Alþýðublaðið - 21.08.1995, Qupperneq 8
>!*
'wsmu/
4 - 8 farþega og hjólastólabflar
mUBLffll
'mwFiu/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Þriðjudagur 22. ágúst 1995
125. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Glöggt er gests augað
Við erum þjóðin sem tekur vonda
heimspekinga framyfir góða pípara
Englendingurinn Richard Sale hefur heimsótt ísland nokkrum sinnum og er afskaplega hrifinn af landi og þjóð. Hann hefur skrifað nokkrar
ferðabækur, meðal annars bókina Xenophobes guide to the lcelanders - íslendingahandbók fyrir útiendingahatara, þar sem hann miðlar
þekkingu sinni á íslendingum. Guðrún Vilmundardóttirglöggvaði sig í gær á nokkrum stuttum úrvalsköflum úr bókinni.
„í mörg ár horfðu íslendingar á þessa [Evrópusöngvalkeppni fullir öfund-
ar og afbrýði. Þeir vildu fá að vera með en gerðu sér grein fyrir að þeirra
lög væru svo miklu betri að þeir hlytu að vinna ... Ósigurinn var menn-
ingarlegt áfall, sem tók nokkur ár (og margar samsæriskenningar) að
komast yfir."
Sjálfsmyndin
fslendingar eru afskaplega ánægðir
með sig. Þeir eru afkomendur víkinga,
sem voru rómaðir fyrir styrk, auð, feg-
urð og karlmennsku. Sú staðreynd að
víkingar eru líka frægir fyrir nauðgan-
ir og ofstopa er ekki í hávegum höfð,
frekar en undarleg viðhorf þeirra til
kvenna.
Sem sönnun fyrir yfirburðum sínum
benda íslendingar gjaman á að ísland
sé jú nafli alheimsins. Ef þú dregur þá
fullyrðingu í efa þarftu ekki annað en
að líta í íslendingasögumar, mestu
bókmenntaafrek allra tíma, þar sem
þessu sjónarmiði er stöðugt haldið á
lofti í bland við langar hetjulegar ffá-
sagnir af morðum og hefndum.
Islendingar líta á sig sem menntaða
og siðaða þjóð og em afskaplega stolt-
ir af listrænni arfleifð sinni og sjálf-
stæðisþrá - þessi atriði koma alltaf
fram í ræðum Vigdísar Finnboga-
dóttur kvenforseta fslands.
EðH íslendingsins
íslendingur hefur unnið titilinn
Sterkasti maður heims, og það hafa
verið tvær íslenskar Ungfrú alheimur.
Frá þessu litla landi hafa líka komið
kostulega margir stórmeistarar í skák.
Þessar staðreyndir efla þá trú Islend-
inga að þeir séu sterkir, fallegir og
gáfaðir.
Stéttaskipting
Þar sem konungar íslands voru
danskir er ekki til neinn aðall á ís-
landi. Eftir að íslendingar áttuðu sig á
því að í öllum samfélögum Evrópu er
stéttaskipting, tóku nokkrar „stéttir“
að myndast á íslandi.
Áhugaverð er stéttin sem styður sig
við ættgöfgi. Fáar fjölskyldur geta
rakið ættir sínar lengra en nokkrar'
kynslóðir aftur í tímann en það kemur
ekki í veg fyrir vaxandi vinsældir ætt-
artrjáa sem ná allt aftur til farþega
fyrstu langskipanna sem rak á syðstu
íjörur íslands.
Menntastéttin er vaxandi; orðið
„ómenntaður" fær sífellt neikvæðari
merkingu. Það er undarlegt í ljósi þess
að íslendingar em mjög tortryggnir í
garð menntunar. Sérstaklega em hag-
nýtar námsgreinar eins og raunvísindi,
verkffæði og tungumál hmar illu auga.
Hins vegar em Islendingar hrifnir af
læknum og lögfræðingum, en heim-
spekingar em þó í mestu uppáhaldi.
Vondur heimspekingur er hærra settur
í þjóðfélaginu heldur en góður pípari -
það ætti því ekki að koma á óvart að
íslenskar kenningar em oft jafn hrip-
lekar og íslenskar pípur.
Still
íslendingar hafa stfl. Þeir búa við
loftslag sem er best lýst sem ömur-
legu; en þeir láta það ekki hindra sig í
að klæða sig upp í nýjustu tísku. Ef
tískan heimtar opna sandala skulu þeir
settir á fætuma; jafnvel í metradjúpum
snjó.
Islendingar em uppteknir af híbýl-
um sínum. Þeir eiga alltaf nýjustu
tækin og tólin - þó er það kannski
frekar spuming um að vera ekki eftir-
bátur nágrannans en spuming um stíl.
Fjármál
íslendingar lifa á kreditkortum og
lánsfé. Næst á eftir bílnum og raf-
magnstækjunum er kreditkortið ís-
lendingnum kærast. Kortin er hægt að
nota á öllum hótelum, í öllum verslun-
um og jafnvel í litlum sjoppum. Ef þú
býður afgreiðslumanni reiðufé - þó
það sé tU að borga eina tannkremstúpu
- gengur hann út frá því að þú hafir
hvergi lánstraust. Hann vekur athygli
annarra afgreiðslumanna á þér og þeir
fylgjast grannt með þér - ef ske kynni
að þú hnuplaðir einhveiju.
Stjórnmál
Núverandi forsætisráðherra [1994]
er draumur skopteiknarans. Hann er
formaður Sjálfstæðisflokksins, flokks-
ins sem hefur flest þingsæti og situr í
hóflega hægrisinnaðri ríkisstjóm með
Jafnaðarmannaflokknum. Hann er lít-
ill og hnöttóttur með brúsk af kmlluðu
hári. Nýleg villimannaárás lét að því
liggja að hárið og visst dökkt yfirlit
væri hægt að rekja til áhrifa frá Karab-
íahafmu. Þessu var harðlega mótmælt
og ættartré sem náði aftur til 9. aldar
var opinberað til að kveða niður orð-
róminn.
Júróvisjón
Annars staðar í Evrópu er í besta
falli litið á söngvakeppni sjónvarps-
stöðvanna sem brandara - í versta fafli
vondan brandara. í mörg ár horfðu fs-
lendingar á þessa keppni fullir öfundar
og afbrýði. Þeir vildu fá að vera með
en gerðu sér grein fyrir að þeirra lög
væm svo miklu betri að þeir hlytu að
vinna - þess vegna vildu hinir ekki
leyfa þeim að vera með fyrr en eftir
dúk og disk. Allir vom vissir um að
ísland myndi sigra keppnina; dagblöð
gerðu sér mat úr því og kvöldið sem
keppnin fór ffam vom allar götur auð-
ar; fólk var fyrir framan sjónvarpið til
að fylgjast með óumflýjanlegum sigr-
inum. Ósigurinn var menningarlegt
áfall, sem tók nokkur ár (og margar
samsæriskenningar) að komast yfir.
Nú hafa íslendingar sama álit á
keppninni og aðrir Evrópubúar. Ef
Norðmenn einokuðu ekki síðasta sæt-
ið myndu íslendingar ömgglega telja
að það væri eina góða sætið í jafn lág-
kúrulegri keppni.
Kvenréttindi
íslenskar konur em viljasterkar og
sjálfstæðar. Þessir eiginleikar eiga ræt-
ur að rekja til veiðimenningarinnar,
þegar konur ráku búið og stjórnuðu
með harðri hendi á meðan þær biðu
eftir að mennimir kæmu af sjónum;
og oft komu þeir ekki.
Úr því að konur hafa haldið styrk
sínum og sjálfstæði er htið á kvenrétt-
indabaráttu sem skref aftur á bak; af
hverju að tala um jafnrétti þegar þú
nýtur yfirburða?
Næturlíf
íslendingar em mikið fyrir það að
skemmta sér. Eftir að hafa þurft að
hafa ofan af fyrir sér í aldaraðir inni-
lokaðir í torfbæjum langa dimma vet-
ur hafa þeir stöðugt þörf fyrir félags-
skap. Fyrir þá sem á annað borð
drekka áfengi byrjar helgin heima á
föstudagseftirmiðdegi. Heima, vegna
þess að það er ódýrara að drekka þar
heldur en á barnum. Reglan er þess
vegna sú að heila í sig heima við og
líta svo út til að ljúka þessu af í hópi
nokkurra vina.
Áfengi
íslendingar drekka í þeim eina
ásetningi að verða fullir - og það vilja
þeir gera með sem minnstum fjárútlát-
um. Ef það er 10% ódýrara að drekka
sig fullan á gini en viskíi, drekka þeir
gin. Ef þú spyrð hvort bragðið skipti
einhveiju máli líta þeir á þig eins og
þú sért bilaður; hvað kemur það mál-
inu við? Það er erfitt að ímynda sér
hvað gerðist ef til dæmis bjórinn væri
ódýrari - er hægt að sjá mun á því
þegar einhver hefúr drukkið of mikið
af bjór á fimmhundmðkall og því að
hann hafi dmkkið of mikið af bjór á
þijúhundmðkall?
Dans
Dans var bannaður á íslandi undir
stjóm Dana sem trúðu því að mikinn
fjölda óskilgetinna bama mætti rekja
til dansskemmtana. Heimastjómin af-
létti banninu því Islendingar, sem em
gáfaðri en Danir, höfðu komist að því
að dansinn væri ekki ástæðan...
Glæpur og refsing
Sú saga er sögð að hópur manna
hafi setið að snæðingi á veitingahúsi í
Reykjavík þegar fyllibytta stal frakka
eins þeirra úr fatahenginu. Mennimir
sáu til bvttunnar og eltu hana út, náðu
þjófinum og frakkanum, stoppuðu
næsta lögreglubíl og sá sem átti frakk-
ann fór með á stöðina til að fylla út
viðeigandi eyðublöð. Þegar því var
lokið spurði maðurinn hvað yrði um
fyllibyttuna. „Ja,“ sagði lögreglu-
þjónninn, „vilt þú fara inn í klefann og
lúskra á honum?“ „Ertu ffá þér,“ svar-
aði frakkaeigandinn, „hann er helm-
ingi stærri en ég!“ „Það er rétt,“ segir
lögregluþjónninn, „viltu að við fömm
inn og þreytum hann svolítið fyrst?“
Allir íslendingar myndu auðvitað
segja söguna ósanna - þó aðeins þegar
þeir væm búnir að segja hana. En hún
lýsir þó íslensku réttlæti sem á rætur
sínar að rekja í gömlu víkingahug-
myndina um að enginn fái umflúið ör-
lög sín.
Leikir
í þekktri íslenskri leikjabók er talað
um skemmtilegan fjölskylduleik sem
felst í því að einn leggst á gólfið með
tíkall á nefinu en hinir standa í kring
og hlæja að grettunum þegar hann
reynir að koma peningnum burt án
þess að nota hendumar. Annar frægur
leikur er boðhlaup þar sem fólk skipt-
ist á eggjum sem það heldur á í skeið í
munninum.
Engin fúrða að íslendingar hafi ver-
ið hamingjusamir þegar sjónvarpið
kom til sögunnar. ■
Einar Már Guðmundsson og Birgitta Jónsdóttir koma fram á Öháðri
listahátíð í Iðnó í kvöld. A-myndir: E.ÓI.
Óháð listahátíð í kvöld
Einar Már, Anna Borg
og Geir Rafnsson...
- bókmennta og tónlistarkvöld
hefst klukkan 20:30 í Iðnó.
Óháð listahátíð opnaði á föstudag-
inn, á afmælisdegi Reykjavíkurborg-
ar, með myndlistarsýningum í Iðnó
og í galleríum víðsvegar um miðbæ-
inn. I kvöld klukkan 20:30 verður
bókmennta og tónlistarkvöld í Iðnó.
Einar Már Guðmundsson rithöf-
undur les upp úr verkum sínum, Lár-
us Már flytur ffumsamin ljóð og les
upp úr þýðingum sínum úr finnsku
og sænsku. Þórarinn Torfason og
Omar Sigurjónsson lesa eigin ljóð,
Anna Elísabet Borg leikkona les
upp úr Hringadróttins sögu og Birg-
itta Jónsdóttir upp úr Snorra-Eddu.
Geir Rafnsson og Einar Kristján
Einarsson flytja tónverk fyrir gítar
og slagverk eftir Áskel Másson og
söngkonan Rannveig Sif Sigurðar-
dóttir frumflytur Bamalög í gamni
og alvöru eftir Elínu Gunnlaugs-
dóttur.