Alþýðublaðið - 01.08.1995, Síða 8
WBMU ff i hvnilD! f\ Tllll
588 55 22 j{ mllllnl filflll 588 55 22
Þriðjudagur 1. ágúst 1995 114. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Snorri Öskarsson í Betel er ekki hrifinn af erótískri list sem
umgjörð um þjóðhátíð Vestmannaeyja; segir myndirnar af illu
sprottnar og merki um yfirvofandi hrun vestrænnar siðmenningar
„Djöfullinn sjálfur er
upphaf pomósins"
- segir Snorri. Og við listamanninn sem sá um skreytingarnar:
„Leggðu þitt af mörkum til að forða börnunum frá þessu þjóð-
hátíðarlagisem boðar lausung, bölvun og óhamingju."
Snorri Óskarsson, safnaðarhirðir
hvítasunnusafnaðarins í Betel í Vest-
mannaeyjum, skrifaði harðort grein.ir-
kom fyrir skemmstu í Fréttir, frétta-
blað Eyjamanna, og sagðist hafa tekið
„einn rúnt í Dalnum og sá þar vel mál-
aðar myndir með vafasaman boð-
skap.“ Hann undraðist að þessi skila-
boð væru send gestum og gangandi og
skrifar: „Fyrir nokkmm ámm reiddust
mér margir er töldu mig hafa ómak-
lega vegið að þjóðhátíðinni þar sem
ég taldi hana hátíð ósóma og siðleysis.
Fólk hefur keppst um að láta mig vita
af því hversu góð fjölskylduhátíð fer
fram í Dalnum. Því langar mig að
skora á listamanninn [Sigurfinn Sig-
urfinsson teiknikennara] að afmá
klárr myndimar sem blasa við á hús-
unum.“
Og Snorri sparar ekki bænir sínar til
listamannins: „Gerðu það vegna þín
og fjölskyldu þinnar. Gerðu það sem
meðhjálpari í Landakirkju. Kristnir
menn hafa í gegnum allar aldir þráð
að halda sjálfum sér og líkama sínum í
heiðri en ekki losta. Afmáðu myndim-
ar sem uppalandi og kennari barn-
anna. Leggðu þitt af mörkum til að
forða bömunum frá þessu þjóðhátíð-
arlagi sem boðar lausung, bölvun og
óbamingju. Gerðu það einnig vegna
Vestmannaeyja, þær em þekktar íyrir
fagra ásýnd og heillandi mannlíf. Ég
skora á þig að frelsa Eyjamar undan
stimpli kláms og siðleysis ... Guð
dæmir syndina."
Það var Stefán Hrafn Hagalín sem
sló á þráðinn útí Eyjar í gær og spurði
Snorra nokkurra spuminga.
Snorri. Þú erl alveg rasandi yfir
þessum myndum.
„Nei. Ég er ekkert rasandi. Þetta em
klámmyndir og ég er á móti því að
mannslíkaminn sé hafður svona til
sýnis.“
Er þetta ekki bara fögur og erótísk
austrœn list?
,Jú, Ámi Johnsen kallaði þetta það
og sömuleiðis Finnur. En erótík og
klám em auðvitað eitt og hið sama.“
Nú, finnst þér það?
,Jájá.“
Hvað segirðu...
„En þér?“
Nei, alls ekki?
„N ú?“
Alls ekki.
,Þá þarftu nú endilega að fara kíkja
í kringum þig.“
Eru þá engin fi'n mork milli erótíkur
og kláms?
„Nei. Engin fín mörk. Mér finnst
þetta afturámóti orðið þannig í dag, að
menn vita ekki hvaðan á þá stendur
veðrið. Þegar Playboy var fyrst gefið
út árið 1958 sem klámrit þá var það
með mjög svipuðum myndum og við
sjáum í dag sem auglýsingar og...“
...Ijósmyndir framan á dagblöðum
á sólardögum?
, Já, svoleiðis. í dag telst þetta ekki
vera neitt mál; bara sjálfsagt og eðli-
legt. En þá var þetta kallað klám. Á
þessu sérðu hvað siðferðinu hefur
hrakað. Þegar línurnar verða svona
óljósar þá er það vegna þess að sið-
ferði mannsins hefur hrakað en ekki
að við séum eitthvað að leiðrétta okk-
ur.“
Heldurðu að þetta sé einsdœmi; að
heilt bœjarfélag taki sig svona til og
skreyti bceinn erótískum myndum?
„Neinei. Þetta er ekki einsdæmi.
Þeir gerðu þetta í Pompei. Og Pompei
var víst alveg þekkt fyrir, að þar vom
klámmyndir útum allt og hér og þar.
Meira að segja þegar borgin var grafm
upp kom þetta í ljós. Það sem gerðist
þarna í Rómarveldi er nákvæmlega
það sama og er að gerast í dag á Vest-
urlöndum: mikil siðferðisleg hnignun
er undanfari hruns ríkisins. Við erum
að horfa á þetta gerast núna tvöþúsund
árum síðar: hrun vestrænnar menning-
ar-vofir yfir okkur."
Þetta er semsagt mikil úrkynjun
sem við glímum við?
„Ekkert annað."
Einsog á síðustu dögum Rómar.
, J>ú kannast við þetta?“
Jájá.
„Og þér finnst þetta samt allt í lagi.“
Tjah, ég var nú bara að tjá lítið
brot af söguþekkingu minni. - En er
annars Sigurfinnur, höfundur mynd-
skreytinganna, ekki meðhjálpari í
Landakirkju?
„Jú. Það er hann blessaður, hann
Finnur."
Og hvemig líst ykkur Betel-mönn-
um á að kirkjunnar maður sé viðrið-
inn svonalagað?
„Okkur líst náttúrlega ekkert vel á
þessa hegðun, hvort sem það eru
kirkjunnar menn eða aðrir sem eiga í
hlut.“
En þú tínir meðhjálparastarfið sér-
staklega til íþessu greinarkomi þínu.
,Já, og ég talaði einnig til hans sem
föðurs og kennara. Þeir menn sem
gegna slíkum stöðum eiga að vera fyr-
irmyndir og hafa það fyrir bömum,
gestum og gangandi sem má til upp-
byggingar. Eg vísa bara til þessa.“
Heldurðu að það geti verið, að
myndskreytingamar hafi verið brand-
ari sem gekk útí öfgar hjá aðstand-
endum þeirra?
„Ekki var það nú að heyra á þessum
mönnum síðastliðinn mánudag eða
fimmtudag í Morgunpóstinum þarsem
var verið að segja frá klámmyndunum
í Eyjum. Þá sagði Ámi Johnsen að
Snorri Óskarsson í Betel: Skorar á
höfund erótísku myndskreyting-
anna að afmá myndirnar og frelsa
þannig Eyjarnar undan stimpli
kláms og siðleysis. - „Árni John-
sen kallaði þetta [fagra og erótíska
austræna list] og sömuleiðis Finn-
ur. En erótík og klám eru auðvitað
eitt og hið sama."
þeir hafi legið yfir þessum myndum í
nokkum t£ma og valið úr. Svo að þetta
virðist hafa verið skipulagt.“
Eitthvað afþessu allra dónalegasta
var nú lagað til, skilst mér.
„Já. Ég veit það ekki. Ég hef ekki
séð frummyndimar. Ég veit að Finnur
fór í það, að klæða yfir svæsnustu
staðina sem er auðvitað hið besta mál.
En það sem þarf náttúrlega að gerast,
er að íslendingar átti sig á því hvað
þeir vilja með svona hátíðir. Em þetta
hátíðir sem eiga að ýta undir lauslæti
og siðspillingu? Ef svo er, þá vitum
við hver stjómar því. Djöfullinn sjálf-
ur er upphaf pomósins."
„En Guð dœmir syndina," einsog
þú skrifaðir í greinarkomið...
,4ájá. Hann gerir það.“
■ ■
Orvæntingarfullur
: konungur
Skelfingu lostinn konungur hvíta
liðsins reynir að verjast árásum
svarts launmorðingja... Á föstudags-
kvöldið sýndi Götuleikhúsið Skákina
ódauðlegu í Hafnarhúsinu að við-
stöddum miklum fjölda áhorfenda.
Búningar skákmannanna voru mikil-
fenglegir og lukkaðist sýningin hið
besta. Hljóðfæraleikarar, bogmenn
og fimleikamenn léku listir sínar
meðan herir hvíts og svarts áttust
við. Vert er að taka fram að hvítur
hafði að lokum sigur - þrátt fyrir allt.
A-myndir: E.ÓI.
■ Hagyrðingamót í Landnámi Ingólfs
Margiraf bestu hagyrðingum
landsins takast á
- aðallega þó í góðsemi.
Hið árlega hagyrðingamót verður
haldið í Landnámi Ingólfs að þessu
sinni; í Súlnasal Hótel Sögu laugar-
daginn 26. ágúst. Þetta verður sjö-
unda í röð árlegra hagyrðingamóta,
það fyrsta var á Skagaströnd árið
1989. Allir sem njóta þess að heyra
farið með vísur og kveðskap eiga er-
indi á þessa samkomu, og em hjart-
anlega velkomnir - hvort sem þeir
yrkja sjálfir eða ekki. Alþýðublaðið
talaði við Jóa í Stapa, sem er í und-
irbúningsnefnd hagyrðingamótsins,
og spurði hann um fyrri mót, dag-
skrána og dúllið.
„Menn úr Kvæðamannafélaginu
Iðunni sjá um mótið í ár, vegna þess
að það er haldið í Reykjavík, á Hótel
Sögu. í upphafi sáum við Heiðmar
Jónsson á Flúðum alfarið um þessi
mót, en svo var ákveðið að fara með
þau hringinn í kringum landið og
það er kosinn einn maður í hverjum
fjórðungi til að sjá um mótin," sagði
Jói í Stapa í samtali við Alþýðu-
blaðið. „Næsta ár sjá Vestfirðingar
um mótið, og svo koll af kolli.
Fyrsta mótið var þegar við komum
saman nokkrir menn á Skagaströnd,
ætli við höfum ekki verið 10 eða 20,
og þá var ákveðið að hittast á Hvera-
völlum að ári. Þá var okkur Heið-
mari falið að sjá um þetta áfram, og
það var eiginlega hugmynd frá mér
að fara með þetta á milli landsfjórð-
unga. Síðasta ár á Flúðum var svo
ákveðið að bæta Landnámi Ingólfs
við, eins og fimmta hjóli undir
vagni.“
Hvernig verður dagskráin á Hót-
el Sögu?
„Heiðursgestur verður Helgi Hálf-
danarson, sem heldur tölu, og svo
mun einhver segja frá stökunni.
Menn munu yrkjast á, það verða vís-
ur til að botna og efni sem menn eiga
að svara í bundnu máli. Þarna verður
gert svona hitt og annað sem hagyrð-
ingar gera sér til gamans. Þetta er
hugsað til að stilla saman þennan lýð
úr öllum landshomum, hugsjónin er
að láta hagyrðinga hittast og stilla
saman strengi sína. Mótið hefur farið
stækkandi; í fyrra komu hátt í tvö-
hundruð manns, og við búumst við
enn fleirum í ár. Svo verður dúllað.
Ég held það hafi ekki nema einn
maður verið þekktur fyrir þetta í
Tvær stökur eftir
Jóa í Stapa
I fyrri daga mætir menn
meitluðu bragi slynga,
og víst er bagan yndi enn
okkar hagyrðinga.
Vekja yndi ætíð, - nett
orð að binda saman.
Staka fyndin stuðlum sett,
stöðugt myndar gaman.
gamla daga: Gvendur dúllari, eða
Guðmundur Ámason frá Klasbarða í
Landeyjum, sem lést árið 1913. Það
hefur ekki verið dúllað í tugi ára, en
það var nokkuð sérstakt. Dúllinu var
náð inn á segulband, sennilega eftir
einhvern sem lærði það af Guð-
mundi. Ákveðinn maður hefur verið
að æfa sig að dúlla og ætlar að leyfa
okkur að heyra hvemig þetta hljóm-
aði. Ég veit ekki hver dúllarinn verð-
ur, þó ég hafi gmn um það er sá ekki
Hagyrðingurinn Jói i Stapa er einn
af forsvarsmönnum Hagyrðinga-
mótsins sem haldið verður í Land-
námi Ingólfs (Súlnasal Hótel Sögu)
laugardaginn 26. ágúst. „Þetta er
hugsað til að stilla saman þennan
lýð úr öllum iandshornum, hug-
sjónin er að láta hagyrðinga hittast
og stilla saman strengi sina," sagði
Jói í gær. A-mynd: E.ÓI.
nógu sterkur til að ég vilji nefna
nokkur nöfn. Sjálfur hef ég aldrei
heyrt dúllað, en þetta er víst nokkurs
konar laglína með ákveðnum hljóð-
um.“