Alþýðublaðið - 21.08.1995, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1995
Stettin
erfyrsta
skrefið
MiMðúival
afhellum
og steinum.
Mjöggottverð.
STÉTT
HELLUSTEYPA
HYRJARHOFÐI 8
112 REYKJAVÍK
SÍMI 577 1700 -FAX 577 1701
■ Tölvurisinn Microsoft ætlar á næstu mánuðum að sannfæra 70 r
fyrirtækisins um ágæti þess að skipta úr Windows 3.1 og DOS yfir
og skemmtilega Windows 95. Ættir þú að láta undan þrýstingnur
efla gömlu tölvuna með ærnum tilkostnaði eða fjárfesta í nýju trylii
Tölvufyrirtækin núa saman lófunum við tilhugsunina um væntanle
en á meðan segja sérfræðingarnir heppilegast að staldra við og fyl
nw*
Það var helst hægt að lýsa atburðin-
um sem magnaðri nálgun tölvufram-
leiðenda við vinnubrögð sem viðhöfð
eru í kringum risarokktónleika: Það
gerðist í síðasta mánuði að stórar
hjarðir aðdáenda komu sér makinda-
lega fyrir við innganginn að háskóla-
hölhnni í San Antonio löngu lyrir sýn-
ingaropnun. Andrúmsloftið var bland-
að eftirvæntingu og óvissu og þegar
dymar að höllinni voru loksins opnað-
ar stormuðu nær þijú þúsund mann-
eskjur inn og fundu sér sæti eða stæði.
En í stað þess að á sviðinu væm gítar-
ar, bassar, trommur, hljómborð,
míkrafónar og magnarar mátti sjá þar
ábúðarmiklar tölvur, lyklaborð, skjái
og geisladiskadrif.
Sýningin hófst með því, að tveir
snyrtilega klæddir og klipptir ungir
menn stigu uppá sviðið, tóku umsvifa-
laust til handanna og leiddu tölvubún-
aðinum gegnum fyrstu stigin. Annar
þeirra dró síðan fram geisladiskadrif
og tilkynnti hróðugur, að nú ætlaði
hann að tengja tækið við eina af PC-
tölvunum á örskotsstundu með aðeins
fáeinum músarsmellum. Loftið var
rafmagnað spennu og vitaskuld stóð
ungi maðurinn við orð sín. Áhorfend-
ur tiylltust af æsingi — og undmn.
fyrir bæði DOS og Windows 3.1 sem
saman státa af um það bil 70 milljón-
um notenda og bera uppi grundvallar-
starfsemi mikils meirihluta PC-tölva
veraldar.
Það skal því engan furða þótt mark-
aðsdeild Microsoft áætli að setja tæp-
lega sex og hálfan milljarð króna í að
kynna Windows 95. Þetta er sannköll-
uð bylting í tölvuheiminum og mark-
miðið er vitaskuld að sannfæra þessa
sjö tugi milljóna um að það sé þó-
nokkuð á sig leggjandi til að fara útí
þær dramatísku breytingar að koma
sér upp Windows 95 og kveðja DOS-
ið og Windows 3.1. Hvert skyldi svo
vera helsta sölumannsbragðið? Jú,
Windows 95 mun gera þér lífið mikl-
um mun léttara.
Og það er vissulega rétt hjá Micro-
soft að nýi hugbúnaðurinn mun gera
alla vinnu við PC-tölvumar þægilegri
— og skemmtilegri. En sé gægst bak-
við tjöldin og allt havaríið skoðað í
nærmynd er ekki ólíklegt að vísari
sannfærist um að affarsælast sé að
staldra við í nokkra mánuði til að sjá
hversu hreinn „gullkóði" Windows 95
er í raun og vem. Kostnaður tölvunot-
enda er síðan annar handleggur sem
klórað verður síðar í þessari umfjöll-
Windows 95 mun örugglega
gera þér Iffið léttara
San Antonio var síðasti viðkomu-
staðurinn á 23-borga sýningaferðalagi
bandariska tölvurisans Microsoft með
hugbúnaðinn Windows 95 sem nýtur
þess heiðurs að vera í langsamlega
umtalaðasta notendaviðmót og stýri-
kerfi sem enn hefur komið fram á
sjónarsviðið fyrir PC-tölvur; hugbún-
aður sem settur verður á markað um
allan heim í þessari viku. Windows 95
er stýrikerfi — kerfi skipana sem
stjómar gmndvallarstarfsemí tölvunn-
ar — og kemur algjörlega í staðinn
Aðaltölur:
Vinníngstölur
19. ágúst 1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
0 7.826.277
a+4af5 5 117.330
04af5 109 9.280
HT.,b 4.321 540
BÓNUSTALA:
34
Heildarupphæð þessa viku
kr. 11.757.787
UPPLÝSINGAB, SlMSVARI 91- 6815 11
LUKKULlNA 99 10 00 - TEXTAVARP 4S1
Windows 95 mun slá í gegn,
hvað sem hver segir
Hvað svosem þið ákveðið að gera
eftir að hafa lesið þessi orð —- og í
kjölfarið kynnt ykkur málið nánar á
öðmm vígstöðvum — þá er það ör-
uggt mál að Windows 95 slær í gegn.
I árslok mun Microsoft þannig hafa
lokið við að senda frá sér að minnsta
kosti tuttugu milljónir eintaka af nýja
hugbúnaðinum.
Nokkuð sem kalla má „forsýningu“
að hætti kvikmyndamógúla hefur þeg-
ar átt sér stað á risavaxinn skala og
heil milljón manna er nú þegar með
eintök af Windows 95 sér undurs og
dundurs — í boði markaðs- og kynn-
ingardeildar Microsoft — og sjálfsagt
hafa tugir ef ekki hundruð þúsunda til
viðbótar nælt sér í eintök eftir vafa-
sömum leiðum: ræningjaútgáfur
dúkka jafnt upp í Kópavogi sem Köln
þessar vikumar.
Sem dæmi um hversu gríðarleg að
vöxtum þessi milljón manna forsýning
er, þá skal það nefnt í framhjáhlaupi
að fáir ef einhveijir hugbúnaðarfram-
leiðendur öðlast nokkum tíma þá gleði
að sjá afurðir sínar seljast í svo miklu
magni á hinum fijálsa markaði. Jesse
Berst, yfirritstjóri tölvuiðnaðarfrétta-
bréfsins Windows Watcher, segir um
Windows 95-æðið: „Þetta er jafngildi
tölvuiðnaðarins við réttarhöldin yfir
O J. Simpson."
Windows 95 er aðlaðandi,
einfalt og auðskilið
Windows 95 ber í dag með sér and-
blæ sigurvegarans, en ferðalagið að
þessum tímapunkti hefur verið langt,
erfitt og þreytandi fyrir Microsoft.
Fyrst var það MS-DOS sem kynnt
var til sögunnar í upphafi síðasta ára-
tugar: þungbúið, hægfara og leyndar-
dómsfúllar skipanir sem stjómuðu for-
ritum.
Síðan gerðist það árið 1985 að
Microsoft sendi frá sér fyrstu útgáfu
Windows sem var lyrsta klórið í áttina
að því að skapa myndrænt notenda-
viðmót — viðmót sem notar myndir
frekar en orð og var byggt beint ofaná
DOS-gmnninn. Þessi útgáfa var stór-
slys frá upphafi til enda — illa hönn-
uð, hmndi í sífellu og eyðilagði þarm-
eð alla vinnu sem var í gangi ásamt
þeim leiðindaágalla að þvísem næst
enginn hugbúnaður var fáanlegur til
að vinna með í þessu nýja umhverfi.
Eftir 1985-slysið gerðist síðan
ósköp fátt fyrren árið 1990 að
Windows 3.0 kom á markaðinn og
steig nokkur skref í áttina til hins
myndræna notendaviðmóts sem Mac-
intosh-tölvan frá Apple hafði þá lengi
státað af. Windows 3.1 kom stuttu
seinna og gekk ögn lengra.
Windows 95 er svo líknar- eða náð-
arhöggið sem Microsoft greiðir keppi-
nautum sínum og það næsta sem
nokkurt annað tölvufyrirtæki — að
frátöidu Apple — hefur komist í því
að skapa hugvitsamt, þægilegt, skil-
virkt og skemmtilegt notendaviðmót.
Windows 95 er aðlaðandi, einfalt og
auðskilið.
hátt verið hægt að ráðskast til og
með táknmyndir í stað þess að leggja
flóknar orðaskipanir á minnið; tákn-
myndimar er hægt að draga til og frá,
skipuleggja í möppur, myndræn
skjalasöfn eða fleygja í ruslið; nöfti á
skjölum geta ennfremur verið óendan-
lega löng og flókin á Mac-anum á
meðan armir Windows-notendur
verða láta sér átta-stafa-nöfrdn duga.
Enn eitt sem PC-notendum verður
gert kleift með Windows 95 er að vera
með nokkur forrit í gangi samtímis á
skjánum — þetta er það sem kallað er
fjölkeyrsla eða multitasking og Mac-
inn hefur boðið uppá óralengi. Ofaná
alltsaman er búið að lofa okkur því að
uppsetning til dæmis prentara og
geisladiskadrifa við tölvur sem keyra
Windows 95 muni taka nokkrar mín-
útur og örfáa músarsmelli í stað heillar
helgar eða viku sem fer til ónýtis f
hvert skipti sem maður þarf að gera
slíkt með Windows 3.1.
Windows 95 er tröllvaxinn
hugbúnaður í öllum skilningi
Já, Windows 95 er tröllvaxinn hug-
búnaður í öllum skilningi. Það tók vel
á sjötta hundrað manns rúmlega þrjú
ár að byggja það og prófa. Til viðbótar
þeim þúsundum stunda sem Microsoft
hefur eytt í að reyna búnaðinn og losa
hann við alla hugsanlega galla hefur
fyrirtækið sett hartnær tvöþúsund
stundir í búnaðinn í svokölluðum
„notendasölum" sínum. Þar sátu til-
raunadýr af homo sapiens stofni í
nokkurskonar yfirheyrsluherbergi með
gegnsæjum speglum, fiktuðu í búnað-
inum, prófuðu sig áfram og allt var
þetta samviskusamlega skráð niður af
tæknimönnum. Frá þessum raunum
lærðu Microsoft-séníin dýrmæta lexíu:
Fólk hefur „sterka tilhneigingu" til
að falla vel við notendaviðmót einsog
þau sem Macintosh býður uppá — en
það var fyrsta velheppnaða almenn-
ingstölvan með mús er maður ýtir
áfram, bendir með og smellir á tákn-
myndir til að ræsa forrit. Á Mac-anum
hefur þannig um langt árabil á beinan
Hafa of margir sætt sig við
Windows 3.1, eða...
En munu allir verða viljugir til að
skipta yfir til Windows 95? Spádómar
um það eru beggja blands.
Til að bregðast við æðinu og hugs-
anlegum skorti á eintökum hefur fólk
um allan heim til dæmis brugðið á það
ráð að panta hugbúnaðinn fyrirfram;
það sama og gerist þegar vinsælar
kvikmyndir em væntanlegar á mynd-
bandaleigur. Nýverið var þannig hald-
in tveggja klukkustunda kynning á
Windows 95 á QVC sjónvarpsmark-
aðsrásinni og inn streymdu rúmlega
tuttugu þúsund pantanir.
En efasemdaraddirnar eru sömu-
leiðis háværar og vegna — að því er
virtist á tímabili — nær óyfirstígan-
legra framleiðsluörðugleika Microsoft
hafa fáar markaðsvörur á síðustu árum
lent í jafn öflugri háðshakkavél: Hvað
stendur talan 95 fyrir? Gallana sem þú
uppgötvar á fyrsta hálftímanum;
Klukkustundirnar sem það tekur að
læra á kerfið; Fjölda diskanna sem
hugbúnaðurinn kemur á; Blaðsíðumar
í handbókinni sem fylgir búnaðinum;
Heimsóknimar á tölvuverkstæðið.
Ennfremur ber ekki að vanmeta þá
staðreynd að eftir áralangt streð, púl
og pirring sem fylgir slagnum við hina
fjölmörgu ágalla Windows 3.1 hafa
býsna margir samið fúllyndislegan
frið við guð, menn og hugbúnað: ein-
faldlega sætt sig við draslið. Þarafleið-
andi eru ófáir PC-notendur eldri
Windows-útgáfa ekki allskostar sáttir
við að þurfa að skipta um hugbúnað
og fá sér Windows 95 — loksins þeg-
ar þeir höfðu lært á þann gamla.
Fyrstu útgáfur nýs hugbúnaðar eru
aukþess ávallt varasamar. Það vita
margir tölvunotendur af biturri