í sumar-
fríinu íhugar hún nú í ró-
legheitunum næstu skref í
lífi sínu. Við starfi hennar
hefur tekið Áslaug Thorl-
acius sem áður vann hjá
Endurmenntunarstofnun
Háskóla íslands og býr svo
vel að vera með próf frá
Myndlista- og handíða-
skóla íslands og bæði BA-
próf í rússnesku og bók-
menntum. Velkomin til
starfa Áslaug - og bless
Þórunn...
Mál og menning hefur
verið með mynd-
skreytt Ijóðasafn í pípunum
um nokkurt skeið. Það er
Árni Sigurjónsson sem
feðrar verkið, en það mun
innihalda safn íslenskra
Ijóða frá fyrri tímum til
þessa dags sem ýmsir and-
ans jöfrar hafa þýtt yfir á
engilsaxnesku og mynd-
skreytt eru með fagurleg-
um Islandsmyndum. Það
var snilldarljósmyndarinn
og „hestaáhugamaðurinn"
Lárus Karl Ingason sem
sá um að taka myndirnar
sérstaklega fyrir bókina og
áætlað er að hún verði 120
til 130 blaðsíður. Bókinni er
vitaskuld stefnt inná ferða-
mannamarkaðinn og einn-
ig til þeirra fjölmörgu er
gjarnan vilja gefa ættingj-
um, kunningjum og við-
skiptavinum á erlendri
grundu eitthvað ógurlega
menningarlegt til menja
um sjálfa sögueyjuna.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins innan Máls
og menningar stóð til að
gefa bókina út á þessu ári
(innihald hennar er tilbúið
og bíður aðeins frágangs
og prentunar) en útgáfunni
var hinsvegar nýlega frest-
að framá næsta ár. Reikn-
að er með að bókin komi
þannig út i janúar 1996.
Meginástæðan mun vera
sá mikli kostnaður er fylgir
útgáfu verks af þessu tagi -
og ennfremur sú að hent-
ugra þótti að ná í upphaf
næsta ferðamannatímabils
frekar en í skottið á því er
stendur nú sem hæst...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson.
„Fyrirgefðu, herra minn, en þú ert nú kominn að landamær-
um Bandaríkjanna og Mexíkó og hér i guðs eigin landi höld-
um við uppi öllu stífari lögum og reglu en þarna yfir í landi
tortilla-ætanna. Ég verð þarafleiðandi því miður að biðja þig
og gjörvalla fjölskylduna að stíga útúr bílnum. Það er sem
mér sýnist að eitthvað sé bogið við andlit ykkar...
Þórunn Guðnadóttir, sjón-
þjálfi: Nei, en mér fmnst þetta
gott framtak með hag neytenda
í huga.
Þóra Ingóifsdóttir, skrif- Bjarki Bragason, nemi:
stofumaður: Nei. Þetta er Nei, en ég ætla svo sannarlega
tóm vitleysa. Annað hvort leyf- að prófa hann.
um við allar búvörur inn í land- ’
ið eða engar.
Hanna Guðmundsdóttir,
kennari: Nei, og mér finnst
ekkert upp úr því að hafa.
Edda Árnadóttir, skrif-
stofumaður: Nei. Mér finnst
fslenskur ís það góður að ég
hef ekki áhuga.,
v i t i m e n n
Ég var bara að sinna starfi
mínu. Ég skrifaði bara
það sem hún sagði mér.
Tævanska blaðakonan Yui-hu Chen um
viðtal sitt við forseta íslands. Vigdís segir
að rangt sé eftir sér haft í mikilvægum
atriðum. Mogginn í gær.
Bláedrú í banastuði.
Fyrirsögn í Tímanum af Staðarfellshátíð SÁÁ.
Skólakerfið þarfnast
endurnýjunar. í stað fúsks og
leikja líðandi stundar þarf að
koma hagnýt kennsla, þarsem
nemendum er kennt að vera
neytendur, eigendur, fjárfestar,
skattgreiðendur og kjósendur. ’
Þessum mikilvægu hlutverkum
sinnir skólakerfið nánast ekki.
Jónas Kristjánsson í forystugrein DV í gær.
Sagði brandara þegar
félagarnir komu á slysstaðinn.
Fyrirsögn fréttar í Mogganum um
svifdrekamann sem fótbrotnaði í lendingu.
Af um 160 einstaklingum, sem
sóttu námskeið gegn reykingum
hjá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
veturinn 1992/1993, voru 15%
„sprungnir“ eftir tvær vikur, 70%
eftir þrjá mánuði og aðeins 17%
voru ennþá reyklausir eftir árið.
Hér er miðað við þá sem héldu
algert reykbindindi frá fyrsta degi
námskeiðsins, það er höfðu ekki
einu sinni tekið einn „smók“.
17 prósent reyklausir þætti nú fjandi gott
hlutfall á ritstjórn Alþýðublaðsins.
Tíminn greindi frá á forsíðu.
Ofurtollar hefta frjálsa samkeppni.
Fyrirsögn forystugreinar Morgunblaðsins.
íslenskar landbúnaðarvörur
eru gæðavörur og hafa sterka
hefð á markaðnum, einsog
gefur að skilja, þarsem hann
hefúr verið verndaður.
Úr forystugrein Tímans í gær.
Skuldir ríkis og sveitarfélaga
vaxa jafnt og þétt: Stefna hraðbyri
í 247 milljarða. Jafngildir því að
hver fjögurra manna Ijölskylda
skuldi 2,7 milljónir.
Fyrirsögn í DV í gær.
í öllu þessu umróti og
hlutverkaskiptingum pólitíkusanna
er þó einn eðlisþáttur sem stendur
upp úr í hafnfirskum stjórnmálum.
Það er vantrúin á reykvíska leið-
sögn; nánast afneitun á því að
eitthvað sem talið er gilda í
Reykjavík geti gilt í Hafnarfirði.
Garri í tímískum heimspekihugleiðingum í gær.
Að iokum velviljuð hvatning:
Gróur allra landa sameinist!
I Surtsey!
Lárus Már Björnsson, kjallaragrein í DV í gær.
Nú er fokið í flest skjól hjá
aðdáendum leikkonunnar Pamelu
Anderson. Ljóst er að stúlkan
er ekki hrein mey, eins og margir
vonuðu. Hún er nefnilega komin
fjóra mánuði á leið. Sökudólgurinn
er eiginmaður hennar,
Tommy Lee.
Nú hefur leiðarahöfundum
og Víkverjaskríbentum Moggans bæst óvæntur
liðsauki í skoðanamótun lesenda. Umsjónar-
maður/kona Fólks í fréttum er nefnilega farin(n)
að láta vaða á súðum í persónulegum skætingi
útí eina af stórbrotnustu karakterleikkonum
samtímans (P. Anderson).
veröld ísaks
Allt framtil ársins 1834 státaði
Canton-borg af einu höfninni í Kína
þarsem útlenskum skipum var náðar-
samlegast leyft að kasta landfestum.
Fijálslyndi stjómenda borgarinnar
vom þó nokkur takmörk sett og þann-
ig var engum konum heimilaður að-
gangur að höfhinni. Engum. Kínverj-
amir lét þannig Bandaríkjamenn
komast að því fullkeyptu og settu þá í
algjört hafnbann þegar þeir uppgötv-
uðu sér til mikillar skelfmgar, að
hressileg stúlkukind frá Salem í
Massachusetts- fylki hafði dulbúið
sig og laumast inní tollafgreiðsluna
í karlmannsklæðum. Jújú,
einhversstaðar verður maður
að draga mörkin...
Byggt á Isaac Asimov's
Book of Facts.