Alþýðublaðið - 01.08.1995, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR1. ÁGÚST1995 ALÞÝDUBLAÐIÐ 7
Friðargæsluliðar í felum. Þeir þurfa kannski að pakka saman á næstunni.
niðurstöðunni ef hún yrði þeim ekki
að skapi. Atkvæðagreiðslan fór fram í
lok febrúar 1992 og samþykkt var
með yfrrgnæfandi meirihluta (einsog
búist háfði verið við) að lýsa yfrr sjálf-
stæði Bosm'u- Herzegóvinu. Alþjóða-
samfélagið brást við með mestu mis-
tökum sem gerð hafa verið síðan hel-
förin hófst: Bosnra-Herzegóvina hlaut
umsvifalaust viðurkenningu sem sjálf-
stætt ríki. Serbar svöruðu með alls-
heijarstíði í Bosníu. Þeir höfðu undir-
búið sig um langt skeið fyrir stríð af
þessu tagi, og meðal annars komið
fyrir víghreiðrum í hlíðunum um-
hverfis stærstu borgir Bosníu. Þar að
auki nutu þeir, rétt einsog Serbar í
Króatíu, víðtæks stuðnings JNA. Á
skömmum tíma náðu Serbar þannig
yfirburðastöðu í Bosm'u.
Viðbrögð alþjóðastofnana - NATÓ,
ESB og Sameinuðu þjóðanna - ein-
kenndust af japli og jamli og fuði.
Enginn virtist vita hvernig átti áð
bregðast við, og enginn eining var
meðal voldugustu ríkja heims. Banda-
ríkjamenn voru dauðhræddir við að
dragast inn í „nýtt Víetnam" og hafa
ekki til þessa dags sent friðargæslulið
til Bosníu. Rússar eru gamlir banda-
menn Serba (báðar þjóðimar em slav-
neskar, tilheyra rétttrúnaðarkirkjunni
og nota kyrílska stafrófið) og þeir hafa
jafnan komið í veg fyrir að Serbar
væru beittir harðræði. Bretar og
Frakkar voru frá öndverðu andvígir
hernaðarafskiptum, og Þjóðverjar
voru lítt í aðstöðu til að beita sér
vegna hemaðar þeirra gegn Júgóslöv-
um (einkum Serbum) í seinna stríði.
Ósanngjarnt vopnasölubann
Ekki bætti úr skák fyrir stjómina í
Sarajevo (sem skipuð er múslimum,
Króötum og Serbum) að alþjóðlegt
vopnasölubann á lýðveldi Júgóslavíu
kom fimahart niður á illa búnum her-
sveitum hennar. Serbar bjuggu hins-
vegar að ljórða stærsta her Evrópu og
hafa yfir að ráða gríðarlegri vopna- og
hergagnaframleiðslu.
Stjóminni í Sarajevo hefur þannig
verið gert að berjast með hendur
bundnar fyrir aftan bak. í reynd er
merkilegast við stríðið í Bosníu að
Serbar skuli ekki fyrir löngu hafa lagt
landið allt undir sig. Þeir hafa hins-
vegar vísvitandi teymt samningamenn
alþjóðlegra stofnana á asnaeyrunum,
skrifað undir ótal marklausa friðar-
samninga og sáttmála, gefið fleiri
innistæðulaus loforð en nokkur kærir
sig um að muna.
Talið er að stríðið í Bosníu hafi
kostað meira en 200 þúsund manns
lífið, einkum óbreytta borgara. Flótta-
menn em yfir tvær milljónir og hundr-
uð þúsunda hafa verið í herkví ( um-
setnum borgum í þijú ár. Þetta er ægi-
legur tollur í landi þarsem íbúar vom
aðeins ijórar og hálf milljón.
Maðurinn bakvið helförina
Ekki fer á milli mála að arkitektinn
á bakvið helför Júgóslavíu er Slobod-
an Milosevic forseti Serbíu. Þessi
gamli kommúnisti hefur kynt undir
þjóðernisofstæki, og elur með sér
draum um Stór-Serbíu sem á, auk
Serbíu, að ná yfir mestan hluta Bosm'u
og stór svæði í Króatíu. Milosevic
hefur líka augastað á Makedómu (sem
Serbar kalla aldrei annað en Suður-
Serbíu) - hinu lánlausa og litla lýð-
veldi lengst í suðri, sem í orði kveðnu
er sjálfstætt en er umkringt ijandsam-
legum ríkjum (Grikklandi, Albanfu,
Serbíu og Búlgaríu) og hefur ekki að-
gang að sjó.
Milosevic hefur líka beitt Albani í
Kosovo gríðarlegu harðræði. Albanir
eru 90% íbúa (rétt innan við tvær
milljónir) í þessu svokallaða sjálfs-
stjórnarhéraði en em í reynd þriðja
flokks þegnar. Þeir vilja losna úr
kmmlum Serba en hafa til þessa sýnt
aðdáunarverða þolinmæði og friðar-
vilja, og ekki gripið til vopna. Koso-
vo-vandamálið er hinsvegar óleyst, og
byiji átök þar er næsta víst að Albam'a,
sem á landamæri að Kosovo, mun
dragast inn í átökin. Það flækir síðan
enn myndina að Albanir em fjölmenn-
ir í Makedóníu, og ýmsir bræður
þeirra í Kosovo láta sig dreyma um að
sölsa undir sig stór svæði þar. Albanir
í Kosovo verða hinsvegar tæpast færir
um landvinninga í náinni framtíð.
Einu bandamenn Milosevic í fyrr-
um Júgóslavíu eru Svartfellingar
(Serbía og Svartfjallaland mynda það
sem eftir er af Júgóslavíu) enda em
þjóðimar náskyldar, og margir af leið-
togum Serba, Karadzic til dæmis, em
Svartfellingar. Sterkustu bandamenn
Serba em auðvitað Rússar, einsog áð-
ur var vikið að, og Milosevic hefur
getað skákað í skjóli þeirra.
Straumhvcrf í vændum
Ymislegt bendir til þess að þáttaskil
séu að verða í stríðinu í fyrrum Júgó-
slavíu. Króatar hafa notað hmann vel
sfðustu árin. Þeir hafa að sönnu ekki
Byggt upp það lýðræðislega samfélag
sem margir óskuðu, en þeir hafa eflt
her sinn til mikilla muna. Líklegt er að
þeir láti til skarar skríða af fullum
þunga gegn Serbum í Króatíu og
freish þess að vinna aftur svæðin sem
hemumin vom 1991. Erfitt er að sjá
fyrir hver viðbrögð Milosevic yrðu.
Vegna efnahagsþvingana Sameinuðu
þjóðanna er staða hans mjög erfið.
Lr'fskjör hafa hmnið í Serbr'u og þjóðin
er langþreytt á skorti og stríði. Mi-
losevic er lífsnauðsyn að sannfæra
umheiminn um að hann sé nú orðinn
„ífiðarins maður“ en á hinn bóginn er
óvíst að honum verði lengi sætt á
valdastóli ef stórfelldur hemaður hefst
gegn Serbum í Króatíu án þess að
hann aðhafist nokkuð.
Króatar og Bosníumenn eru sam-
herjar í orði kveðnu, en bandalag
þeirra hefur ekki borið frjóan ávöxt
enda er Tudjman Króatruforseti eng-
inn sérstakur áhugamaður um öfluga
Bosníu - hinsvegar hafa króatrskir
stjómmálamenn ítrekað lýst yfir því
að Króatíu beri, á sögulegum forsend-
um, stór svæði í Bosníu.
En neyð giftir ekkjumar, og því er
ekki að vita nema stjómimar í Zagreb
og Sarajevo taki höndum saman gegn
Serbum í Króatíu og Bosníu. Þá er
„friðargæsluliðinu“ óhætt að pakka
saman r' hasti. ■
Aðalpersónur í
harmleik Evróp
Franjo Tudjman forseti Króatíu
Barðist með sveitum Títós í
seinni heimsstyrjöld. Var einn af
yngstu hershöfðingjum Júgó-
slavíu en þarsem hann var öfga-
fullur króatískur þjóðernissinni
var hann fangelsaður einsog
fleiri Króatar í umfangsmiklum
hreinsunum uppúr 1970. Leiddi
sjáifstæðisbaráttu Króata og var
orðinn forseti þegar landið lýsti
yfir sjálfstæði, sumarið 1991.
Tudjman hefur næstum alræðis-
völd í Króatíu í skjóli mikils þing-
meirihluta sem byggður er á
mjög ranglátu kosningakerfi.
Þjóðernisofstæki hans hefur ekki
minnkað með árunum: í kosn-
ingabaráttu fyrir fáum árum
kvaðst hann mjög þakklátur því
að kona sín væri hvorki gyðing-
ur né Serbi. Hann hefur enn-
fremur dregið í efa tölur og frá-
sagnir af skipulögðum fjölda-
morðum Króata á Serbum, gyð-
ingum og sígaunum í seinni
heimsstyrjöld. Tudjman er
ósveigjanlegur harðlínumaður
og lítt áhugasamur um lýðræði.
Króatía er í mikilli hættu að
breytast í einræðisríki, þar er
hver öryggislögreglan uppaf
annarri og fjölmiðlar njóta jafn-
vel minna frelsis en í Serbíu.
Staðfestur grunur er um að Tu-
djman hafi frá upphafi verið í
nánu sambandi við „erkióvin-
inn" - Slobodan Milosevic. Svo
mikið er víst að þeir ræddu á
leynifundum um skiptingu Bo-
sníu-Herzegóvinu milli Króatíu
og Serbíu, sem hefði þurrkað
Bosníu útaf landakortum.
og átti þá samskipti við kaup-
sýslumenn úröllum heimshorn-
um. Eiginkona Milosevic var
jafnvel öfgafyllri kommúnisti en
hann og hefur ekki gengið af
trúnni. Þegar Milosevic sá fram
á hrun kommúnismans í Júgó-
slavíu hafði hann hamskipti,
nánast á einni nóttu, og gerðist
serbneskur þjóðernissinni.
„Serbía nær þangað sem einn
einasti Serbi býr," lýsti hann yfir
í aðdragandi stríðsins 1991. Beit-
ir Albana í Kosovo, sem er
sjálfsstjórnarhérað í Serbíu,
gegndarlausu harðræði og er sá
maður sem fyrst og fremst ber
ábyrgð á helför Júgóslavíu. Rétt-
nefndur böðullinn á Balkan-
skaga en hefur að undanförnu
reynt að koma fyrir sem sátta-
semjari og friðarins maður. Það
eru vitaskuld orðin tóm en Mi-
losevic er lífsnauðsyn að efna-
hagsþvingunum á Serbíu verði
aflétt. Stríðsglæpadómstóll
Sameinuðu þjóðanna hefur
ákært hann fyrir stríðsglæpi, en
vafasamt er að hann svari
nokkru sinni til saka fyrir hin
stórkostlegu óhæfuverk sem
hann ber ábyrgð á.
Radovan Karadzic leiðtogi Bo-
sníu-Serba
Ættaðurfrá Svartfjallalandi,
einsog svo margir öfgasinnaðir
Serbar. Geðlæknir að mennt
(sérfræðingur í ofsóknarbrjál-
æði!) og hefur gefið út nokkrar
fremur mislukkaðar Ijóðabækur.
Var áberandi í hópi mennta-
manna og listamanna í Saraje-
vo, borginni sem hann hefur lát-
ið sprengjum rigna yfir í þrjú ár.
Serbar þrífast öðrum þjóðum
fremur á goðsögnum og hetju-
sögum og Karadzic stefnir að
því að hljóta hetjusess. Loforð-
um hans er aldrei treystandi
einsog sést best á ótal friðar-
samningum sem hann hefur
undirritað en svikið jafnóðum.
Ábyrgur fyrir stórfelldum og
hroðalegum stríðsglæpum í
Bosníu.
Ratko Mladic foringi herliðs
Bosníu-Serba
Reyndur og miskunnarlaus her-
foringi úr JNA (Júgóslavneska
alþýðuhernum). Stjórnaði síðast
töku „griðasvæða" Sameinuðu
mesta
u
þjóðanna í Srebrenica og Zepa. í
Srebrenica voru þúsundir
óbreyttra borgara teknir hönd-
um og staðfestar fréttir berast af
fjöldamorðum og nauðgunum.
Mladic er ógeðfelldur persónu-
leiki, einn helsti stríðsglæpa-
maður síðari tíma. Óljósar fréttir
hafa borist um togstreitu milli
hans og Karadzic.
Alya Izetbegovic forseti Bo-
sníu-Herzegóvinu
Izetbegovic var fangelsaður í tíð
Tító fyrir rit um múslima í Júgó-
slavíu. Áróðursvél Serba sakar
hann - ranglega - um að vilja
setja á laggirnar íslamskt bók-
stafstrúarríki í Bosníu. Múslimar
í Bosníu eru fyrst og fremst Evr-
ópubúar í hugsun og háttum og
hafa engan áhuga á trúaröfgum.
Izetbegovic er heiðarlegur
stjórnmálamaður sem sýnt hef-
ur æðruleysi og stillingu. Hann
skortir hinsvegarfestu og
ákveðni, og hefði áreiðanlega
verið betri leiðtogi á friðartím-
um.
Haris Silajdzic forsætisráð-
herra Bosníu-Herzegóvinu
Án efa einn hæfasti stjórnmála-
maður Evrópu um þessár
mundir. Silajdzic var utanríkis-
ráðherra Bösníu-Herzegóvinu
þegar stríðið hófst, og hefur all-
ar götur síðan gagnrýnt alþjóða-
samfélagið með mjög eftir-
minnilegum hætti fyrir aðgerða-
leysi gagnvart Bosníu. Hann var
frá upphafi andvígur því að er-
lent herlið yrði sent til að berjast
gegn Serbum og hefureinarð-
lega krafist þess að vopnasölu-
banni verði aflétt: „Við þurfum
ekki útlenska stráka til að berjast
fyrir okkur. Við höfum nóg af
mönnum. Við þurfum vopn til
að verja hendur okkar." í stjórn
Silajadzic eru ekki einvörðungu
múslimar, einsog ætla mætti af
fréttum („hersveitir múslima",
„griðasvæði múslima", „stjórn
múslima") heldur eru þar einnig
króatískir og serbneskir ráðherr-
ar. Silajdzic nýtur virðingar í Bo-
sníu og er líklegur arftaki Izet-
begovic. ■
Slobodan Milosevic forseti
Serbíu
Báðir foreldrar Milosevic, og
reyndar fleiri ættingjar, sviptu
sig lífi. Milosevic var lítt áber-
andi í skóla og þótti ekki líklegur
til afreka. Hann kleif metorða-
stiga kommúnistaflokksins á
valdatíma Títós, fylgdi jafnan
fast eftir velgjörðamanni sínum,
valdamiklum serbneskum
kommúnista, sem hann að lok-
um sveik. Kemurfyrir einsog lítt
spennandi kaupsýslumaður:
klæðist yfirleitt gráum jakkaföt-
um, reykir smávindla og drekkur
viskí. Var bankamaður framan af
PÓSTUR &SÍMI
Samkeppnissvið
Laus er til umsóknar staða á
kerfisdeild farsímadeildar.
Starfið felst í vinnu við tölvukerfi
farsímadeildar, sem tengjast farsímakerfum.
Tölvunarfræðings- eða tilsvarandi
menntunar er krafist.
Umsækjendur þurfa að hafa góða
þekkingu á UNIX-stýrikerfum.
Starfsreynsla og þekking á
símamálum æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur
Indriðason yfirtæknifræðingur, sími: 550-6231.