Alþýðublaðið - 21.08.1995, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1995
■ Stefán Hrafn Hagalín er sem fyrr á slóðum ódauðlegra tilvitnana
og í gær fór hann í gullmolaleit um bókina „Small talk, big names" eftir Myles Palmer;
j makalaust rit sem spannar 40 ára tilvitnanasögu rokksins
„Eg er afskaplega varfær-
inn með dóp og hef aldrei
blánað upp í baðherbergi
ejnhvers annars"
- Ég lít á það sem hámark dónaskaparins,
sagði Keith Richards, hinn goðsagnakenndi gítarleikari
Rolling Stones, um eftirlætistómstundaiðiu sína.
Ég er jafnheimskur
og hver annar.
Van Morrison, 1989
Þessi Shakespeare var ekkert smá
flottur náungi. Hvað œtli honum
hefði fundist um plöturnar mínar?
Jerry Lee Lewis eftir að hafa leikið
Jagó í rokksöngleik, 1966
Það voru þrjú salemi þama
til að þjóna hálfri milljón manna.
Aspríntöflum var prangað innáfólk
sem vímugjafa. Yfirgefnir bílar
þöktu fimmtán kílómetra kafla á
hraðbrautinni. Bílar lágu á hvolfi
'í ánni. Það var einsog einhver hefði
sagt: „Þið hafið tíu sekúndur til að
komast útúr borginni áður en
hún verður lögð í rúst.
Ozzie Ozbourne eftir rokkhátíðina
miklu í Indiana, 1972
Sviti er það samafyrir
Bruce Springsteen og andlitsfarði
fyrir Boy George.
The Independent, 1988
Að verða rokkstjama einn
góðan veðurdag er einsog að fara
í kynskiptiaðgerð. Fólk starir á þig,
eltir niður götuna og hrópar
athugasemdir: það reynir við þig
og þuklar á þér. Nú veit ég hvemig
tilfinning það er að vera kona.
Bono í U2, 1992
Auðvitað hafa trúbadorar
samfarir oftar en aðrir krakkar
í menntaskóla... En maður þurfti
að vísu að scetta sig við að gera
það seinnipart dags — á gólfinu
í mötuneytinu.
David Crosby ( Crosby, Stills
& Nash (& YoUng), 1974
Eg held að kvennafar sé afar
heilsusamleg iðja — maður getur
aldreifengið ofstóran skammt
afdömum. Það er hœgt að sprauta
sig til dauða með dópi, en maður
getur ekki notið ásta til dauða...
Líkaminn hœttir að virka
löngu fyrr.
Bill Wyman í Rolling Stones
Og hvað kynjamisréttið varðar þá
skal það tekiðfram, að ég hata kon-
ur. Og hversvegna þarfég yfirhöfuð
að hafa ástæðu fyrir því?
Iggy Pop, 1979
Ég sver það: Ég myndi
viðurkenna það efég vœri lesbía...
En mér hefur bara aldreifallið við
að deila rúminu mínu með annarri
konu, ég sver það til guðs. Og hvað
varðar Robyn... hún er vinur minn.
Eg hefþekkt hana síðan í mennta-
skóla. Hún er góður vinur minn.
En... nei, ég er ekki lesbía.
Eg hefaldrei verið lesbía.
Whitney Houston, 1992
Best varðveitta leyndarmálið
ítónlistarbransanum? George
Michael er ekki hommi!
Boy George, 1990
Það er fjögur kyn í
þessari borg: Karlar, Konur,
Kynhverfir og Söngkonur.
Trúbadorinn Judy Henske
í samtali við Lindu Ronstadt
Ég þarfstöðugt að standa ístríði
viðfólk svo það hœtti að senda
stóra og áberandi bifreiðar til að
sœkja mig. Eg hefekki hugmynd um
afhverju þetta lið heldur að ég vilji
rúnta um í risastórum lim.
Sinead O'Connor, 1990
Hvað varðar sjálfan mig, þá er
helsti kosturinn við það að vera
svartur Iri, að ég nœ í mér ífleiri
gellur en hinir strákamir.
Phil Lynott í Thin Lizzy
Ég hefmök við 25 þúsund mismun-
andi manneskjur þegar ég er uppá
sviðinu — og svo fer ég heim.
Janis Joplin
Býsna mörg lög sem eru í dulbún-
ingi vemmilegrar rómantíkur hafa
mestmegnis samfarir á bakvið sig.
Randy Newman
Ég er að spara mér bassaleikarann
þangað til í Omaha.
Janis Joplin
Eg er afskaplega varfœrinn með dóp
og aldrei blánað upp í baðherbergi
einhvers annars. Ég lít á það
sem hámark dónaskaparins.
Keith Richards í Rolling Stones
Ég er ánægður með að það voru
engin eiturlyfi umferð þegar ég var
i menntaskóla á sjötta áratugnum.
Annars vœri ég vqfalaust ennþá
í menntaskóla.
Joe Walsh
/ byrjun sjötta áratugarins
- löngu áður en San Francisco svo
mikið sem heyrði orðið skynvillulyf
- var Jerry Lee handtekinn í
bænum Grand Prairie í Texas
ásamt hljómsveit sinni, The Memp-
his Beat, og ákærðurfyrir að
hafa sjöhundruð hylki afamfetamíni
ífórum sínum; tvöhundruð vom
ætluð fyrir hljómsveitirui, fimm-
hundruð fyrir Jerry Lee.
NickTosches, 1985
Enskir hippar eru jafii öflug
ógnun í augum valdakerfisins og
fólk sem setur útlendar myntir í
gasmœla á heimilum sínutn.
David Widgery
Almenning hungrar í að fylgjast
rneð hæfileikaríkum ungmennum
fremja sjálfsmorð.
Paul Simon í Simon & Garfunkel
Það er ég sem þarf áð deyja þegar
það er tími tilkominn fyrir mig að
deyja, svo leyfið mér að lifa lífinu
einsog mér sýnist henta best.
Jimi Hendrix
Eg gefRolling Stones svona
tvö ár til viðbótar.
Mick Jagger, 1964
Ég er ekki einangraður hellisbúi.
Þeir hjá Hortda höfðu samband við
mig og báðu mig um að auglýsa bíl-
ana stna og ég hugsaði með sjálfutn
mér: „ Ojæja, Miles Davis gerði
Honda-auglýsingu og ef þetta var
nógu gottfyrir Miles þá er það nógu
gott fyrir mig. “
Lou Reed, 1989
*
Það fyrirfinnst ekki sála
í öllum heiminutn sem getur
gert betri plötur en ég.
Phil Spector
Fyrst rífumst við allir og gerutn
síðan einsog ég segi.
Bono,1987
Hlustið á mig — mann sem veit
sínu viti: Joni Mitchell er álíka
hógvœr og Benito Mussolini.
David Crosby, 1974
Eg vil ekki hljóma einsog ég sé
rosalega góður með mig, en í alvöru
talað er ég fullkomlega sannfærður
utn að við höfum ekki stigið
feilspor í tuttugu ár.
Mike Rutherford í Genesis, 1989
Eg hef gengið gegnutn þetta allt-
saman. Eg hef verið strengjabrúð-
an, hálfvitinn, fáráðlingurinn, dóp-
istinn og komist alla leið hitigað til
að santia að ég er jafningi hvers
þess sem þú kærir þig að nefna.
Iggy Pop, 1979
Ég held að ég sé alveg á brún þess
að slá hrikalega t gegn. Mér finnst
ég jafn góður og Beethoven - eða
hver sem er afþessum stóru. Hins-
vegar verð ég að taka það skýrt
fram, að ég ber mig ekki saman við
Beethoven. Eg held einfaldlega að
ég sé fær um að gera allt það sem
hann varfær um.
Marvin Gaye, 1973
Efþetta vœru ögn frumstœðari tím-
ar þá væri nú þegar búið að brenna
tnig á báli. En ég býst svosem við að
þaðfinnist nægur tími til þess síðar.
Morrissey íThe Smiths, 1989
Mérfinnst lagatextar ekki tiltakan-
lega mikilvægir. Ég tnan að þegar
ég var mjög ungur — og ég er að
tala í alvöru — las ég greiti þarsem
Fats Dotnino sagði að maður ætti
aldrei að syngja textana mjög skýrt.
Þessi orð höfðu mikil áhrifá mig.
Mick Jagger, 1968
Mérfinnst ákaflega auðvelt
að semja texta. Ég hef alltaf sett
tíu prósent ofmikið af orðum ítext-
ana þarsem ég er sannfærður um
að fólk hlustar ekki nema á þriðja
til fjórða hvert orð.
Ray Davies, 1989
Ég er eina alvöru kyntáknið
í poppheimi samtímans.
lan McCulloch í Echo & the Bunnymen
„Ég fæddist tneð fætuma á undan
og hefrokkað síðan þá,“ segir hann
þér ef hann ergóðu skapi. Ættingjar
hans og vinir geta sagt þér tneira:
Jerry Lee Lewis getur drukkið og
dópað hvem einasta mann undir
borðið, slegið hvem sem er í rot,
bölvað hroðalegar en nokkur annar,
gert færustu skyttum skömm til í
skotfimi og haft samfarir oftar og
lengur en nokkur maður á lífi. Jerry
Lee Lewis er síðasti villti Banda-
ríkjamaðurinn, homo agrestis
atnericanus ultimus.
NickTosches, 1985
Strákamir vilja að þú
hættir í hljómsveitinni.
Bítlaframkvæmdastjórinn Brian Epstein
að reka Pete Best
Hefur það tekið þá tvö ár að
uppgötva að ég er ekki nœgilega
góður trommuleikari?
Bítlatrommuleikarinn Pete Best
Pete Best átti innan skamms eftir
að skapa sér tiafn sem lánlausasti
trommuleikari gjörvallrar rokksög-
unnar. Á nœstu 24 mánuðum höluðu
Bítlamir hátt í tvo milljarða króna í
kassann. Pete Best gerðist hinsveg-
ar bakari eftir að hann var rekinn
úr Bítlunum, vann sér inn þúsund-
kall á viku og giftist stúlku sem hét
Kathy og vann í kexdeildinni í
Woolworths-versluninni.
Peter Brown
Eg hef hitt þá. Yndislegir drengir.
Gjörsamlega hæfileikalausir.
Noel Coward um Bítlana.
John Lennon hafði djúpstœða óþol-
inmœði gagnvart bömum...
Hann var sjálfúr svo mikið bam,
að hann þoldi enga keppinauta.
Albert Goldman, 1988
Æðsti draumurflestrafelst t því að
aka um í risastórri límósínu, hafa
allar þær skvísur sem mann langar í
við höndina og verafær um að
kaupa hvað sem mann gimist.
Svona hefur þetta alltaf verið og
svotta mun þetta alltafvera. Hver sá
sem segir að lífinu sé einhvemveg-
inn öðruvísi háttað er hlandltaus.
Mick Jagger
New York er New York er New
York Maður hefur ekki slegið al-
mennilega í gegn fyrren maður hef-
ur slegið ígegn þar. Og Rolling
Stones laða að sér fleiri fylgjendur-
áhorfendur og áheyrendur - en
nokkrir aðrir í mannkynssögunni.
Aðeins einn annar náungi hefur
komist með tærnar þarsem þeir hafa
hælana - Ghandi!
Bandaríski tónleikahaldarinn
Bill Graham, 1972
Eg er orðinn drulluleiður á að spila
áfínum stöðum einsog Madisott
Square Garden. Eg vil fara spila t
smábæjunum. Eg er hundfúll yfir
því að þurfa sífellt að spila á stöðum
þarsem allir tónleikagestimir lita
jafit vel eða betur út en ég.
Keith Richards, 1973
Rolling Stones er hin fullkomna
rokkhljómsveit — þeim er skítsama
um allt og alla.
Elton John
Ég held að rokkið snúist alltof
mikið um hégótna og léttúð. Allra-
helst œtti það að snúast utn alvar-
lega hluti á borð við bleik satín-
jakkaföt og hvíta sokka.
Mick Jagger
íraun og veru er ég sannfærður
um að það sé affarsœlast fyrir
tónlistarmenn að vera einir á báti.
Fjölskyldulíf er dauði
tónlistarmannsins.
Mick Jagger, 1974
Égfíla Bítlana ekki. Ég er '.
hinsvegar ekki að segja að ég
hafi aldreifílað nokkuð sem þeir
hafa gert eða að ég hafi ekkert orð-
iðfyrir áhrifumfrá þeim, þvt það er
ómögulegt að verða ekkifyrir
áhrifutnfrá Bítlunum.
Mick Jagger, 1974
Þegar yngsta dóttir minfæddist
kom fæðingarlœknirinn uppað mér (
myrkrinu - strax eftir fœðinguna -
og hélt á lofti fitnm Stones-plötum
svo ég gæti áritað þær. Þetta er
klikkaður heimur.
Keith Richards, 1991
Dylan var, líktog mörg þeirra
ungmenna sem dáðust að honum,
truflaður, óhefðbundinn, uppreisn-
argjam og ringlaður flóttamaður
í innanríkisútlegð frá auðlegð
sem hann hefði getaðfengið
en vildi ekki.
„Vinstrifræðingurinn"
Lawrence Goldman, 1968
Meira að segja Bob Dylan
lemur eiginkonu Sítia.
Hugh Cornwell í The Stranglers að verja
kynjamisréttishvetjandi texta sina
Við lendum í sömu rifrildunum nú
og við lentum í þegar við vorutnfá-
tœkir. Það eina sem hefur breyst er
að „Þetta er minn tómatur sem þú
ert að borða!" er orðið að „Þetta er
mín límósína, drullaðu þér út!"
Alice Cooper
Ég er alls ekkert móðguð því
ég veit að ég er ekki heimsk Ijóska.
Eg veit líka að ég er ekki Ijóska.
Dolly Parton
Efég á að segja sannleikann
þá verð ég að viðurkenna að ífyrsta
skiptið sem ég sá Cher þá hélt ég
að hún vœri hóra.
Ronnie Spector